Morgunblaðið - 12.02.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Kögun hf.
kaupir
60% í Yef-
miðlun ehf.
KÖGUN hf. hefur keypt rúmlega
60% hlutafjár í fyrirtækinu Vefmiðl-
un ehf. sem rekur vefsetrið NetDokt-
or.is. Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Kögun hf. mun
Vefmiðlun einbeita sér að útgáfu og
rekstri vefsetra með ýmsu sniði þar
sem komið verður á framfæri efni tii
neytenda, jafnframt því sem ætlunin
er að byggja upp starfsemi í tengsl-
um við viðskipti á Netinu.
í tilkynningunni segir að með
kaupunum sjái Kögun hf. fram á út-
víkkun starfseminnar inn á svið
rekstrar vef- og netsetra, en dóttur-
félög Kögunar hafí í dag ýmsa starf-
semi með höndum sem falli vel að
rekstri slíkra setra svo sem umfangs-
mikillar þýðingarmiðstöðvar.
Skil milli faglegs efnis
og rekstrar
Kögun hf. hyggst tryggja að skýr
skil verði á milli faglegs efnis sem
sett er fram á NetDoktor.is og
rekstrar vefsetursins. Skipuð verður
sérstök ritstjóm fyrir vefsetrið auk
þess sem leitað verður samstarfs við
lækna og aðrar heilbrigðisstéttir um
faglega þáttinn. Frá því NetDoktor-
.is hóf starfsemi í lok síðasta árs hef-
ur vefsetrið notið mikillar athygli og
heimsóknir inn á vefsíðuna skipta
tugum þúsunda í viku hverri, segir í
tilkynningunni.
------H-t-------
Nýskráningar
hlutafélaga
24% fjölgiin
milli ára
NÝSKRÁNINGUM hlutafélaga og
einkahlutafélaga fjölgaði um 24% á
milli áranna 1998 og 1999, að því er
fram kemur í frétt frá Hagstofu ís-
lands. Árið 1998 voru 1.505 ný félög
skráð en á síðasta ári voru 1.865 ný
hlutafélög og einkahlutafélög skráð.
Á tímabilinu 1995-1998 fjölgaði
nýskráningum hlutafélaga og einka-
hlutafélaga um 127%. Flest félög
voru skráð á höfuðborgarsvæðinu,
1.296, eða 69,5% en hlutfall nýskrán-
inga hlutafélaga og einkahlutafélaga
hefur verið á bilinu 65,l%-70,4% á
árunum 1995-1999.
29% nýskráninga á árinu 1999 var
í yfirflokknum fasteignaviðskipti,
leigustarfsemi og ýmis þjónusta.
Næst á eftir voru yfirflokkamir
verslun og ýmis viðgerðarþjónusta,
18%, byggingarstarfsemi og mann-
virkjagerð, 11%, og iðnaður, 11%.
---------------------
NatWest gefst
upp gegn RBS
Reuters
NATIONAL Westminster Bank í
Bretlandi, NatWest, hefur tilkynnt að
hann sé hættur að berjast fyrir sjálf-
stæði sínu, og hefur mælt með því við
hluthafa sína að þeir taki tilboði Royal
Bank of Scotland, RBS, í hlutabréf
bankans, en með því mun verða til
sjöundi stærsti banki Evrópu og sá
þriðji stærsti á Bretlandseyjum.
Eftir fimm mánaða baráttu RBS
um að ná yfirráðum yfir varð ákvörð-
un þriggja af fimm stærstu hluthöf-
um NatWest á síðustu þremur dögum
um að sfyðja tilboð RBS til þess að
stjóm NatWest ákvað að fallast á að
gefa eftir. Baráttan um NatWest er
sú umfangsmesta um yfirráð yfir
banka í sögu Bretlands, en baráttan
stóð milli RBS og Bank of Scotland.
Samruninn er metinn á tæpa 2.500
milljarðakróna.
Þess má geta að Royal Bank of
Scotland er samstarfsaðili Lands-
banka íslands í innleiðingu árangurs-
stjómunarkerfis bankans.
