Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Viðskiptaráðherra um viðskipti starfsmanna verðbréfafyrirtækja fyrir eigin reikning Talsverð verðhækkunhlutabréfa á Verðbréfaþingi íslands V erklagsreglur ætti að birta opinberlega Bréf Trygginga- miðstöðvarinnar lækkuðu um 10,4% VALGERÐUR Sverrisdóttir, við- skiptaráðherra, segist vera þeirrar skoðunar að fyrirmynd að verklags- reglum, sem samtök fyrirtækja í verðbréfaþjónustu vinna nú að, ætti að birta opinberlega, þegar þær hafa verið samþykktar af Fjármálaeftirlit- inu. Telur hún þetta nauðsynlegt þar sem komið hafi í ljós að fyrirtækin túlki reglumar mismunandi. Óvissa varðandi reglur um viðskipti starfs- manna í fyrirtækjunum fyrir eigin reikning grafi auk þess undan trú- verðugleika fyrirtækjanna. Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar AI- þingis, segir nauðsynlegt að farið verði yfir þessi mál og að skilgreint verði nánar hvað starfsmönnum fyr- irtækjanna sé heimilt og ekki heimilt. Aðilar markaðarins boðaðir til fundar Eins og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag eru Danir komnir lengra en íslendingar í lagasetningu um við- skipti yfirmanna fyrirtækja í verð- bréfaþjónustu með verðbréf fyrir eigin reikning. Viðskiptaráðuneytið kvaddi full- trúa eftirlitsaðila og fyrirtækja í verðbréfaþjónustu á sinn fund í gær- morgun, vegna þeirrar umræðu sem farið hefur af stað bæði um þess hátt- ar reglur og verklagsreglur á mark- aði. Valgerður segir fundinn hafa verið gagnlegan. Einhugur hafi ríkt á fund- inum um að markaðurinn setti sér sjálfur verklagsreglur í samvinnu við Fjármálaeftirlit. Menn hafi þó ekki verið á þeirri skoðun að ákvæðum verðbréfaviðskiptalaga þyrfti að breyta í samræmi við ákvæði dönsku laganna. Valgerður vildi þó ekki úti- loka að taka þyrfti á málinu síðar með lagasetningu. Væri það háð því hvort aðilar markaðsins næðu samkomu- lagi um verklagsreglur sem Fjár- málaeftirlitið sætti sig við. Þeirrar niðurstöðu yrði beðið, en Valgerður býst við að hún liggi fyrir innan mán- aðar. Efnahags- og viðskiptanefnd Al- þingis hefur ekki beitt sér í þessu máli en mun þó fylgjast með gangi mála, að sögn Vilhjálms Egilssonar, formanns nefndarinnar. Hann vildi ekki svara því hvort taka þyrfti upp í íslensku verðbréfaviðskiptalögin sambærilegt ákvæði og í þeim dönsku, en vega þyrfti þetta og meta. Danir byggðu eflaust lagasetninguna á reynslu sinni af þarlendum verð- bréfamarkaði. Vilhjálmur telur umræðuna eðli- lega miðað við þróun verðbréfamark- aðsins hér á landi, sem sé enn mjög ungur að árum. Vilhjálmur telur að skýrt þurfi að kveða á um, í verklagsreglum fyrir- tækjanna á markaðinum, hver ábyrgð yfirmanna sé. Að þeir skipti ekki með markaðsverðbréfum án þess að samþykki viðkomandi yfir- manns liggi fyrir og yfirlýsing hans um að farið hafi verið að lögum og þeim verklagsreglum sem gildi innan fyrirtækisins. Betur þurfi að skoða hvað eigi að vera heimilt og hvað óheimilt, en athafnafrelsi manna megi þó ekki hefta um of. Vilhjálmur er á sama máli og Val- gerður um að verklagsreglur fyrir- tækjanna þurfi að birta, en finnst álitamál hvort stjómvöld og eftirlits- aðilar geri það eða að hvert og eitt fyrirtæki birti sjálft sínar reglur. Síð- ari kosturinn treysti án nokkurs vafa stöðu hvers fyrirtækis. