Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 6$ Undanúrslit hafín á Bermúda Norðmenn og Danir halda uppi merki Norðurlanda _________Brlds____________ Keppni um Bermúdaskálina og Fen- eyjabikarinn fer fram á Bermúda í tilefni af hálfrar aldar afmæli heims- meistarakeppninnar í brids. 20 þjóðir taka þátt í hvorum flokki. Hægt er að fylgjast með mótinu á Netinu og er slóðin: www.bermudabowl.com. Norðmenn voru eina Evrópusveitin sem komst í undanúrslit í keppninni um Bermúdaskálina í brids, sem nú er haidin á Bermúda. Viðureignimar fjórar í átta liða úrslitum voru allar mjög jafnar og spennandi og skildu aðeins nokkur stig í þeim öllum þegar spilunum 96 var lokið á sunnudags- kvöld. í kvennaflokki ena Danir komnir í undanúrslit þrátt fyrir að tveir liðsmenn þeirra séu forfallaðir vegna veikinda. Norðmenn unnu Indónesíu, 213,5 gegn 205 eftir að hafa verið yfli' allan leikinn. BandanTdn 1 unnu Ítalíu 198,5-190 í leik sem var jafn allan tím- ann, Bandaríkin 2 unnu Pólverja 155- 151 í leik sem einnig var alltaf í járn- um, og Brasilíumenn unnu Svía, 221- 191 eftir að hafa haft mun meira for- skot um tíma. Svíamir fá þá betri tíma til að búa sig undir Bridshátíð, en íjór- ir þeirra, Tommy Gullberg, Lars And- erson, Magnus Lindkvist og Peter Fredin koma þá til keppni. Einnig koma þeir George Mittelman frá Kanada og Bandai’íkjamennirnir John Carruthers, Ralph Katz og Howard Weinstein, allt heimsþekktir spilarar. Samkvæmt reglum mótsins á Bermúda mætast bandarísku sveit- irnar í öðmm undanúrslitaleiknum og því eigast Brasilíumenn og Norð- menn við í hinum. í kvennaflokki unnu Bandaríkin Kanada, 239-184, Hollendingar unnu Kínverja, 217-191, Austurríkismenn unnu Þjóðverja 177-166 og Danir unnu Frakka 261-182. Danska liðið hefur lent í erfiðleikum því einn spil- arinn, Charlotte Koch-Palmund, veiktist strax í upphafi mótsins og hefur nú verið flutt á sjúkrahús í Danmörku. Þá lagðist annar spilari, Mette Drögemuller, í flensu. Spilafé- lagar þeirra, Bettina Kalkerup og Kirsten Steen Möller, eru hins vegar ekki óvanar að spila saman. Eina parið sem enn er heilt era Dorte Cil- leborg og Trine Bilde-Kofoed Bandarísku konurnar héldu val- réttinum þar sem þær voru efstar í undankeppninni og völdu Dani enda byrja þær með 16 stiga forskot; hluti af mismuninum úr leikjum þjóðanna í undankeppninni flyst yfir á úrslita- leikinn. Austurríkismenn hafa 9 stiga forskot í hinum leiknum, en í opna DAGBÓK Mannamót Fjallkonur. Sameigin- legi fundurinn með Kvenfélagi Breiðholts og Kvenfélagi Seljasóknar verður þriðjudaginn 18. janúar kl. 20.30 í Safnað- arheimili Fella- og Hóla- kirkju. Vesturgata 7. Kl. 9- 10.30 dagblöðin og kaffi, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.15- 12 myndhstarkennsla og bútasaumur, kl. 9.15-16 almenn handavinna, kl. 11.45 hádegismatur, kl. 13-14 leikfimi, kl. 13-16 bútasaumur, kl. 13-16.30 frjáls spilamennska, kl. 14.30 kaffiveitingar. Þorrablót verður haldið fimmtudaginn 3. febr- úar, húsið opnað kl. 17.30, veislustjóri Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Þorrahlaðborð, Sigur- björg við flygilinn. El- lert B. Schram flytur minni kvenna og Ágústa Jóhannsdóttir flytur minni karla. Karlakór- inn Kátir karlar syngur við undirleik Arnhildar Valgarðsdóttur. Jóhann- es Kristjánsson eftir- herma skemmtir. Happ- drætti. Öskubuskur syngja, Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi. Upplýsingar og skráning í síma 562- 