Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 18. JANÚAR 2000 5 W MINNINGAR fjall og útilegur á góðum gæðingum, Glaum, Gabríel og Svallaranum, sem seint gleymast. Svo liðu árin og ég flyt til Horna- fjarðar, og nokkrum árum síðar flyt- ur Þórir ásamt Olgu Sigurðardóttur mágkonu minni og Cillu litlu austur líka og við urðum nágrannar á Höfn. Þar eignuðust þau Kristjönu og Matthías og þar ólust bömin okkar upp saman líkt og við Þórir gerðum forðum. Þau fluttu suður til Reykja- víkur og keyptu þar Höfðagrill sem þau ráku bæði ásamt börnum sínum og lögðu alla sína krafta í að gera það að góðu veitingahúsi og tóku að sér veislur og mannfagnaði og var aldrei skorið við nögl. Þar til Þórir veiktist fyrir rúmu ári. Hér læt ég staðar numið og kveð góðan félaga sem er kominn þangað sem við öll förum að lokum. Við ykk- ur, kæra fjölskylda, get ég lítið sag- ten þegar missirinn og tómið leggj- ast yfir ykkur og eitthvað bjátar á þá staldrið aðeins við og hugsið um það sem Þórir sagði í ræðu sem hann hélt í brúðkaupi þeirra Cillu og Helga, en innihald hennar var á þá leið að trúa og treysta á sjálfan sig og heiðarleik- ann. Ég og mín fjölskylda biðjum al- góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Viðar, Svanhvít, Sigurbjörg, María, Sævar Björn, Anna og Anna Jóna. Með þessum orðum langar okkur að minnast hjartkærs vinar okkar Þóris S. Matthíassonar sem nú hefur fengið hvíldina. A þessum degi rifj- ast upp margar minningar.Við höf- um haldið vinskap við þau hjón í ein 23 ár þrátt fyrir ungan aldur minn. Ég var nefnilega ekki orðin átta ára þegar ég fyrst kynntist Olgu og gekk hún þá með fyrsta bam þeirra hjóna, hana Cillu. Ekki minnkaði það áhuga minn á Olgu og var ég þar tíður gest- ur og beið spennt eftir því að barnið fæddist. Eftir það settist ég næstum því að hjá þeim. Hjá Þóri, Olgu og litlu Cillu fannst mér gott og gaman að vera. AUar góðu stundirnar sem við áttum saman í Vesturberginu, hvort sem var heima hjá þeim eða hjá okkur í næstu íbúð, lifa í minn- ingunni. Við urðum þess aðnjótandi að fá að heimsækja þau á Höfn og þá hafði fjölskyldan stækkað, því Kidda og Matti höfðu bæst í hópinn, en í þess- ari ferð var það í fyrsta og eina skipt- ið sem ég borðaði á hóteli þar sem kokkurinn kom sjálfur í fullum skrúða og spurði hvað mætti bjóða mér og framreiddi svo það sem beðið var um, en auðvitað var það Þórir Fyrir það þökkum við öll, fjöl- skyldan okkar. Bárður var maður birtunnar. Ég sé hann fyrir mér, léttstígan og bjartleitan, við hið Gullna hlið. Þar verður tekið vel á móti þessum ljúfa höfðingja. Þorgerður Ingólfsdóttir. Margar góðar minningar og dýr- mætar koma upp í huga okkar við andlát Bái'ðar ísleifssonar, þess mæta manns. Þau hjón, Unnur og Bárður, voru sannkallaðir örlaga- valdar í lífi okkar. Þegar við giftum okkur byrjuðum við búskap á heimili þeirra á Reynimel og nokkru síðar útveguðu þau okkur leiguíbúð í næsta húsi. Seinna fengum við lóð í smáíbúðahverfi. Teiknaði Bárður húsið og gaf okkur teikninguna að húsinu og vai' okkur á margan hátt til aðstoðar við bygginguna. Tíu ár- um seinna, þegar bætt var við húsið endurtók sagan sig. Fyrir þetta og margt fleira sem við áttum saman að sælda á langri vegferð viljum við að leiðarlokum þakka. Á þau