Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 62
6, 62 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens WWrnmi 'LGVZó'iÖV'RE HVTXEAVYTV W Y£T/ Grettir Ferdinand I FAILED 5T0RY LI5TENIN6. HOW WA5 5CH00L TOOAY? Hvemig var í skólanum i dag? Ég missti af sögulestrinum. * BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fordæmi Síðu- Halls og Þorgeirs Frá Hallgrími Sveinssyni: Fræðibækur segja frá því, að ef keisari Rússaveldis og rússneski að- allinn hefðu gert sér grein fyrir hvert stefndi í þjóðlífi landsins á sín- um tíma, hefði rússneska byltingin aldrei orðið að veruleika, að minnsta kosti ekki með þeim ógnvænlega hætti sem varð. Þeir flutu sofandi að feigðarósi og skyldu ekki að hinn al- menni þjóðfélagsþegn þurfti lág- marksviðurværi til að komast af. Þess í stað söfnuðu þeir í eigin kom- hlöður efnislegum gæðum meðan al- menningur svalt í hel. Sannaðist þar hið fornkveðna, að mikið vill alltaf meira. Zarinn og löggjafar hans þekktu ekki sinn vitjunartíma. Þó hér sé um nokkra einfoldun að ræða, má að vissu leyti bera þetta saman við aðstæður þær sem ríkja á íslandi í dag. íslenski aðallinn, blessaðir sægreifamir okkar, er auðvitað alls góðs maklegur, ekki síður en sá rússneski á sínum tíma. Þeim hefur verið trúað fyrir miklu, enda standa þeir fyrir sínu. Of mikið af öllu má þó gera. Obbinn af greif- um þessum hefur sannanlega fengið skip sín á silfurfati frá þjóðinni, auk einkaréttar á sameiginlegri auðlind íslensku þjóðarinnar, sem löggjafar- valdið hefur veitt þeim vegna þeirr- ar tilviljunar, að þeir stunduðu veið- ar á einhverjum viðmiðunaráram sem allir nema þeir em löngu búnir að gleyma. Auk þess hefúr löggja- farvaldið látið þau boð út ganga, að þessi íslenski aðall, sem á mikið fyr- ir, fær sífellt meira og meira, meðan innbyggjarar margra svokallaðra krammaskuða, sem hafa veitt fisk, unnið í fiski, borðað fisk og talað um fisk alla sína tíð, mega lepja dauð- ann úr skel. Þeir fá ekki að róa eftir björginni þó líf liggi við. Þetta veit og skilur allur lýðurinn að getur ekki gengið, en ráðamenn þjóðar- innar eru með lokuð augu í málinu, hvað þá aðallinn sjálfur sem lemur hausnum við steininn eins og fyrri daginn. Dómarar Hæstaréttar liggja nú undir feldi líkt og Þorgeir fyrir þús- und árum. Þeirra dómur verður af- drifaríkur fyrir þjóðina eins og sáttagerð Ljósvetningagoðans. En Alþingi setur lögin í dag sem forðum. Hvernig sem dómur Hæstaréttar fellur, verða Alþingis- menn að ganga þannig frá löggjöf- inni að menn geti lifað saman í sæmilegri sátt í landinu. Síðu-Hall- ur og Þorgeir, sem voru vitrir menn og góðgjarnir, gerðu sér grein fyrir þessu grundvallaratriði á sínum tíma. Þess vegna sömdu þeir á bak við tjöldin til að koma í veg fyrir flokkadrætti og viðsjár með mönn- um. Það má slá því fram að þeir hafi þekkt sinn vitjunartíma. Nú er brátt komið að ögurstund þeirra Davíðs og Halldórs. Bera þeir gæfu til að þekkja sinn vitjun- artíma og búa þannig um hnúta að flokkadrættir og viðsjár minnki í landinu, eða mun þjóðin áfram ber- ast á banaspjótum í baráttunni um óveiddan fisk í sjónum? Þetta er spurning dagsins. HALLGRÍMUR SVEINSSON, Hrafnseyri. Hvað varðar mig um það ... Frá Margréti M. Ragnars: MIG langar, góðir lesendur, að benda ykkur á að nú er að hefjast nýtt happdrættisár hjá SÍBS. Það kann að vera að þú hugsir sem svo, hvað varðar mig um það, ég vinn aldrei neitt þó ég kaupi miða. Sann- ast sagna hafa ekki hlaðist á mig vinningar þó svo ég hafi látið til leið- ast að fjárfesta í miðum undanfarin ár. Þó eru vinningslíkur með því hæsta sem gerist. Eg hef þó fengið bæði kross og vendarengil, fallega muni sem gaman var að fá, þó ekki væri nema til að staðfesta að það væri hugsanlegur möguleiki að vera heppinn. Fyrst hægt er að vinna svona aukavinninga því ekki að láta sig dreyma um fjárhæðir sem skipt gætu máli í lífi manns og halda áfram að spila? Þetta er þó ekki það sem málið snýst um, heldur hitt, að með því að spila í happdrættinu fá- um við tækifæri til að gerast stuðn- ingsaðilar málefnis sem sannanlega hefur reynst happadrjúgt til margra ára, það er að segja endurhæfmgar- stöð Reykjalundar. Agóði happ- drættisins gengur til uppbyggingar á þessum frábæra stað þar sem svo margir íslendingar hafa endur- heimt heilsu sína á ný eftir veikindi og slys. Nú er það bygging sund- laugar og þjálfunarmiðstöðvar sem allt snýst um. Það er ljóst að þegar mannvirkið er risið verður Reykja- Iundur enn um ókomna tíð meðal fremstu endurhæfingarstöðva í ver- öldinni. Nú kann að vera að þú hugs- ir sem svo að þú þurfir nú ekkert á þessum stað að halda. Heilsuleysi hrjái hvorki þig né fjölskyldu þína og þið séuð afskaplega varkár í um- ferðinni. Litlar líkur séu því á að þið þurfið á þjónustu Reykjalundar að halda. Ég vona að svo sé, en öll vit- um við „að það kviknar aldrei í hjá mér“ eins og barnið sagði. Finnst þér ekki skynsamlegt að spila með þó ekki sé nema til að tryggja það að staður eins og Reykjalundur haldi velli? MARGRÉT M. RAGNARS er í stjórn Reykjalundar. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- 8afni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.