Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 11
Fjarðalistinn afneitar Samfylkingunni og á ekki samleið með Vinstri-grænum
„Eins og
pólitískt
rekald“
Aðstandendur Fjarðalistans á Austfjörðum
afneita tengslum við Samfylkinguna, lýsa
vonbrigðum með afstöðu hennar í
Fljótsdalsvirkjunarmálinu helsti for-
ystumaður listans segir hana ekki standa
s *
undir nafni. I grein Omars Friðrikssonar
kemur fram að alþýðubandalagsmenn,
sem eru f]ölmennastir innan Fjarðalistans,
eiga þess ekki heldur kost að færa sig yfir
til Vinstri-grænna vegna andstöðu þeirra
við virkjanir og stóriðju.
„ÞETTA er staða sem ég hefði
ekki trúað að kæmi upp, að maður
yrði eins og pólitískt rekald á
þessum tíma,“ segir einn af
aðstandendum Fjarðalistans í
Fjarðabyggð.
Sérkennileg pólitísk staða er
komin upp í hinu sameinaða sveit-
arfélagi á Austfjörðum.
Um fyrri helgi sendi Fjarðalist-
inn, bæjarmálafélag félagshyggju-
fólks í Fjarðabyggð, frá sér yfir-
lýsingu þar sem ítrekað er að hann
hafi ekki verið í neinum
skipulagslegum tengsl-
um við þingflokk Sam-
fylkingarinnar. Ljóst er
að aðstandendur og
stuðningsmenn Fjarða-
listans sem flestir koma
Alþýðubandalaginu,
Geta ekki
snúið sér til
Vinstri-grænna
vegna virkjunar-
málsins
auk nokkurra stuðn-
ingsmanna Alþýðuflokks og
óflokksbundinna, hafa séð sérstaka
ástæðu til að afneita tengslum við
Samfylkinguna vegna virkjana- og
stóriðjumála.
Einar Már Sigurðarson, þing-
maður Samfylkingarinnar á Aust-
urlandi, var einn þeirra sem stóðu
að yfirlýsingunni en hann var með-
al þeirra fjögurra þingmanna Sam-
fylkingarinnar sem greiddu at-
kvæði með tillögu iðnaðarráðherra
um framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun á Alþingi á dögunum.
Smári Geirsson, forseti bæjar-
sjórnar og forystumaður Fjarða-
listans, sem starfaði fyrir Sam-
fylkinguna fyrir seinustu
kosningar, sagðist í viðtali í Morg-
unblaðinu ekki hafa ákveðið hvort
hann hygðist mæta á stofnfund
Samfylkingarinnar í mars og bætti
við: „það eru fölmargir í okkar
hópi sem ætla að taka sér tíma til
að velta því fyrir sér.“
I blaðinu Austurlandi sl.
fimmtudag bætir Smári um betur
og segir í viðtali við blaðið: „í ljósi
þess sem gerst hefur á Alþingi síð-
ustu vikur hlýt ég því að velta því
alvarlega fyrir mér hvort Samfylk-
ingin stendur undir nafni sem sú
breiðfylking félagshyggjufólks
sem hún segist vera.“
Sameiginlegt framboð
félagshyggjufólks
Fjarðalistinn var stofnaður fyrir
seinustu sveitarstjórnarkosningar
sem sameiginlegur framboðslisti
Aiþýðubandalags, Alþýðuflokks og
óflokksbundinna gegn Sjálfstæðis-
flokki eða Framsóknarflokki. Var
því þá lýst yfir að með stofnun
Fjarðalistans væri framboðsmál-
um A-flokkanna og annars félags-
hyggjufólks í hinu nýja sveitarfé-
iagi komið í fai’veg sameiginlegs
framboðs á sama hátt og þróunin
virtist ætla að verða víðsvegar um
landið. Voru virkjunar- og stór-
iðjumálin eitt helsta baráttumál
framboðsins. Fjarðalistinn vann
mikinn kosningasigur og fékk
kjörna sjö af ellefu sveitarstjórn-
arfulltrúum.
Ekki fer á milli mála að mikill
meirihluti þeirra sem standa að
listanum eru fyrrver-
andi stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins,
enda hefur Aiþýðu-
bandalagið, og forveri
þess, Sósíalistaflokk-
urinn, verið geysilega
sterkt á þessu svæði
um áratuga skeið og
ráðið lögum og lofum í Neskaup-
stað með meirihluta í bæjarstjórn í
meira en hálfa öld. Alþýðubanda-
lagsmenn voru einnig með mjög
sterka stöðu á Reyðarfirði (með
yfir 30% fylgi í kosningunum
1994). Alþýðuflokkurinn er sagður
hafa átt töluvert fylgi á Eskifirði
sem hann lagði í púkk hins sam-
eiginlega framboðs í hinu nýja og
sameinaða sveitarfélagi fyrir kosn-
ingarnar 1998.
