Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 64
 J>o4 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson. Reykjanesmeistarar í sveitakeppni árið 2000. Talið frá vinstri: Gunn- >i laugur Sævarsson, Karl Hermannsson, Karl G: Karlsson, Arnór Ragnarsson og Gísli Torfason. Með þeim í sveitinni spilaði einnig Jó- hannes Sigurðsson. BRIDS Ums j 6n Arnór G. Ragnarsson Suðurnesjamenn Reykja- nesmeistarar SVEIT Gunnlaugs Sævarssonar varð Reykjanesmeistari í sveita- keppni en 11 sveitir spiluðu um titil- inn í Hafnarfírði um sl. helgi. Með Gunnlaugi spiluðu Karl G. Karlsson, *rKarl Hermannsson, Gísli Torfason, Jóhannes Sigurðsson og Arnór Ragnarsson. Sveit Gunnlaugs hlaut samtals 186 stig og tapaði aðeins ein- um leik í mótinu og tapaðist hann með minnsta mun eða 14-16. Sveit Loftorku varð í öðru sæti með 171 stig og sveit Þróunar í þriðja sæti einnig með 171 stig. I fjórða sæti varð svo sveit Högna Friðþjófssonar með 168 stig. Mót þetta var jafnframt undan- keppni fyrir íslandsmót og spiluðu 12 sveitir um 6 sæti. Þar urðu sveitir ^unnlaugs Sævarssonar og Loft- orku efstar og jafnar með 194 stig. Sveit Högna Friðþjófssonar varð í þriðja sæti með 193 stig, sveit Þró- unar fjórða með 192 stig, sveit Ferðaskrifstofu íslands fimmta með 172 stig og sveit Huldu Hjálmars- dóttur sjötta með 158 stig. Sveit Ferðaskrifstofu Islands spilaði sig inn í undanúrslitin í þremur síðustu umferðunum með því að fá 73 stig af 75 mögulegum. Að venju var reiknaður svokallað- ur Butler útreikningur og þar varð Karl Hermannsson efstur með 17,60. Georg Sverrisson og Bemódus Kristinsson urðu í öðru sæti með 17,57. í þriðja sæti urðu Jóhannes Sigurðsson og Gísli Torfason með 17,46 og Ágúst Helgason og Gísli Hafliðason fjórðu með 17,07. Þá var einnig spilað um þátttöku- rétt í kjördæmamótinu í vor og unnu eftirtalin pör sér réttinn: Georg Sverrisson og Bernódus Kristinsson Kópavogi, Asgeir Ásbjömsson og Dröfn Guðmundsdóttir Hafnarfirði, Arnór G. Ragnarsson og Karl Her- mannsson Keflavík og Karl G. Karls- son og Gunnlaugur Sævarsson Sand- gerði. Mótið fór í alla staði vel fram þrátt fyrir þröngan húsakost. Keppnis- stjóri og reiknimeistari var Trausti Harðarson. Félag eldri borgara í Hafnar- fírði Bridgeklúbbur Félags eldri borg- ara í Hafnarfirði spilaði tvímenning sl. föstudag á fimm borðum. Úrslit urðu þessi: Stígur Herlufsen og Jón Andrés- son...........................86 Guðni Ólafsson og Þorvarður Guð- mundss........................83 Ólafur Ingimundarson og Jón Pálmason......................81 Ragnar Halldórsson og Kjartan Elíasson......................76 Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 _________Orator, félag laganema SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur UÓtrntu tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 HUGBUNAÐUR FYRIR WINDOWS Frábær þjónusta KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 * Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfislhroun Utscritt" mikil verðlækkun (jdþti fffirfSft JOHA ÖSSfei STO M M E R cLaajaA. cImjjía, S I M I S 5 3 3366 G L Æ S I B Æ VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hvar er dúkurinn? VELVAKANDA barst eft- irfarandi: í síðustu viku október- mánaðar voru tveir dúkar settir í þvott hjá Þvottahús- inu Fönn. Þegar þeir voru sóttir kom í ljós að annan dúkinn vantaði í pakkann. Dúkurinn, sem hefur lík- lega lent annars staðar, er hvítur lérefts kaffidúkur, saumaður í léreft úr hveiti- poka á tímum efniserfið- leika á Islandi og er ísaum- aður með appelsínugulu garni, og er hann frá árinu 1944, og mikið uppáhald, þar sem hann er erfiðagrip- ur. Dúkurinn hefur ekki skilað sér í þvottahúsið ennþá, en það er einlæg von mín að fólk sem átti þvott á þessum tíma hjá Fönn at- hugi hvort hann gæti hafa lent hjá því og skili honum vinsamlega þangað eða láti mig vita beint í síma 553 6291. Valborg. Hvar er skattaskýrslan? í MORGUNBLAÐINU sl. sunnudag, 16. janúar, var tilkynning frá Ríkisskatt- stjóra þar sem fólk var áminnt um að fara að ganga frá skattaskýrslu, launa- seðlum o.