Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 84
Netþjónar
o<z tölvnr
o
Hefur þitt fyrirtæki
efni á að eyða tíma
starfsfólksins í bið?
Þaö er dýrt að íáta starfsfólkiö bíöa!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 2000
VERÐI LAUSASOLU150 KR. MEÐ VSK.
Greitt með
GSM í ár
TAL og Íslandssími hafa áform um
að hasla sér völl í greiðslumiðlun á
^^þessu ári með því að bjóða svokallað-
^*ar smáskammtagreiðslur, sem gera
farsímanotendum kleift að nota sím-
ann til að kaupa vöru og þjónustu á
Netinu og fá gjaldið fært á síma-
reikninginn sinn.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í sérblaði um netviðskipti, sem
fylgir Morgunblaðinu í dag.
Þá kemur fram að netbankar
banka og sparisjóða njóta mikilla
vinsælda. Heimabanki SPRON velti
23 milljörðum króna á síðasta ári og
fjölgaði tengingum um 75% á síðasta
ári. Um 40.000 manns heimsækja
Heimilisbanka Búnaðarbankans á
Netinu í hverjum mánuði og hafa
27,8% viðskiptamanna tengingu.
Netbanki íslandsbanka hefur nú um
->17.000 aðgangsorð og eru gerðar þar
um 600.000 færslur á mánuði. Notk-
unin eykst um 10-20% á mánuði.
11.000 manns eru tengdir Einka-
banka Landsbanka íslands og þús-
undir notenda eru skráðar hjá Kaup-
höll Landsbréfa.
25,2% islenskra netverja keyptu
vöru eða þjónustu á Netinu í fyrra.
Áætlað er að innlend netverslun hafi
velt 308 m.kr. á árinu, þar af seldu
Flugleiðir fyrir 130 m.kr.
L ■ Net viðskipt Í/D1-D36
♦ ♦ ♦
Loðnukyót-
inn aukinn
LOÐNUKVÓTINN hefur verið auk-
inn um 150 þús. lestir á yfirstandandi
vertíð samkvæmt ákvörðun sjávar-
útvegsráðuneytis. Hafrannsókna-
stofnun hefur lagt til að leyfilegur
hámarksafli frá 10. febrúar til loka
vertíðar verði 670 þúsund lestir.
Samkvæmt bráðabirgðatölum hafa
nú veiðst rétt um 330 þúsund lestir
af loðnu á vertíðinni og verður heild-
arkvóti hennar því 1 milljón tonna.
Tillaga Hafrannsóknastofnunar-
innar á sl. vori var um 850 þúsund
lesta bráðabirgðakvóti og er aukn-
ingin því 150 þúsund lestir. Kemur
þessi aukning öll í hlut íslensku
loðnuskipanna, auk 30 þúsund lesta
úr kvóta Grænlands, samkvæmt sér-
stöku samkomulagi við Evrópusam-
bandið. Þegar hafði íslenskum skip-
um verið úthlutað 575.800 lestum úr
bráðabirgðakvótanum og eykst út-
hlutun þeirra því í 755.850 lestir.
Auk þessa kemur í hlut íslands
ónýttur kvóti Noregs miðað við 15.
febrúar nk., auk hluta af ónýttum
kvóta Grænlands, samkvæmt sam-
komulagi landanna þar um. Ekki
verður unnt að úthluta endanlega því
: -y magni fyrr en eftir 15. febrúar nk. en
gera má ráð fyrir að með því móti
falli í hlut íslands á bilinu 130-150
þúsund lestir.
■ Lítið sést/26
MITSUBISHI
Allar björgunarsveitir á Suður- og Suðvesturlandi ræstar út
Fjöldi fólks lenti í erfiðleikum vegna veðurofsans á Suður- og Suðvesturlandi í gær.
Morgunblaðið/Kristinn
Allar samgöngur lamaðar
SNARVITLAUST verður gerði
nyög snögglega á Suður- og Suð-
vesturlandi um miðjan dag í gær.
