Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Góð aðsókn að
fundi LSR með
lífeynsþegum
Á FUNDI sem Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins hélt með lífeyr-
isþegum um lífeyrissjóðsmál síðast-
liðinn íimmtudag var farið yfír þær
reglur sem gilda um lífeyrisgreiðslur
og fulltrúar sjóðsins greindu frá því
hvaða breytingar hefðu orðið á líf-
eyrisgreiðslum í kjölfar breytinga á
kjarasamningum. Mjög góð aðsókn
var að fundinum, að sögn Hauks
Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra
LSR, sem taldi líklegt að um 200
manns hefðu sótt fundinn.
Haukur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fundurinn hefði verið lið-
ur í kynningarstarfsemi Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins. Reglur
um lífeyrisgreiðslur LSR væru tals-
Viðurkenndi
þátt sinn í ránum
TVITUG stúlka hefur viðurkennt
að hafa átt hlut að máli í tveim rán-
um snemma í vikunni. Henni hefur
verið sleppt úr haldi lögreglu en
málin eru í rannsókn.
í versluninni Kjalfelli á þriðju-
dag dró stúlkan upp hnif og hafði í
hótunum við afgreiðslustúlku og
hvarf á braut með nokkur þúsund
krónur. Deginum áður hafði hún
með aðstoð félaga síns hrifsað 20
þúsund krónur úr höndum af-
greiðslumanns í Háspennu við
Hafnarstræti. Greinargóð lýsing
fékkst á parinu og féll grunur á
ákveðna einstaklinga.
Morgunblaðið/Kristinn
Góðar umræður urðu á fundi LSR með lífeyrisþegum.
vert ólíkar þeim reglum sem giltu
hjá öðrum lífeyrissjóðum og þvi
hefði verið talið nauðsynlegt að
halda svona kynningarfund.
Sagði Haukur að greiðslur LSR
breyttust í takt við breytingar sem
yrðu á kjarasamningum opinberra
starfsmanna en undanfarin ár hefðu
einmitt orðið talsverðar breytingar á
lífeyrisgreiðslum. M.a. hefði komið
fram á fundinum að lífeyrisgreiðslur
úr sjóðnum hefðu hækkað um 40%
frá því 1. janúar 1997.
Greiðslur sjóðsins eru verðtryggð-
ar, að sögn Hauks, og taka annars
vegar mið af svokallaðri eftirmann-
sreglu, þar sem lífeyrisgreiðslur
hvers og eins taka breytingum í sam-
ræmi við breytingar á launum eftir-
manns í starfi, og hins vegar reglu
sem miðast við að greiðslunar taki
breytingum eftir meðalhækkunum á
launum opinberra starfsmanna.
Var farið yfir þær reglur, sem um
þetta gilda, með lífeyrisþegum á
fundinum á fimmtudag en þær fela
m.a. í sér að einstakir sjóðfélagar
geta valið sjálfir hvort þeir taka líf-
eyri eftir eftirmannsreglunni eða
meðaltalsreglunni.
Haukur sagði að jákvæðar um-
ræður hefðu orðið á fundinum og að
m.a. hefði komið fram að sjóðfélagar
óskuðu eftir því að upplýsinga-
streymi og samráð milli lífeyris-
sjóðsins og lífeyrisþega yrði aukið.
Gleypti
nokkra tugi
gramma
af hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur-
flugvelli stöðvaði 42 ára gamlan
karlmann í Leifsstöð síðastliðið
mánudagskvöld sem reyndist
vera með tæp 300 grömm af
hassi í fórum sínum.
I farangri mannsins fundust
fyrst 170 grömm og er fíknefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
tók málið til rannsóknar vakn-
aði grunur um að maðurinnn
hefði smyglað meira hassi með
því að gleypa það og smygla því
til landsins í maganum.Maður-
inn var sendur í röntgen-
myndatöku og í framhaldinu
krafist stutts gæsluvarðhalds
yfir honum í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Krafan var sam-
þykkt og var maðurinn var í
haldi lögreglunnar fram á
næsta dag uns nokkrir tugir
gramma af hassi skiluðu sér
niður af fanganum. Að því
loknu var honum sleppt úr haldi
lögreglu og telst málið upplýst.
Fáðu þér notaðan bíi, tilbúinn í veturinn,
á betra verði á Kuldakasti í Bílalandi!
Grjóthálsi 1 • 575 1230
laugardag 10-16
sunnudag 12-17
Tk bílar
betri notaðir bílar