Seðlabanki Islands hækkar vexti og víkkar vikmörk gengisstefnunnar
Stýrivextir hækkaðir
um 0,3 prósentustig
BANKASTJÓRN Seðlabanka ís-
lands hefur ákveðið að hækka
vexti um 0,3 prósentustig. Jafn-
framt hefur bankastjórnin ákveðið,
að höfðu samráði við ríkisstjórn,
að víkka vikmörk gengisstefnunn-
ar og verða þau hér eftir 9% í
hvora átt frá miðgildi í stað 6% áð-
ur.
Gengi krónunnar er tengt við
körfu sem er samsett af myntum
helstu viðskiptalanda og endur-
speglar inn- og útflutning íslands.
í samtali við Morgunblaðið segir
Birgir ísleifur Gunnarsson, seðla-
bankastjóri, að víkkun vikmarka
gengisins skapi skilyrði til frekara
aðhalds í peningamálum, til að
draga úr verðbólgunni. „Ástæðan
er að okkur hefur fundist að þegar
gengið nálgast efri mörkin er eins
og það rekist á ósýnilegan vegg,
sem þó er innan við núverandi vik-
mörk. Með víkkun vikmarka hefur
gengið möguleika á að hækka
meira,“ segir Birgir ísleifur.
í frétt frá Seðlabankanum kem-
ur fram að víkkun vikmarkanna
felur í sér viðbótarskref til að auka
sveigjanleika gengisstefnunnar.
„Með því að víkka vikmörkin er
komið í veg fyrir að gengisstefnan
hamli frekara aðhaldi í peninga-
málum. Víkkun vikmarkanna nú
og hækkun vaxta Seðlabankans
fela því í sér skýran ásetning um
að peningastefnan skuli öðru frem-
ur stuðla að lítilli verðbólgu," segir
í fréttinni. Þar kemur einnig fram
að í september árið 1995 voru vik-
mörkin víkkuð úr 2,25% í hvora
átt, í 6%. „Sú ráðstöfun var fyrst
og fremst gerð í varúðarskyni sak-
ir þess að í upphafi þess árs var
síðustu hömlum á skammtíma-
hreyfingum fjármagns til og frá
landinu aflétt,“ segir í fréttinni. Þá
segir að gengi krónunnar hafi orð-
ið hæst 28. desember sl. eða 4,9%
yfir miðgengi, þ.e. rúmlega 1%
innan vikmarkanna. Seðlabankinn
hefur engin viðskipti átt á milli-
bankamarkaði fyrir gjaldeyri síðan
14. júní á síðasta ári og hefur því
ekki haft áhrif
á gengi krón-
unnar með
beinum hætti
síðan þá, að
því er fram
kemur í frétt-
inni.
Táknræn
skilaboð út á
markaðinn
Neðri mörk
gengisskrán-
ingarvísitöl-
unnar miðuð-
ust áður við
um 108 en
miðast eftir
víkkunina við
104,66. Efri mörkin verða 125,36
og miðgildið óbreytt eða 115,01.
„Eftir því sem gildi vísitölunnar
lækkar, styrkist gengi krónunnar
og heldur því meira aftur af verð-
bólgunni, segir Arnar Jónsson,
sérfræðingur í gjaldeyrisviðskipt-
um á viðskiptastofu Landsbank-
ans, aðspurður um almenn mark-
mið með víkkun vikmarka. Hann
segir ljóst að gengi krónunnar
muni ekki styrkjast verulega strax
á mánudaginn en með aðgerðunum
sé opnað fyrir styrkingu hennar til
lengri tíma litið.
