Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 54
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ELÍN G.
" JÓHANNESDÓTTIR
+ Elín G. Jóhannes-
dóttir fæddist á
Sauðárkróki 6. nóv-
ember 1916. Hún lést
á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur mánudaginn
10. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Jóhannes
Björnsson, fæddur á
Vallanesi í Skaga-
firði, siðar kenndur
^’við Kolgröf, 14.9.
1875, d. 18.6. 1919,
og Ólína Björg Bene-
diktsdóttir fædd í
Vindhælishreppi,
A-Húnavatnssýslu, 6.3. 1881, d.
18.6.1957. Elín átti þrjú alsystkin;
Jóhönnu, f. 9.5.1907, d. 24.6.1980,
Hólmfríði,
f. 23.9. 1911, og Björn, f. 6.2.
1913. Hálfsystir Elínar samfeðra
var Ólöf f. 5.2.1902, d. 18.3.1952.
Hinn 30. desember 1938 giftist
Elfn Guðmundi Marínó Ingjalds-
syni, sjómanni og síðar verkstjóra
hjá Hrafnistu í Reykjavík. Hann
fæddist í Reykjavík 2. september
^ 1912, d. 11.2. 1979. Foreldrar
- -^hans voru Ingjaldur Þórarinsson
frá Bæ í Kjós, f. 5.12.1874, d. 1.11.
1961, og Þóra Pétursdóttir frá
Miðdal í Kjós f. 20.7.
1883, d. 17.3. 1959.
Elín og Guðmundur
Marinó bjuggu alla
tíð í vesturbænum í
Reykjavík. Börn
þeirra eru: 1) Þóra
Björg, f. 29.12. 1940,
maki Skúli Guð-
brandsson. Synir
þeirra eru Guð-
mundur Marinó og
Guðbrandur. 2) Jó-
hanna Bergljót, f.
12.6. 1943, maki Al-
bert B. Ágústsson.
Börn þeirra eru
Kristinn, Marinó og Hildur Rut. 3)
Einar Leifur, f. 12.12. 1951, maki
hans var Björg Guðmundsdóttir.
Þau skildu. Dætur þeirra eru Guð-
rún og Ólína Björg. Maki Einars
er Guðrún Björnsdóttir. Dætur
þeirra eru Ólöf Eva og Tinna. 4)
Ólöf, f. 12.12. 1951, maki Þórður
Ásgeirsson. Böm þeirra em Elín,
Sigrún Ása og Kjartan Öm.
Barnabamabörn Elínar eru tvö.
Utför Elínar verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
kl. 15.
í dag verður jarðsungin elskuleg
tengdamóðir mín, Elín Gíslijana Jó-
hannesdóttir. Kynni mín af Elínu
hófust fyrir hartnær 30 árum er ég
knúði eitt sinn dyra og vildi eiga orð
við yngstu dóttur hennar. Bauð hún
mér að ganga inn og var ég ávallt
velkominn síðan. Okkar kynni voru
löng og góð. Þeim verða ekki gerð
_pgkil í fáum orðum svo vel sé gert.
ptíssi trausta skagfírska kona kom
mér ávallt fyrir sjónir sem óvenju
ráðvönd og háttvís. Hún sóaði sjald-
an tíma sínum á fánýtan hátt og var
sífellt að snyrta og fegra umhverfi
sitt með alúð. Þessi einlæga kona
gerði sér far um að lifa í samræmi
við trú sína. Ég, sem og fjölmargir
aðrir, naut góðs af umhyggju hennar
og ástríki.
Kæra tengdamóðir, ég minnist
síðasta ævikvölds þíns er ég bar þér
síðustu kveðju mína og fjölskyldu
minnar. Þá vissi ég ekki að þetta
yrði okkar síðasta stund saman.
Vissulega varstu mædd af lífsins
hlaupi og daufur loginn á lífsins
kerti. Ég þakka þér í einlægni allar
*lundir og umhyggju þína fyrir fjöl-
skyldu minni. Eg bið Guð almáttug-
an, þinn besta vin, þig að geyma.
Þórður Ásgeirsson.
Þessi mánudagur var ósköp nap-
ur. Ég vaknaði snemma, fór fram og
kveikti á kertum. Þess minnist ég
ekki að hafa gert áður svona
snemma dags. Þó var ég grunlaus
um að þú værir að kveðja, elsku
amma. Þegar mamma hringdi svo
stuttu síðar komu fréttirnar sem
reiðarslag. Ég var ekki tilbúin að
kveðja þig, hefði eflaust aldrei verið
tilbúin því þig hefði ég viljað hafa hjá
mér alltaf. Þú varst svo falleg,
^i^artahlý og góð. Þegar ég hugsa til
baka get ég ekki annað en brosað því
minningamar eru margar og góðar.
