Morgunblaðið - 12.02.2000, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 71
BRÉF TIL BLAÐSINS
KIRKJUSTARF
Hver er sinnar gæfu
smiður nema kvóta eigi
Frá Svavari R. Guðnasyni:
EINU sinni voru hjón sem áttu ofur-
lítinn kofa úti í skógi, bóndinn hjó tré
og smíðaði hús sín og muni af mikl-
um hagleik. Annað fólk sá að þetta
var gott til eftirbreytni, og tók upp
siði bónda. Smám saman stækkaði
hópur sá er hafði siði bónda til fyrir-
myndar. Og þannig myndaðist smám
saman þorp. íbúar þessa litla samfé-
lags undu glaðir við sitt og ekkert
gat raskað ró þess nema þá einna
helst veðrið. Dag einn ákvað bóndi
nokkur að senda son sinn til mennta
út í hinn stóra heim og segir ekki
meira af fyrr en bóndasonur kemur
til baka full-lærður. Hann hafði num-
ið viðskiptahagfræði, þóttu það stór
tíðindi er sonurinn sótti heimahag-
ana aftur. Nú liðu dagarnir sem
endranær og fór bóndasyni að leið-
ast lífið heima, hann hafði kynnst
hinum stóra heimi og var fullur hug-
mynda og visku, það leið því ekki á
löngu þar til hann kom að máli við
föður sinn og fór að kynna honum
leyndardóma viðskiptahagfræðinn-
ar. Jú, sjáðu til pabbi, ef við héma í
þorpinu stofnuðum almennings-
hlutafélag um skógarhöggið, tim-
burvinnsluna, húsgagnasmiðjuna og
allt hitt mætti fá inn í okkar samfé-
lag miklu meira fjármagn en við höf-
um yfir að ráða og allir yrðu með
fullar hendur fjár. Gamli maðurinn
hugsaði sig lengi um en svaraði um
síðir: „En við eigum þetta öll, hvern-
ig getum við þá grætt meira?“
„Sjáðu nú til pabbi, við fáum fleiri til
að kaupa hlut í okkar eigum og þá
höfum við meira fé milli handanna til
að ráðskast með til uppbyggingar og
athafna." Sá gamli skildi þetta ekki
nógu vel og svaraði: „En við eigum
allt, höfum allt og allir sem hingað
hafa flutt, hvað viljum við þá meira?“
„Sko, sjáðu nú til pabbi, hér hefurðu
einn spýtukubb, ekki satt, hann er
100 króna virði, ef við seljum helm-
ings hlut í honum á 50 krónur þá höf-
um við yfir að ráða 150 krónum ekki
satt, bæði kubbnum og 50 krónun-
um, samasem 150 krónum.“
„Jamm,“ sagði sá gamli, „merkileg
fræði þessi viðskiptahagfræði, einn
spýtukubbur orðinn einn og hálfur
spýtukubbur, það er eins gott að fara
að flytja út á bersvæði áður en þú
selur hlutabréf í skóginum öllum.“
Góðir hálsar, nútíma þjóðfélag
krefst nútíma hugsanagangs, einn
þorskur getur orðið einn og hálfur
þorskur, og gott ef ekki eitthvað
ennþá meira, til að mynda fjórir
þorskar. Hver var svo að tala um tví-
höfða þurs, þeir eru löngu úreltir,
þeir nýjustu eru fjögurra hausa og
fást niðri á þingi, horfa í allar áttir og
sjá allt fyrir og kunna því ráð við
öllu.
Nei takk, ég vil ekki hlut í þing-
haus hvað þá tvíhaus og alls ekki þrí-
haus, ég frétti að Byggðastofnun
hefði fengið einn slíkan og nú er allt í
pati þar. Ekki nóg með að hann tali
tungum tveim heldur þrem, þannig
að útkoman er eitthvað í líkingu við
návæl, allt komið úr skorðum og eng-
inn veit hvert kvótinn á að fara næst.