Arnar segir víkkun á vikmörk-
um fyrst og fremst skilaboð út á
markaðinn. „Það hefur í sjálfu sér
ekki svo mikla þýðingu að vik-
mörkin séu víkkuð þar sem Ijóst er
að Seðlabankinn hefði ekki gripið
til aðgerða þó fyrri vikmörk hefðu
verið rofin. Þarna er í raun verið
að opna fyrir frekari styrkingu
krónunnar með táknrænum hætti
og festa eins konar flotgengis-
stefnu f sessi þar sem opnað er
fyrir meiri sveiflur á gengi krón-
unnar.“
í hálffimm-fréttum Búnaðar-
bankans í gær kemur fram að með
víkkun vikmarka hafi verðbólgu-
markmið peningamálastefnunnar
verið sett ofar markmiðinu um
stöðugt
gengi og að
aðgerðin sé
væntanlega
hugsuð sem
skilaboð til
aðila vinnu-
markaðar-
ins um hóf-
samar
launahækk-
anir. Búnað-
arbankinn
spyr einnig
hversu mik-
ið svigrúm
Seðlabank-
inn hafi í
raun til að
slá á verð-
bólgu með hækkandi gengi. „Með
aðgerðum sínum er bankinn að
flytja inn lægri verðbólgu en einn-
ig að auka líkurnar á viðvarandi
viðskiptahalla. Samkeppnishæfni
innlendra framleiðenda mun enn
versna. Gefi gengi íslensku krón-
unnar eftir verður lending íslensks
efnahagslífs mjög harkaleg," segir
í hálffimm-fréttum Búnaðarbank-
ans í gær.
Vaxtahækkunum í
heiminum fylgt eftir
Birgir ísleifur segir ákvörðun
um 30 punkta vaxtahækkun eiga
rætur að rekja til þess að frá því
vextir voru hækkaðir síðast, 12.
janúar sl., hafi vextir í helstu við-
skiptalöndum íslands hækkað. Þar
vísar Birgir til vaxtahækkunar
seðlabanka Bandaríkjanna, Evr-
ópu, Svíþjóðar, Danmerkur, Kan-
ada, Sviss og síðast Bretlands í
fyrradag. „Vaxtamunurinn hefur
minnkað af þessum ástæðum og
vaxtahækkunin sem tekur gildi
hér á landi á mánudag er fyrst og
fremst til að vinna upp það aðhald
sem við höfum misst niður. Þessar
aðgerðir eiga rætur að rekja til
þess að við viljum halda aðhalds-
samri peningastefnu áfram og
stuðla að hærra gengi og vinna
gegn verðbólgunni og þenslunni,"
segir Birgir ísleifur.
I frétt frá Seðlabankanum kem-
ur fram að vaxtahækkunin hafi
þann tvíþætta tilgang að auka
vaxtamuninn gagnvart útlöndum á
ný eftir nýlegar vaxtahækkanir í
viðskiptalöndunum og að undir-
strika enn frekar ásetning bank-
ans um að nýta aukið svigrúm
gengisstefnunnar til þess að draga
úr verðbólgu.
Hækkunarferlinu
ekki lokið
Að mati Arnars Jónssonar er
ákvörðun Seðlabankans um vaxta-
hækkun mjög skynsamleg á þess-
um tímapunkti. í ársfjórðungs-
skýrslu Landsbankans sem kynnt
var í lok janúar kom fram að
Landsbankinn teldi líklegt að
stýrivextir Seðlabankans myndu
hækka um 25-50 punkta fyrir
marslok. „Vextir hafa verið hækk-
aðir alls staðar í okkar helstu við-
skiptalöndum undanfarið, nema í
Japan og Noregi,“ segir Arnar.
„Vaxtamunurinn hafði því minnkað
og tekið til baka hluta af vaxta-
hækkun Seðlabanka íslands i byrj-
un janúar." Að mati Arnars er
hækkunarferlinu ekki lokið. „Það
er ljóst að ísland verður að fylgja
vaxtahækkunum annarra ríkja eft-
ir til að viðhalda vaxtamuninum."
Arnar segir fullsnemmt að spá því
hvenær vextir hækki næst hér á
landi. „Það veltur á því hvað gerist
erlendis en líklegt er að þetta
verði látið duga í bili og að fylgst
verði með verðbólgunni í því sam-
bandi.“
Hann segir lækkun á vísitölu
neysluverðs síðasta mánuðinn ekki
hafa mikið að segja fyrir verðbólg-
una yfir árið. Útsölurnar hafi þar
mikið að segja og líklegt sé að vísi-
talan hækki á ný. „Það eru allir
sammála um að verðbólgan sé allt
of há og aðhaldsaðgerðir Seðla-
bankans nú eru mjög skynsamleg-
ar út frá verðbólgusjónarmiði,"
segir Arnar.