löngu kynni og samferð alla féll aldrei neinn skuggi. Genginn er sannur heiðursmaður, sem mátti ekki vamm sitt vita og var þekktur fyrir alúð, heiðarleika og vandvirkni í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og eru það góð eftir- mæli sérhvers manns. Blessuð sé minning hans. Ilulda og Oðinn. sem var kokkurinn. Eftir að fjölskyldan fluttist suður höfum við búið í sama hverfi og átt margar góðar stundir saman, t.d. í stórveislunni sem þau héldu mér þegar ég varð 25 ára. Það lýsir þeim báðum best. Með söknuð í hjarta kveðjum við vin okkar. Elsku Olga, Cilla, Helgi, Alda Ma- ría, Kidda, David, Matti og aðrii' aðstandendur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að gefa ykkur styrk. Élísabet og Katrín (Katý). Ástarfaðir himinhæða, heyr þú bama þinna kvak, ennídagogalladaga í þinn náðar faðm mig tak. (Þýð. Stgr. Thorst.) Mig langar með hjálp mömmu og pabba að þakka þér fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman, elsku afi minn, þar sem ég var hjá ykkur ömmu flesta daga. Eftir að við fluttum kom ég og kúrði hjá ykkur alla morgna og svo lékum við okkur saman á gólfinu eftir hádegi. Ég veit að þetta voru miklar gleðistundir fyrir þig og við nutum þess öll að vera saman dag hvern. Við biðjum góðan Guð að styrkja Olgu ömmu, Kiddu, Daouda, Matta og okkur öll. Guð geymi þig, elsku afi. Þín Alda María. Frændi minn og vinur, Þórir Sím- on Matthíasson matreiðslumeistari, er látinn langt um aldur fram og verður útför hans frá Seljakirkju í dag. Þar sem ég get ekki kvatt hann þar, langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Þórir var var sonur Matthíasar Helgasonar sjómanns og verkamanns frá Grímsey og konu hans Cecilíu Heinsen frá Klakksvík í Færeyjum. Ekki þekki ég ætt Cecil- íu, en Matthías var sonur hjónanna á Borgum í Grímsey, þeirra Guðrúnar Sigfúsdóttur og Helga Olafssonar smiðs. Matthías sjötti í röðinni af 15 börnum þeirra hjóna, en Guðlaug móðir mín var tæpum tveimur árum eldri. Það var mÖtíl vinátta og náið samband milli móður minnar og Matthíasar og bjó hann um tíma í húsi hennar á Akranesi ásamt fjöl- skyldu sinni. Þar kynntist ég Þóri fyrst sem barni og höfum við þekkst síðan. Á yngri árum dvaldi hann flest sumui' hjá frændfólki í Klakksvík og tók hann miklu ástfóstri við Færeyj- ar og ferðaðist hann oft þangað, enda talaði hann málið sem innfæddur. Er ég frétti af andláti Bárðar ís- leifssonar arkitekts 6. jan sl. kom mér það ekki á óvart. Ég hafði fylgst með þessum mæta manni um nokkurra ára skeið. Bárður var listamaður á sínu sviði og allra manna hugljúfi er honum kynntust. Ég vil með orfáum orðum staldra við og þakka allar ánægjustundir, er ég naut með Bárði og Unni eigin- konu hans á þeirra heimili og með sameiginlegum vinum. Minningin um þær stundir ylja, því fátt er dýrmætara en slíkar minningar og verða þær því kærari eftir því sem árin líða. Bárður náði 94 ára aldri og var eftir því sem ég best veit óvenju hress til hins síðasta. Allir sem til þekktu höfðu miklar mætur á því mikla starfi sem Bárður vann sem arkitekt. Hann hlaut Riddarakross hinnar íslensku fálkorðu 1960 og Skálholts- orðuna 1963. Nú er jarðnesku lífi Bárðar lokið. