Morgunblaðið - 15.03.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.03.2000, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Lánstraust hf. býður samræmdar upplýsing- ar um verðbréfasjóði Innlendir verðbréfa- sjóðir á einum stað FYRIRTÆKIÐ Lánstraust hf. hefur sett upp vef þar sem í fyrsta sinn á Islandi er hægt að nálgast sambærilegar upplýsingar um ávöxtun rúmlega 50 innlendra sjóða á einum stað. Markmiðið með vefnum er að fjár- festar hafí á einum stað aðgang að hlutlausum og marktækum saman- burði á innlendum verðbréfasjóð- um. Hægt er að nálgast vefinn á mbl.is, visir.is og á slóðinni www.sjodir.lt.is. Vefurinn er unninn þannig að Lánstraust safnar upplýsingum um sjóðina, flokkar þær og reiknar út ávöxtun þeirra. Sjóðunum er raðað í flokka eftir fjárfestingarstefnu, lagalegu umhverfí og eignasam- setningu. Sömu aðferðum er í öll- um tilvikum beitt við útreikninga á ávöxtun. I hverjum flokki eru því sjóðir sem raunhæft er að bera saman, en að sögn Jennýjar B. Jensdóttur hjá Lánstrausti hf. hef- ur hlutlaus samanburður eins og þessi lengi tíðkast milli erlendra verðbréfasjóða. Verðbréfafyrir- tækin sem eru samstarfsaðilar Lánstrausts í verkefninu eru Bún- aðarbankinn Verðbréf, Fjárvan- gur, Islensk verðbréf, Kaupþing, Landsbréf og Verðbréfamarkaður íslandsbanka. Ytri aðstæður í saltfískviðskiptum óhagstæðar SÍF á síðasta ári Hagnaður minnkar úr 509 milljónum króna í 43 (^mb l.is /KLLTAf= eiTTHXTAÐ NÝTl HAGNAÐUR samstæðu SIF hf. á síðasta ári nam 43 milljónum króna í samanburði við 509 milljónir árið 1998. Þar af varð hagnaður af reglu- legri starfsemi 37 milljónir en hann var 505 milljónir króna í fyrra. Tæp- lega 70 milljóna króna viðskipti voru með bréf SÍF á Verðbréfaþingi ís- lands í gær í kjölfar birtingar árs- reiknings samstæðunnar en engin breyting varð á lokagengi bréfanna þrátt fyrir að gengi þeirra hafi lækk- að í íyrstu viðskipum eftir að tilkynnt var um afkomu félagsins. Heildartap samstæðunnar í Nor- egi á árinu 1999 var 200 milljónir króna og auk þess olli m.a. 60% sam- dráttur á brasilíska saltfiskmarkað- num því að rekstrarafkoman á árinu varð lakari en árið áður. Veruleg um- skipti urðu hins vegar á rekstri Ice- land Seafood Corp. í Bandaríkjunum sem skilaði hagnaði á árinu, en veru- legt tap varð af rekstri félagsins á ár- inu 1998. Erfitt ár en ekki taprekstur Gunnar Örn Kristjánsson, for- stjóri SÍF-samstæðunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ytri að- stæður í saltfiskviðskiptum hefðu verið mjög óhagstæðar SÍF á síðasta ári. „Sá fiskur sem menn höfðu verið að framleiða inn á Brasilíumarkað leitaði inn á aðra markaði með til- heyrandi verðþrýstingi, þannig að þetta hafði víða áhrif. Hvað varðar fyrirtæki okkar í Frakklandi og Kan- ada þá spilar Brasilía þar mjög stórt hlutverk. Auk þess átti fiskiðnaður- inn í Noregi mjög erfitt ár, og þá fyrst og fremst vegna þess að hráefn- isverðið er alltof hátt,“ sagði Gunnar Öm. Hann sagði að gengisþróun ís- lensku krónunnar gagnvart evru hefði jafnframt verið óhagstæð SÍF þar sem samstæðan keypti allt í evr- um og í efnahagsreikningi hennar væri mun meira af eignum í evrnrn en skuldir. Verulegur viðsnúningur hefur orðið á rekstri Iceland Seafood Corp. í Bandaríkjunum á árinu 1999, samanborið við árið 1998, og sagði Gunnar Öm að menn horfðu tiltölu- lega bjartsýnir á þær breytingar sem þar hefðu átt sér stað. Einnig ríkti bjartsýni hvað varðar dótturfélagið í Frakklandi þar sem talið væri að ná mætti fram verulegri hagræðingu. Horfumar betri á þessu ári „Þetta var erfitt ár en þó ekki verra en það að tap varð ekki á rekstrinum. Töluverður kostnaður tengist beint sammna SÍF hf., ÍS hf. og Islandssfldar hf. á árinu, t.d. eftir- launaskuldbindingar og starfsloka- samningar, ásamt ýmsum beinum kostnaði við samranaferlið, en þetta Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga Hagnýting upplýsingatækni til bættrar ákvarðanatöku í rekstri fyrirtækja (Enhancing the Decision Making Process Through Advanced IT Development) Fimmtudaginn 16. mars verður haldinn hádegisverðarfundur á vegum Félags viðskipta- fræðinga og hagfræðinga kl. 12:00 - 13:30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð. Aðalframsögumaður verður Fredrik Prien, framkvæmdastjóri Cognos Nordic. Haraldur Hjaltason, framkvæmdastjóri Deloitte & Touche Ráðgjafar ehf., mun annast fundarstjórn og flytja inngangserindi. Haraldur Hjaltason mun í