Morgunblaðið - 12.02.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Árni Þorgilsson, formaður HSK og framkvæmdastjóri, ásamt fulltrúum
nokkurra styrktaraðila að vefnum og hönnuðum.
Héraðssambandið
Skarphéðinn hefur
opnað vef á Netinu
Byggt við heilsugæsl
una á Egilsstöðum
Bolungar-
vík verður
heilsubær
Bolungarvík - Heilsubærinn Bol-
ungarvík á nýrri öld er yfirskrift
forvarnaverkefnis sem ýtt verður
úr vör með opnunardagskrá í
íþróttamiðstöðinni Arbæ í dag.
Hér er um að ræða átak þar
sem lögð verður áhersla á mann-
eldismál, lfkamsrækt, tóbaksvarnir
og slysavarnir, sérstök áhersla
verður lögð á heilsueflingu á
vinnustöðum, þar sem ekki aðeins
verður leitast við að koma í veg
fyrir heilsutjón, heldur ekki síður
að því að bæta heilsu og líðan
starfsfólksins.
A opnunarhátíðinni sem hefst í
íþróttamiðstöðinni Árbæ kl. 13.30
verður fjölbreytt dagskrá þar sem
kynntir verða hinir ýmsu mögu-
leikar fólks til að stunda líkams-
rækt og heilsueflingu.
Sérstakur gestur hátíðarinnar
verður íþróttaálfurinn Magnús
Scheving.
Margir viðburðir
A næstu mánuðum og allt fram
á nýja öld verður síðan öðru
hverju efnt til einhverra viðburða,
skemmtana og kappleikja til þess
að halda fólki við efnið og koma
fræðslu til skila.
Sérstök framkvæmdanefnd hef-
ur unnið að undirbúningi þessa
verkefnis í samvinnu við skóla, fé-
lagasamtök, fyrirtæki og Bolung-
arvíkurbæ, en verkefni þetta er í
samræmi við ákveðna heilbrigðis-
stefnu sem Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin hefur barist fyrir um
árabil, og hefur stofnunin komið
víða af stað samskonar forvarnar-
og heilsubæjarverkefnum.
Selfossi - Nýr vefur var opnaður í
þjónustumiðstöð Héraðssambands-
ins Skarphéðins á Selfossi mánu-
daginn 7. febrúar að viðstöddum
gestum. Það var formaður HSK,
Arni Þorgilsson, sem opnaði vefínn
og skráði nafn sitt í gestabókina á
heimasíðu HSK. Vefurinn var sett-
ur upp með stuðningi Ungmenna-
félags íslands og nokkurra styrkt-
araðila héraðssambandsins.
Á hinum nýja vef, sem hefur
slóðina www.hsk.is, er að finna
upplýsingar um aðildarfélög HSK,
lög þess og reglugerðir, stjórn og
starfsfólk ásamt fréttum úr starf-
inu, af héraðsmótum og annarri
starfsemi. Það var Vefur - heima-
síðugerð sem setti upp vefinn en
Alda Sigurðardóttir myndlistar-
kona annaðist útlitshönnun.
Meðal frétta fyrsta opnunardag-
inn má nefna fréttir frá unglinga-
móti í frjálsum íþróttum, af undan-
úrslitum í spurningakeppni HSK í
útvarpi Suðurlands og frétt frá
fjölmennu grunnskólamóti í glímu.
Egilsstöðum - Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, undirritaði á miðvikudag á Eg-
ilsstöðum samkomulag milli ráðun-
eytisins og Heilbrigðisstofnunar
Austurlands, f.h. sveitarfélaganna á
svæðinu, um að byggja við heilsu-
gæslustöðina á Egilsstöðum.
Um er að ræða allt að helmings
stækkun heilsugæslunnar auk b£l-
skýla íyrir tvo sjúkrabíla. Kostnaður
við viðbygginguna er áætlaður um 56
milljónir kr., auk búnaðar. Ríkissjóð-
ur mun mæta 85% kostnaðar við
framkvæmdimar en sveitarfélögin
leggja til 15%. Framkvæmdum við
viðbygginguna á að ljúka á næsta ári
en endanleg verklok verða 2002.
Verkið er unnið samkvæmt teikning-
um og verklýsingum Manfreðs Vil-
hjálmssonar, Verkfræðistofu Austur-
lands og Umsjár ehf.
Heilbrigðisráðherra sagði undir-
búning að framkvæmd þessari lengi
hafa verið í bígerð. Hún segir ráðstöf-
unina skynsamlega og koma til með
að styrkja enn frekar öfluga og sterka
heilsugæslu á Egilsstöðum. Ingibjörg
kom inn á að eitt ár er síðan heilbrigð-
isstofhanir á Austurlandi öllu samein-
uðust í Heilbrigðisstofnun Austur-
lands. Hún sagði þá sameiningu
tilraun sem hefði tekist vel, bæði í
framkvæmd og í stjómun. Hún þakk-
aði Stefáni Þórarinssyni héraðslækni
og Einari Rafni Haraldssyni fram-
kvæmdastjóra fyrir góð störf. Ráð-
herra sagði góða stjómun auðvelda
fjármagn til framkvæmda. Ingibjörg
minntist þess að nýlega hafi verið
keypt hús fyrir starfandi lækna, bæði
á Seyðisfirði og Eskifirði, og einnig
hefur verið opnað hjúkrunarheimili á
Fáskrúðsfirði. Ráðherra sagði að að-
ilar í heilbrigðisþjónustu annars stað-
ar á landinu fylgdust bjartsýnir með
þessari sameiningu á Austurlandi og
sagði það vera mikilvægt að hug-
myndavinna og þróun eigi sér stað
innan frá eins og í þessu tilfeUi.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, og Einar Rafn Haraldsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, undirrita samn-
ing um stækkun heilsugæslunnar á Egilsstöðum.