Veðrinu fylgdi ófærð sem versnaði
þegar leið að kvöldi og seint í
gærkvöld var hún orðin algjör á
öllu svæðinu. Allar björgunarsveit-
ir á Suðurlandi og höfuðborgar-
svæðinu voru kallaðar út og sá ekki
fyrir endann á verkefnum þeirra
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Fjölmörg óhöpp urðu í umferð-
inni, en ekki urðu alvarleg meiðsl á
fólki eftir þvf sem Morgunblaðið
kemst næst.
í Reykjavík versnaði færðin
mjög um miðjan dag og umferð
gekk mjög hægt og á tímabili
stöðvaðist hún alveg í gærkvöld.
Sjö bfla árekstur varð klukkan tíu í
gærmorgun við Rauðavatn og voru
þrír fluttir á slysadeild, en einn
leitaði þangað á eigin spýtur. Nota
þurfti klippur til að ná ökumanni
úr einni bifreiðinni, en þó voru
meiðsl ekki talin alvarleg. í gær-
kvöld var færð orðin slæm og fór
versnandi. Strætisvagnar hættu
ferðum og leigubflar sömuleiðis.
Lögregla aðstoðaði þá sem komast
þurftu til vinnu.
Algjör ringulreið á Reykja-
nesbraut og við Flugstöðina
Rétt upp úr kl. 17 varð tveggja
bfla árekstur á Strandvegi. Annar
ökumaður var fluttur á slysadeild
með áverka á hönd, öxl og fæti.
Önnur bifreiðin var flutt af vett-
vangi með kranabfl.
í Hafnarfirði var sömuleiðis mik-
ið um árekstra, en enginn þeirra
reyndist alvarlegur. Strætisvagn
fauk af Álftanesvegi, en engin slys
urðu á fólki.
Mikið öngþveiti myndaðist f
óveðrinu í Kefiavfk og á Reykja-
nesbraut seinni partinn í gær.
Reykjanesbraut lokaðist um kl. 16
og við Flugstöðina á Keflavíkur-
Strætisvagn fauk út af Álftanesvegi í gær.
flugvelli var ringulreiðin algjör.
Bflar festust fyrir framan aðal-
inngang flugstöðvarinnar og varð
fólk að leita inngöngu austanmeg-
in. Svo hvasst var við aðalinn-
ganginn að kona fauk og meiddist
illa á hendi. Seint í gærkvöld var
veðurofsinn enn það mikill á Suð-
urnesjum að starfsfólk Leifsstöðv-
ar komst ekki heim til sín til Kefla-
víkur. Þá var fólk enn fast í bflum
sínum á Reykjanesbraut í gær-
kvöld eftir að hafa fest sig um miðj-
an dag í gær. Björgunarsveitir
voru kallaðar út til aðstoðar.
Á Suðurlandi var sömuleiðis kol-
brjálað veður og flestir vegir lok-
aðir; m.a. voru Hellisheiðin og
Þrengslin lokuð. Á Hellisheiði
lentu fjölmargir vegfarendur á
fólksbflum í vandræðum vegna
veðurs, að sögn lögreglu. Fólki var
bjargað úr bflum en bflar skildir
eftir. Að sögn lögreglu reyndu
plógar að ryðja leið yfir heiðina um
tíma en vegurinn lokaðist nánast
jafnóðum.
Fjöldi árekstra varð á undirlend-
inu og voru björgunarsveitir í
Hveragerði og Þorlákshöfn kallað-
ar út til að aðstoða ökumenn. Harð-
ur árekstur varð í Skógarhlíðar-
brekku og átta bflar lentu saman
við söluturninn Skalla á Selfossi.
Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki.