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guðþérnúfylgi, hanns dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég sendi Unni, börnunnum og fjölskyldum þeiiTa mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Anna Hansen. Þórir hóf nám í matreiðslu árið 1969 og að loknu námi starfaði hann við iðn sína, bæði á veitingastöðum og mötuneytum, svo og á ýmsum fiski- og farskipum. Þórir giftist Olgu Sigurðardóttur frá Höfn í Homafirði árið 1976 og eignuðst þau þrjú börn.. Þau hófu búskap í Reykjavík, en fluttu til Hafnar í Hornafirði árið 1977. Þar bjuggu þau til ársins 1990 er þau fluttu til Reykjavíkur. Árið 1993 keyptu þau veitingastaðinn Höfða- grill sem þau ráku með miklum myndarbrag og við miklar vinsældar gesta sinna. Um mitt sl. ár seldu þau Höfðagrill vegna veikinda Þóris. Eftir að Þórir og fjölskylda hans fluttu til Reykjavíkur var samband mitt við þau hjón og börn þeirra náið og áttum við margar góðar stundir saman. Við ræddum oft um Grímsey og Færeyjar, en báðar þessar eyjar voru okkur hugleiknar. Við höfðum rætt um að fara saman til Grimseyj- ar á sl. sumri, en þangað hafði hann aldrei komið. Við hugðumst jafnvel ásamt fleirum að kanna möguleikana á því að eignast sumarhús í landi Borga, þar sem afi okkar og amma bjuggu lengst af með sinn stóra barnahóp. Af ferðinni til Grímseyjar varð ekki vegna veikinda Þóris. Ég minnist Þóris, sem góðs drengs, sem ég mat mikils. Hann var prúður, hæglátur og sérlega vandað- ur til orðs og æðis. Hann var mikill vinur vina sinna, frændrækinn og höfðingi heim að sækja. Þrátt fyrir rólegt yfirbragð var hann skemmti- legur í hópi vina enda hafði hann ríka kímnigáfu. Þórir og Olga voru alla tíðmjög samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau höfðu mikla ánægju af ferðalögum og ferðuðust mikið, bæði innanlands og utan. Ég sakna Þóris frænda míns og vinar og skarð hans er vandfyllt. Við hjónin og fjölskylda okkar þökkum honum samverustundirnar á liðnum árum. Við sendum Olgu, börnum þeirra og barnabarni, aldraðri móð- ur, systkinum hans og öðrum vanda- mönnum, samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar á ókomnum árum. Vertu sæll, kæri vinur og frændi, og hafðu hjartans þökk fyrir allar sam- verustundirnar og þína einlægu vin- áttu. Helgi Daníelsson. Nú þegar við erum rétt nýgengin inn í nýtt árþúsund með öllum þeim vonum og væntingum um enn meiri tækniframfarir og lausnir á sem flestum sviðum mannlífs var vinur okkar Þórir Matthíasson að kveðja þetta jarðlíf eftir harða baráttu og æðruleysi við illvígan sjúkdóm sem svo marga hefur lagt að velli, nýlega orðinn fimmtugur. Oft erum við minnt harkalega á fallvaltleik lífsins og það að dauðinn er hluti af lífinu. En einhvern veginn erum við aldrei undir það búin þegar hann ber að garði og fólk fellur frá í blóma lífsins. Nú er harmur kveðinn að fjölskyldu og vinum Þóris, en eftir sitja í hugum okkar bjartar minning- ar um góðan vin. Þórir var lærður matsveinn frá Hótel Sögu. Var mörg ár til sjós á bátum og millilandaskipum. Þá var hann á ýmsum veitingastöðum og hótelum heima og erlendis. Frá Höfn í Homafirði kom Olga, lífsföru- nauturinn sem staðið hefur sem klettur við hlið hans í gegnum lífið og í veikindum hans. Þar ólu þau upp börnin þrjú til unglingsára er flutt vai- til Reykjavíkur. Fyrir alvarlegu slysi varð hann á Höfn