Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 57 ’
Eiríkur mat að verðleikum sína góðu
konu.Eiríkur og Ása áttu þrjú mann-
vænleg börn, Teit, Sigríði Erlu og
Eyvind. Þau gengu öll menntaveg-
inn, vel gefin og til fyrirmyndar í
samfélaginu. En enginn má sköpum
renna, sorgin barði harkalega sð dyr-
um. Hjónin misstu bæði Sigríði Erlu
og Teit í blóma lífsins og varð ekki
langt á milli þeirra. Þau systkini urðu
öllum mikill harmdauði. Hugprýði og
kjarkur þeirra hjóna beggja að vinna
sig fram úr þeirri miklu sorg, vakti
athygli og aðdáun.
En ekki er ein báran stök, Asa
fékk krabbamein og barðist við þann
vágest árum saman. Og ávallt var
hún söm og jöfn við okkur nágranna
sína og baðst hvergi vægðar. Hún var
sönn hetja, en varð þó að láta undan
ógn sjúkdómsins.
Eiríkur var frumkvöðull að stofn-
un Lions-félags í sveitinni og fyrsti
formaður þess. Hann sá til þess að
þar væri vel unnið að ýmsum þjóð-
þrifamálum, þar sem líknarmál ýmiss
konar skipuðu öndvegi. Meðal efnis,
sem þar var flutt, voru snjöll kvæði
hans, þó nókkuð drægist að hann léti
okkur heyra. Já, Eiríkur var vel hag-
mæltur og orti undir ýmsum bragar-
háttum, en lét lítið á bera. Margt
fleira mætti telja upp af fjölbreyttum
tómstundastörfum.
„Hetjur hvunndagsins“ finnast
víst alltaf meðal vor og ein þeirra var
sá góði drengur, sem við nú kveðjum.
Eftir miklar hremmingar í lífinu varð
Eiríkur þó aldrei bugaður. Hann
varð snemma dugmikill strákur og
sómi sinna foreldra, sem sáu í honum
myndarskapinn og góða greind.
Hann lifði skynsamlega og ræktaði
vel sitt pund. Eiríkur átti líka góða
daga, það stafaði mikilli hlýju frá
yndislegri eiginkonu og fallegum, vel
gerðum bömunum. Og lífsstarfinu
skilaði hann með prýði.
Á seinni árum byggði karl sér hlý-
legan bústað hér niður á Stóra-Nefi í
landi Eyvindartungu. Þar undi hann
hag sínum vel. Hann kynntist á ný
góðri konu, sem hlúði vel að honum
og skapaði betri sátt við hörð örlög.
Þökk sé henni.
Gömlum vini þökkum við af alhug
hin góðu kynni frá næstum blautu
barnsbeini, allir geta lært af hetju-
lundinni, þó óskandi sé, að sem fæstir
þurfi á að halda.
Biðjum syrgjendum allrar bless-
una. Far í Guðs friði.
Ester og Þorkell Bjamason.
Þegar minnast skal góðs manns
með fáum orðum er erfitt að velja úr
því sem á hugann sækir. Sú gæfa að
kynnast Eiríki Eyvindssyni er ómet-
anleg en upphaf vináttu okkar má
rekja til þess að sá sem þetta skriíár
varð snemma heimagangur á heimili
þeirra Ásu á Laugarvatni, enda syst-
ursonur hennai'. Var sú vinátta
traust og samgangurinn milli fjöl-
skyldna okkar mikill.
Eiríkur bjó og starfaði á Laugar-
vatni meginhluta ævi sinnar. Hafði
hann umsjón með sameignum skól-
anna á Laugarvatni. Eiríkm- var lag-
hentur og vandvirkur og var aðstoð
hans kærkomin, enda var hann með
afbrigðum bóngóður og útsjónarsam-
ur. Eftirminnileg er áherslan sem
hann lagði á að öllum reglum yrði
fylgt og fyllsta öryggis gætt. Þeim
sem þetta skrifar þótti nákvæmnin í
þeim efnum stundum einum of mikil
og gerði gjarnan góðlátlegt grín að
því en Eiríkur tók því alltaf vel og
skaut gjarnan á móti, enda gaman-
samur.
