Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 1
36. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
__ Heimastjórn Norður-
Irlands leyst frá völdum
Belfast, London. Reuters, AFP, AP.
VÖLD heimastjórnar Norður-ír-
lands voru í gær færð á ný til London
eftir að ekki tókst að setja niður deil-
ur um afvopnun Irska lýðveldishers-
ins (IRA). Ríkisstjómir írlands og
Bretlands sögðu þó seint í gærkvöld
að nýjar tillögur frá IRA fælu í sér
raunhæfan möguleika á friðarsátt-
mála. Peter Mandelson, ráðherra
Norður-írlandsmála í bresku ríkis-
stjóminni, kvaðst vona að afnám
heimastjómarinnar yrði til skamms
tíma, því mikill árangur hefði náðst
undanfama daga.
Að sögn Mandelson þjónar
ákvörðun um afnám heimastjórnar
þeim tilgangi að forðast enn frekari
upplausn. Afnám heimastjómarinn-
ar kemur í kjölfar skýrslu um af-
vopnunarferli IRA, en í skýrslunni
kemur fram að IRA hefur ekki hafið
afvopnun líkt og gert hafði verið ráð
íyrir og sagði David Trimble, forsæt-
isráðherra heimastjómarinnar,
stjómarslit því óumflýjanleg.
Ríkisstjóm Bretlands vonast til
þess að með tímabundnu afnámi
megi draga úr hættu á að flokkur
Trimbles, stærsti flokkur sam-
bandssinna (UUP), dragi sig út úr
stjómarsamstarfinu. Slíkt hefði í för
með sér að boða yrði til nýma kosn-
inga á Norður-írJandi og kynni ný
stjóm að vera mótfallin þeim mála-
miðlunum sem heimastjórnin byggir
á, en núverandi heimastjóm hefur
verið við völd sl. 9 vikur.
Töluverður árangur
Haldið verður áfram viðræðum um
afvopnun IRA. Mandelson sagðist
ekki vilja vekja falsvonir, en árangur
viðræðna undanfarinna daga væri
umtalsverður. „Okkur hefur miðað
áleiðis, en ekki nægjanlega til að
leysa deiluna um afvopnun IRA.“
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
hins pólitíska arms IRA, lét í það
skína skömmu áður en Mandelson
tilkynnti um afnám heimastjórnar-
innar að IRA hefði lagt nýjar hug-
myndir um lausn vopnadeilunnar
íyrir bresku ríkisstjórnina. Adams
Tillögur IRA sagðar vekja vonir
um raunhæfan friðarsáttmála
Peter
Mandelson
Gerry
Adams
neitaði að tjá sig frekar um þær, en
sagði hugmyndimar þess eðlis að
leysa mætti vopnadeiluna.
Mandelson sagði tillögur IRA ekki
hafa borist fyrr en eftir að ákvörðun
um afnám heimastjórnar var tekin.
Hann væri ekki kunnugur nýjustu
tillögum IRA. En reyndust þær jafn
vænlegar og gefið hefði verið í skyn
væri það vissulega jgrundvöllur fyrir
lausn deilunnar. „Eg vil leysa þetta
mál jafn fljótt og
auðið er og ef þró-
un mála ... er jafn
ör og sumir gefa til
kynna er ég viss
um að við getum
leyst þetta mjög
hratt,“ sagði
Mandelson, en
kvað þó heima-
David stjómina aðeins
Trimble taka til starfa á ný
náist samkomulag milli UUP og Sinn
Fein um afvopnun IRA.
Trimble svartsýnn
Trimble var ekki jafn bjartsýnn og
Mandelson. Sinn Fein hefði gert lítið
til að leysa vopnadeiluna og lét hann
í Jjós vonbrigði með að ekki hefði
verið komið til móts við UUP. „Það
er slæmt að þetta [afnám heima-
stjómar] skuli hafa reynst nauðsyn-
legt,“ sagði Trimble. „Við höfum tek-
ið áhættu, en aðrir hafa ekki gert það
sama. Það er ekkert rúm fyrir einka-
heri og vopn þeirra í stjórnmálum
Norður-írlands.“
Trimble sannfærði flokksbræður
sína á síðasta ári um að veita IRA
lengri frest til afvopnunar og hét því
jafnframt að segja af sér ef IRA af-
vopnaðist ekki og er því pólitískur
ferill hans í hættu. UUP virðist ekki
hafa áhuga á frekari málamiðlunum
eins og er. „Ákvörðun okkar í lok
nóvember um að verða íyrri til var
tekin í von um að IRA fylgdi á eftir,“
sagði Trimble. „Þegar það varð síðan
ljóst að IRA hefði ekki fylgt í kjölfar-
ið varð staða okkar óviðunandi."
Skýrslan, sem var fyrst gerð opin-
ber í gær, sýnir fram á að IRA virð-
ist ekki hafa hafið afvopnun. í gær-
kvöld sögðust stjórnvöld á írlandi
hafa fengið í hendur nýja útgáfu af
skýrslu de Chastelains sem varpaði
nýju [jósi á málið og kynni hún einn-
ig að vera gerð opinber.
Reuters
Rússneskir hermenn milli húsarústa í höfuðborg Tsjetsjníu, Grosní, en miklar skemmdir hafa orðið á borginni.
