Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 31
ERLENT
Lík eins þeirra sem létu lífíð í skotbardaganum á Inter-Continental-
hótelinu í Belgrad síðdegis á Iaugardag sést hér borið út. Lögregla
stendur vörð.
háttsettra lögreglumanna, stjórn-
málamanna og undirheimaforkólfa
hafa verið myrtir í Belgrad síðan ár-
ið 1991 án þess að tilræðismennirnir
næðust.
I yfirlýsingu frá Serbnesku endur-
reisnarhreyfingunni, flokki stjórnar-
andstöðuforkólfsins Vucs Drasko-
vics, segir að morðið hafi verið
„staðfesting á þeirri líkisreknu
hi'yðjuverkastarfsemi sem í gangi
hefur verið í landinu".
En Radmilo Bogdanovic, fyrrver-
andi innanríkisráðherra Serbíu og
einn talsmanna Sósíalistaflokks Mi-
losevics, vísaði öllum slíkum aðdrótt-
unum á bug. Með tilvísun til fjölda
óupplýstra morða sem framin hafa
verið í landinu á undanförnum árum,
þar á meðal á Radovan Stojicic, fyi’r-
verandi aðstoðai’innanríkisráðherra
Serbíu, hvatti Bogdanovic til þess að
sannleikurinn yrði grafinn upp.
„Einhver verður loksins að segja
hvað í rauninni er á seyði i þessu
þjóðfélagi," sagði hann.
Ólíkt málgögnum stjórnvalda
helguðu óháð dagblöð í gær heilu
blaðhlutana umfjöllun um morðið og
líf Arkans, meðal annars með lýsing-
um á þriðja hjónabandi hans og þjóð-
lagasöngkonunnar Ceca, en með
henni átti hann tvö síðustu börnin af
níu.
Önnur blöð voru með vangaveltur
um að Arkan væri enn á lífi; hann
hefði sett morðið á sér á svið, með
hjálp tvífara síns, en væri sjálfur
flúinn til Vesturlanda.
Eftirlýstur fyrir „þjóðernis-
hreinsanir“
Arkan var eftirlýstur af stríðs-
glæpadómstólnum í Haag vegna
meintra voðaverka sem sjálfstæð
sérsveit Ai'kans, kölluð „Tígrarnir",
vann í stríðunum í Króatíu og Bosníu
á árunum 1991-1995. Hermt er að
leynilögregla Milosevic-stjórnarinn-
ar hafi á laun staðið að baki skipulag-
ningar „Tígra“-sveitarinnar, sem
síðan barðist við hlið júgóslavneska
stjórnarhersins í Ki'óatíu og síðan
Bosníu og sá um að framkvæma ein-
hver mestu voðaverkin í tengslum
við svokallaðar „þjóðernishreinsan-
ir“ gegn öllum andstæðingum Serba.
Með því að láta þessa „óháðu sjálf-
boðaliðasveit" um mestu voðaverkin
taldi Milosevic-stjórnin sér fært að
varpa ábyrgðinni á þeim frá sér.
Dómstóllinn í Haag gaf í fyrra út
ákæru á hendur Milosevic og nokkr-
um öðrum forystumönnum Serba.
Fyrii' nokkrum mánuðum stungu
upp kollinum í belgískum fjölmiðlum
fregnir þess efnis að Arkan væri að
kanna möguleika á að flýja til Vest-
urlanda. Samkvæmt þessum frá-
sögnum, sem lögmenn hans vísuðu á
bug, var hann einnig að reyna að ná
leynilegu samkomulagi við stríðs-
glæpadómstólinn um að hann fengi
að njóta sakaruppgjafar ef hann gæfi
sig fram og bæri vitni gegn Milosev-
ic.
„Fjöldi fólks sem var í mikilvæg-
um hlutverkum í hinum afstöðnu
stríðum hefur verið að hverfa í
skipulögðum morðtilræðum," hefur
Associated Press eftir Zarko Korac,
einum talsmanna serbnesku
stjómarandstöðunnar.