Það var gestkvæmt hjá þeim Ei-
ríld og Ásu á Laugarvatni og sá sem
þetta ritar fékk oft að dvelja þar um
skemmri eða lengri tíma á yngri ár-
um. Það var ævintýri líkast í augum
ungs drengs að fylgja Eiríki við vinnu
hans, enda var það eftirsótt meðan
dvalist var hjá þeim hjónum. Sér-
staklega minnisstæðar eru ferðirnar
þegar farið var í siglingu um vatnið.
Þá voru ýmsir óþekktir angar þess
kannaðir en Eiríkur var vel að sér um
staðhætti við Laugarvatn. Þannig
varð vinátta okkar Eiríks frá upphafi
eins og vinátta getur best orðið og ríf-
lega hálfrar aldar aldursmunur hafði
þar aldrei áhrif.
Hagsmuni sumarhúsaeigenda á
Stóranefi við Laugarvatn bar Eiríkur
fyrir brjósti, enda átti þau hjónin þar
land undir sumarhús líkt og önnur
systkini Ásu úr Eyvindartungu.
Hann átti stóran þátt í að rafvæða
Stóranef og hvatti mjög til þess að
allir, sem þess óskuðu, fengju heitt
vatn frá Laugarvatni til nota í sumar-
húsum sínum. í þessum málum var
liðsinni Eiríks ómetanlegt, enda öll-
um hnútum kunnugur í sveitinni og
vel liðinn. Þannig hefur aðbúnaður-
inn á Stóranefi batnað mikið með ár-
unum og ekki síst fyrir tilstuðlan Ei-
ríks, því miklu munaði þegar hann
lagði hönd á plóg.
Eiríkur naut náttúrunnar, enda
umvafinn mörgu því besta sem hún
hefur að bjóða. Hafði hann mikinn
áhuga á að eignast sumarhús á Stóra-
nefi og þegar hann lét af störfum fyr-
ir aldurs sakir og fluttist til Reykja-
víkur hófst undirbúningurinn.
Draumurinn rættist síðan sumarið
1997 og áttræður að aldri lét hann
flytja sumarhús á Stóranef og hafðist
handa við að gera það íbúðarhæft.
Naut hann við það liðsinnis góðra
manna, en sjálfur vann Eiríkur að því
hörðum höndum að klára húsið. Ei-
ríkur var vanur slíkum verkum og
sóttist honum það vel. Ber allur frá-
gangur og aðbúnaður hugviti hans og
vandvirkni glöggt vitni. Lagði hann í
það hitaveitu og rafmagn og bjó það
að innan til íveru ásamt góðri vin-
konu sinni, Svölu Konráðsdóttur,
sem hann kynntist eftir að Ása lést.
Dvaldist Eiríkur í sumarhúsinu flest-
um stundum allan ársins hring og þá
oftast í félagi við Svölu, en kynni
þeirra voru honum til mikilla heilla.
Að horfa á náttúruna sofa að vetri,
vakna að vori, njóta að sumri og nýta
að hausti var yndi Eiríks, og fáir voru
þeir staðir sem hann fékk þess betur
notið en við Laugarvatn. Gaf það
honum mikið og líklegt má telja að
Eiríkur hafi talið sig skyldugan til að
endurgjalda dalnum sínum gjafirnar,
enda sjást verk hans þar víða. Laug-
ardalurinn var hluti af Eiríki og í
huga þess sem þá báða þekkir var
Eiríkur hluti Laugardalsins.
Eiríkur Eyvindsson var heiðurs-
maður og lifir minning hans um
ókomna framtíð. Aðstandendum
hans sendum við Guðrún Hildur okk-
ar innilegustu samúarkveðju.