inngangi sínum fjalla um innihald kenninga um samhæft mælingakerfi og þann ávinning, sem þær fela í sér fyrir fyrirtæki og rekstur þeirra. Fredrik Prien mun fjalla um hvernig bæta má ákvörðunartökuferli innan fyrirtækja með því að tvinna saman kosti hefðbundinna upplýsingakerfa (Enterprice Resource Planning (ERP)) og stjórnunarkenninga eins og samhæft mælingakerfi (Baianced Scorecard) við nýjar og öflugar lausnir í Business Intelligence hugbúnaði. Prien hefur sl. 15 ár öðlast víðtæka reynslu í notkun og beitingu Business Intelligence hugbúnaðarlausna, bókhaldskerfa (fjárhagsuppiýsingar og áætlanakerfi) og upplýsingakerfa fyrir stjórnendur (Executive Information Fredrik Prien System (EIS)). Verð með hádegisverði fyrir skuldlausa félagsmenn FVH er kr. 1.900 og kr. 2.500 fyrir aðra. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 568 2370 eða með tölvupósti fvh@fvh.is. ¥ hf Úr reikningum ársins 1999 Rekstrarreikningur 1999 1998 Rekstrartekjur Miiljónir króna Rekstrargjöld Fjármagnsliðir nettó Aðrar tekjur og gjöld Tekju- og eignarskattar 33.850 33.946 -280 307 106 18.834 18.382 -138 279 -89 Hagnaður af reglulegri starfsemi Áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga 37 5 505 4 Hagnaður ársins 43 509 Efnahagsreikningur 3i.des.: 1999 1998 Eignir samtals Milljónir króna 21.435 9.027 Eigið fé 4.639 2.487 Skuldir 16.796 1.189 Skuldir og eigið fé samtals 21.435 9.027 Sjóðstreymi og kennitölur 1999 1998 Veltufé frá rekstri Milljónir kr. Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall 66 21% 1,19 614 28% 1,06 var allt gjaldfært á árinu,“ sagði Gunnar Öm. Gert er ráð fyrir að samlegðar- áhrifa fari að gæta á seinni hluta árs- ins 2000, og verði að fullu kominn inn í rekstur SIF-samstæðunnar fyrir árið2001. „Við eram alveg á áætlun í þessu samrunaferli bæði hér heima og í Frakklandi. Starfsmannafjöldinn hér heima var 138 heilsársstörf í lok ársins en þau eru nálægt 100 núna, en þetta er auðvitað afleiðing sam- einingarinnar," sagði hann. Horfur á Brasilíumarkaði eru betri í upphafi ársins 2000 en vora á árinu 1999 og gert er ráð fyrir að meira jafnvægi verði á hráefnisverði á laxi á árinu 2000 en var á árinu 1999. Þá hafa verið gerðar breyting- ar á rekstri og stjómun samstæð- unnar í Noregi og era bundnar vonir við að þær skili sér á árinu 2000. Verri niðurstaða en menn óraði fyrir Þórður Pálsson, í greiningardeild Kaupþings, segir að þótt menn hafi átt von á slöku uppgjöri hjá SÍF hafi niðurstaðan verið mun verri en menn hafi órað fyrir. Þórður sagði að það sem hafi valdið sér mestum von- brigðum í ársreikningnum séu 1,6 milljarða umskipti í handbæra fé frá rekstri sem skýrist m.a. af hækkun birgða og skammtímaskulda. Þórður telur að þrátt fyrir mjög slakt uppgjör hjá SÍF í fyrra sé nú tækifæri fyrir langtíma fjárfesta að kaupa bréf félagsins. „Mönnum ber að líta til framtíðar- innar en ekki fortíðarinnar við val á hlutabréfum og ég tel að SÍF geti orðið sterkt matvælafyrirtæki þegar til lengri tíma er litið þótt stjómend- ur þess eigi mikið verk fyrir höndum að sameina reksturinn, svo ekki sé nú talað um að ná samlegðaráhrifum. Ljósi punkturinn í uppgjörinu er sá að reksturinn í Bandaríkjunum virð- ist vera að ná sér á strik. Sameinuð fyrirtæki era með geysifjölbreyttan rekstur sem hjálpar því að jafna skammtímasveiflur, en á móti kemur að meiri hætta er á að menn tapi átt- um og hafi ekki yfirsýn yfir rekstur- inn. Þrátt fyrir slæma rekstrarnið- urstöðu í fyrra, og að það taki e.t.v. einhvem tíma íyrir félagið að ná við- unandi arðsemi á ný, þá er eigin- fjárstaða félagsins sterk og þannig er það vel í stakk búið til að mæta tíma- bundnum erfiðleikum. Verð félagsins nú er einfaldlega lágt miðað við það fjárstreymi sem ég tel að félagið geti skilað til lengri tíma,“ sagði Þórður. ■ Heimasíðu I 8 m Námskeiðið byrjar2Lmai-s ogstendur til Lji'uit Kernit er á þriðjudögum og fimmtudogum frá 13:00 -17:00. Námskeióið er 80 klukkustundir eða 120 kennslustundir. Höimun og niyndvintislrt i FreeJitmd 8 & Pliotoshop 5 36 klst. J HTML Fonitun •4klst, J Heinirtsiðugerd i Frontpage 20 klst. - J Hrevfimmlir í Flasli 4 20 klst. • i Upplýshig.iv og imiritun i siitmni 544 4500 og 555 4980 ntv Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Opinn fundur - allir velkomnir Hólshraunl 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tölvupóstfang: skoii@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.