Rétt eins og Milosevic aflaði Ark-
an sér vinsælda meðal Serba með því
að ýta undir þjóðernisvakningu
þeirra á júgóslavnesku borgara-
stríðsárunum. Það vakti því athygli
þegar Arkan mæltist opinberlega til
þess, rétt áður en hersveitir NATO
hófu loftárásir á Júgóslavíu vegna
hemaðar Serba í Kosovo-héraði, að
Milosevic semdi við Vesturveldin um
framtíð héraðsins.
Harmað að Arkan skuli sleppa
undan því að svara til saka
Viðbrögð utan Júgóslavíu við
fréttinni af morðinu voru flest á þá
leið, að það væri miður að nú yrði
ekki lengur hægt að draga Arkan
fyrir dóm fyrir gerðir sínar. Mirza
Hajric, talsmaður Alija Izetbegovics
Bosníuforseta, lýsti vonbrigðum yfir
þessu tapaða tækifæri. „Einhver var
að sjá til þess að einn lykilmaðurinn,
sem vissi of mikið, lifði ekki of lengi,“
sagði Hajric.
Jacques Klein, æðsti fulltrúi S.Þ. í
Bosníu, harmaði einnig að ekki yrði
hægt að rétta yfir þessum „geðsjúka
fjöldamorðingja" eins og hann orðaði
það.
Madelaine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
Bandaríkjastjórn þætti miður að
ekki skyldi hafa náðst að koma Ark-
an á sakborningabekkinn í Haag.
Liðsmenn Obilic harmi slegnir
Ljubinko Jevtic, framkvæmda-
stjóri Obilic-knattspyrnuliðsins, sem
var í eigu Arkans, tjáði Beta-frétta-
stofunni að leikmennirnh' væra mið-
ur sín yfir fréttinni af morðinu og
þeir hefðu rofið æfingadvöl á Kýpur
til að geta verið við útförina. „Það er
erfitt að lýsa því hvernig okkur líður;
allir vita hve nánir við voram
Zeljko," sagði Jevtic. Obilic var með-
al margra fjárfestinga Arkans.
Hraður uppgangur liðsins leiddi það
til meistaratitils árið 1998. Liðið varð
umtalað á íslandi það árið þar sem
ÍBV lék við það í Evrópukeppni
meistaraliða.
Sagan þín
gemr orðið
verðlaunasaga
Nú styttist óðum í að skilafrestur handrita í samkeppnina um íslensku
barnabókaverðlaunin árið 2000 renni út. Til mikils er að vinna því höf-
undur verðlaunasögunnar hlýtur 300.000 kr. auk venjulegra höfundarlauna
af sölu bókarinnar sem kemur út hjá Vöku-Helgafeíli á haustdögum árið
2000. Handrit þurfa að berast til Vöku-Helgafells íyrir 1. febrúar merkt
dulnefni en rétt nafn höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi.
Verðlaunin hafa greitt mörgum óreyndum
rithöfundum leið og jafnvel verið upp-
hafið að glæsilegum ferli hérlendis sem
erlendis. Auk þess hafa verðlaunin orðið
til að styrkja stöðu íslenskra barnabóka
og auka úrval góðra bókmennta fyrir
börn og unglinga. Friðrik Erlingsson,
Þorgrímur Þráinsson, Kristín Steinsdóttir
og Guðmundur Ólafsson eru meðal
þeirra bamabókahöfunda sem hlotið hafa
verðlaunin.
Samkeppnin er öllum opin og því kjörið
tækifæri fyrir þekkta jafnt sem óþekkta
bamabókahöfunda að freista gæfunnar
og senda inn sögu. Skila á útprentuðu
handriti að sögunni og skal hún vera sem
samsvarar a.m.k. 50 vélrituðum síðum.
Ekki er gert ráð fyrir að sögumar verði
myndskreyttar.
