Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 12

Morgunblaðið - 18.01.2000, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Háskóla íslands gefíð málverk til minningar um Qlaf Björnsson Þakklát svo djúphugulum og skýrum kennara Morgunblaðið/Keli Guðrún Aradóttir, ekkja Ólafs Bjömssonar afhjúpar málverk af Ólafi með aðstoð sona sinna, þeirra Ara og Bjöms. Myndin hangir nú í húsnæði Háskóla Islands, Odda, þar sem Listasafn HÍ hefur aðsetur. Gefendur verksins em gamlir nemendur Ólafs Bjömssonar. GAMLIR nemendur Ólafs Bjöms- sonar, fyrrverandi prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Islands, heiðruðu minningu síns gamla kennara á laugardag er þeir gáfu listasafni Háskóla Islands, sem aðsetur hefur í Odda, málverk af Ól- afi Björnssyni eftir Sigurbjöm Jóns- son listmálara. Eftirlifandi eigin- kona Ólafs, Guðrún Aradóttir, afhjúpaði verkið, með aðstoð sona sinna þeirra Ara og Bjöms og Guð- mundur Magnússon, deildarforseti viðskipta- og hagíræðideildar, veitti verkinu móttöku fyrir hönd Háskóla Islands. Sagði Guðmundur m.a. við það tækifæri að Ólafur Björnsson hefði lengi sett svip á deildina og kvaðst þakklátur fyrir að deildin hefði átt svo djúphugulan og skýran kennara sem ekki einungis hefði haft áhrif á nemendur sína hefdur einnig á hag- sögu Islands. Jónas Haralz, fyrrverandi banka- sfjóri, flutti minningarorð um Ólaf við þetta tækifæri og greindi frá því að hans hefði notið við sem kennara og fræðimanns um langt skeið og að þrautseigja hans á þeim vettvangi hefði sannarlega borið ávöxt. „En hans naut einnig við sem ráðgjafa stjómvalda hvað eftir annað, sem alþingismanns í hálfan annan ára- tug og sem forustumanns í samtök- um opinberra starfsmanna um nokkurt skeið.“ Jónas sagði að enda þótt Ólafur Björnsson hefði iðulega verið kall- aður stjómvöldum til ráðuneytis um efnahagsmál hefði hann ekki sóst eftir valdastöðu á þeim vettvangi. „Sama máli gegndi um störf hans á Alþingi. Hann átti manna drýgstan þátt í að ganga sem best frá iögum um efnahagsmál, en hann sóttist ekki eftir ráðherradómi. Háskólinn var ævinlega hans eiginlegi vett- vangur. Hann hefði getað tekið und- ir þau orðs Kants, að ekki væri við því að búast að konungar yrðu heimspekingar eða heimspekingar konungar. Það væri heldur ekki æskilegt vegna þess að völd hlytu æti'ð að spilla frjálsri dómgreind skynseminnar." Sögunni ekki lokið með hruni sósíalismans „f einni síðustu grein sem Ólafur Bjömsson lét frá sér fara fjallar hann um það tómarúm í stjómmál- um sem hrun sósialismans hafi vald- ið,“ sagði Jónas og hélt áfram: „Hann bendir á að pólitískur ágrein- ingur hafi fyrst og fremst snúist um leiðir að almennum markmiðum, svo sem farsæld, frelsi, jafnrétti og jöfnuði, frekar en um markmiðin sjálf. Nú sé viðurkennt að leið sós- falismans sé ekki fær, hvort sem er þjóðnýting eða önnur bein íhlutun um atvinnurekstur. Þeir sem áður fylgdu þeirri leið vilja nú byggja á frjálsum viðskiptum og markaðsbú- skap. En þar með sé ekki allur ágreiningur horfinn. Enn sem fyrr vilji sumir hafa hraðan á, ef ekki með beinum afskiptum af atvinnu- rekstri þá með auknum opinberum áhrifum á skiptingu tekna í samfé- laginu. En fari þau áhrif fram úr hóflegum mörkum sé sjálfum grundvelli velmegunar stefnt í hættu. Með hruni sósialismans er sögunni ekki lokið. Viðleitnin til að ná réttfæti og jöfnuði með beinum hætti á skömmum tíma getur á ný grafið undan virkum markaðsbú- skap og fijálsum samféfagsháttum og þar með torveldað að æskileg markmið náist með tíð og tíma. Það sem getur varnað þessu er þekking á þeim lögmálum sem gilda um mannleg samskipti, þekking sem þarf að ná tif sfjórnmálamanna, til leiðtoga atvinnulífs og samtaka og til alls almennings. Það var leitin að slíkri þekkingu og kynning slíkrar þekkingar sem Ólafur Björnsson helgaði krafta sína sem fræðimaður og kennari, sem alþingismaður og sem forustumaður í samtökum opin- berra starfsmanna,“ sagði Jónas. Athuga- semd vegna viðtals Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi athugasemd