Laust upp úr hádegi lá við alvar-
legum árekstri í Þrengslunum,
þegar rúta beygði út af veginum til
að forðast tengivagn sem hafði
staðnæmst þvert á veginum. Með
snarræði náði bflstjóri rútunnar að
forða slysi, en vinstri hlið rútunnar
straukst við tengivagninn og flett-
ist hálf af.
Allt innanlands- og milli-
landaflug fór úr skorðum vegna
veðurofsans.
Lítill fyrirvari
Veðurstofa fslands gaf út viðvör-
un með afar skömmum fyrirvara
klukkan 14, en klukkutíma síðar
var óveðrið skollið á. Magnús Jóns-
son veðurstofustjóri segir það ekki
endilega óvenjulegt, enda hafi veð-
ur skjótt skipast í lofti. Veðurofs-
inn fylgdi í kjölfar lægðar sem
gekk yfir landið í gær. „Við feng-
um upplýsingar klukkan 14 um að
það væri allt annað veður sunnan
við lægðina en við höfðum haldið,"
segir hann.
Magnús segir að vegna þess hve
umferð um vegi landsins er mikil
síðdegis á föstudögum hafi verið
nauðsynlegt að koma viðvöruninni
á framfæri. „Við höfum oft séð
verra veður og það var í sjálfu sér
ekki svo slæmt að hætta væri á fok-
tjóni. En veðrabrigðin voru óvenju
snögg,“ segir Magnús.
Deildir við Háskóla Islands glíma við fjárhagsvanda
Hætt við námskeið
vegna fjárskorts
HEKLA
— /forystu á nýrri öld !
Reynsluaktu Space Star í febrúar - þú gætir endab í Portúgal!
í DEILDUM og skorum í Háskóla
íslands hefur undanfarið þurft að
bregðast við fjárhagsvanda vegna
ársins 2000. í sagnfræðiskor var til
dæmis brugðist við vandanum með
því að fella niður þrjú valnámskeið á
þessari önn. „Einnig höfum við
fækkað valnámskeiðum á næsta
haustmisseri, og loks má nefna að
kennarar taka á sig nokkra skerð-
ingu,“ segir Guðmundur Jónsson,
formaður sagnfræðiskorar. Jón G.
Friðjónsson, forseti heimspeki-
deildar, segir að fjárskorturinn bitni
með mismunandi hætti á einstökum
skorum og að hlutur sagnfræðiskor-
ar sé í minna lagi miðað við starf-
semi hennar og fjölda starfsmanna.
í Háskólanum er hlutur deilda
ákveðinn eftir svokölluðu deililíkani.
Síðastliðið haust gerði Háskóli f s-
lands samning við menntamálaráðu-
neyti og fjármálaráðuneyti um fjár-
mögnun kennslu og byggist hann á
svokölluðu reiknilíkani sem reiknar
almenna fjárþörf Háskólans. Samn-
ingurinn hefur bætt fjárhag HÍ að
mati Ingjalds Hannibalssonar, for-
manns fjármálanefndar háskóla-
ráðs. Hins vegar hefur aukinn
kostnaður vegna launahækkunar
prófessora, samkvæmt úrskurði
kjaranefndar, sett strik í reikning-
inn. „Fjárhagsvandinn er alvarlegur
í heimspekideild. Hann er þó alvar-
legri, að mínu mati, í viðskipta- og
hagfræðideild, lagadeild, verkfræði-
deild og ef til vill þyngstur í raunvís-
indadeild," segir hann, en fjárhags-
áætlun þeirrar síðastnefndu er ekki
enn frágengin.
Háskólakennarar sem Morgun-
blaðið ræddi við eru sammála um að
i næstu samningalotu við mennta-
málaráðuneytið þurfi að endurskoða
nokkrar forsendur reiknilíkansins,
m.a. um að meta kostnað við
kennslu í hugvísindum til jafns við
kostnaðinn í raunvísindum, að bæta
hlut tungumálakennslu, og að viður-
kenna raunveruleg laun háskóla-
kennara.
■ Deildir draga saman/46-47