Morgunblaðið - 12.02.2000, Side 80
80 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
r 7 i
HÁSKÓLABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
KEVIN SPACEY ANMEm
AMERICAN BE
★★★★ __Lti
OFE Hausverk
★ ★★l/2 Ú'Úr'-
Al MBL m
★ ★★ 1/2 |
KBDagur H
Patrica ArqtiepPp f
★ ★★l/2ÓFE Gabrieí Byrne
Hausverk
Dulræn öfl stjóma lífi og líkama Frankie Page,
en eru þau að ofan eða neðan?
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11,15. B. i. 16 ára
★★★★ ★★★★ ★★★ t/2
ÓHT Rás2 SV MBL Kvikmyndir.is
kvikmynd eftir FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
HANDRIT EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
BYGGT A SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
Hagatorgi, sími 530 1919
tmtn
f DOl BLI
EOPARDY
D ÁK.1-RA
>
NYTT 0G BETRA'WS
WXAR
Tölvuteiknaða | ■
snilldarverkið frá L X/ 1
Disney og Pixar sem K •••
slö öll aðsóknarmet § /^BESTi
Einstök upplifun fyrir W .!* ; MYMDI
unga sem aldna. \™íu2i
ABALHLUTVERK \
EHSKTTAL:
Tom Hanks, Tim Allen, Joan Cusack og Kelsey 6r
ADALHLUTVERK ÍSLENSKT TAL: Felix Bergsson,
Magnús Jónsson, Ragnheiður Elín Gunnarsdnttir,
Harald G. Haralds, Steinn Ármann Magnússon,
Hjálmar Hjálmarsson og Karl Ágúst Úlfsson.
sss
FERÖU i 8/6
Álfabakka 8, simí S87 8900 og 587 8905
Sestu upp » sjukrabii meö NiQolas Cage og
féloguin.ag-igtfðu i ptrúlegultÖTéíd ævi þinnar á
tveimíir sólarhrUHittm um götur Now^fcgrk
bargaú. fýnöih og ögrandi
mynd eftirsnillinginn
Martin Scorsese meö
einvala ljöi leikara.
lausverk
nicoi
i : rmo-*-o .-M.rMr.rTr.,.,.,..,....... ■ rrt t n xi'tí ri
Sýnd með íslensku tali kl. 2.45, 4.50, 6.55 og 9.
og 11. ATH. fríkort gildir ekki á þessa mynd
www.samfilm.is
Ernest
allur
JIM Varney sem lék hinn klaufska
og uppátækjasama Ernest er lát-
inn. Leikarinn, sem var fimmtugur
að aldri, háði hetjulega baráttu við
lungnakrabbamein í tvö ár en varð
á endanum að lúta í lægra haldi.
Vamey vakti fyrst athygli sem
grettinn og glottandi iðnaðar-
maður í fjölda sjónvarpsauglýs-
inga en gerði síðan hrakfallabálk-
inn Ernest ódauðlegan og verður
hans fyrst og síðast minnst fyrir
þá litriku persdnu.
Emest var sérlega vinsæll
t, meðal yngstu áhorfendanna og
vom gerðar fjölmargar myndir þar
sem hann var sífelit að koma sér í
hið mesta klandur.
Á seinni ámm bætti hann síðan
einni fjöðrinni enn í hattinn með því
að ljá leikfangahundinum Slinky
Dog rödd sína í Leikfangasögunum
tveimur.
Það var einmitt í tengslum við
seinni myndina og framsýningu
hennar að Vamey sá sig fyrst
knúinn til að ljóstra upp um veik-
indi stn en þá hafði honum hrakað
mikið og líkaminn farinn að gefa
eftir í baráttunni við krabbameinið.
Ungir kvikmyndaáhorfendur
eiga eflaust eftir að sakna sárt
þessa sérstaka leikara en minning
hans mun lifa með gúmmikarlinum
brjóstgóða, honum Emest.
Emma trúði ekki Geri
BARNAKRYDDIÐ broshýra,
Emma Bunton sagði fyrir rétti í
~JK vikunni að hún hefði aldrei trúað
því að stalla hennar, Geri Halli-
well, myndi hætta í stúlknasveit-
inni Spice Girls eins og reyndin
varð. Skellinöðrufyrirtækið
Aprilia sakar stúlkurnar í sveit-
inni um að hafa gert að engu
samning þeirra á milli um að
kynna skellinöðru fyrirtækisins
er Geri ákvað að hætta. Emma
segir þé að reyndar hafi Geri
gefið það í skyn í tónleikaferð
sveitarinnar um heiminn að hún
væri að hugsa um að hætta. „En
við tókum ekki mark á henni því
"Sívið vorum oft að gantast með
svona lagað. Þetta var því meira
sagt í gríni og við hlógum að
þessu.“
Geri stóð hins vegar við orð sín
sem kostaði skellinöðrufyrirtækið
stórfé því hún var hluti af kynn-
ingarherferð þess. Málið verður
-^tekið upp aftur í réttarsalnum á
*næstu dögum.