Framsóknarmenn beindu mjög
spjótum sínum að Fjarðalistanum í
sveitarstjórnarkosningunum 1998
og héldu því fram að Fjarðalistinn
gæti ekki talist trúverðugur í stór-
iðju- og virkjanamálinu. „I kosn-
ingabaráttunni voru því strax send
út þau skilaboð að þetta væri sjálf-
stætt bæjarmálafélag," segir einn
stuðningsmanna Fjarðalistans.
Hann vísar því hins vegar á bug að
Fjarðalistinn sé farinn að bíða
skaða af vegna afstöðu meirihluta
þingmanna Samfylkingarinnar til
virkjana- og stóriðjumálsins á Al-
þingi í vetur.
Fjarðalistinn sér engu síður
ástæðu til að afneita sérstaklega
tengslum við Samfylkinguna vegna
andstöðu meirihluta hennar við
virkjanaframkvæmdir og fyrirhug-
aða stóriðju á Austulandi.
Af þessari sömu ástæðu eiga
Fjarðalistamenn þess ekki heldur
kost að söðla um og snúa sér að
Vinstrihreyfingunni - grænu fram-
boði, sem hefur sem kunnugt er
lagst eindregið gegn Fljótsdals-
virkjun og stóriðju við Reyðarfjörð
af umhverfisástæðum. Vinstri-
grænir eru ekki sagðir eiga mikinn
stuðning í Fjarðabyggð vegna af-
stöðu sinnar í virkjunarmálinu,
Morgunblaðið/Rax
Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, og fleiri forsvarsmenn sveitarfélagsins, kynntu fulltrú-
um bandaríska álfyrirtækisins Columbia Ventures síðastliðið sumar aðstæður að Hrauni við Reyðarfjörð, þar
sem talið er hagkvæmast að staðsetja álver. James F. Hensel, aðstoðarforstjóri Columbia, er lengst til hægri.
þótt þeir njóti einhvers stuðnings
uppi á Héraði.
Skv. upplýsingum blaðsins var
yfirlýsing Fjarðalistans sem sam-
þykkt var samhljóða á félagsfundi
um seinustu helgi ekki síst send út
til að taka af allan vafa gagnvart
heimamönnum í Fjarðabyggð um
að Fjarðalistinn hefði engin tengsl
við Samfylkinguna en mikillar
óánægju hefur gætt í garð meiri-
hluta þingflokks Samfylkingarinn-
ar vegna Fljótsdalsvirkjunarmáls-
ins.
Einnig mun hafa vakað fyrir
fjarðalistamönnum að senda skýra
viðvörun til forystu Samfylkingar-
innar um framtíðai'þróun mála á
vettvangi hennar þar sem nú stytt-
ist mjög í stofnfund samtakanna..
Einar Már Sigurðarson mun líta
svo á að þrátt fyrir að hann hafi
staðið nokkuð einangraður í þing-
flokki Samfylkingarinnar í þessu
máli njóti hann trausts stuðnings
meðal samfylkingarfólks á Aust-
fjörðum vegna þeirrar afstöðu sem
hann hefur tekið til stóriðju og
virkjana.
Yfirlýsing Fjarðalistans og aðild
Einars Más að henni hefur mælst
mjög misjafnlega fyrir innan þing-
flokks Samfylkingarinnar.
Einn viðmælenda sagðist telja
umrædda yfirlýsingu Fjarðalistans
fyrst of fremst endurspegla reiði
forystumanna listans yfir því að
sjónarmið þeirra hefðu orðið undir
í þingflokki Samfylkingarinnar.
Auk þess væri hún vísbending um
að Samfylkingin stæði orðið svo
veikt að vígi um þessar mundir að
stuðningsmenn hennar á sameigin-
legum framboðslistum félags-
hyggjufólks í sveitarstjórnum úti á
landsbyggðinni séu í vaxandi mæli
farnir að afneita öllum tengslum
við Samfylkinguna „og vill þvo
hendur sínar af henni,“ eins og
hann orðaði það. „Auðvitað felast
líka í þessu ákveðnar heitingar
fyrir næstu kosningar og þetta eru
líka kaldar kveðjur til Vinstri-
grænna,“ sagði hann.
skóli ólafs gauks
Síðustu innritunardagar
Nú eru síðustu forvöð að láta innrita sig. Nokkur pláss eru ennþá laus í byrjenda-
Við bjóðum upp á skemmtileg og gagnleg námskeiðum.
námskeið fyrir alla aldursflokka, bæði Innritun stendur til og með 22. jan.,
byrjendur og lengra komna. kennsla hefst 24. jan.
V/SA
HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 2000 Á ÖNN
588-3730
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17