Guð forði okkur frá að hann gerist
sjálfstæðismaður, þá yrði nú fyrst
fjandinn laus. Þannig er nú einu
sinni með þessi hlutabréf hvort sem
þau eru í okkur sjálfum eða spýtu-
kubbnum, við lifum víst bara einu
sinni og best er að búa ekki á ber-
svæði með auð einan fata.
Hrakiim og kaldur ég húki við staf
og horfí á barn sem grætur.
Hvar er sá þróttur sem guð mér gaf?
Hver breytti degi í nætur?
Enginn er hultur og á sér stað.
Hvar liggja mannsins rætur?
SVAVAR R. GUÐNASON,
er eða var útgerðarmaður
á Patreksfirði.
Lögleidd lífshætta!
Frá Birni Finnssyni:
LAGASKYLDA er að reiðhjól séu
notuð á vegum en undanþága til
nota á gangbrautum. Fari hjól-
reiðamaður að lögum er hann í ei-
lífri lífshættu, geri hann það ekki,
lifir hann í undanþáguheimi sem ís-
lensk stjórnvöld virðast mjög hrif-
in af. Umferðarlög kveða á um,
hvar hvers staður er í umferðinni
en leyfa þó þann hraða sem hæfir
bílum einum og bifhjólum. Væri
hámarkshraði færður niður í 25-30
km á klst. ættu hjólreiðamenn góða
möguleika, en gangandi við 10 km
hámarkshraða.
Vitaskuld eru hinir vélknúnu ís-
lendingar ekki tilbúnir til þess
enda aka þeir meira á 90-130 km
hraða, sem víðast er langt yfir
leyfðum hraða. Segja má að 30 km
hraði í hverfum innan borgarinnar
og kannski á öðrum þéttbýlisstöð-
um, sé gerður til að lífvænlegt sé
að ferðast þar um fyrir alla. Þetta
er þó engin allsherjarlausn. Borg-
ar- og bæjayfirvöld um land allt
ættu að sjá sóma í, við hönnun
nýrra umferðarmannvirkja, að
hafa vel merktar hjólareinar eða
brautir með tilheyrandi umferðar-
merkjum, sem þó mega ekki vera í
höfuðhæð hjólandans. Hreppar
landsins gætu greitt fyrir og laðað
að sér ferðamenn með því að nota
aflagða vegi og búa til góð stíganet
er tengjast næstu hreppum og
fögrum stöðum.
Að fara fram á, að landsstjórn
fari eftir þessum sínum lögum, og
gera ráð fyrir reiðhjólum sem far-
artæki, er eða hefur verið til lítils.
Auðvitað má vonast til að sam-
gönguyfirvöld vitkist nokkuð og
láti hanna ný vegamannvirki, með
okkur hjólreiðaþegna þessa lands
og fjölgandi hjólaferðamenn í huga
og okkar öryggi. Gamla og aflagða
þjóðvegi þarf ekki að fjarlægja
enda kostar slíkt mikið og væri
óþarft umrót, auk þess brennslu á
miklu eldsneyti með tilheyrandi
loftmengun. Nær væri að gera þá
að góðum samgönguleiðum meng-
unarlausra farartækja.
Vert er yfirvöldum háum og lág-
um, þessa þjóðríkis, að sjá til þess
að þau lög séu ein í gildi, sem ætl-
un er og möguleiki á að framfylgja.
Á þeim tímum er við lifum, fara
stjórnvöld mikinn í mengunar- og
umhverfismálum. Stofna um það
ráðuneyti, sækja og halda ráðtefn-
ur, semja skýrslur, búa til emb-
ætti, nefndir og ráð.
En í reynd virðast stjórnvöld hér
ekki hafa nokkra einustu heil-
steypta stefnu í þessum málum,
stóriðja er aukin, fiskiskipaflotinn
stækkaður að afli og útblæstri, bif-
reiðar fluttar inn óheft með til-
heyrandi eitruðum útblæstri, stór-
auknum slysum sem auka þjáningu
þegnanna og sjúkrakostnaður
eykst svo heilbrigðiskerfið er orðið
fjárhagslegur baggi. Finnist ein-
hver tæki og tól til að menga með,
virðist hvatning ómæld, til aukinn-
ar notkunar á Islandi með tilheyr-
andi eitrunum, slysum og óheil-
brigði, allt til stundargleði og
stórfellds gróða ráðamanna. Af-
komendurnir munu væntanlega lifa
og deyja í megnunarskítnum.
