Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 43 mst mega sín Þingmenn í Reykjaneskjördæmi beita sér fyrir hröðun framkvæmda við Reykjanesbraut félagsins verði sífellt meiri, bilið í þjóð- félaginu milli ríkra og fátækra sé sífellt að aukast. Af því leiði að böm og ung- lingar sem búa við slæm fjárhagsleg og félagsleg skilyrði einangrist oft á tíð- um. Nú ríki minna umburðarlyndi en áður gagnvart þeim sem ekki falla inn í samfélagið. Allt sem kemur börnum við kostar fé, t.d. iðkun íþrótta og tómstunda. A mörgum heimilum þurfti slík iðkun barna að víkja fyrir matar- innkaupum, en slíkt hafi félaglega ein- angrun í för með sér - böm verði út- undan. Færð era rök íyrir því að munurinn á milli þeirra sem búi við bága félags- lega stöðu og hinna sé einnig alltaf að verða meiri. Þessi hópur sitji eftir með- an böm úr öðram hópum njóti mennt- unar og verði þannig hæfari. Böm sem búa við það að enginn heima fyrir hefur áhuga á líðan þeirra, hvað þau séu að gera, hvort þau séu búin að læra eða hvort þau eigi vini. Þessi böm skorti oft sjálfsmynd og jafnvel fyrirmynd. Vandinn geti t.d. verið sá að foreldr- amir séu í neyslu, án atvinnu eða þurfi að vinna myrkranna á milli. Böm sem alast upp við mikil vandamál heima fyrir virðast oft eins og festast í ákveðnum vítahring. Sjálfsmynd for- eldranna endurspeglast í bömunum og því skapast vítahringur fyrir alla fjöl- skylduna. Einstakiingar með skerta sjálfsmynd haf! síðri möguleika á að spjara sig í þjóðfélaginu, böm úr þess- um hópi vantar allt sjálfstraust, t.d. hvað varðar menntun og atvinnu og dæmast þess vegna oft sjálfkrafa úr leik. Bent var á í umræðum um þennan þátt könnunarinnar að vísii' væri að verða að kynslóðum þeirra sem minna mega sín hér á landi. Þriðja eða jafnvel fjórða kynslóð ómenntaðs og efnalítils fólks sé til í einhverjum mæli hér á landi og fyrir fólk með slíkan upprana sé vitaskuld afar erfitt að slíta sig laust og bæta ástandið, ekki síst þegar um- burðarlyndi og víðsýni samborgara virðist minna en áður. I umræðunum var einnig vikið að því sem kalla mætti raunveralega fátækt og hinu sem tengist kapphlaupinu í neyslusamfélaginu, t.d. eftir merkja- vöra. Bent var á að margir gætu alls ekki tekið þátt í neyslukapphlaupinu og þyrftu jafnvel að geyma ferðir bama sinna til lækna og tannlækna. Það væri raunveruleg fátækt. Hitt væri líka vel þekkt, að börn efnaminni foreldra yrðu fyrir aðkasti skólasyst- kina sinna fyrir að vera ekki í fötum úr tilteknu merki. Slík vandamál væru velþekkt og væri ein ástæða þess að Rauði krossinn í Reykjavík undirbýr nú opnun markaðar með notuð föt. Fram kom að ýmsar þjóðir hefðu tekið upp skólabúninga til að gæta jöfnuðar og slíkt þyrfti að athuga hér. Þátttakendur í símakönnun Rauða krossins vora spurður hverjir hefðu það verst félagslega og fjárhagslega á landinu og í nánasta umhverfi. Miðað við landið í heild era þrá- hópar sem langflestir nefna að hafi það verst fjár- hagslega. Láglaunafólk og eignalaust fólk nefndu 42,7% svarenda, öryrkja, fatlaða og sjúka nefndu 26,5% og 17% nefndu aldraða. Almennt má segja, þegar niðurstöður símakönnunarinnar era bomar saman við niðurstöður sér- fræðinganna, að nokkur samstaða virðist um hveijir fylla flokk bág- staddra hér á landi. Þegar