Utanáskriftin er:
Verðlaunasjóður íslenskra bamabóka
Vaka-Helgafell
Síðumúla 6
108 Reykjavík
VAKA-HELGAFELL • Síðumúla 6 • 108 Reykjavík • Sími 550 3000
Stríðsmaður
að upplagi
London, Belgrad. The Daily Telegraph.
Zeljko Raznatovic fæddist hinn 17.
apríl 1952, sonur yfirmanns í júgó-
slavneska hernum og- heimavinn-
andi húsmóður. Gælunafnið Arkan
festist við hann strax í æsku, en
hvernig það kom til man enginn
lengur.
„Við vorum stríðsmenn að upp-
lagi,“ sagði hann einu sinni. „Afi
minn barðist við Austurríkismenn,
Ungverja og Þjóðverja. Faðir minn
var [Tító]-skæruliði.“
Hann sjálfur féll hins vegar úr
skóla sem unglingur og var dæmd-
ur í fangelsi 17 ára fyrir þjófnað.
Með einhveijum hætti varð hann
síðan leigumorðingi gerður út af
júgóslavnesku leyniþjónustunni, og
var sagður hafa verið viðriðinn
morðtilræði við útlæga króatíska
sjálfstæðissinna.
Hann sérhæfði sig einnig í skart-
gripa- og bankaránum og 25 ára
gamall var hann orðinn einn eftir-
lýstasti glæpamaður Evrópu.
Árið 1990 kom Arkan upp á yfir-
borðið sem forseti aðdáendaklúbbs
knattspymufélagsins Rauðu stjörn-
unnar í Belgrad, en sú staða kom
honum í góð tengsl við bæði herinn
og lögregluna. Liðsmenn Tígranna
hans, eða „Serbneska sjálfboða-
varnarliðið“ eins og sveitin hét
formlega, vora sóttir í áhorfenda-
stæði knattspyrnuvalla og fangelsi,
en einnig að einhverju leyti úr her
og lögreglu. Arkan varð mjög ríkur,
fyrst með stríðsmangi, en sfðan með
svartamarkaðsbraski með gjald-
eyri, eiturlyf, eldsneyti og vopn. Op-
inberlega rak hann fsbúð nærri
heimili sínu f austurhluta Belgrad.
IflVk MORE
Hw. NÝ LÍNA í YFIRSTÆRÐUM 44-60
Verðdæmi:
IhhBpP <■' '■ Jakkar frá kr. 4.900
Pús frá kr. 2.900
/ Buxur frá kr. 2.900
nBfiL’L. •J Bolir frá kr. 1.500
Anna og útlitið verður með fatastíls- og lit-
I m greiningamúmskeið. UppL í slma 892 8778.
1 « Nýbýlavegi 12
TL KÓPavos'
London
frá ltr.14.300
í sumar
Kr. 17.990 með
sköttum
Heimsferðir kynna nú flug sín til
London í sumar, en við munum
fljúga alla fimmtudaga til London
ffá og með 18. maí á hreint ein-
stökum kjörum.
Nú getur þú valið um 4 daga helgarferð til heimsborgarinn-
ar í sumar, 11 daga eða 21 dag, flogið út á fimmtudegi og
heim á mánudegi.
Forsaia á
400
sætumtíjLo.ifon
á ótrulegu verði
Hvergi í Evropu er jafnmikið um að vera t listum og menn-
ingarlífi og hjá Heimsferðum
Verðkr. 17.990
Flugsæti mcð flugvallarsköttum. m.v. fullorðinn,
mcð sköttum. Fyrstu 400 sætin.
Verðkr. 15.395
Flugsæti mcð flugvallarsköttum, íyrstu 400 sætin
m.v. hjón mcð 2 böm.
getur þú valið um gott úrval
hótela, frá 2-4 stjörnu á
frábærum kjörum. Við
bjóðurn nú forsölu á 400
fyrstu sætunum til London
á frábæru verði og tryggj-
um þér besta verðið til
London í sumar.
JIEIMSFEKÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600. www.heimsferdir.is