fyrir mörgum árum og varð eftir það að hætta til sjós, en náði sér sæmilega eftir slys- ið. Síðar hófst veitingarekstur þeirra hjóna fyrst á Höfn og síðan í Reykja- vík við góðar orðstír. Þórir var hreinskiptinn og sagði skoðun sína umbúðalaust ef svo bar undir. Hann var hjálpsamur og greiðvikinn og mikill fjölskyldumað- ur, frændrækinn og hélt góðu sam- bandi við móðurfólk sitt í Færeyjum og verður hans eflaust sárt saknað þar. Við vinirnir flytjum Olgu, börnum, móður og systkinum og öðrum vandamönnum okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum fyrir samfylgdina. Hjörleifur, Sigurður og Óttar. Þóri Matthíassyni veitingamanni kynntist ég fyrst fyrir nokkrum ár- um, þegar hann tók að sér að undir- búa kvöldverð á fundum Kiwanis- klúbbsins Geysis í húsi klúbbsins við Köldukvísl í Mosfellsbæ og að sjálf- sögðu var þessi heiðursmaður tekinn inn í klúbbinn hið fyrsta. - Hann reyndist vera frábær matreiðslu- maður, en þá um nokkurra ára skeið hafði hann rekið matsölustaðinn Höfða Grill við Bíldshöfða, ásamt eiginkonu sinni Olgu Sigurðardótt- ur. Þar var gott að koma og fórum við oft þangað nokkrir félagar í há- degismat allan þann tíma sem þau hjón áttu eftir að reka staðinn, en hlýtt og glaðlegt viðmót var þeirra aðalsmerki. Þegar kom að erfiðum veikindum Þóris seldu þau veitinga- staðinn. Við Þórir urðum góðir félagar og hann kom í Evrópuferðir ásamt konu sinni, sem farnar hafa verið af ákveðnum ferðahóp undanfarin haust. Hann hafði afar gaman af að ferðast hér innanlands og ekki síður erlendis á nýjum slóðum og sá þSL gjai-nan um myndatökur fyrir hóp- inn, sem síðan voru sýndar á skemmtikvöldum heima á íslandi. Að lokinni Ungverjalandsferð haustið 1998 fór hann í uppskurð á spítala vegna krabbameins, sem þá hafði komið fram. Þórir harkaði af sér og notuðu þau hjón tímann sem eftir var til að létta tilveruna og ferð- uðust talsvert. Síðasta ferð okkar Þóris saman var til Gardavatns á Ítalíu sl. haust, með ferðahópnum okkar. Hann naut náttúrufegurðar og vina á skemmtilegu ferðalagi, en þá var ljóst að hallaði verulega uncJA— an fæti. Nú er hann farinn í stóru ferðina sína, sem kom langt á undan áætlun. Við ferðafélagar sendum Olgu, börnum hennar og ættingjum sam- úðarkveðjur. Gylfi Guðjónsson, Mosfellsbæ. Góður félagi er genginn langt um aldur fram. Mikið skarð er höggvið í okkar raðir þegar svo góður maður er tekinn á brott úr samfélagi okkar. Hans verður sárt saknað af okkur Kiwanisfélögum í Geysi. Við minnumst upphafs kynna okk- ar er Þórir og Olga kona hans hófwr* að sjá um mat á fundum okkar í upp- hafi starfsárs 1996. Vanir vorum við góðu atlæti, en ekki versnaði það við tilkomu þeiira. Hann var lærður kokkur og þau ráku matsölustað. Á síldaiTéttardögum var töfrað fram þvílíkt lostæti síldarrétta af öll- um tegundum, og á þorrablótum svignuðu borðin undan krásunum og sýndi það metnað þeirra fyrir því sem þau voru að gera. Eitt er víst að viðskiptavinir þeirra voru ekki sviknir á Höfðan-_ um, enda sýndi það sig í hádegirifK svo og á öðrum tímum að það reynd- . ist erfitt að fá sæti við borð. Áhugi hans fyrir Kiwanishreyf- ingunni kom fljótt í ljós, enda gerðist hann félagi í ársbyrjun ’98 og setti mark sitt fljótlega á starfsemi fé- lagsins og málefni þess. Var