Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 18.01.2000, Qupperneq 68
<38 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Chaplin, kominn undir áttrætt, ræðir við Sophiu Loren, aðalleikkonu sína í síðasta verkinu, skellinum Greifynjan frá Hong Kong. CHARLES Auglýsingaveggspjald Nútímans. Hvergi kemur fram að raust meistar- ans heyrist hér í fyrsta sinn. Öll verk hans eftir þetta voru með hljóði. CHAPLIN II. Hollywood til Hong Kong ÁRIÐ 1919 var Chaplin orðinn einn hæstlaunaði leikari heims, það var ekki nóg, hann vildi fá algjört vald yfir útliti mynda sinna. Vera ráðandi afl hvað snerti alla þætti sem skipta máli í kvikmyndagerð. Svipaðar ástæður hvöttu Mary Pickford, D.W. Griffith og Douglas j*,Fairbanks, nokkur af frægustu nöfnum Hollywood, til að bijóta blað í sögu kvikmyndaiðnaðarins. í sameiningu komu þau á fót United Artists, nýju framleiðslu- og dreifi- fyrirtæki. Það blómstraði fljótlega og átti sinn þátt í að Chaplin varð með efnaðri mönnum. UA setti mik- inn svip á kvikmyndasöguna, allt til frumsýningar Heavens Gate, (80). Það þurfti ekki nema eina mynd og einn mann, Michael Cimino, til að rústa 60 ára sögu þessa blómlega fyrirtækis, en það er önnur saga. Fyrsta myndin sem Chaplin gerði fyrir UA, Woman Of Paris, fær mis- jafna dóma. Sumar heimildir hæla henni á hvert reipi, aðrar eru ekki eins jákvæðar. f Chaplin - His Life and Art, (McGraw-Hill 85), ágætri ævisögu eftir David Robinson, kem- ur í ljós að leikstjórinn og hand- ritshöfundurinn var ekkert of sæll með sína fyrstu dramatísku mynd. Sjálfur leikur hann ekki í myndinni en tekur framforum í kúnstinni að stjórna öðrum. Um þessar mundir var Chaplin að ganga í gegnum fyrsta skilnaðinn, sem olli mikilli hneykslan. Giftist hinni 16 ára Mild- red Harris 1918, yfirgaf hana tveimur árum síðar fyrir smástirnið Lolitu McMurray. Hún var einnig 16 ára er þau giftu sig, (24), en brúðguminn 35. Chaplin hafði greinilega auga fyrir táningsstelp- um, sem var kveikjan að fyrstu árekstrum hans við bandarískan al- menning. Kvennamálin héldu áfram að blómstra. Eftir afdrifarík- an skilnað við McMurray og tvo syni (Charles yngri og Sydney), liðu sex ár uns fagurkerinn kvæntist enn einni „Lólítunni", leikkonunni Paul- ette Goddard, mótleikara hans í Nú- tímanum, (36), og Einræðisherran- um (40). Þau skildu 42. Um svipað leyti rak hvert hneykslið annað í einkalífi listamannsins, öll tengd kvennamálum. Ekki síst Oonu ÓN- eal, sem varð fjórða eiginkona hans (43), þrátt fyrir kröftug mótmæli föður hennar, leikritaskáldsins Eu- gene ÓNeill. Hún var 18, Chaplin 54 ára. f miðju gjörningaveðri fyrstu skilnaðanna skapaði Chaplin engu að síður þijú af snilldarverkunum; Gullæðið, Sirkus og Borgarljós. Þrátt fyrir að sú síðastnefnda kæmi á markaðinn 31, þegar hljóðið var komið til sögunnar í nánast öllum Hollywood-myndum, þráaðist Chaplin við, notaði það eingöngu til tónlistarflutnings og að skapa „ef- fekta“. Þögnin var enn gullvæg í næsta stórvirki, Nútímanum, fyrir utan að meistarinn syngur bulltexta við eitt Iag. Það er sannarlega snilldarleg sena, þó mann gruni að hann sé að skopast að hinni nýju tækni. Talið notar hann ekki full- komlega fyrr en í Einræðisherran- um. Það er tímanna tákn að þessar tvær myndir mörkuðu endi Flæk- ingsins, eða „Litla náungans" eins- og skapari hans kallaði hann jafn- an. Chaplin hafði aldrei treyst á orð sem hluta sinnar heimsfrægu pers- ónusköpunar, en tókst ekki að skapa neina aðra persónu sem hlaut þá samúð sem Flækingurinn naut hjá almenningi. Árangur Chaplins og velgengnin sem hann naut fyrir tilstilli einnar persónu, snilli og lát- bragðsleiks, byijaði að réna. Um sama Ieyti var hann mikið í sviðsljósinu, oftast neikvætt vegna hneykslismála og illa þokkaðs sam- bandsins við Oonu. Eugene, tilvon- andi tengdafaðir hans og eitt virt- asta skáld síns tíma, lá ekki á liði sínu að lýsa opinberlega skoðunum sínum á hinum miðaldra „trúð“, sem kominn var í ból dótturinnar. Þá lenti hann í vondum málum hjá skattayfirvöldum, var staðinn að því að svíkja undan telq'uskatti, en Chaplin þótti jafnan samansaumað- ur og óttaðist fátækt öðru fremur. Eins var honum gefið að sök að stela sögufléttu Einræðisherrans. 