niðurstöður úr könnunum frá 1994 og 1999 era bomar saman kemur í ljós hversu miklar breytingar hafa orðið á þjóðfélaginu. Fyrir sex áram ríkti hér mikið atvinnuleysi og fólk sem var tilbúið að vinna hvað sem var gekk samt um án vinnu. Flestir töldu þá at- ■-------- vinnuleysið rót vandans. iningar Nú ríkir hins vegar mikil gæta þensla, hið minnsta á suð- ðar? vesturhorninu. Vegna ______ hennar virðist álit þátttak- enda að bilið sé að breikka milli þeh-ra sem hafa góð laun og hafi getu eða tækifæri til að vinna mikið og hinna sem hafi það eða geti ekki. Tekjuskipting virðist nú ójöfn, ákveðn- ir hópar hafa orðið eftir og láglauna- fólk og bótaþegar ná varla endum sam- an. I umræðum um niðurstöður könnunar RKÍ segir að gera megi að einhverju leyti ráð fyrir því að hluti af láglaunahópnum nú hafi verið atvinnu- laus þegar fyrri könnunin hafi verið gerð. Því sé hægt að segja að staða þessa fólks sé búin að vera erfið ansi lengi. Fyrsti áfangi hugsanlega boðinn út haustið 2002 Vonir standa til að vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar geti hafíst árið 2003. Stefnt er að því að framkvæmdin fari í um- hverfismat á þessu ári, sem trúlegt er að taki um eitt ár, og hönnun vegarins hefjist á næsta ári. Verkið tekur þrjú til fjögur ár. Morgunblaðið/Ásdís Þingmannahópur úr Reykjaneskjördæmi vinnur að hröðun framkvæmda. Á myndinni eru þingmennirnir Sigurður Jóhannesdóttir, Gunnar Birgis- son, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Hjálmar Árnason og Kristján Pálsson. INGMENN í Reykjanes- kjördæmi hafa fundað um hugsanlega hröðun á fram- kvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar ásamt fulltrúum Vegagerðarinnar, sem nú vinna að því að setja framkvæmdina í umhverfis- mat og hönnun. „Með því verður hægt að bjóða út fyrsta áfanga tvöföldunarinnar haustið 2002 þannig að framkvæmdir geti haf- ist 2003,“ segir Ámi Mathiesen, þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykja- neskjördæmi og sjávarútvegsráð- herra. Hann segir að verið sé að skoða tvo möguleika - annars vegar að tveir áfangar verði boðnir út á tveggja ára tímabili og hins vegar hvort hagkvæm- ara geti reynst að bjóða verkið út í einu lagi. Þá yrði skoðað hvort hægt væri að nota aðra fjármuni til þess að greiða hugsanlegan fjármagnskostnað sem af þessu hlytist. Með þessu móti tæki verkið þrjú til fjögur ár. Árni bendir á að inni í langtímaáætl- un Vegagerðarinnar séu 2,5 milljarðar króna eymamerktir til tvöföldunar Reykjanesbrautar með útgreiðslu á áranum 2007, 2008, 2009 og 2010. Hann segir mikinn pólitískan vilja fyr- ir því að koma þvi í höfn að fram- kvæmdum verði flýtt. „Aðalatriðið núna er ekki hvort við tvöföldum Reykjanesbrautina, og ekki heldur hvenær, því það er mjög nærri í tíma, heldur hvemig við geram það. Hvar við byrjum og hversu hratt við föram í verkefnið. Ef hægt er að gera þetta enn hraðar vil ég skoða það, en út frá verkfræðilegu sjónarmiði þarf að gefa sér sæmilega góðan tíma í þetta. Vega- áætlun sem við eram að vinna eftir nær til ársins 2002 og það hefur ekki verið gert ráð fyrir tvöfölduninni á því tímabili. Fyrsta árið sem við eram að bæta við núna er árið 2003 og við höf- um stefnt að því að tvöföldunin hefjist þá. Sú ákvörðun verður þó ekki tekin annars staðar en á Alþingi,“ segir Ámi. Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi, segir að þingmannahópurinn í Reykjaneskjör- dæmi sé nú að reyna að færa fjár- magnið framar í tímaröð. „Það er hægt að gera með ýmsu móti, t.d. með því að Alþingi ákveði að færa það framar eða, eins og við höfum bent á, að bjóða veg- inn út í heilu lagi, þ.e. að verktakar og fjárfestar fjármagni framkvæmdina og fái greitt á áranum 2007-2010. Við bendum á að fyrirsjáanlegur er mikill sparnaður á móti fjármagnskostnaðin- um sem af þessu hlytist. Slysum myndi fækka, framkvæmdin fengist fyrir lægra verð með því að bjóða út stærri verkefni og hagkvæmara yrði að aka veginn,“ segir Gunnar. Hann telur að fjármagnskostnaður geti orðið á bilinu 400-800 milljónir króna ef strax verður hafist handa við framkvæmdina og hún greidd upp með fjárveitingu áranna 2007-2010. 1,3 milljarðar kr. í greiðslur vegna slysa á tíu árum Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar lagði fram ýmsar tölulegar upplýsingar um Reykjanes- brautina á fundinum. Þar kom m.a. fram að meira en tvær og hálf milljón bíla aka árlega um veginn og meðal- slysatíðni áranna 1982-1994 var 0,36 slys á milljón ekna kílómetra. Það sem vakti þó einna mesta athygli voru tölur frá tryggingafélögunum sem sýna að heildargreiðslur þeirra á sl. tíu áram námu 1,3 milljarði kr. vegna slysa á Reykjanesbrautinni frá Hafnarfirði að Fitjum í Njarðvík. Með tvöföldun Reykjanesbrautar á þessum kafla myndi slysastuðullinn lækka úr 0,36 í 0,09 eða um 75%. Heildargreiðslur tryggingafélaganna á tíu áram myndu lækka úr 1,3 milljörðum króna í 325 milljónir króna. Sparnaður yrði m.ö.o. 1.000 milljónir króna á tíu áram. Þama er ótalinn kostnaður heilbrigðis- og tryggingakerfisins, félagslega kerfis- ins og annar samfélagslegur kostnaður og kostnaður við eignatjón sem ekki fer í gegnum tryggingafélög. Leiddar voru líkur að því að með tvöföldun Reykjanesbrautar gætu iðgjöld hjá tryggingafélögum lækkað auk þess sem flýting íramkvæmdarinnar sé þjóðhagslega hagkvæm vegna þess að samfélagslegur kostnaður myndi lækka. Tilfinningaþátturinn grundvöllur umræðunnar Hjálmar Ámason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að full ástæða væri til að tilfinningamál blönduðust inn í þessa umræðu því það væri tilfinningaþátturinn sem væri grandvöllur fyrir því að Reykjanes- brautin og tvöföldun hennar væri jafn mildð til umræðu og yaun ber vitni. Hann sagði að þótt Árni Mathiesen hefði verið ósáttur við framsetningu málsins á fundinum þyrfti enginn að draga það í efa að hann, eins og aðrir þingmenn kjördæmisins, styddi tvö- földun vegarins. Hjálmar sagði að því mætti ekki gleyma að hörð glíma sé um fjármagn til vegamála um allt land. Minnti Hjálmar á einn fjölmennasta borgarafund sem haldinn hefur verið í Hafnarfirði um hugmyndir um breyt- ingar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. „Ætli það kosti ekki um 15-20 millj- arða króna að leysa umferðarvandann frá flugstöðinni og norður fyrir Reykjavík. Það skiptir því höfuðmáli í þessari glímu að þingmannahópurinn standi saman og hafi til þess stuðning sveitarstjórnarmanna á Suðumesjum ef við ætlum að eiga einhveija von um að þetta gerist fyrr en 2010. Skynsam- leg lausn er einmitt sú sem þing- mannahópurinn