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingu á lagaákvæðum um fjármálaeftirlit. í tillögum að breyt- ingum á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi er að finna heimild fyrir Fjármálaeftirlitið til að gefa út og birta opinberlega leiðbein- andi tilmæli um starfsemi eftirlits- skyldra aðila. Segir í athugasemdum með frumvarpinu að þess háttar reglur og tilmæli muni ekki hafa lagastoð í hefðbundnum skilningi og séu því ekki skuldbindandi á sama hátt og ákvæði reglugerða og reglna sem settar séu með sérstakri heimild í lögum. Þær geti hins vegar orðið grundvöllur krafna Fjármálaeftirlits- ins um úrbætur með tilvísun til heil- brigðra og eðlilegra viðskiptahátta. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, telur að stofn- unin muni án nokkurs vafa nýta sér þessa heimild, verði hún lögfest. Út- gáfa tilmæla yrði kærkomin viðbót við þær verklagsreglur sem gerð er krafa um að fyrirtækin setji sér. Væntanlega yrði þá sá háttur hafður á að tilmælin byggist á málum sem upp koma og hafa almennt gildi fyrir markaðinn í heild, án þess að nöfn að- ila hvers verði birt. Páll Gunnar sagði aðspui'ður, að hann teldi að tilmælin gætu haft áhrif á mat dómstóla í ein- stökum málum, í samræmi við það sem tíðkist á Norðurlöndunum. Vilhjálmur Egilsson telur að til- mæli Fjármálaeftirlits geti verið vel til þess fallin að móta frekar þá verk- lagshætti sem reglur hvers fyrirtæk- is mæla fyrir um. Verði þessi heimild að lögum þurfi þó að ákvarða nánar verkaskiptingu milli viðskiptaráðu- neytis og Fjármálaeftirlitsins. Innan viðskiptaráðuneytisins er um þessar mundir unnið að samningu frumvarps um breytingu á lögunum um verðbréfaviðskipti, að sögn Val- gerðar Sverrisdóttur. I því frumvarpi verður ekki kveðið á um innihald verklagsreglna, heldur birtingu þeirra og viðurlög við brotum. Hófst sú vinna í haust og áætlar Valgerður að frumvarpið verði lagt fram nú á vorþingi. Of snemmt sé þó að greina frá því út á hvað breytingarnar gangi, að öðru leyti en því sem að framan greinir. GENGI bréfa Tryggingamiðstöðv- arinnar hf. lækkaði í gær um 10,4%, eða úr 45,2 í 40,50, í kjölfar tilkynn- ingar um að afkoma félagsins á síðari hluta ársins í fyrra yrði ekki jafn góð og á fyrri hluta ársins. Alls vou við- skipti með bréf Tryggingamiðstöðv- arinnar fyrir 61 milljón króna á Verðbréfaþingi Islands í gær. Mest viðskipti voru með hlutabréf Baugs hf., eða fyrir 71 milljón króna, og hækkaði verð bréfanna um 8,1%. Verð 28 hlutafélaga hækkaði á Verð- bréfaþingi í gær, en verð 8 hlutafé- laga lækkaði. Sem dæmi um verð- hækkanir má nefna að bréf Þróunarfélagsins hækkuðu um 11,7%, Fiskiðjusamlags Húsavíkur hækkuðu um 10,2% og bréf Hrað- frystistöðvar Þórshafnar um 8,9%. Úrvalsvísitala þingsins, sem mælir gengi bréfa stærstu félaganna á að- allista VÞI, hækkaði um 1,55% og er nú orðin 1.658 stig sem er nýtt met. Tryggingamiðstöðin birti í gær til- kynningu á Verðbréfaþingi í kjölfar VIÐ samruna fjölmiðlarisanna Time Warner og America Online skapast óvissa um framtíð yfirmanna hjá fyr- irtækjunum, sérstaklega þeirra sem starfa við netþjónustu og stafræna tækni hjá Time Warner, þar sem sú starfsemi skarast hvað mest við að- alstarfsemi AOL. Þetta kemur fram í Wall Street Journal nýlega. Þar er haft eftir Ólafi Jóhanni Ólafssyni að spár íslandsbanka F&M yfir hagnað félagsins á síðasta ári sem hljóðaði upp á 375 m.kr. eftir skatta. í til- kynningunni er bent á að væntingar um hagnað á árinu 1999 séu töluvert yfir því sem fyrirtækið lét að liggja þegar fjallað var um rekstrarhorfur samhliða birtingu sex mánaða milli- uppgjörs í lok ágúst. Vart hægt að búast við betri afkomu Þar var gert ráð fyrir að áfram yrði töluvert tap af ökutækjatrygg- ingum þrátt fyrir iðgjaldahækkun sem dugar rétt svo til þess að mæta auknum bótagreiðslum félagsins. Einnig var í tilkynningu Trygginga- miðstöðvarinnar bent á stórt tjón sem varð í ágúst þegar togari sem tryggður var hjá félaginu sökk í