Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 67v
FÓLK í FRÉTTUM
Vilja koma Hali-
fax á toppinn
Reuters
Vallarstarfmenn hjá Halifax dytta að vellin-
um. en það er ekki seinna vænna því von er á
íslenskum stuðningsmönumm liðsins.
ENSKA knattspymufé-
lagið Halifax á sér
marga stuðningsmenn á
Islandi. Ritstjóm viku-
blaðsins Skessuhorns
hefur kynnt liðið í bak
og fyrir á heimasíðu
sinni og virkjað þann
mikla áhuga sem er á
liðinu hér á landi.
Skessuhom sér um að-
dáendaklúbb Halifax á
Islandi og í honum era
um 200 meðlimir og að
sögn Magnúsar Magn-
úsarsonar hjá Skessu-
horni koma þeir frá öll-
um heimsálfum.
Astæðan fyrir að
stjómendur Skessu-
horns helguðu hluta af
vefsíðu blaðsins fréttum
og kynningu á liðinu frá
Halifax var að þeirra
sögn að þeim þótti vera
hallað á liðið vegna mik-
ils fréttaflutnings ís-
lenskra fjölmiðla um lið-
ið Stoke, sem meðal
annars hefur sérstakan
vef á heimasíðu Morg-
unblaðsins. En aðdá-
endur Halifax hafa litlar
mætur á því liði og
heimasíðunni eru þeir kallaðir
klunnalegir tuðrusparkai-ar. Fram
kemur á heimasíðunni að helsta
markmið með vefnum sé að hvetja
Halifax liðið áfram, ekki veitir af, því
saga liðsins er ekki glæst og útlitið
er ekki bjart, og stuðla að því að það
komist í efstu deild ensku knatt-
spyrnunnar.
Hefur vakið
mikla athygli
Að sögn Magnúsar hefur heima-
síðan um Halifax vakið mikla athygli
og fjöldi manns skoðar hana á hverj-
um degi til þess að líta á fréttir af lið-
inu. Til marks um athyglina má þess
geta að knattspyrnutímaritið Match
hefur tekið viðtal við ritstjóra
Skessuhoms um stuðning þess við
Halifax. Blaðið er með fréttaritara í
Halifax sem tryggir að nýjustu frétt-
irnar úr herbúðum liðsins berist
hratt og örugglega til landsins. Að
sögn Magnúsar era þeii' afar stoltir
að þeirri staðreynd, meðal annars í
ijósi þess að stærri fjölmiðlar eins og
Morgunblaðið hafa ekki fréttaritara
í Stoke. Á vefnum er einnig að finna
upplýsingar um leikmenn liðsins en
nöfn þeirra hafa verið þýdd á ís-
lensku til þess að auðvelda íslensk-
um aðdáendum að innbyrða upplýs-
ingarnar. Einnig fylgir hverjum
leikmanni mannlýsing sem er í anda
íslendingasagnanna. Til að mynda
er sagt um markvörðinn Kristinn
Asksson (Chris Adamson) að hann
sé ódæll og uppivöðslusamur og
ójafnaðarmaður mikill. Liðsstjórinn
Georg Múli Hallgrímsson (George
Mullhall) er sagður illa tenntur og að
það geri bros hans ógnvænlegt og
hlægilegt í senn.
Ætla til Halifax á leik
Magnús segii' að stuðningur aðdá-
endaklúbbsins einskorðist ekki við
það að fylgjast með framgöngu fé-
lagsins. Til stendur að skipuleggja
hópferð á leik hjá liðinu í febrúar.
Ekki er enn búið að ákveða á hvaða
leik verður farið en það skýrist á
næstunni.
Neil Young
Ný plata frá Young
Kanadíski rokarinn Neil Young mun
senda frá sér nýja breiðskífu á næstunni
er ber heitið „Silver and Gold“. Aðdá-
endur Young er búnir að bíða lengi eftir
þessari plötu en útgáfu hennar var
frestað vegna þess að hann ákvað hitta
gömlu félagana sína, þá Crosby, ,
Stills og Nash og gera plötu með
þeini.
Á „Silver and Gold“ plötunni verð-
ur Young með kassagítarinn og leik-
ur lög í rúlegri kantinum.
UTIVISTARVERSLUN
Faxafen 12 • Sinii 533-1550 • dansol@centrum.is
TILBOÐSDAGAR
NÝTT KORTATÍMABI L
INGÓLFSSTRÆTI 5 • 101 REYKJAVÍK • S í l\A I 5 5 1 5080