Þegar mengunarslæðan er svo
þykk sem raun ber vitni, er ofur
eðlilegt að yfirvöld smá og stór sjái
ekki fóta sinna för eða bíla sinna
braut í þessum málum. Við hjól-
reiðamenn sem finnum fnyk í æð-
um vegna þessa munum óhindrað
halda áfram áminningum og
ábendingum um ókomna tíð í veikri
von um vitrænt líf í framtíðinni, ef
ekki fyrir okkur þá komandi kyn-
slóðir.
BJÖRN FINNSSON,
Krummahólum 13, Reykjavík.
Safnaðarstarf
Þrettándu
aldar messa
ÞRETTÁNDU aldar messa (tím-
ab. 1200-1300) tileinkuð Þorláki
helga verður í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 13. febrúar kl. 11.
í tilefni af 1.000 ára kristnitökuaf-
mæli okkar íslendinga var ákveðið að
á dagskrá Reykjavíkurprófastsdæma
yrðu sérstakar messur er fjölluðu um
gamla messusiði og sýndu okkur lítil-
lega inn í þjóðlíf íyrri alda.
Messur liðinna alda eiga að vekja
fólk til umhugsunar um andblæ liðins
tíma, bæði þjóðfélagslega og guð-
rækilega, þannig er notað tiltækt efni
frá ákveðnum tímum fyrri alda til að
vinna úr. Þá er einnig reynt að varpa
ljósi á hvemig kristin messa þróaðist
í gegnum aldimar.
í predikun era aldarandanum gerð
skil, sungnir sálmar þess tíma og ein-
staka hlutar messunnar eins og vitað
er hvemig voru iðkaðir á því tímabili
sem er til umfjöllunar í hvert sinn,
færðir inn í nútímann. Þessar messur
era almennar messur, en ekki
leiksýningar, þannig koma almennir
kirkjugestir til kirkju eins og venju-
lega og taka þátt í messunni.
Messan í Hallgi-ímskirkju er önnur
messan af sjö messum undir heitinu
„Messur liðinna alda“. Bæklingur
sem útskýrir messumar svo og hvar
og hvenær þær eru haldnar og um
hvaða tíma þær fjalla, hefur verið
dreift í allar kirkjur í prófastsdæm-
unum og er fólk hvatt til að ná sér í
eintak.
Athygli er vakin á fræðsluerindi
sem sr. Sigurður Sigurðsson vígslu-
biskup í Skálholti flytur um Þorlák
helga á undan mesunni í Hallgríms-
kirkju og sýningu í anddyri kii'kjunn-
ar á bókum og munum sem tengjast
þessum tíma.
„Messur liðinna
alda“ í Hall-
grímskirkju
Næstkomandi sunnudag, 13. febr-
úar, er komið að Hallgrímskirkju að
halda messu með sögulegu ívafi í til-
efni kristnitökuhátíðar. En fram til
vors verða 7 slíkar messur víðsvegar í
Reykjavíkurprófastsdæmum.
Áð þessu sinni verður litið til Þor-
láks helga biskups í Skálholti og
þeirra messusiða, sem þá vora iðkað-
ir. Sr. Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup mun flytja erindi á fræðslu-
morgni kl. 10 árdegis um Þorlák
helga og prédika í hátíðarmessu kl.
11. í messunni munu sr. Jón D.
Hróbjartsson, sr. Sigurður Pálsson
og sr. Kristján Valur Ingólfsson
þjóna ásamt vígslubiskupi. Mótettu-
kórinn syngur undir stjóm Harðar
Áskelssonar. Félagar úr Vocis Thulis
munu syngja fyrir messuna og í
messunni söngva úr Þorlákstíðum.
í forkirkjunni verða myndir af ís-
lenskum handritum (Þorlákstíðir) og
fomum byggingum. Þá verður til
sýnis skrúði prests samkvæmt fyrir-
mælum Þorláks biskups og fleira frá
þessum tíma.