1942 var hann semsagt kominn uppá kant við bandarískt þjóðfélag, sem hafði dáð hann skilyrðislaust. Enn syrti í álinn. Chaplin var friðarsinni og stríðsandstæðingur. Síðla árs fékk hann þá hugmynd að Bandaríkin vinguðust við Sovét. Það heilræði átti eftir að koma hon- um í koll og festa á hann kommún- istastimpilinn. Verst af öllu var þó sú staðreynd að hann neitaði löng- um að gerast bandariskur þegn, nokkuð sem yfirvöld og alþýðan gat ekki fyrirgefið eftirlætinu sínu. Eft- ir frumsýningu Monsieur Verdoux, (47), sem þótti óþolandi viðurstyggð í gulu pressunni (þar sem blöð Willi- ams Hearst fóru fremst í flokki), var honum hótað að hann yrði að koma fyrir Ó-amerísku nefndina. Af því varð þó aldrei. 1952, á meðan á kynningarherferð hans í Evrópu fyrir Limelight stóð, var Chaplin látinn vita að ef hann sneri aftur yrði hann sóttur til saka fyrir „sið- spillingu og kommúnistadekur". Báðar þessar myndir gengu hvarvetna iUa. MonsieurVerdoux (þrjár stjörnuij sem á yfirborðinu fjallar um bankastarfsmann sem giftist ríkum konum og myrðir síð- an, klauf bandarísku þjóðina. Vinstrisinnar kölluðu hana snilld, mikiU meirihluti hægrimanna ófógnuð, þar sem skopast væri að manndrápum og þau talin aðeins örlitlu verri en stríð milli þjóða. Hvað sem því líður er tunga Chapl- ins hvöss í munni Verdoux, sem túlkar álit höfundar á stríðsbrölti stórveldanna. Chaplin er glimrandi góður í hlutverkinu, og myndin, þó hún teljist ekki með hans bestu, enn athyglisverð og listilega gerð blanda af ádeilu og farsa. Best er árabátsatriðið, þar sem Martha Raye stelur reyndar senunni. Mað- ur saknar Flækingsins og lát- bragðsleikurinn farinn að láta á sjá. Limelight, (52), (tvær og hálf stjarna) er slakari en allar löngu myndimar sem á undan voru komn- ar. Súkkulaðihjúpað drama um lífs- þreyttan roskinn trúð (Chaplin), sem bjargar lífi ballettdansmeyjar (Claire Bloom), sem á hinn bóginn er ástfangin af tónskáldinu (Sydney Chaplin). Kunnuglegt efni og mynd- in áhugaverðust sökum þess að Bu- ster Keaton, annar snillingur þöglu myndanna, fer með lítið hlutverk. Chaplin settist að í Sviss og bjó þar síðustu áratugina ásamt Oonu, og stómm barnahópi. Hann gerði tvær myndir eftir þetta, A King In New York, (57), (tvær stjörnur) svo slæma mynd að háðsádeilan á bandarískt þjóðfélag missir marks og hæfir sig í fótinn. Orfá atriði, sem minna á gamla snilligáfu, gleðja augað. Það versta var þó ekki komið á tjaldið; Greifynjan frá Hong Kong - Á Countess From Hong Kong, (67) (ein stjarna), ævin- týri Bandaríkjamanns í utanríkis- þjónustunni (Marlon Brando), sem kynnist gleðikonu (Sophia Loren) um borð í skemmtiferðaskipi, er einfaldlega venjuleg, rómantísk gamanmynd, Iangt undir meðallagi. Meistarinn kallaði gagnrýnendur „bölvaða vitleysinga“. Enn þann dag í dag er þó ekki annað að sjá en þeir hafi haft á réttu að standa. Þannig endaði einn stórbrotnasti listamannsferillkvikmyndasögunn- ar. Hollywood tók hann í sátt og veitti sih eftirsóttustu verðlaun, heiðurs-óskar. 72. Þá var hann sleg- inn til riddara í Bretlandi árið 1975. Hvort hann aðhylltist kommún- NÚTÍMINN - MODERN TIMES, (1936) 4 stjörnur Uppáhaldsmyndin (ásamt Gullæð- inu), er ódauðleg satíra um hátækni- væðingu nútímaþjóðfélagsins. Mannleg gildi og tilfinningar gagn- vart vélum og verksmiðjum er þem- að, sem kemur ljósast fram í nokkr- um kvikmyndasögulegum atriðum; Þegar Flækingurinn stríðir við færi- bandið, er notaður sem tilraunadýr við gerð maísstönglamatara, býður umkomulausri stúlku (Paulette Goddard), húsaskjól í sínum fátæk- lega ranni og síðast en ekk síst sú vonglaðasta af þeim