afstaða hans okkur leiðarljós í mörgum mál- efnum. Styrkur hvers klúbbs er fólginn í þeim einstaklingum sem í honum eru. Við félagarnir þökkum honum samfylgdina um leið og við vottum Olgu, fjölskyldunni og öðrum vanda- mönnum okkar dýpstu virðingu. Megi guð blessa ykkur og varð- veita. Félagar í Kiwanisklúbbn- -% um Geysi. SESSELJA SIG VALDADÓTTIR + Sesselja Sig- valdadóttir fæddist á Gilsbakka í Öxarfirði 28. janúar 1913. Hún lést í Reykjavík 28. des- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 5. janúar. Sesselja Svavars- dóttir fæddist á Akra- nesi 31. ágúst 1922. Hún lést á Blönduósi 4. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Blönduósskirkju 10. janúar. Elsku amma mín. Ég gleymi aldrei þegar ég fyrst áttaði mig á því, að þú værir að deyja. Ég gekk að eld- húsglugganum og horfði út á Esjuna og hugsaði strax um hvernig ég horfði alltaf á Esjunja frá íbúðinni þinni. Esjan var einkennilega falleg þennan morgun og heimurinn stopp- aði í tíu mínutur á meðan ég horfði til Esjunnar með ró. Ég saknaði þín strax. En ég man mest eftir öllum góðu minningunum um þig. Þú varst alltaf svo góð við mig, vildir allt fyrir alla gera. Þó að ég sé sorgmædd þakka ég fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Ég er mest sorg- mædd yfir því að yngri kynslóðarnir í fjöl- skyldunni fá ekki tæki- færi til að kynnast þér eins og ég. Þú varst og verður alltaf til fym-myndar { mínum augum. Þú varst ákveðin, en það var alltaf blíða og kær- leikur og þú varst alltaf tilbúin að hjálpa ef ein- hver var í vandræðum. Þú varst svo falleg kona, bæði að innan og utan. Þú varst sjálf- stæð alveg fram að endalokunum, alltaf jafn dugleg og fljót að öllu, ekkert gat hindrað þig. Ég veit að núna var þinn tími liðinn. Samt vill maður alltaf vera eigingjarn og hafa þig lengur hjá sér. En eitt veit ég: Þín verður ákaflega saknað en ég veit að þú ert hjá okkur, passar upp á okkur og hugsar alltaf til okkai'. Ég þakka fyrir ástina, hjálpina, kærleik- ann og mest fyrir allar minningamar sem þú gafst mér. Sofðu rótt, elsku amma Sella mín, og Guð geymi þig að eilífu. Þitt barnabarnabarn, Margrét Elísa Harðardóttir. Elsku Sella mín, stundin rann upp sem okkur öllum þótti erfitt að horf- ast í augu við. Þær eru svo margar góðar stundir sem við áttum með þér, og munu þær alltaf verða varð- veittar hjá okkur. Það hefði verið gaman að fá að hafa þig hjá okkur um jólin og geta mætt á þá staði sem öll fjölskyldan hefur komið saman á frá því ég man eftir. En þú fékkst að halda þínu sjálfstæði og varst alltaf fær að um að fara þinna ferða fram á það seinasta. Okkur þykir vænt um að Guð gaf þér þá gjöf. Ég kynntist Sellu bara sem Sellu. Ég sá strax asfc hér var um að ræða konu sem var ákveðin og dugleg og hafði sínar skoðanir. Hún gat stundum sagt það sem mátti kyrrt liggja, en orðunum fylgdi alltaf kærleikur og það skildu allir. Með dugnaði sínum hvatti hún aðra til að gefast ekki. Elsku Sella min, langamma (og tengdaamma), megi Guð vera með þér að eilifu. Ellen Sandra Skúlason og Kristjan Shawn Harðarson, Kaliforníu. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendRL.. greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhenjPPú Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.