Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
Árnað heilla
janúar, verður sextugur
Reynir Jóhannsson, út-
gerðarmaður, Glæsivöllum
2, Grindavík. Hann og eig-
inkona hans, Jenný Jóns-
dóttir, taka á móti gestum í
Veitingahúsinu Jenný við
Bláa lónið, laugardaginn 22.
janúar, frá klukkan 20-24.
BRIDS
llmsjún Guðmundur
Páll Arnarson
Dobl á slemmum hafa yfirleitt
þann tilgang að benda á
útspil. En dobl vesturs í spili
dagsins var ekki aldeilis af
þeim toga, því hann átti
sjálfur út! Þetta var í áttundu
umferð Reykjavíkurmótsins:
Norður gefur; NS á hættu
(áttum breytt).
Norður
A ÁG2
¥ ÁKG54
♦ 82
* D83
Austur
A D8654
¥ 1076
♦ K1074
*4
Suður
A K1093
¥2
* ÁD3
* ÁK76
Vcstur
AÁ7
¥ D983
♦ G965
* G1062
Sex lauf var algengur
samnngur í NS, en nokkur
pör höfðu meiri metnað og
keyru í sjö. Þeirra á meðal
voru Gylfi Baldursson og
Steinberg Ríkharðsson:
Vestur Norður Austur Suður
lþjarta lspaði Dobl*
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 grönd Pass 4 lauf-
Pass 4 lyörtu Pass 4grönd
Paas Sspaðar Pass 71auf
Dobl Pass Pass Pass
Spaðainnákoman gerir
alslemmuna meira freistandi,
því bæði verður vandalaust að
finna spaðadrottninguna og
svo er líklegt að
tíglulsvíningin gangi. En því
miður - trompið lá ekki nógu
vel og alslemman fór því
niður.
En víkjum þá að dobli
austurs. Það ekki alveg
hættulaust, því blindur gat
vel átt KD8 og þá fær
sagnhafi tækifæri til að
djúpsvína fyrir G10. En svo
er það hin hættan, sem Gylfi
benti á að leik loknum: Hann
hélt á spiium suðurs og var
óánægður með að breyta ekki
í sjö grönd, en sú slemma er
óhnekkjandi! Með spaða út er
vinningsleiðin nánast
þvinguð: Sagnhafi tekur fjóra
slagi á spaða, prófar laufið í
tveimur umferðum og svínar
svo tíguldrottningu. Vestur er
nú orðinn býsna aðþrengdur
og þegar tígulás er næst
spilað verður hann að henda
hjarta. Sagnhafi svínar þá
gosanum og þakkar kærlega
fyrir sig.
Utspil í hjarta þyngir spilið
svolítið, en ef sagnhafi túlkar
doblið rétt þá fer hann sömu
leið: Svínar strax hjartagosa,
tekur slagina á spaða og tígul,
en hreyfir ekki laufið, því
laufdrottningin er nauðsynieg
innkoma á fríhjörtun síðar.
Já; það hefði verið gaman að
segja sjö grönd og vinna á
þennan hátt.
r A ÁRA afmæli. í dag,
O \/ þriðjudaginn 18. jan-
úar, verður fimmtug Katrín
Baldvinsdóttir skrifstofu-
stjóri. Eiginmaður hennar
er Gunnar Sveinsson við-
skiptafræðingur. Þau taka á
móti ættingjum og vinum
laugardaginn 22. janúar í
Lionshúsinu, Sóltúni 20,
millikl. 17-20.
SKAK
Umsjón Ilelgi Áss
Grétarson
Hvítur á leik
HÉR virðist sem svartur sé
við það að jafna taflið í skák
á milli tveggja kunnra stór-
meistara, Oleg Romanishin
og Leonid Yudasin. Þrátt
fyrir að hafa borið sigur úr
býtum á mótinu í Reggio
Emilia varð Yudasin að lúta
í lægri haldi í þessari orr-
ustu. 24. Hc8+! 24. Kh7 25.
Hxb8! Hxb8 26. ba Svartur
gafst upp þvi ekkert fær
stöðvað frípeð hvíts.
janúar, verður fimmtugur
Finnbogi Jónsson, aðstoð-
arforstjóri SÍF hf., Fagra-
hvammi 13, Hafnarfirði.
Hann og eiginkona hans,
Sveinborg Helga Sveins-
dóttir, bjóða þeim sem
vilja fagna þessum tíma-
mótum með þeim að líta
inn í ÍS-húsið, Sigtúni 42,
milli kl. 17 og 20 í dag, af-
mælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tiikynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og sfmanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einning er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
COSPER
Ha, ha! Ég er að lesa um ættbálk í Afríku, þar sem
karlinn er ennþá höfuð fjölskyldunnar.
UOÐABROT
GAMALT VORSTEF
Hempusvört nótt er horfin, aftur birtist
hökulsins sólgull, drifhvítt rykkilín.
Heimsmyndin slu'ýðist heiðu litavali,
himnarnir opnast, sólin blessuð skín.
Ljósfælinn reykur liðast yfir bænum,
laufgrænum bæ við fagurbláan vog,
bóndinn er róinn, bliki slær af reistum
blöðum, sem falla í lagvisst áratog.