Hagnaður FISK 345
milljónir króna í fyrra
Fiskiðjan Skagfirðingur hf. ,
Úr ársreikningi 1999 eaalÉiwuúa
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 2.422,2 2.256,6 +7,3%
Rekstrargjöld 1.087,1 1.126,1 -3,46%
Afskriftir -310,5 -311,0 -0,2%
Fiármunatekiur ífiármaqnsqiöld) -67.0 -187,7 -64,3%
Eignarskattur -3,1 0
Haqnaður af reqluleqri starfsemi 342.7 69.0 +396.7%
Hagnaður ársins 344,9 78,8 +337,7%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 3.053,6 2.953,1 +3.4%
Eigið fé 1.069,4 703,3 +52,1%
Skuldir 1.984.3 2.249,7 -11,8%
Skuldir og eigið fé samtals 3.053,6 2.953,1 +3.4%
REKSTRARTEKJUR Fiskiðjunnar
Skagfirðings hf. á síðasta ári voru
2.422 milljónir króna og hækkuðu um
7,31% á milli ára, en rekstrargöld án
afskrifta og fjármagnskostnaðar voru
1.699 milljónir króna og hækkuðu um
0,59%. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnskostnað var 723 miUjónir
króna eða 29,86%. Afskriftir voru 311
miHjónir króna og fjármagnsgjöld
voru 67 milljónir króna. Hagnaður
fyrir skatta var því 345,8 milljónir
króna, en að teknu tilliti til skatta og
óreglulegra tekna er hagnaður FISK
344,8 miHjónir króna.
Veltufé frá rekstri var 627,5 millj-
ónir króna, eða 25,9% af tekjum.
Veltufjárhlutfall er 1,59 og eiginfjár-
hlutfall 0,35. Nettóskuldir FISK eru
1.340 milljónir króna og niðurstaða
efnahagsreiknings 3.053 miHjónir.
Útlttlð á margan hátt gott
en bllkurálofti
Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK, segir að jákvæð
rekstramiðurstaða byggist á góðu
starfsfólki FISK til sjós og lands,
ásamt því að ytri skilyrði voru fyrir-
tækinu á margan hátt hagstæð, m.a.
hátt afurðaverð og auðveld þorsk-
veiði. Hann segir að útlitið hvað þetta
ár varðar sé á margan hátt gott, en þó
séu blikur á lofti. Sterk staða krón-
unnar gagnvart evrópumyntum komi
talsvert við fyrirtækið, þá sé óvissa í
kjaramálum og neikvæð umræða um
sjávarútveginn verði smátt og smátt
til þess að erfiðara verður að fá hæft
fólk til að starfa í greininni. Þá hafi
miklar olíuverðshækkanir undan-
fama mánuði mikil áhrif á reksturinn,
auk þess sem karfaveiðin hafi verið
fremur léleg og meira hafi þurft að
hafa fyrir því að veiða þorskinn jafn-
framt því sem hann hafi verið smærri.
Starfsmönn-
um boðin
hlutabréf í
Línu.Neti
STARFSMÖNNUM Línu.-
Nets og Orkuveitu Reykjavík-
ur verður á næstunni boðið að
kaupa hlutabréf í Línu.Neti að
nafnverði 10 milljónir á geng-
inu 3, að sögn Guðmundar Þór-
oddssonar, forstjóra Orkuveitu
Reykjavíkiu-.
Samþykkt var á veitustjórn-
arfundi í vikunni að leggja
hlutafjáraukninguna til við
borgarráð sem kemur saman á
fundi á þriðjudag. Lína.Net er
dótturfyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur og alfarið í eigu
veitunnar. í samþykktum
Línu.Nets er einungis gert ráð
fyrir einum hluthafa í félaginu
og því mun samþykktunum
verða breytt, að sögn Guð-
mundar, enda stendur til að
gera Línu.Net að almennings-
hlutafélagi í næstu framtíð.
Guðmundur segir óskir hafa
borist frá starfsmönnum um að
fá að kaupa hlutabréf í félaginu
og að þeim hafi nú verið til-
kynnt um væntanlegt tilboð.
Um 470 starfsmenn er að ræða
en hámarksupphæð sem hægt
verður að kaupa fyrir er
150.000 krónur að nafnverði.