hefur verið að ræða, og Gunnar Birgisson hefur bent á, þ.e. að semja við öfluga verktaka og fjár- festa um að ganga inn í verkið þótt það hafi í för með sér viðbótarfjárfesting- arkostnað,“ sagði Hjálmar. Árni Ragnar Ámason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að aldrei hefði verið jafnmikill stuðningur við tvöföldun Reykj anesbrautar og nú. Málið hefði fengið undirtektir víða og hann teldi útlit fyrir að hröðun fram- kvæmdanna næði fram að ganga. Aðr- ir þingmenn sem tóku til máls á fundin- um og lýstu stuðningi sínum við framkvæmdina vora Sigríður Jóhann- esdóttir, Samfylkingu, Guðmundur Ámi Stefánsson, Samfylkingu, Krist- ján Pálsson, Sjálfstæðisflokki, og Þor- gerður K. Gunnarsdóttir, Sjálfstæðis- flokki. Þá kom fram á fundinum að nem- endur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja ætla á næstu dögum og vikum að safna undirskriftum meðal Suðumesja- manna 17 ára og eldri til stuðnings tvö- földun Reykjanesbrautar. Árni Mathiesen fer af fundinum, ósáttur við framsetningu málsins. Ráðherrann gekk af fundi ÁRNI Mathiesen, þingmaður Reykj- aneskjördæmis og ráðherra, gekk af fundi, sem Markaðs- og atvinnumála- skrifstofa Reykjanesbæjar gekkst fyi’fr í gær um breikkun Reykjanes- brautarinnar, í mótmælaskyni við framsetningu málsins á fundinum. Þetta gerði Árni áður en honum gafst tóm til að skýra fundargestum frá starfi þingmanna kjördæmisins sem miðast að því að hraða framkvæmd- um við tvöföldun brautarinnar. Árni kvaðst fyrir fundinn hafa farið þess á leit við stjórnendur hans að farið yrði í gegnum málið á efnislegum forsend- um en ekki á tilfinningalegum. „Ég var raunveralega blekktur til þess að koma á þennan fund. Hann var lagður upp á öðrum forsendum en mér hafði verið sagt að hann yrði og það eru for- sendur sem ég tel að séu ekki hjálp- legar í þessari urnræðu," sagði Árni. Tvöföldun brautar- innar þolir enga bið AÐALBJÖRG Guðgeirsdóttir var á meðal framsögumanna á fundnum i gær. Hún hvatti eindregið til þess að menn huguðu nánar að forgangs- röðun verkefna og sagði að tvöföld- un Reykjanesbrautar þyldi enga bið. Aðalbjörg er eitt fjölmargra fórnar- lamba umferðarslysa sem hafa orðið á Reykjanesbraut í gegnum tíðina. „Eg lenti í slysi 28. desember 1986. Ég var farþegi í aftursæti í bíl á leið til Reykjavíkur. Við höfðum ekið vinkonu minni í flug - þetta var snemma á sunnudagsmorgni. Bíllinn snerist í krapa á veginum og lenti fyrir bíl sem kom á móti. Bílarnir voru báðir aðeins á 65 km hraða en höggið var mikið þegar þeir lentu saman. Ég var ekki í bflbelti og skutlaðist út í hraun. Þar lá ég í kolniðamyrki í þrjú korter. Ég hryggbrotnaði og einnig brotnuðu sjö rifbein og lunga féll saman,“ segir Aðalbjörg. Aðalbjörg kveðst hafa verið ánægð með fundinn en hún skilji ekki alveg sjónarmið Árna Mathies- en. „Ef það erum ekki við sem erum til sýnis í þessari umræðu heldur eingöngu einhverjar tölur þá nær það ekki tilgangi sínum. Það er svo Morgunblaðið/Áadís Aðalbjörg Guðgeirsdóttir lenti í umferðarslysi á Reykjanesbraut. fljótt að fyrnast yfir tölur en það eru svo margir sem á einn eða ann- an hátt tengjast umferðarslysunum, annaðhvort sem þolendur eða að- standendur," segir Aðalbjörg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.