Þegar þú bjóst á Sólvallagötunni
brösuðum við frændsystkinin ýmis-
legt þegar við komum í heimsókn.
Garðurinn þinn var fallegur og þar
hafði afí hlaðið steinum upp við
ílaggstöngina sem voru í laginu eins
^XXXXXXXXXXXIXXX^
H
^ Erfisdrykkjur
*-
P E R L A N
Sími 562 0200
AxxiIIIIIIIIIITI^
og stóll. Ég kallaði þetta hásætið og
skiptumst við á að setjast í það af og
til þegar við vorum að leika okkur.
Mér fannst þetta sæti alveg gífur-
lega merkilegt og til eru myndir af
mér þar sem ég sit þar stolt. Við
ímynduðum okkur líka að það væri
draugagangur í kjallaranum þegar
myrkur var og fannst við miklar
hetjur að þora þar niður. Það var
alltaf svo gaman að koma og gista
hjá þér. Ég man þegar ég byrjaði í
menntaskóla gisti ég hjá þér á
Reynimelnum þegar ég var að lesa
fyrir mín fyrstu próf. Ég tók þau
mjög alvarlega og fannst notalegt að
lesa hjá þér í nokkra daga. Þú
gekkst svo hljóðlega um til að trufla
ekki námsmanninn. Þess á milli
mallaðir þú eitthvert góðgæti handa
mér og ýttir á mig ef ég ætlaði að
verða löt. Þú vissir svo mikið, varst
alltaf að lesa þér til um hluti. Oft
kom það fyrir að ef eitthvað bjátaði á
kunnir þú lausn á því, hafðir lesið um
það í einhverju blaði og oft dönsku
blaði. Ég fór stundum að hlæja að
þessum lausnum hjá þér en þú lést
þig ekki og hafðir tröllatrú á þessu.
Það kom mér samt aldrei á óvart
þegar þessar lausnir þínar virkuðu
því ég trúði því alltaf að þú gætir
allt. Heimili þitt var alltaf svo fallegt
og snyrtilegt. Mér fannst alltaf gam-
an að skoða það sem þú áttir og það
sem þú hafðir gert sjálf. Þú varst svo
lagin í höndunum. Þú varst líka allt-
af svo dugleg og sterk, gafst aldrei
upp þó að eitthvað bjátaði á. Ég
lærði svo mikið af þér og þú gafst
mér svo margt sem ég á eftir að búa
að alla tíð.
Það var svo ánægjulegt hvað þú
varst mikið heima hjá okkur. Stund-
um gistir þú hjá okkur eina helgi í
mánuði eða oftar. Þá sátum við iðu-
lega lengi fyrir framan sjónvarpið
fjölskyldan eða spjölluðum fram eft-
ir. Ég minnist ekki jólanna öðruvísi
en að þú hafir verið með okkur á að-
fangadag. AUtaf varstu jafn hissa
þegar lesinn var upp pakki til þín þó
að þú ættir flestar gjafirnar undir
trénu. Þú gistir svo hjá okkur á jól-
unum og stundum fleiri en eina nótt.
Okkur systkinunum fannst alltaf
svolítið tómlegt fyrst eftir að þú
varst farin því það var svo notalegt
að hafa þig hjá okkur. Það verður
skrítið að halda jólin án þín.
Mér finnst ég svo lánsöm að hafa
átt svona góða ömmu og hvað við
vorum nánar. Minningar mínar um
þig eiga sér fastan stað í hjarta
mínu. Þær mun ég ávallt varðveita
vel. Þó að ég hugsi til þín með mikl-
um söknuði veit ég að nú er þjáning-
um þínum lokið og ég trúi að þú sért
í góðum höndum á öruggum stað. Ég
vil kveðja þig með bæn sem þú
kenndir mér og á alltaf eftir að
minna mig á þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.
(H.P.)
Ég bið Guð að varðveita þig og
leiða á ókunnugum stigum.
Þín
Elín.
Elsku amma mín, ég á eftir að
sakna þín mikið og mun aldrei
gleyma þér. Þú varst mín einka-
amma því afar mínir og hin amma
mín létust fyrir eða stuttu eftir fæð-
ingu mína. Þú varst mér ávallt góð
og einnig öllum öðrum sem þekktu
þig. Ég man þegar þú varst að passa
mig þegar ég var lítill eða þegar ég
var í heimsókn með mömmu og
pabba á Reynimelnum, þá kom
Bjössi stundum í heimsókn og ég var
viss um að hann væri kærasti þinn.
Já, ég var búinn að eignast nýjan
afa. En svo komst ég að því að hann
var nú bara bróðir þinn. Þín á eftir
að verða sárt saknað og þá kannski
sérstaklega á jólunum, því ekki man
ég eftir þeim án þín þar sem þú situr
í sófanum og ert alltaf jafn hissa
þegar þú færð pakka.
