Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 39

Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ /IKl m 1 LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 2000 39 J | Þekkirðu emkenni hjartaáfalls? Rétt viðbrögð geta skipt sköpum þegar hjartaáfall ríður yfir. Þessir bandarísku feðgar urðu fyrir sérkennilegri lífsreynslu í liðnum mánuði. Sonurinn Jerry Miller ók föður sfnum, Jim, á sjúkrahús vegna hjart- veiki. Þegar þangað var komið fékk sonurinn hins vegar hjartaáfall. Báðir þurftu á skurðarborðið og liðu aðeins nokkrar klukkustundir á milli aðgerðanna. Feðgarnir voru fljótir að ná sér líkt og myndin sýnir og tiltók faðirinn að þeir hefðu ávallt verið „samhentir". Medical PressCorps News Service. MYNDIRÐU þekkja einkenni hjartaáfalls umsvifalaust? Ein- kennin geta verið fleiri en þú held- ur. „Hjartaáföllum svipar stundum svo til sakleysislegra kvilla, svo sem meltingartruflana, að gott er að fylgja nokkrum einföldum reglum,“ segir dr. Mark G. Perlroth, lækna- prófessor við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Viðbúnaður áhættuhópa Hann segir að betra sé að hafa allan vara á. Fólk, og þá sérstaklega karlmenn, sem hefur áður fengið hjartaáfall eða er í áhættuhópi (þ.ám. eldra fólk, fólk með háan blóðþrýsting, sykursýki eða áber- andi ættgengi hjartaáfalla) ætti að telja að um hjartaáfall sé að ræða ef einkenni óvenju mikilla meltingar- truflana standa í meira en 20-30 mínútur. Það eykur enn líkurnar á að um hjartaáfall sé að ræða ef einhver eftirtalinna einkenna finnast: Verk- ur sem berst út í háls, kjálka, öxl (yflrleitt þá vinstri) eða handleggi, svimi, öndunarerfiðleikar, ógleði eða sviti. Ef taldar eru líkur á að um hjartaáfall sé að ræða á sjúklingur- inn að tyggja strax tvær aspiríntöfl- ur, segir dr. Perlroth, en rannsóknir hafa sýnt fram á, að þetta einfalda atriði eykur blóðfiæði og dregur úr hættu á dauða um fimmtíu prósent. Ennfremur dregur aspirín úr hættu á varanlegum skemmdum. Ef nítróglyserín er við höndina ætti sjúklingurinn líka að taka það til að draga enn frekar úr hættu á hjarta- skemmdum og/eða dauða, auk þess sem það dregur úr verkjum og óþægindum. Þá skiptir miklu máli að koma sjúklingnum undir læknishendur sem fyrst. „Ef þess er kostur ætti ferðin á sjúkrahúsið að vera í sjúkrabíl sem er mannaður hjúkr- unarfólki og er vel búinn tækjum til að bregðast við hjartaáföllum. Það er líka mun öruggara heldur en að ringlaður vinur eða ættingi sé að aka á ofsahraða með sjúklinginn á sjúkrahúsið," segir dr. Perlroth. Á meðan beðið er eftir sjúkrabíln- um ætti sjúklingurinn að sitja í stól með hallandi baki eða í rúmi með bakstuðningi til þess að draga úr öndunarerfiðleikum. Þá segir dr. Perlroth að líklega sé best að vinur eða ættingi taki ákvörðun um að leitað skuli læknis. Hann segir að sjúklingarnir sjálfir - sérstaklega ef um sé að ræða eldri karlmann sem hefur aldrei áður átt við hjartakvilla að etja - kunni að skammast sín fyr- ir allt umstangið og vilji bara bíða og vona að verkurinn hverfi. Úr íslensku lyfjabókinni Aspirin LÍKT og fram kemur í greininni um hjartaáföll hafa rannsóknir leitt í ljós að inntaka Aspiríns (Aspirin) getur dregið stórlega úr hættu á dauða. Lyfið er ekki lyf- seðilsskylt og inniheldur acetýl- salicýlsýru, sem er m.a. að finna í Magnýl og fleiri lyfjum. Eftirfar- andi upplýsingar eru fengnar úr Islensku iyfjabókinni en hana má nálgast á heimasíðu netdoktor.is. Lyfjaform: Tuggutöflur: Hver tuggutafla inniheldur 500 mg. Notkun: Acetýlsalicýlsýra hefur margbreytilega verkun á ýmis líf- færakerfi þótt hún sé þekktust íyrir verkjastillandi eiginleika. Það hefur einnig áhrif á storknun- arþætti blóðsins og getur þannig í vissum tilfellum dregið úr hættu á blóðtappamyndun. Þessar tuggu- töflur virka líkt og aðrar acetýlsal- icýlsýrutöflur, t.d. Magnýl. Þær eru fljótar að verka og hámarks- virkni fæst á um klukkustund. Skammtar: Venjulegur skammtur við verkjum og bólgu er 1-2 tuggu- töflur mest 4 sinnum á dag. Töfl- urnar á að tyggja og kyngja svo. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára á þessu formi. Aukaverkanir: Algengar. Ein- kenni frá meltingarvegi, nábítur, ógleði og jafnvel sáramyndun og blæðingar frá slímhúðum maga og þarma, sérstaklega hjá þeim sem hætt er við magasári. Sjaldgæfar. Ofnæmi og astmi. Þegar of stórir skammtar eru teknir koma fram eiturverkanir. Athugið: Ekki er að jafnaði rétt að nota þetta lyf til að lækka hita í Aspirin kom á markað 1899. bömum sem eru með hita vegna veirusýkinga. Fólk sem er með sjúkdóma í meltingarvegi, sér- staklega magasár eða skeifugam- arsár ætti ekki að nota þetta lyf nema í samráði við lækni. Sama gildir um þá sem haldnir era blóð- sjúkdómum, Lyfið á ekki að gefa sjúklingum með alvarlega lifrar- og nýrnaskaða. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki hefur verið sýnt fram á að lyfið hafi nein skaðleg áhrif á fóstur. Á síðasta mánuði meðgöngu getur þó verið varasamt að nota þetta lyf í einhverju magni. Afgreldsla: 10 tuggutöflur í þynnupakkningu. • Nánar á Netinu: www.net- doktor.is 12. FEBRÚAR 1 965 - 1 2. FEBRÚAR 2000 1 dag höldum við upp á 35 ára farsælt starfsafmæli. Við höfium ávallt að leiðarljósi að vera í fararbroddi og þjóna viðskiptavinum okkar sem allra best. Við óskum öllum viðskiptavinum og velunnurum til hamingju með daginn, og þökkum fyrir allar góðu samverustundirnar á liðnum árum. Hákon Már örvarsson yfirmatreiðslumaður Matreiðslumaður ársins 1997 Mouton Cadet matreiðslumaður ársins 1999 Ragnar Ómarsson matreiðslumaður Matreiðslumaður ársins 1999 Friðgeir Ingi Eirlksson matreiðslunemi Hótel- og matvælaskólinn Matreiðslunemi ársins 1999 Sigmar Örn Ingólfsson yfirþjónn Vínþjónn ársins 1998 Annað sæti 1999 Eva Þorsteinsdóttir Hótel- og matvælaskólinn Framleiðslunemi ársins 1999 Borðapantanir í síma 552 5700
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.