Helgi Teitur Helgason.
• Fleiri minningargreinar um Ei-
rik Kr. Eyvindsson bíða birtíngar
ogmunu birtast iblaðinu næstu
daga.
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON,
(Óli á Horninu),
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 19. janúar kl. 14.00.
Aðalbjörg Ólafsdóttir, Jenni R. Ólason,
Birna G. Ólafsdóttir, Guðmundur Ingi Waage
og fjölskyldur.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
RAGNAR MAGNÚSSON
fyrrverandi hafnarvörður,
Víðihlíð, Grindavík,
sem lést föstudaginn 14. janúar, verður jarð-
sunginn frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn
19. janúar kl. 14.00.
Jón Ragnarsson, Kristín Thorstensen,
Gestur Ragnarsson, Jóhanna Garðarsdóttir,
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Óiína Ragnarsdóttir
og fjöiskyldur.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, systur
og tengdadóttur,
HÖLLU SOLNÝAR SIGURÐARDÓTTUR,
Grenigrund 16,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til allra sem sinntu henni og
studdu í veikindum hennar.
Heimir V. Pálmason,
Sigurður Dan Heimisson, Sunna Dögg Heimisdóttir,
Rósa Geirþrúður Halldórsdóttir,
Rósa Sigríður Sigurðardóttir,
Þorleifur Már Sigurðsson, Kristín Pálína Ingólfsdóttir,
Bára Rut Sigurðardóttir, Emil Thorarensen,
Dóra Guðný Sigurðardóttir, Jón Harrý Óskarsson,
Elmar Örn Sigurðsson, Guðrún Agnes Kristjánsdóttir,
Kristján Guðni Sigurðsson,
Pálmi Jónsson, Edda Vilhelmsdóttir.
Lokað
í dag, þriöjudaginn 18. janúar, miili kl. 13 og 15, vegna jarðarfar-
ar EINARS MAGNÚSSONAR.
Ríkisskattstjóri.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR ARASON
matreiðslumaður,
Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést á Sólvangi, Hafnarfirði, þriðjudaginn
11. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.30.
Jón Þórðarson, Emilía Jónsdóttir,
Birgir Þórðarson,
Sigurgeir Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
JOHN M. FELT,
f. 17.02.1936,
Ellsworth,
Wisconsin,
lést laugardaginn 15. janúar.
Helga Jónsdóttir Felt,
John Erik Felt,
Anna Hulda Felt,
Maureen C. Felt,
Alaina K. Felt,
John August Felt.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGNE MARIE JÓNSSON,
lést aðfaranótt sunnudagsins 16. janúar sl.
Fyrir hönd vandamanna,
Karl Pétur Lárusson,
Björn Lárusson,
Gréta Lárusdóttir,
Sigríður Karen Lárusdóttir,
Marteinn Amby Lárusson,
Bjarni Amby Lárusson,
Lars fvar Amby Lárusson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Föðursystir okkar,
ÁSTA JÓNASDÓTTIR,
frá Litladal,
sem andaðist miðvikudaginn 12. janúar sl.,
verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn
19. janúar kl. 15.00.
Elín Ólafsdóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir,
Birna K. Ólafsdóttir, Elín Bjarnadóttir,
Jónas Bjarnason, Kolfinna Bjarnadóttir,
Ólafur Bjarnason.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN BJÖRGVIN BJÖRNSSON,
áður til heimilis
á Digranesheiði 45,
lést á Landakotssþítala laugardaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
21. janúar.
Björn B. Björgvinsson, Agnes Sigurðardóttir,
Einar Magni Sigmundsson, Vilborg Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GUÐMUNDAR SIGURJÓNSSONAR,
Ljósheimum 4.
Birgir Guðmundsson, Nanna Sigríður Baldursdóttir,
Bjarni Birgisson,
Guðmundur Birgisson.