Amma, ég kveð þig hér í síðasta
sinn en þú munt alltaf lifa í brjósti
mínu. Ég vil flytja þér hér bæn sem
kannski á nokkurn hátt lýsir því
hvernig þú varst.
Drottinn Guð og faðir, veit okkur þá
náð að elska hvem þann sem á vegi
okkarverður. Við áköllum miskunn
þína og biðjum fyrir öllum, sérstaklega
þeim, sem þú hefur gefið okkur til
samfylgdarílífinu.
Gef þeim, Drottinn, langt umfram allt
sem við kunnum að biðja eða hugsa.
Lát þau ávallt vera í vemd þinni og
handleiðslu. Hjálpa þeim að elska þig
og lát þau að lokum eignast lífið eilífa,
óforgengilega. Þér sé dýrð að eilifu.
Amen.
(Anselm.)
Þinn
Kjartan Örn Þórðarson.
Með þessum orðum vil ég kveðja
þig elsku amma mín. Ég á svo marg-
ar góðar minningar um þig sem ég
mun ávallt geyma í hjarta mínu. Þú
varst mér alltaf svo góð og kenndir
mér svo margt, bæði um lífíð og
dauðann. Þess vegna er ég sannfærð
um að núna ertu á góðum stað í
öruggum höndum. Þú varst sérstök
kona amma mín, svo hlý og góð. Með
hæfileikum þínum og visku varstu
öðrum til styrktar og þar á meðal
mér.
Heima hjá þér var allt svo snyrti-
legt og fallegt. Hvergi var í-ykkom
að sjá og allt í röð og reglu. Þú varst
mjög lagin í höndunum og alltaf að
dunda eitthvað þér til ánægju, saum-
aðir, málaðir og föndraðir. Þú hafðir
mikinn áhuga á blómum, hugsaðir
ávallt vel um blómin þín og hugaðir
að blómum annarra. Þér tókst alltaf
að halda blómunum þínum á lífi með
alls kyns brögðum.
Þegar ég var yngri kom ég oft og
gisti hjá þér á Reynimelnum, þá
brölluðum við tvær ýmislegt saman.
Við fórum iðulega í gönguferð sam-
an því það gerðir þú daglega og
varst alltaf að brýna fyrir mér mikil-
vægi þess að hreyfa sig. Um kvöldið
sátum við svo hlið við hlið fyrir fram-
an sjónvarpið og borðuðum hvor
sinn greipávöxtinn með skeið. Þú
bauðst mér stundum að sofa 1 auka-
herberginu en það var ekki til um-
ræðu því ég vildi aðeins vera á dýnu
á gólfinu hjá þér. Við lásum svo bæn-
irnar saman og þá var svo ljúft að
sofna.
Frá því ég man eftir mér varstu
alltaf hjá okkur yfir jólin. Við systk-
inin reyndum yfirleitt að telja þig á
að gista í nokkra daga og tókst það
oftast. Þú gistir þá í mínu herbergi
og mér fannst svo notalegt að hafa
dótið þitt þar og þú leyfðir mér alltaf
að gista á dýnu við hlið þér. Síðast-
liðin jól voru síðustu jólin sem við
áttum saman amma mín og ég á eftir
að sakna þess sárt að hafa þig ekki
við borðið hjá okkur á aðfangadag-
skvöld. Þú varst svo stór hluti af lífi
mínu og þú varst alltaf til staðar fyr-
ir mig og fjölskyldu mína.
Ég þráði svo heitt að hafa þig
lengur hjá okkur amma mín en um
það fæ ég víst engu um ráðið. Þín
síðustu ár voru þér oft Jiungbær og
þú varst oft mikið veik. I þetta skipt-
ið gafst litli líkaminn þinn upp. Ég á
eftir að sakna samvista við þig mjög
mikið en ég hughreysti mig við að
núna líður þér vel og þú hefur fundið
frið í sálu þinni. Ég veit að þetta var
þinn vilji. Elsku amma mín, ég kveð
þig nú með lítilli bæn sem þú kennd-
ir mér þegar ég var barn, eitt sumar-
kvöld í sumarbústað í Hraunborg-
Hvíldu nú í friði.
Láttu nú ljósið þitt
logaviðrúmiðmitt,
hafðu þar sess og sæti
signaðiJesús mæti.
Þín einlæg
(H.P.)
Sigrún Ása.
Nú er hún Elín amma mín, eins og
við systur kölluðum hana alltaf, dáin.