Hafnarfjarðarhöfn. Því sé það mat félagsins að vart sé hægt að búast við betri afkomu á síðari hluta ársins en þeim fyrri en þá nam hagnaðurinn 162,1 milljón króna. hann viti ekki í hverju framtíðar- hlutverk hans hjá fyrirtækinu felist. Talsmenn Time Warner og AOL hafa lýst því yfir að uppsagnir séu ólíklegar í kjölfar samrunans, ætlun- in sé að stækka fyrirtækið. I Wall Street Journal kemur hins vegar fram að samþjöppun á starfsemi fyr- irtækja sé eðlileg við samruna, jafn- vel að hún sé aflögð með öllu hjá öðni fyrirtækinu. Ólafur Jóhann var ráðinn til starfa í nóvember sl. af Richard Bressler, stjórnarformanni Time Warner Dig- ital Media, og er Ólafur nú vara- stjórnarformaður. Samkvæmt Wall Street Joumal ríkir óvissa um fram- tíð þeirra beggja hjá sameinuðu fyr- irtæki. Time Warner Digital Media er nýlega stofnað fyrirtæki innan Time Warner um þá þætti er lúta að Netinu og stafrænni tækni. Bressler var ráðinn yfirmaður fyrirtækisins síðastliðið sumar en var áður aðal- fjármálastjóri Time Warner. „Framtíð hans virtist tryggð," segir í WalJ Street Journal, „en með sam- runanum við AOL verður óljóst hvernig Bressler og fleiri falla inn í mynstur þessarar nýju fjölmiðla- samsteypu". Fram kemur að Bressler hafi ráð- ið Ólaf Jóhann sem staðgengil sinn en Ólafur Jóhann er „best þekktur fyrir hlutverk sitt hjá Sony Corp. á bernskuárum margmiðlunar". Ólaf- ur Jóhann segir í samtali við Wall Street Journal að hann hafi gert sér grein fyrir möguleikanum á nefnd- um samruna þegar hann var ráðinn. Ólafur Jóhann segir jafnframt óljóst hvert framtíðarhlutverk hans hjá sameinuðu fyrirtæki verður. Samruninn gengur yfir á árinu og mun Bressler verða á meðal þeirra sem vinna að því að ljúka honum. Hjá Time Warner Digital Media starfa nokkur hundruð manns við vefsíðugerð og fleira. Líklegt er talið að AOL taki yfir þessa starfsemi en Michael Kelly, aðalfjármálastjóri AOL, segir fyrirtækið vilja halda öll- um starfsmönnum með góða þekk- ingu og reynslu af Netinu. „Það er erfiðast að finna gott fólk,“ segir hann en vildi ekki tjá sig um framtíð- arhlutverk Bresslers og Ólafs Jó- hanns. Morgunverðarfundur í Sunnusal á Hótel Sögu Föstudaginn 21. janúar 2000, kl. 8:00 - 9:30 DONSK EIGNARDALDSFELOG OG ALÞJOÐÍ.EG VIÐSKIPTAFELÖG _______Notkun og samspil þessara rekstrarforma • Hvað gerir dönsk eignarhaldsfélög svona hagstæð í skattalegu tUliti? • Hvaða lönd eru í fararbroddi á þessu sviði? • Hvemig er best að samnýta dönsku eignarhaldsfélögin og alþjóðleg viðskiptafélög? • Hver er staðan gagnvart skattasamræmingaráfomium ESB og OECD? FRAMSÖGUMAÐUR: _________________________________________________________________ Ned Shelton, alþjóðlegur skattaráðgjafi Shelton's í Danmörku. Fyrirtæki hans hefur sérhæft sig í þjónustu í tengslum við stofhun eignarhaldsfélaga í Danmörku og stendur reglulega íyrir námskeiðum í alþjóðarétti í stærstu borgum heims. Einnig hefur hann skrifað margar greinar um alþjóðarétt og er eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefhum um það efhi. FUNDARSTJÓRI: Guðjón Rúnarsson, aðstoöarffamkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands, | en Verslunarráö hefur haft með höndum kynningu á hinum nýju lögum l um alþjóðleg viðskiptafélög hérlendis og erlendis. Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 2.000,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er , , að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða VERSLUNARRAÐ ISLANDS bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. Samruni Time Warner og AOL Ovissa um fram- tíð yfírmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.