öllum - er Flæk- ingurinn leiðir stúlkuna sína fram á veginn, inn í sólarupprásina. BORGARLJÓS - CITY LIGHTS, (1931) 4 stjörnur Chaplin streitist enn á móti talinu og hefur öll gildi Flækingsins í fyrir- rúmi. Lætur hann verða ástfanginn af blindri blómasölustúlku sem hann tekur upp á arma sína. Samband hans við auðkýfing, sem þekkir Flækinginn aðeins undir áhrifum, er á köflum bráðfyndið, eins óborgan- legt hnefaleikaatriði. Treginn er skammt undan og allsráðandi í magnaðasta atriði myndarinnar, og Broskarlamorðin (Happy Face Murders) Gamanmynd ★★ Leikstjóri: Brian Trenchard-Smith. Handrit: John Pielmeier. Kvik- myndataka: Bert Dunk. Aðal- hlutverk: Ann-Margret, Marg Hel- genberger, Henry Thomas. (98 mín.) Bandaríkin 1999. CIC- myndbönd. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. BROSKARLAMORÐIN er skrýt- in mynd, svo mikið er víst. Hún er gerð fyrir sjónvaiy og sögð byggja á sönnu sakamáli. Otrúlegt ef satt því rás atburða er eins og vondur skáld- skapur sem bæði er lygilegur og langsóttur. Við verðum þó að treysta því að ekki sé verið að narra mann og því ekki annað hægt en að gapa af undrun yfir þessari lygilegu morð- sögu. í stuttu og ofur einfólduðu máli þá finnst ung stúlka myrt á hrotta- fenginn hátt og sextug óhamingju- söm kona (Ann-Margret) sakar sam- býlismann sinn um að hafa framið Einræðisherrann er jafn snjöll ádeila á fasisma í dag og á frumsýningardeginum, undir miðju seinna stríði. Chaplin sem Adenoid Hynkel. isma skal ósagt látið. Maður minnist snillingsins sem jafnan tók afstöðu með litilmagnanum, stóð fyrir skil- yrðislausu frelsi einstaklingsins, líkt og Gullæðið og Einræðisherr- ann standa svo eftirminnilega fyrir. Snilligáfa hans á þó fyrst og fremst rætur sínar í einstöku skopskyninu, sem veraldlegar hugsjónir voru famar að slæva er á leið ferilinn. margir vilja meina kvikmyndasög- unnar. Dæmi hver fyrir sig, þau standast því ekki mörg snúning er Flækingurinn hittir stúlkuna sína aftur er hann sleppur úr fangels- inu... Hér rísa einnig tónsmíðar listamannsins hvað hæst. EINRÆÐISHERRANN - THE GREAT DICTATOR, (1940) 4 stjörnur Síðasta stórvirkið, ádeila á stríðs- brölt, gerist á „tímum þegar grimmd og mannvonska gekk óbeisluð og frelsið tók kollsteypu", líkt og stend- ur í inngangstexta. Chaplin leikur bæði litla gyðinginn, rakarann á horninu, og Adenoid Hynkel, ein- ræðisherra í Tomaniu. Einræðis- herrann Benzino Napaloni (Jack Oakie), kemur einnig við sögu (m.a. í besta atriðinu, inni á rakarastof- unni), og vegalausa stúlkan (Godd- ard). Fyi'sta, algjöra talmyndin er stöku sinnum óþægileg blanda ádeilu og gríns og lokaræðan full- mikið af því góða. Engu síður í hópi bestu mynda snillingsins og óskandi að þeir kumpánar, Hitler og Muss- solini, hafi fengið tækifæri til að sjá hana fyrir endalokin. verknaðinn. Veður skipast hinsvegar í lofti þegar hún breytir framburði sínum fram og aftur þai' til lögreglan veit ei lengur sitt rjúkandi ráð. Ólíkindin eru með endemum í þessari undarlegu gráglettnu mynd. Þótt málsatvik séu hrottafengin þá er ekki annað hægt en að flokka myndina sem gamanmynd, slíkur er fáránleikinn. Ofan á fram- vinduna furðulegu bætir leikstjórinn síðan af augljósum metnaði ýktum stflbrögðum, bæði hvað varðar útlit og áherslur leikara. Útkoman er hinsvegar svo yfirdrifin að um þver- bak keyrir og ekki bætir ruglingslegt og götótt handritið úr skák. Fróðlegt hefði verið að sjá útkomuna ef efnis- tökin á þessari skrýtnu sögu hefðu verið agaðri og hógværari. Þótt ótrú- legt megi virðast má þegar öllu er á botninn hvolft hafa lúmskt gaman af öllum látunum og virða ber dirfsku og metnað leikstjórans. Skarphéðinn Guðmundsson TILBOÐSDAGAR sœtir Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 • Fax 564 1477 Sígild myndbönd Sæbjörn Valdimarsson MYNDBOND Ótrúlegur sannleikur Murders \ rrCOTiMHMÍKACU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.