Þótt það sé erfitt að kveðja og
sætta sig við að þú sért farin frá okk-
ur veit ég innst inni að þér líður vel
núna og að þú ert í góðum höndum
hjá afa og nöfnu minni henni lang-
ömmu. Ég man þegar við mæðgur
fluttum á Krókinn og mamma sagði
mér að hér hefðir þú átt heima og al-
ist upp. Ég var alltaf að reyna að sjá
ykkur Fríðu fyrir mér leika ykkur
fyrir utan litla húsið rétt hjá Villa
Nova. Mér fannst ég alltaf eiga sér-
stakan hluta í þér eftir að hafa alist
upp á Króknum og fermst í sömu
kirkju og þú og ég veit að þér þótti
vænt um það amma mín.
Þú sæla heimsins svalalind,
ó.silfurskæratár,
erallrisvalarýtakind
og ótal læknar sár.
Æ, hverf þú ei af auga mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heimsins burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn er ég græt,
en drottinn telur tárin mín -
égtrúíoghuggastlæt.
(Kristján Jónsson.)
Hvíldu í friði amma mín
Þín
Ólína Björg.
Elsku Elín amma.
Nú ertu farin yfir móðuna miklu á
stað þar sem þér líður vel með afa
sem þú saknaðir svo mikið. Eftir eig-
um við góðar minningar um þig
elsku amma sem varst eins og fjár-
sjóður sem við geymum í leynum á
vissum stað í hjarta okkar. Það var
alltaf svo gaman að koma í heimsókn
til þín og fá eitthvert gott nammi og
kökur sem þú tróðst í okkur. Þú
varst svo góðhjörtuð og örlát og það
var alltaf svo góð lykt í húsinu þínu.
Alltaf áttir þú það besta að gefa okk-
ur, allir fallegu hlutirnir sem þú
bjóst til og gafst okkur. Af öllum
gjöfunum sem þú gafst okkur þykir
okkur vænst um blítt viðmót þitt.
Fas þitt var mjúkt eins og vorgolan.
Þú varst jafn nærgætin og Guð sjálf-
ur.
Engin amma gæti átt hlýrra
hjarta en þú. Þú hefðir átt að fá
verðlaun fyrir að vera besta amman
af því augun í þér voru svo tindrandi
björt og glóðu sem eðalsteinar og
bros þitt var svo mjúkt og fullt af
hlýju.
Élsku amma, takk fýrir allt. Fyrir
að vera svona góð og blíð, fyrir að
faðma okkur og kyssa og, í fæstum
orðum, fyrir að vera algjör dýrling-
ur. Okkur þykir ofsalega vænt um
þig og munum minnast þín um
ókomna tíð. Megi góður Guð geyma
þig elsku amma.
Þínar
Ólöf Eva og Tinna.
HELGA K.
HALLDÓRSDÓTTIR
OLESEN
+ Helga K. Hall-
dörsdóttir Olesen
fæddist í Hafnarfirði
24. desember 1908.
Hún lést í Reykjavík
26. desember síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 30.
desember.
Sunnudagskvöldið
annan í jólum kvaddi
amma þennan heim, þá
nýorðin 91 árs.
Upp koma minning-
ar, minningar frá
æsku, góðu dögunum í Nökkvavog-
inum. Amma og afi lifðu fyrir
barnabörnin sín og alltaf var suðað
um að fara til þeirra. Pönnuköku-
ilmurinn úr eldhúsinu var alltaf
heillandi og fengum við að narta í á
meðan amma stóð og bakaði. Úti
var afi að dytta að einhverju í garð-
inum eða í gróðurhúsinu. Amma var
þúsund þjala smiður, allt sem hún
gerði í höndunum; saumaði, heklaði,
prjónaði, leðurvinna og öll lista-
verkin sem hún skar út úr hvaltönn-
um, beinum og við. Þessa fallegu
hluti varðveitum við, geymum fyrir
börnin okkar. Amma var jólabarn,
fædd á aðfangadag. Á aðfangadag
var fastur liður að fara til ömmu og
afa uppúr hádegi og amma sá til
þess að dagurinn yrði sem stystur
fyrir okkur börnin
með ýmissri afþrey-
ingu. Síðan var farið
til messu í Langholts-
kirkju, með öll barna-
börnin. Já, það eru
margar góðar minn-
ingar um ömmu sem
aldrei skipti skapi,
alltaf svo hlý og góð.
Árið 1989 varð afi
bráðkvaddur, fjórum
árum síðar fór amma
á elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund þar
sem hún lést. Síðustu
árin var hún afskap-
lega heilsulaus, en alltaf var gott að
koma til hennar og fá mola, alltaf
var hún glöð að sjá langömmubörn-
in sín, bauð hún þá gjarnan upp á
mola úr dallinum sínum.
Elsku besta amma, hjartans
þakkir fyrir allar góðu stundirnar.
Við vitum að nú eruð þið saman á
ný. Við kveðjum þig með bæninni
sem þú kenndir okkur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson.)
Guð geymi þig, elsku amma okk-
ar.
Helga K. Martinsdóttir,
Svava M. Martinsdóttir.
Birting afmælis- og minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.