frá Agli Helga- syni: „Árið 2100, eða um það bil, munu einhverjir ungir sagnfræðing- ar, væntanlega harðduglegir ein- sögufræðingar, gefa örlítinn gaum Agli Helgasyni, afar smárri neðan- málspersónu í sögu íslands í lok 20. aldar. Þeir munu ekki kafa mjög djúpt, kannski leita þeir bara í forn- asta hluta Netsins, og þá verður fyr- ir þeim viðtal í Morgunblaðinu frá 15. janúar árið 2000. Þar segir Egill þessi meðal annars að hann hafi aldrei verið félagi í stjórnmálaflokki og að sér gremjist öfgarnar í Eyja- bakkadeilunni. Þeir munu ekki gera sér grein fyrir að Egill lýgur hvoru tveggja. Hann er bókstaflega hrað- lyginn. Staðreyndin er náttúrlega sú að þetta vildi ég ekki sagt hafa. Ég hef verið félagi í tveimur stjórnmála- flokkum, líklega þremur ef sá er tal- inn sem ég var skráður í að mér for- spurðum. Mér er ekkert illa við öfgarnar í Eyjabakkadeilunni, þvert á móti finnst mér þær bráðskemmti- legar. En þetta og sitthvað fleira sem ég hef tæplega sagt er haft eftir mér í viðtali sem ungur maður hafði við mig í Morgunblaðið og birtist þennan laugardag. Það er því best að hafa allan varann á.“ Aths. ritslj.: Morgunblaðið biður Egil Helga- son velvirðingar á því að í Morgun- blaðinu sl. laugardag birtist fyrsta uppkast að viðtali við hann en ekki sú endanlega útgáfa, sem hann gekk frá eftir yfirlestur og sendi blaðinu í tölvupósti. Skýringin er sú, að vegna tæknilegra mistaka bárust leiðrétt- ingar hans, sem hann sendi í tölv- upósti, ekki til viðkomandi blaða- manns. Það er föst regla Morgunblaðsins, að óski viðmælandi blaðsins eftir því að lesa yfir viðtal, er orðið við þeirri ósk. í þessu tilviki var það skilningur blaðamanns, að þar sem engar athugasemdir bárust hefði Egill Helgason ekkert við við- talið að athuga. Þetta tilvik sýnir, að það getur verið varhugavert að byggja samskipti eingöngu á tölv- upósti. Búist við harðri samkeppni í milli- landaflugi í sumar HORFUR eru á að mjög hörð verð- samkeppni verði í millilandaferðum í sumar. Samvinnuferðir-Landsýn kynntu um helgina lág fargjöld til tíu borga í Evrópu án skilmála um lengd ferða og endurgreiðslu. Farið verður að selja í ferðirnar á morgun, en fyrir helgina hófu Flugleiðir sölu á ódýrum ferðum í kvöld- og nætur- flugi til Kaupmannahafnar og Lond- on. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, sagði á blaðamannafundi um helgina að Samvinnuferðir væru að lýsa stríði á hendur fargjaldafrumskóg- inum eins og hann komst að orði. Eftir sem áður verða þær ferðir sem fyrirtækið býður upp á í nokkrum verðflokkum eða eins og segir á heimasíðu Samvinnuferða um „Flugfrelsi": „Því fyrr sem bókað er þeim mun lægri eru fargjöldin sem þó er stillt í hóf. Á hverjum degi eru farmiðapantanir skoðaðar og vin- sælir dagar geta því hækkað í verði ef ódýrustu sætin eru uppseld." Mismunandi skilmálar Helgi Jóhannsson segir að Sam- vinnuferðir bjóði u.þ.b. 150 sæti í hverri vél á lægstu fargjöldum. Þeg- ar þau hafi selst upp hækki verðið á ferðunum. Verðhækkunin sé hins vegar ekki nema 1.000-1.500 krón- ur, sem sé miklu minna en tíðkast hafi í millilandaferðum frá Islandi. Þær ferðir sem Samvinnuferðir séu að bjóða upp á verði seldar í 2-3 verðflokkum, en verðmunur milli þeirra verði lítill. Hann segir að í sumar verði 25 þúsund sæti (50 þús- und leggir) seld með þessu nýja fyr- irkomulagi og fyrstu ferðirnar verði farnar 22. maí. Helgi sagði að þegar verið væri að bera saman verð á ferðum Sam- vinnuferða við verð á ferðum sem Flugleiðir væru að selja yrðu menn að hafa í huga að grundvallarmunur væri á skilmálum. Skilmálar í kvöld- og næturferð- um Flugleiða til Kaupmannahafnar og London eru m.a. þeir að lág- marksdvöl er 7 dagar og hámarks- dvöl 3 mánuðir. Engar breytingar eru heimilar á miðunum eftir að búið er að greiða þá. Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddan og ekki er hægt að fljúga heim frá öðrum áfangastað. Þá eru engir vildar- punktar veittir í þessu flugi. I ferðum Samvinnuferða gilda engir skilmálar um lengd ferðar. Hægt er að breyta miða gegn breyt- ingagjaldi og hægt er að fá hann endurgreiddan í samræmi við ákvæði forfallatryggingar. Hægt er að fljúga heim frá öðrum áfangastað en flogið er til. Flugleiðir hófu að selja sæti í þessar kvöld- og næturferðir til London og Kaupmannahafnar á Netinu fyrir helgi og voru viðbrögð mjög góð. Almenn sala á ferðunum er nú hafin. Á morgun hefja Sam- vinnuferðir sölu á sínum ferðum. Verðið á ferðum Flugleiða til þess- ara tveggja borga er 14.900 kr. án flugvallarskatts. Samvinnuferðir bjóða ferðir til Kaupmannahafnar á 14.800 kr. og ferðir til London á 16.200 kr. Allar ferðirnar eru í morgunflugi. Staðgreiða verður þessar ferðir hjá Samvinnuferðum, en ganga þarf frá fullnaðargreiðslu innan við 72 tímum frá pöntun. Sam- vinnuferðir bjóða ferðir til þessara borga tvisvar í viku, en Flugleiðir fljúga daglega. Samvinnuferðir bjóða einnig sól- arlandaflug til Mallorca á 14.900 aðra leiðina (29.800 kr. báðar leiðir) og til Benidorm og Ríminí á 17.900 aðra leiðina (35.800 kr. báðar leiðir). Þetta verð felur eingöngu í sér fargjald án flugvallarskatts. Mun ekki breyta markaðinum Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri hjá Flugleiðum, sagðist líta á þetta útspil Samvinnuferða sem við- brögð við ódýrum ferðum Flugleiða til London og Kaupmannahafnar sem kynntar voru í síðustu viku. Hann sagðist líta svo á að þarna væri um að ræða leiguflug, sem boð- ið hefði verið upp á í mörg ár, undir nýju nafni. I fyrsta lagi væri verið að selja umframsæti á sólarlanda- staði. í öðru lagi fælust í þessu til- boði umframsæti í leiguflugsferðum frá Þýskalandi. í þriðja lagi væri verið að auka eitthvað sætaframboð til Kaupmannahafnar og London. Einar sagði ljóst að það yrði eitt- hvað breytilegt verð á þessum ferð- um sem Samvinnuferðir væru að bjóða. Viðskiptavinirnir fengju ekki að vita hvert fargjaldið yrði nema meðan verið væri að selja í fyrstu sætin. Síðan tæki við verð sem væri breytilegt. Það væri því spurning hvort hægt væri að segja að verið væri að skýra fyrir viðskiptavinum verð ferða á markaðinum. Einar sagði að Flugleiðir myndu þjóna markaðinum hér eftir sem hingað til með því að bjóða hagstætt verð og tíðar ferðir. „Við teljum að þetta muni ekki breyta markaðinum í neinum meginatriðum. Hér hefur verið umfangsmikið leiguflug á sumrin í mörg ár. Þetta leiguflug kemur þarna fram undir nýju nafni og númeri. Varðandi það að verið sé að hreinsa til í fargjaldafrumskógin- um vil ég benda á að fargjöld og fargjaldaskilmálar hjá okkur eru mjög skýr, en þarna er gefin út yfir- lýsing um fargjöld sem muni halda í ákveðinn tíma og síðan breytast. Okkur sýnist því að það verði ekki skýrari mynd sem blasi við við- skiptavininum varðandi fargjöldin við þetta útspil," sagði Einar. Fleiri með einfalda verðskrá Anton Antonsson, framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar Terru Novu, sem áður hét Ferðamiðstöð Austurlands, segist undanfarin ár hafa staðið fyrir ferðum til borga í Evrópu sem hafi byggst upp á mjög einfaldri gjaldskrá. Hann segist hafa verið gagnrýninn á auglýsingar ferðaskrifstofa sem hafi auglýst ferðir frá einhverju ákveðnu lág- marksverði, því oft hafi það lága verð byggst á mjög takmörkuðu sætaframboði. Sín ferðaskrifstofa hafi sett þá einföldu reglu að bjóða 2.000 kr. afslátt af auglýstu verði ef greitt er fyrir 1. apríl. Áð öðru leyti hafi sætin að mestu verið seld á sama verði. Hið sama muni verða uppi á teningnum í ár. Verðskrá Terru-Novu er enn ekki tilbúin. Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður ferðalöngum upp á eins konar val milli ferða með skilmálum og ferða án skilmála. Lægsta fargjald til London er 14.300 kr., en þar fylg- ir sú kvöð að gist sé i a.m.k. fjórar nætur. Þeir sem vilja losna við þessa skilmála þurfa að greiða 800 kr. til viðbótar. Þetta verð er eingöngu á fyrstu 400 sætunum, en önnur sæti eru seld á um 20.000 kr. Vilji menn ferðast aðra leið með Heimsferðum til London kostar fargjaldið 14.900- 15.700 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.