Morgunblaðið - 12.02.2000, Side 70

Morgunblaðið - 12.02.2000, Side 70
70 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ljóska PAÐ KOM HERNA NAUTHEIMSKUR BANKARÆNIN6IÍM0R6UN... Smáfólk ( THEY CALL ^ °\vIT“5NOWjy ° (l COMES FROM") VjýP THERE.. ANP THEN IT FALL5 P0WN HERE.. ° ° o ° o ^ ° — 0 O Q O g ^ — O /2-11 ° Q o ö o o o o o . , , °/ l’M 50RRY.> ‘Kl\í I TH006HT /K')I YOOWANTED s? 11 A5CIENTIFIC . EXPLANATION.. Þetta nefnisr „snj<Sr“. Hann kemur að ofan. Og fellur til jarðar. Fyrirgefðu. Ég hélt þú vildir fá vísindalega útskýringu BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Menn verða helst að vera útbúnir eins og kafarar svo þeir séu gjald- gengir veiðimenn og standa úti í ánni upp undir hendur, baðandi út öll- um öngum, segir meðal annars í meðfylgjandi bréfi. Stöng eða net Frá Guðvarði Jónssyni: STANGVEIÐIMENN deila oft hart á netaveiði í ám og telja hana spilla fyrir stangveiði og jafnvel hafa nei- kvæð áhrif á laxastofninn í ánum. Ég er líka þeirrar skoðunar að netaveiði og stangveiði í sömu á sé ekki æski- legt fyrirkomulag. í þessum línum ætla ég að minn- ast á ýmsa þætti sem ég tel að betur mætti huga að en gert er. Á þeim 65 árum, sem ég hef veitt lax á stöng, hafa laxastofnar í mörgum ám minnkað verulega og sumar góðar laxveiðiár eru næstum orðnar lax- lausar. Netaveiði er umdeild en ég tel hana jákvæðari gagnvart laxastofni ánna en stangveiði. Netaveiðin veitir meiri frið í ánum, vegna þess hvað umgengni er lítil við ámar og sé fylgt reglum, hvar og hvemig eigi að leggja netin og hversu mörg prósent megi veiða úr göngustofni árinnar á hverju sumri, þá er netaveiðin um- hveríisvænni en stangveiðin. Teljari þyrfti þó að vera í hverri laxveiðiá. Stangveiðin er aftur á móti fjöl- þættara ferli við ámar og getur haft mjög víðtæk áhrif á lífrQd þeirra. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa strangar reglur um umgengni við ámar og eins hversu mörg prósent af göngustofni megi veiða á hverju sumri. Það virðist aftur á móti mjög skorta á það sumstaðar að slíkt eftir- lit sé fullnægjandi. Hið stöðuga áreiti sem laxinn verður fyrir frá veiðimönnum mun hafa mjög stressandi áhrif á hann og þar af leiðandi neikvæð áhrif á líðan hans í ánni og mun líka vera mjög neikvætt fyrir það mikilvæga hlut- verk sem honum er ætlað með göng- unni í ámar. Þess vegna finnst mér furðulegt, að það skuli ekki vera ákveðin svæði í hverri laxveiðiá, þar sem laxinn er friðaður gagnvart öllu áreiti. Eitt af þeim atriðum sem valda mikilli styggð í ánum er þegar veiði- menn eru að vaða um veiðisvæðin. Menn verða helst að vera útbúnir eins og kafarar, svo þeir séu gjald- gengir veiðimenn og standa úti í ánni upp undir hendur, baðandi út öllum öngum. Þetta ætti að banna því þess gerist ekki þörf, bæði línur, stangir og hjól em orðin það góð að kast- lengdin er nægileg til þess að koma beitunni á réttan stað þó staðið sé á bakkanum, ekki síst ef veiðimaður- inn hefur rétt til þess að veiða frá báðum bökkum. Ég hef oft verið við laxveiðar á strigaskóm og gengið ágætlega. Það er ekki bara vegna styggðarinnar, að banna ætti þetta ársull, heldur er árbotninn sem menn era að vaða um iðandi af smá- sílum sem fela sig í mölinni þegar hættu ber að, því er ekki ólíklegt að það sé dijúgur slatti af laxaseiðum sem menn kremja undir fótum sér á hverju sumri. Veiðiverðir ættu alltaf að skoða þau veiðarfæri sem menn nota við veiðarnar og fylgjast með því að ekki séu notuð ólögleg tæki. Einnig þurfa veiðiverðir að skoða allt sem veitt er og sjá til þess að rétt sé skráð í veiði- bækur. Oft hefur maður séð allrós- óttar skráningar í slíkum bókum. Menn eiga ekki að komast upp með að skrá í bækur það, sem þeir ekki hafa veitt, eða að skrá ekki það sem þeir veiða. Það á heldur ekki að líð- ast, eins og maður sér stundum, að það séu 5-6 stangir í ám, þar sem ekki eiga að vera nema 2-3. Mér finnst stundum, eins og veiðiréttar- eigendur séu ragir við að setja nauð- synlegar reglur og fylgja þeim eftir, af ótta við að tapa kaupendum veiði- leyfa. En málið er að vemdunarregl- ur sem fylgt er eftir tryggja stærri veiðistofn og betri veiði. Það hefur verið hörmung að horfa upp á ár sem vora fullar af fiski, tær- ast svo upp á síðastliðnum þrjátíu ár- um, að það sé tilviljun að maður sjái í þeim nema einn og einn fisk á stöku stað, þegar best lætur. Ein af aðal- ástæðunum íyrir þessu er sú að ekki hefur verið hugað að því að ámar þurfa að halda eftir ákveðinni stofn- stærð til þess að viðhalda veiðistofni. Að kreista lax og ala seiðin upp í klakstöð skaðar hæfni stofnsins til þess að byggja upp heilbrigðan villt- an stofn í ánum. Þess vegna þarf að skapa laxinum aðstöðu í ánum til að hann geti byggt upp veiðistofn ánna. Veiði og sala veiðileyfa verða svo að vera í samræmi við hvað stofninn þolir. Öðravísi verður tilvera og heil- brigði stofnsins ekki tryggð. Að lokum era það veiðimennirnir sjálfir. Mér finnst undarlegt, að allur þessi stóri hópur laxveiðimanna skuli gera sér það að góðu, að út- lendingar útiloki þá frá íslenskum laxveiðiám á besta veiðitíma sumars- ins og sleiki svo upp leifamar eftir útlendingana, fyrir okurverð. Það er ekki mikið víkingablóð í svona mönn- um. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.