Rússar þjarma áfram að uppreisnarmönnum í Tsjetsjníu
Otti við hryðjuverk
Moskva, Gudermes, Tókýd. AP, AFP, Reuters.
• £g fæ ferðapunkta
þegar ég borga
fas te ig n a gjöldi n
með boðgreiðslum!
jy^g ICELANDAIR fSf
RÚSSNESKAR herþyrlur og flug-
vélar hafa síðustu sólarhringa haldið
uppi látlausum árásum á stöðvar
tsjetsjneskra uppreisnarmanna í
fjöllunum suður af höfuðborginni
Grosní. Rússar beita nú í fyrsta skipti
frá upphafi átakanna sl. haust
sprengjum sem vega 1,5 tonn, eftir að
hafa aðeins notað 500 kílóa sprengjur
hingað til. Hin rússneska ITAR-
TAS'S-fréttastofa sagði rússnesk
hemaðaryfirvöld búa sig undir að
senda 50.000 manna herlið til Suður-
Tsjetsjníu til að uppræta aðskilnaðar-
sinna.
Talsmaður Alþjóðaráðs Rauða
krossins í Moskvu tjáði AFP-fréttast-
ofunni í gær að notkun Rússa á 1,5
tonna sprengjunum stangaðist á við
Genfar-sáttmálann, alþjóðlegan
samning um mannúðarrétt. Yftrmenn
í rússneska hemum staðhæfa hins
vegar að notkun sprengjanna sé í
samræmi við alþjóðlegar skuldbind-
ingar Rússa.
Igor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að rússnesk
yftrvöld væntu þess að friður yrði að
fullu kominn á í Tsjetsjníu í júlí á
þessu ári. Hann sagði einnig von á
George Robertsson lávarði, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), til Moskvu í næstu
viku til að ræða samskipti Vestur-
landa og Rússa.
Maskhadov boðar
skæruhernað
Forseti Tsjetsjníu, Aslan Maskh-
adov, lýsti því yfir í gær að uppreisn-
armenn hefðu innan skamms skæru-
hemað um gjörvalla Tsjetsjníu. Upp-
reisnarmenn stefndu að því að ná
aftur yfirráðum yfir Grosní, sem
Rússar hafa haft á valdi sínu síðan 1.
febrúar sl.
Lögregla í Moskvu var í viðbragðs-
stöðu í gær vegna ótta við að tsjetsjn-
eskir hryðjuverkamenn létu til sín
taka í borginni. Mun lögregla verða
sérstaklega á varðbergi yfir helgina,
að því er talsmaður rússneska innan-
ríkisráðuneytisms sagði í gær, vegna
hótana tsjetsjneskra hryðjuverka-
manna.
Rússar telja að enn séu á bilinu
150-200 uppreisnarmenn í Grosní og
ekki fleiri en um 10.000 óbreyttir
borgarar. Langflestir íbúar hafa forð-
að sér á flótta undan sprengjuregni
rússneska hersins, sem hefur lagt
80% af mannvirkjum Grosní í rúst, að
talið er.
Reuters
Jörðin kort-
lögð á ný
GEIMSKUTLUNNI Endeavor, eða
Viðleitni, var skotið á loft við Kenn-
edy-geimstöðina á Canaveral-höfða
á Flórída í gær. Ferð geimskutlunn-
ar hefur seinkað um fimm mánuði
en sex geimförum er ætlað að kort-
leggja jörðina þannig að unnt verði
að útbúa af henni þrívíddarkort
ólíkt öllum öðrum. I þessu skyni
voru 13 tonn af radar- og skönnun-
arbúnaði höfð með í for.
Israelar
svara með
flugskeyta-
árásum
Jcrúsalem, Beirút, Naqoura. AP, AFP.
SPENNA milli ísraels og Líb-
anon jókst á nýjan leik í gær
eftir árás hizbollah-skæruliða á
sveitir Israela í Suður-Líbanon.
ísraelar svöruðu fyrir sig með
flugskeytaárás á búðir Hizboll-
ah. Fresta varð fundi alþjóð-
legs eftirlitshóps með sam-
skiptum ísraels og Líbanon.
Frestun fundarins kom til
eftir að Ehud Barak, forsætis-
ráðherra ísraels, skipaði full-
trúum Israels að yfirgefa fund;
inn í kjölfar árásar Hizbollah. í
árásinni fórst einn ísraelskur
hermaður og annar særðist.
Israelskar hersveitir svöruðu
með flugskeytaárásum á búðir
skæruliða Hizbollah og héldu
báðar sveitir árásum sínum
áfram seinni partinn í gær.
Eftir að slitnaði upp úr fundi
eftirlitsnefndarinnar sögðust
talsmenn ísraela ekki hafa átt
annarra kosta völ. Líbanska
sendinefndin sagði viðbrögð
ísraela sýna að þeir vildu ekki
draga úr spennu milli ríkjanna.
ísraelar hefðu ekki áhuga á að
leysa málin innan nefndarinn-
ar, heldur vildu auka hernaðar-
legan óróleika á svæðinu.
Að sögn fulltrúa Frakklands
og Bandaríkjanna í eftirlits-
nefndinni verður framhald á
viðræðum við bæði ríkin.
MORGUNBLAÐIÐ 12. FEBRÚAR 2000