Aðalfundur
Ferðamálasamtaka
höfuðborgarsvæSisins
Aðalfundur Ferðamálasamtaka
höfuðborgarvæðisins verður haldinn
mánudaginn 21. febrúar næstkomandi
kl. 20:30 í Gerðarsafni í Kópavogi.
Dagskrá
aðalfundar er
samkvæmt lögum
samtakanna.
Fundarstjóri:
Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar
Kópavogs.
Gestur fundarins:
Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, sem heldur erindi um Flugfrelsi.
Fulltrúar fyrirtækja, sveitarfélaga og einstakl-
inga sem eru aðilar að samtökunum eru
eindregið hvattir til að mæta á aðalfundinn.
m-
FERÐAMÁLASAMTÖK
HÖFUÐBORGARS V ÆÐISINS
Teygðist á „blótinu“
Geitagerði - Föstudaginn 28. jan-
úar var haldið þorrablót í Fljótsdal,
að Végarði. Það var hið fímmtug-
asta í röðinni. Ekki er hægt að
segja að veðurguðimir hafi verið
okkur hliðhollir það kvöldið. í þann
mund er mótsgestir voru á leið á
staðinn brast skyndilega á hið
versta stórviðri og lentu hinir síð-
ustu í mestu hremmingum. Þá gekk
ýmsum illa að finna samkomustað-
inn og þeir sem voru mjög vinstri-
sinnaðir höfnuðu í malarnámunni
austan við félagsheimilið, en náðu
samt áttum að lokum. Aðra dagaði
uppi á vegamótunum og sátu í bfl
sfnum í tvo til þijá tíma. Harðsnúið
lið björgunarsveitarmanna var í
viðbragðsstöðu í húsinu til þess að
koma þeim til aðstoðar en varð
hvað eftir annað frá að hverfa eftir
að hafa rekið nefið út fyrir dymar.
Af heimferð er það að segja að
um hálftfu um morguninn kom
snjóruðningstæki frá Egilsstöðum
og var þá orðið ferðaveður svo
hljómsveitin hætti að spila en barn-
um hafði þá þegar verið lokað og
fóm nú flestir til síns heima.
Eins og alþjóð veit hefur Fljóts-
dalurinn verið nokkuð í sviðsljósinu
undanfarið og þar af leiðandi skorti
ekki efni í annála og önnur dag-
skráratriði, sem tók sig vel út svona
í spéspegli, svo sem virkjunarmál,
drápur fluttar í konungsgarði að
fornum sið og bylting í sveitar-
stjóm.
Hveijum aðgöngumiða fylgdi
happdrættismiði, vatnsréttindi
Hóls, með yfirskriftinni „Vatnsrétt-
indi á vergangi". Vinningshafi
reyndist frúin í Hóli sem þar með
öðlast öll lögformleg réttindi lend-
unnar.
Þorrablót í nútfmastíl er orðið al-
dargamall siður á Héraði. Fljóts-
dælingar vom nokkuð á eftir ná-
grönnum sfnum að taka hann upp,
en fyrir daga þorrablótanna voru
hins vegar haldnar hér svokallaðar
boðssamkomur. Þar var ekki þorra-
matur, nóg af honum heima, hins
vegar súkkulaði- og kaffiveisla.
Mjög var vandað til dagskrár.
Meginuppistaðan var leikrit og þar
sjaldnast ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur enda fæddir Ieikar-
ar hér á öðrum hverjum bæ í þann
tíð.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Starfsfólk Sparisjóðs Önundarfjarðar í heilsurækt. Kennarinn, Pétur Björnsson, er lengsttil vinstri.
Flateyri - Nýhafið er námskeið í
heilsurækt í Iþróttahúsi Flateyrar.
Kennari er Pétur Bjömsson íþrótta-
kennari. Pétur, sem áður kenndi
heilsurækt við Gmnnskóla Flateyr-
ar, en sneri sér síðan að löggæslu-
störfum á ísafirði, tók þátttakend-
urna engum vettlingatökum í fyrsta
tímanum.
Tilgangur námskeiðsins er að efla
þol og hreysti og hjálpa eilítið til í
Leggja inn
á heilsu-
reikningana
baráttunni við aukakílóin. Þátttak-
endur lögðu sig alla fram í fyrsta
tímanum og oft mátti heyra bældar
stunur. Þess ber að geta að hlutfall
kvenna er hátt á þessu námskeiði,
en sparisjóðsstjórinn sjálfur, Eirík-
ur Finnur Greipsson, sem er eini
karlmaðurinn á þessu námskeiði
enn sem komið er, lét engan bilbug
á sér finna og gaf stelpunum hvergi
eftir.
Sparisjóður Önundarfjarðar
stendur vel að baki þátttakendum
og styrkir þá til fatakaupa á meðan
á námskeiðinu stendur.