þ.h. En í dag, 17. janúar hefur skattaskýrsl- an ekki borist til mín. Hvernig voga þeir sér hjá ríkisskattstjóra að senda ekki eyðublöð til fólks á réttum tíma? Það er orðinn ansi stuttur tími eftir til að ganga frá skýrslunni svo hægt sé að skila henni á réttum tíma. Hvað tefur gögnin frá ríkisskattstjóra? Bergur. Tapað/fundið Poki í óskilum á Broadway GULUR poki með bláum barnaskóm, rauðum sokka- buxum og rauðri húfu, er í óskilum á Broadway. Pok- inn varð eftir á jólaballi. Upplýsingar alla daga kl. 9-17 í síma 533 1100. Bakpoki í óskilum MIKKA mús-bamabak- poki fannst sl. föstudag í strætisvagnaskýli í Árbæ. Upplýsingar í síma 567 3113. Gleraugu týndust KVENGLERAUGU týnd- ust fyrir utan verslunina Betra bak, Skeifunni, rétt fyrir jólin. Gleraugun voru í brúnu hulstri. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 868 8342. Dýrahald Kettlingur óskast ÓSKA eftir hvítum/grá- bröndóttum kettlingi. Upp- lýsingar í síma 567 0267. Köttur í óskilum KÖTTUR, gulbröndóttur, fannst við Hagamel. Hann er ómerktur. Upplýsingar í síma 861 4804. í % pk kwl <i , : 1 ; Nt■■■ öf—;—> ÍÉH|:: ’ ■ i i.'$á Á Klambratúni Morgunblaðið/Kristinn Víkverji skrifar... * AÐUR en myndir eru sýndar í kvikmyndahúsum eru sýnd brot úr væntanlegum myndum. Yf- irleitt er þetta vel til fundið og kveikir oft í gestum kvikmyndahús- anna þörf fyrir að sjá einhverja mynd þegar hún er tekin til sýninga. Nú eða að forðast viðkomandi mynd eins og heitaneldinn. í síðustu viku var kvikmyndin Tvöföld ákæra, eða „Double Jeopar- dy“, eins og hún heitir á frummál- inu, frumsýnd. Víkverji var eins og mjög margir gestir kvikmyndahús- anna búinn að sjá sýnt úr henni og var nú ekkert allt of viss um hvort hann ætti að sjá hana þegar hún yrði sýnd. Ekki vegna þess að hon- um litist ekki á hana. Nei þvert á móti leist honum nokkuð vel á hana. En því miður var búið að sýna nær alla myndina. Það eina sem vantaði upp á var hvort konan hleypti af byssunni eða ekki. Og auðvitað hlaut hún að gera það þar sem bandaríska mynd er að ræða og eiginmaðurinn virtist ekki eiga neitt annað skilið. Þar sem mjög fáar áhugaverðar myndir eru í bíói sem Víkverji og unglingssonur hans hafa ekki séð þá var afráðið að láta þetta ekki trufla og fara á myndina á sunnudags- kvöldið. En það hefði alveg mátt spara þennan pening þar sem mynd- in bætti nánast engu við það sem sýnt var úr myndinni. Að sjálfsögðu myrti hún manninn og allir lifðu hamingjusamir eftir það líkt og í bandarískri kvikmynd. Víkverju hefur áður kvartað yfir þjónustunni hjá Dominos-pitsustað- num og ekki að ástæðulausu. Nýverið ákvað hann að hringja og panta pitsur og sækja þær á leiðinni heim úr vinnunni. Ekkert vandamál pitsurnar áttu að bíða eftir honum. Þegar komið var á staðinn fundust ekki pitsurnar. Eftir smátíma fannst önnur pitsan og í ljós kom að hin hafði verið seld einhverjum öðrum. Eða eins og afgreiðslustúlkan orðaði það svo skemmtilega „úps, það hef- ur einhver annar fengið pitsuna þína. Viltu ekki bara bíða á meðan við búum til nýja og þú þarf ekkert að borga fyrir hana, bara þá sem er tilbúin?" Ekki var hægt að segja að Vík- verji hefði orðið ánægður með þessa þjónustu og afþakkaði boðið enda glorhungraður og vissi að hið sama gilti um þá sem heima biðu. Var á þessu heimili ákveðið að ekki yrði framar reynt að skipta við þennan tiltekna pitsustað enda ekki einu sinni beðist afsökunar á mistökun- um. Aftur á móti er einn staður sem á miklar þakkir skildar fyrir góða þjónustu og alveg einstaklega gott kaffi. Það er kaffihúsið Kaffitár í Kringlunni. Mjög oft hefur verið haft samband við Víkverja til þess að hrósa þjónustunni þar og er því komið á framfæri hér með glöðu geði enda Víkverji einn af fastagest- um staðarins og veit vel hversu gott kaffið og þjónustan er þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.