Reuters
Hilmir Snær Guðnason fer með hlutverk síra Jóns
í Myrkrahöfðingjanum.
Alexandra Rappaport í hlutverki sínu í Myrkra-
höfðingjanum.
Myrkrahöfðinginn í Berlín
Kvikmyndin Myrkrahöfðinginn verður
sýnd í dag á kvikmyndahátíðinni í Berlín.
Aðalleikarar myndarinnar, Hilmir Snær
Guðnason og Alexandra Rapaport, verða
kynntir á morgun á sérstakri hátíðar-
dagskrá ásamt 16 öðrum imgum leikurum
frá alls fjórtán löndum í Evrópu.
Myrkrahöfðinginn,
kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar, verður sýnd-
ur tvisvar sinnum í Panorama-
flokki en einnig á evrópska sölu-
markaðnum.
Auk Myrkrahöfðingjans kynnir
Kvikmyndasjóður íslands mynd-
imar „Ungfrúin góða og húsið“ og
„Baráttan um bömin“ á evrópsk-
um markaði.
Ungfrúin góða og húsið verður
sýnd tvisvar sinnum en Baráttan
um bömin einu sinni.
Sérstök sýning fyrir fjölmiðla á
Myrkrahöfðingjanum er í hádeg-
inu í dag og að henni lokinni verð-
ur efnt til blaðamannafundar. Op-
in sýning er síðan klukkan 19.00,
en eftir kvöldsýninguna býður
Ingimundur Sigfússon, sendi-
herra íslands í Berlín, aðstand-
endum myndarinnar og blaða-
mönnum til móttöku í
sendiherrabústaðnum.
Evrdpskar stjörnur
Á morgun, sunnudag, verða
átján evrópskir leikarar frá fjór-
tán löndum kynntir í verkefni á
vegum „European Film Promot-
ion“ sem kallast „Shooting Stars“.
Kvikmyndasjóður íslands sem
er aðili að verkefninu tilnefndi
Hilmi Snæ Guðnason, sem nú tek-
ur þátt annar íslenskra leikara, en
í fyrra stóð Ingvar Sigurðsson á
„fjölunum" í Berlín. Auk Hilmis
tekur Alexandra Rapaport, sem
fór með eitt aðalhlutverkið í mynd
Hrafns Gunnlaugssonar, þátt í
verkefninu. Á sérstakri hátíðar-
dagskrá mun Von Moritz de
Handeln, forseti Berlinale, kynna
stjörnumar eftir að þær hafa verið
kynntar blaða- og kvikmynda-
gerðarmönnum fyrr um daginn.
Franska leikkonan Jeanne Mor-
eau, sem einnig er heiðursgestur
hátíðarinnar, stýrir að þessu sinni
verkefninu, en á síðasta ári var
það ekki síðri stjarna eða Ben
Kingsley.
Verkefnið felst í því að kynna
unga leikara sem getið hafa sér
gott orð í heimalandi sínu og að
koma þeim á framfæri á alþjóða
vettvangi. Meðlimir hópsins í ár
eru flestir hverjir þekkt nöfn í
evrópskum kvikmyndaheimi og
nokkrir þeirra hafa leikið í kvik-
myndum vestanhafs. í kynningu
er minnst á muninn á evrópskum
og bandarískum kvikmyndaheimi.
Vestanhafs eru það leikarar frekar
en leikstjórar sem festast í minni
áhorfandans, enda miðast öll
markaðssetning myndanna við að
kynna og selja kvikmyndimar með
andlitum aðalleikaranna.
Evrópskur kvikmyndaiðnaður
hefur á síðastliðnum árum eða ára-
tugum verið rómaður iyrir að vera
mun fjölbreyttari og kraftmeiri en
hinn bandaríski. En það er samt
sem áður sorgleg staðreynd, að
aðsókn á evrópskar myndir liggur
undir einu prósentustigi í Banda-
ríkjunum og í Evrópu rétt um og
yfir tíu af hundraði miðað við horf-
un á bandarískar myndir. Verk-
efnið er þannig liður í viðleitni
evrópskra kvikmyndasjóða að
jafna þetta hlutfall.