7077. ÍAK, íþróttafólag aldraðra Kópavogi. Leikfimi í dag kl. 11.20 í safnaðarsal Digranes- kirkju. Samþjálp kvenna til stuðnings konum sem greinast með brjósta- krabbamein. Opið hús í Skógarhlíð 8, í kvöld kl. 20.30. Sigurður Björns- son, yfirlæknir á Sjúkra- húsi Reykjavíkur og for- maður Krabbameins- félags íslands fjallar um stöðu og horfur í krabba- meinslækningum. Kaffi- veitingar. Allir velkomn- ir. Minnt er á leikfimi- tímana. Upplýsingar hjá Maríu, sími 557-2875 og Lovísu, sími 565-8577. Sjálfsbjörg á höfuð- borgarsvæðinu Hátúni 12. Opið hús í kvöld kl. 20:00. Allir velkomnir. flokknum er munurinn nánast enginn. Þetta skiptingarspil olli sveiflum í nokkram leikjum í átta liða úrslitum á sunnudag: Suður gefur, enginn á hættu Norður * KDG10432 ¥ K10985 ♦ - + 8 Austur ♦ 7 ¥ 43 ♦ KG532 ♦ KDG52 Suður ÓÁ86 ¥ Á62 ♦ D93 * 10964 Svíamir fóra illa út úr spihnu í leikn- um við Brasiku. Þannig gengu sagnir þar sem Mats Nilsland og Bjöm Fal- lenius sátu NS og Miguel Villas Boas og Joao-Paulo Campos AV: Vestur Norður Austur Suður JPC MN MVB BF pass pass 5 tíglar// 4spaðar 4grönd dobl Austur datt í lukkupottinn þegar hann ákvað að bjóða upp á láglitina. Einhverjir hefðu sagt 5 spaða yfir 5 tíglum í sporum Nilslands en hann hefur sjálfsagt búist við að Falleníus héldi opnu fyrst hann doblaði 4 grönd. Én allir sögðu pass og þegar Villas Boas fann tíguldrottninguna fór hann einn niður, 50 til Svía. Við hitt borðið sátu Gabriel Chagas og Marcelo Branco í NS og Tommy Gullberg og Lars Anderson í AV: Vestur Norður Austur Suður LA GC TG MB pass ltígull ðtíglar 4spaðar öspaðar// 4grönd dobl Chagas var ekkert að velta dobh Brancos fyrir sér og sagði 5 spaða. Svíamir áttu óhægt um vik að fórna i 6 tígla eftir þessar sagnir en ellefu slagir voru auðveldir og Brasilíumenn græddu 9 stig. Sveiflan varð stærri í leik Banda- ríkjanna og ítahu. Þar sátu ítalarnir Norberto Bocchi og Giorgio Duboin i NS og Jeff Meckstroth og Eric Rod- well AV, sem komust ekki inn á sagnir aldrei þessu vant! Vestur Noröur Austur Suður JM NB ER GD 1 grand pass 4 spaðar// Spilið leit vel út hjá ítölum eftir að þeir fengu 450 fyrir 5 spaða. Og útht- ið var enn betra þegar Nick Nickell og Richard Freeman fóru of hátt við hitt borðið þar sem þeir sátu NS og Guido Ferraro og Dano deFalco AV: Vestur Norður Austur Suður GF NN DdF RF pass pass 4spaðar 4grönd öspaðar 5grönd pass 61auf pass 6tíglar 6spaðar doW/ 6 spaða sögn Nickells orkar tvi- mælis en er óneitanlega freistandi. Nú slemman virtist dæmd til að tap- ast en allt getur gerst í brids, jafnvel á Bermúda. Austur spilaði út laufa- kóng og síðan drottningu. Sagnhafi trompaði, tók tromp og endaði í blind- um og lagði þar niður hjartaás. Ein- hverra hluta vegna missti vestur drottninguna undir og þegar sagnhafi spilaði meira hjarta lét vestur gos- ann! Svo slemman vannst og Banda- ríkin græddu 13 heppnissstig í stað þess að tapa 11. Ferraro hefur vænt- anlega ekki sofið vel um nóttina í Ijósi þess að ítalar töpuðu leiknum með 8,5 stiga mun. Guðm. Sv. Hermannsson Vcstur ♦ 95 ¥ DG7 ♦ Á10876 *Á73 Útsalan hefst í búdinni og á lagernum 18. janúar Allt að 50% afsláttur Lagerinn er opinn milli kl. 17 og 19 frá mánudegi til föstudags á Dalvegi 16a, sími 869 5727. Hverfisgötu 37, sími 552 0190. Opið kl. 11-18. Lau kl. 11-14. Hverfisgata 6, Reykjavik, simi 562 2862. I I Springdýnur Shútuvogi 11 • Sími 568 5588
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.