Kirkjudagar
í Hveragerðis-
kirkju
Kirkjudagar verða í Hveragerðis-
kirkju frá og með sunnudeginum 13.
febrúar.
Frá þeim degi og fram tO 21. febr-
úar verður einnig opin sýning í
kirlgunni á vegum Hins íslenska bibl-
íufélags.
Hádegis- og kvöldbænm verða alla
virka daga vikuna 13.-20. febrúar kl.
12:15 og 18. Sóknamefndarfólk og
starfsmenn kirkjunnar skiptast á um
að leiða þær stundir ásamt sóknar-
presti og organista.
Fimmtudaginn 17. febrúar kl.
20:30 verður biblíufræðsla í umsjá
Jóns Pálssonar, framkvæmdastjóra
Hins íslenska biblíufélags. Tilvalið
tækifæri fyrir alla sem eru forvitnir
um biblíuna og langar að vita meira
um hana.
KRiSTIN TRÚ í ÞÚSUND ÁR ÁRIÐ2O0O
Sunnudaginn 20. febrúar kl. 11
verður fjölskylduguðsþjónusta með
þáttöku fermingarbama og Kanga-
sönghópurinn flytur tónlist frá Af-
ííku. Eftir guðsþjónustuna verður
stuttur fundur með fermingarböm-
um og foreldram og fermingarkyrtl-
arnh- mátaðir. Síðdegis sama dag, kl.
17 verður dagskrá í tOefni Kristnihá-
tíðar í Ámesprófastsdæmi. Tónlistar-
dagskrá flytja Kirkjukór Hveragerð-
is- og Kotstrandarsóknar undir
stjóm Jörg. E. Sondermann og Söng-
félag Þorlákshafnar, sem Róbert
Darling stýrh’. Erindi um kristnitök-
una flytur séra Heimir Steinsson á
ÞingvöUum.
Hjónanámskeið verður mánudags-
kvöldið 21. febrúar kl. 20 í umsjá séra
Þórhalls Heimissonai’. Námskeiðið er
ætlað öllum hjónum, hvort sem þau
hafa verið gift lengur eða skemur.
Gott hjónaband getur alltaf orðið
betra. Æskilegur fjöldi er 10-15 hjón.
Þátttökugjald fyrir hjónin er kr.
2.500 og greiðist við mætingu.
Fimmtudaginn 24. febrúar sýnir
Furðuleikhúsið leikþátt „Frá goðum
til Guðs“, sem fjallar um kristnitök-
una. Tvær sýningar verða fyrir nem-
endur Grannskólans og í samráði við
hann.
Jón Ragnarsson.
Kirkjugöngur
í dag, laugardaginn 12. febrúar,
verður ganga nr. 6. Lagt verður af
stað frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10
og hefst gangan við Laugarneskirkju.
Gönguleiðin verður frá Laugar-
neskirkju að Áskirkju og þaðan að
húsi KFUM & K við Holtaveg, en síð-
an verður haldið í Langholtsldrkju.
Hreyfing, fræðsla og bænahald.
Veitingar í boði Langholtskirkju-
safnaðar. Þátttökugjald kr. 500, frítt
fyrir böm undir 15 ára í fylgd með
ftillorðnum.
Listí
Laugarnesi
Á sunnudaginn kemur verður opn-
uð áhugaverð listasýning í safnaðar-
heimili Laugameskirkju þar sem
eldri Laugamesbúar sýna verk af
ýmsum toga. Sex aðilar eiga verk á
sýningunni sem samanstendur af
myndverkum með fjölþættri tækni
og efnisnotkun auk tréskurðar. Eru
það þau Svanbjörg Hróbjartsdóttir,
Gunnar Ríkharður Gunnarsson, Ingi-
björg Jónsdóttir, Guðrún Magnús-
dóttir og Guðrún Jóhannesdóttir sem
hér gefa okkur innsýn í list sína auk
Elínar Ágústu Hróbjartsdóttur, sem
látin er fyrir mörgum árum, en verka
hennar fáum við að njóta.
