Morgunblaðið - 20.02.2000, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 20. PEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BARATTAN UM GROSNÍ
Ljósmynd/Thomas Dworzak
Ungur drengur bíður eftir mat við hjálparmiðstöð í hverfinu Staropromíshlovskí.
Tllgangslaus
eyðilegging?
GROSNÍ, höfuðborg Tsjetsjníu,
hefur nánast algjörlega verið lögð í
rúst; hún er óbyggileg, jafnvel
eymdarstaður fyrir hungraða villi-
hunda sem rífa í sig líkin sem liggja
enn í húsarústunum.
„Hundarnir éta líkin,“ hefur
breska blaðakonan Janine di Giov-
anni eftir Hussein, tsjetsjneskum
sjálfboðaliða sem hefur tekið að sér
að grafa lík í borginni.
400.000 manns bjuggu í Grosní
áður en árásirnar hófust en hún er
nú orðin að draugaborg eftir lát-
laust sprengjuregn í fjóra mánuði,
hörðustu sprengjuárásir í Rúss-
landi frá síðari heimsstyrjöldinni.
Fréttamenn í borginni segja að
erfitt sé að fmna byggingu sem ekki
hafi verið stórskemmd eða lögð al-
gjörlega í rúst. Þeir fáu sem dvelja
enn í borginni hírast í kjöllurum, án
rennandi vatns, rafmagns, húshit-
unar og símasambands.
Pýrrhosarsigur?
Breski blaðamaðurinn Mark
Franchetti segist ekki hafa séð eina
einustu óskemmda byggingu í fjög-
urra klukkustunda ökuferð frá út-
jaðri Grosní til miðborgarinnar.
Fögnuður Rússa eftir að þeir náðu
borginni á sitt vald virðist innan-
tómur í ljósi eyðileggingarinnar í
borginni. „Tsjetsjneska höfuðborg-
in er á valdi Rússa, en það er erfitt
að sjá hvað þeir geta gert við hana.
Líklega þarf að ryðja meginhluta
hennar í burtu með jarðýtum. Jafn-
vel rússneskir herforingjar viður-
kenna að miklu erfiðara verði að
endurreisa borgina en að hertaka
hana.“
Franchetti segir ennfremur í
grein í The Times að orrustan um
Grosní virðist hafa verið algjörlega
tilgangslaus, „pýrrhosarsigur sem
kostaði þúsundir manna lífið.“
Talið er að allt að 40.000 Grosní-
búar hafi verið í borginni þar til ár-
ásunum lauk þegar þorri skærulið-
anna hörfaði úr borginni um síðustu
mánaðamót. Nú er talið að þeir hafi
verið miklu færri og flestir hafi flúið
borgina löngu áður, annaðhvort til
þorpa og bæja í Tsjetsjníu eða til
nágrannahéraðsins Ingúsetíu.
Þeir sem dvelja enn í borginni,
aðallega konur og aldrað fólk, saka
rússneska hermenn um að stela öllu
steini léttara, skjóta af handahófi
inn í kjallara og nema ungar konur
á brott.
Mannréttindahreyfingin Human
Rights Watch segir að rússnesku
hersveitimar haldi hundruðum sak-
lausra borgara í fangabúðum í
Tsjetsjníu þar sem fólkið sæti dag-
legum pyntingum. Hermennirnir
hafi flutt þangað 400 manns frá
Grosní einni og algengt sé að kon-
unum sé nauðgað.
Þýski ljósmyndarinn Thomas
Dworzak tók þessar myndir þegar
hann var í Grosní 12.-15. þessa Konur, sem flúðu árásirnar á Grosní, ganga frá húsi sínu eftir að hafa
mánaðar. snúið aftur til borgarinnar. Heimili þeirra eyðilagðist í árásunum.
Starfsmaður rússneskrar stofnunar, sem annast neyðaraðstoð, ber brauð til borgarbúa.
Rússneskur hermaður fylgist með sprengingu í byggingu í Grosní. Rússneski herinn sprengir byggingar sem
taldar eru hættulegar vegna sprengigildra.
mr-
Tsjetsjnesk kona við hús sitt sem
var lagt í rúst þegar rússneskar
herþyrlur gerðu árásir á þorp á
fióttaleið skæruliðanna.
Óttast
margra
ára
stríð
RÚSSNESKI herinn kveðst hafa
orðið hundruðum tsjetsjneskra
skæruliða að bana eftir að þeir
flúðu frá Grosní um mánaðamótin,
m.a. allt að 300 skæruliðum sem
hafi farið inn á jarðsprengjubelti í
grennd við tsjetsjnesku höfuðborg-
ina.
Talið er að um 2.000 skæruliðar
hafi komist undan og haldið til
fjalla í suðurhluta héraðsins þar
sem um 5-7.000 skæruliðar voru
fyrir. Rússneskar herflugvélar
hafa haldið uppi hörðum árásum á
fylgsni skæruliðanna í fjöllunum
síðustu daga og rússnesk stjórn-
völd segjast stefna að fullnaðar-
sigri í stríðinu innan mánaðar.
Ekki eru þó allir rússnesku her-
mennirnir trúaðir á að átökunum
ljúki í bráð. Nokkrir þeirra hafa
viðurkennt í samtölum við frétta-
menn að þeir óttist að stríðið
standi í mörg ár og kosti miklar
blóðsúthellingar. „Við ætlum að
flæma þessa stigamenn af fjöllun-
um og þeir hörfa þá eitthvað ann-
að. Svo þurfum við að elta þá aft-
ur,“ hafði blaðamaður The Times
eftir ungum hermanni á skrið-
dreka á Minutka-torgi í miðborg
Grosní.
„Skriðdreki er ekkert annað en
hreyfanleg líkkista," sagði annar
hermaður og bætti við að dæmi
væru um að skæruliðar hefðu elt
uppi skriðdreka og kastað hand-
sprengjum inn í þá.
3.000 hermenn
sagðir fallnir
Rússneskur herforingi í Tsjet-
sjníu hefur fullyrt að a.m.k. 3.000
hermenn hafi þegar fallið í átökun-
um í Tsjetsjníu og að dánartalan
hækki með hverjum deginum sem
líður. Yfirstjórn hersins hefur hins
vegar sagt að átökin hafi kostað
tæplega 1.500 hermenn líílð.
Herforinginn segir að yfirmenn
hersins vilji gera eins lítið úr
mannfallinu og kostur er af ótta
við að almenningsálitið snúist gegn
hernaðinum fyrir forsetakosning-
arnar í Rússlandi í næsta mánuði.
Samkvæmt nýlegri viðhorfskönnun
í Rússlandi eru um 70% lands-
manna enn hlynnt hernaðarað-
gerðunum í Tsjetsjníu.
Þýski Ijósmyndarinn Thomas
Dworzak tók myndirnar til hægri
af skæruliðum sem flúðu frá Gros-
ní um mánaðamótin. Dworzak og
breska blaðakonan Janine di Giov-
anni voru þá einu fjölmiðlamenn-
irnir sem staddir voru meðal
skæruliða í Tsjetsjníu.
Slík ferð er ekki hættulaus því af
50 útlendingum sem fóru til Tsjet-
sjníu árið 1998 voru 38 teknir í
gíslingu, að sögn Giovanni.