Hugljúfan unga hleypur út í vorið
hamingjurjóð með gamla skel og legg,
gleði og bros til guðs, sem var að skapa
glóhærðan fifil undir skemmuvegg.
Senn fær hún kuðung, silfurdisk og ígul,
senn kemur pabbi róandi í land.
Dreymandi saumar dóttir fiskimannsins
dálítil spor í gráan fjörusand.
Krístinn Pétursson.
STJÖRMSPÁ
eftir Franees Drake
STEINGEITIN
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert glaðvær oggóðlynd-
ur, en umfram aiit hefurðu
lcyft barninu í þér aðlifa
áfram.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú ert uppfullur af hugmynd-
um, en ættir að fara þér hægt
að dreifa þeim út um allt.
Það er betra að hafa þær
færri og koma þeim vel frá
sér.
Naut
(20. apríl - 20. maí) 0+
Taktu enga meiriháttar
ákvörðun án þess að hugsa
hana vandlega. Gættu þess
sérstaklega að skrifa ekki
undir neitt sem þú ert ósáttur
við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) Aa
Það er svo margt að gerast, að
þér finnst þig skorta yfirsýn.
Taktu þér tíma til þess að sjá
hvemig landið liggur og taktu
svo til þinna ráða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hlustaðu á þinn innri mann
og leyfðu honum að ráða,
enda þótt þér finnist ýmislegt
athugavert við ráðagerðir
hans. Mundu bara að skaða
engan.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Það reynir á samstarfshæfi-
leika þína og þú verður að
sýna öðrum gott fordæmi með
lipurð og sveigjanleika. Þú
munt uppskera laun þín erfið-
is.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það veltur mikið á því að þú
náir að notfæra þér sérstök
tækifæri, sem bjóðast í dag.
Hafðu augun opin og vertu
fljótur að ákveða þig.
(23. sept. - 22. október) >¥»►
Betur sjá augu en auga. Það
er engin minnkun að leita til
annarra með hluti, sem vefj-
ast fyrir þér. En vertu vand-
látur í vali á hjálparkokkum.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi. Hugaðu sérstaklega að
öllum smáatriðum í dag, þar
sem það kann að vera afdrifa-
ríkt, ef þér yfirsést eitthvað.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) mO
Hafðu varann á í samskiptum
þínum við aðra. Mundu að
ekki eru allir viðhlæjendur
vinir, en nú ríður á, að aðrir
sýni þér skilning og sanngirni.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) ÆttMT
Þú þai-ft að fást við þýðingar-
mildð mál í dag. Bezt er að
ganga hreint til verks og láta
engan velkjast í vafa um fyrir-
ætlanir þínar.
Vatnsberi
(20.jan.r-18.febr.)
Nú er komið að því að hrinda í
framkvæmd hugmynd, sem
þú hefur alið með þér um
skeið. Ef þú ferð rétt að mun
hún afla þér vinsælda og virð-
mgar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það er margt sem getur vafist
fyrir manni og þeir dagar
koma, að það er engin ástæða
til þess að ákveða hlutina í
einhverju hasti. Gefðu þér
tíma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 65
SJALFSDALEIÐSLA
Nýtt nájtnskeið liefst 2. febrúar
Hringdu núna
Fræðsluauglýsing frá tandlæknisembættinu www.landlaeknir.is
pungiyndi, ,
^ * er alvarlegur
09 algengur sjúkdómur.
Þunglyndi fer ekki í manngreinarálit.
Sjúkdómurinn leggst jafnt á unga sem aldna.
Helstu einkenni hans eru:
Hryggð, vonleysi, sektarkennd
Almennt áhugaleysi
Svefntruflanir
Þreyta og orkuleysi
Einbeitingarleysi
Tíð grátköst
Breytingar á matarlyst og þyngd
Hugsanir um sjálfsvíg
Leitaðu læknis eða á heilsugæslustöð sem fyrst, ef þú hefur haft
fjögur eða fleiri þessara einkenna í tvær til fjórar vikur.
Ef einhver þér nákominn hefur þessi einkenni, gríptu þá í taumana.
Möguleikar á bót eru mjög miklir.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
MEIRA S.TÁLFSÖRYGGI
EINKATÍMAR/NÁMSKEIÐ sími 694 5494
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Þorrablót
Hið árlega þorrablót
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
verður haldið í Valhöll
laugardaginn 22. janúar nk.
Blótið hefst kl. 20.00,
en húsið verður opnað kl. 19.00.
Blólssljórn verður í höndum Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, borgarfulltrúa og
heiðursgestur verður Árni Johnsen,
alþingismaður.
Fjöldi skemmtiatriða, meðal annars flytur
Omar Ragnarsson gamanmál, flutt verða
minni karla og kvenna, happdrætti,
KOS Jeikur fyrir dansi o.fl. o.fl.
Miðasala í Valhöll, sími 515 1700.
Miðaverð kr. 2.800.
Hiftumst hress í góðra vina hópi.
Þorrablótsnefndin.
^ÍCrÍ
Kringlunni, 1. hæð
sími 568 9345.
Ú