Auður Ólafsdóttir myndlistar- og
sóknamefndarkona annast uppsetn-
ingu sýningarinnar sem opnuð verð-
ur í messukaffinu strax að lokinni
messu kl. 11 nk. sunnudag.
Þjóðlagamessa
í Hafnar-
fjarðarkirkju
Sunnudaginn 13. febrúar verður
haldin þjóðlagamessa í Hafnarfjarð-
ai’kirkju. Hefst messan kl. 20.30. Fyr-
ir nokkram áram samdi sænska tón-
skáldið og presturinn Per Harling
messu er fékk nafnið „mássa i viston"
á sænsku eða „þjóðlagamessa" á ís-
lensku. Þjóðlagamessan er byggð á
samnomænni þjóðlagahefð. Vísan er
eitt aðaleinkenni norrænnar alþýðu-
sönghefðar. Um öll Norðurlönd eru
sungnar vísur oft við undirleik har-
monikku eða fiðlu. Vísumar segja
sögur af venjulegu fólki og hetjum og
tónlistin á sér fomar rætur í dölum og
skógum Svíþjóðar, Noregs og Finn-
lands. í þjóðlagamessunni er vísan og
vísnatónlistin gerð að undirstöðu
helgihaldsins. Allir hinir hefðbundnu
messuliðir era á sínum stað, en þeir
hafa verið endursamdir að hætti vís-
unnar. Auk þessa tengjast nýir sálm-
ar messunni, sálmar sem byggjast á
vísnahefðinni og hafa ekki verið flutt-
ir áður við helgihald hér á landi.
í dag mun vísnasönghópur undiiA.
stjóm Amars Amarssonar flytja
messuna. Prestar eru sr. Gunnþór
Ingason og sr. Þórhallur Heimisson
en hann þýddi messuna og staðfærði.
Munu fermingarböm sýna helgileik.
Eftir messuna er öllum kirkjugestum
boðið að þiggja kaffisopa í safnaðar-
heimili Hafnarfjarðarkirkju. Hefð-
bundin guðsþjónusta fer fram í
kirkjunni kl. 11. Pi’estur þá er sr. Þór-
hildur Ólafs.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl.
13. Farið í heimsókn í nýja Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ þar sem
skólameistarinn Þorsteinn Þorsteins-L
son tekur á móti hópnum. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Fríkirkjan Vegurinn: Samkoma
kl. 20. Lofgjörð, prédikun og fyrir-
bæn. Allir hjai-tanlega velkomnir.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skólikl. 11.
Akraneskirkja. Kii’kjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Stjórn-
andi Elín Jóhannsdóttir.
Boðunarkirkjan. Á morgun,
sunnudag, kl. 17 er námskeið í Daní-
elsbók. Leiðbeinandi er dr. Steinþór
Þórðarson. Námskeiðinu er útvarpað
á Hljómnemanum FM 107.
KEFAS. Laugard: Almenn sam-
koma kl. 14. Gestaprédikari Jón Þór *-
Eyjólfsson. Mán: Karlabænastund kl.
20.30. Þri.: Fræðsla og bænastund kl.
20.30. Mið.: Samverastund unga
fólksins kl. 20.30. Föst.: Bænastund
unga fólksins kl. 19.30. Allir velkomn-
ir.
Vegurinn. Fjölskylduhátíð kl. 11.
Fögnuður og gleði í húsi drottins.
Léttar veitingar eftir samkomuna.
Samkoma kl. 20. Samúel Ingimars-
son prédikar. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Laugardag kl.
13: Laugardagsskóli fyrir krakka.
STEINAR WAAGE
Nýtt frá
Teg. 857620. Litur svartur
Stærðir 40-46
Veri nú 9.995,-
OOMU5 MEDKA
vi5 Snorrobrout - Reykjavík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Simi 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Teg. 95352. Litur svartur
Stærðlr 41 -46
Veri nú 9.995,-
Teg. 69304. Litur svartur
Stærðir 41 -46
Veri nú 9.995,-