Morgunblaðið - 15.03.2000, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR15. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Englaborg
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Eitt af málverkum Sigtryggs Bjarna Baldurssonar á sýningu hans í
Englaborg, Flókagötu 17.
MYJVDLIST
E n g I a b u r g,
FI« k a g ö t ii 17
MÁLVERK
SIGTRYGGUR BJARNI
BALDURSSON
Opið alla daga frá kl. 15-18
og eftir samkomulagi.
Til 19. mars.
Aðgangur ókeypis.
PAÐ er óvenjulegt, að ekki sé
fastar að orði kveðið, að hefja list-
dóm á því að skrifa um bygging-
una sem hýsir listviðburðinn en í
þessu tilviki er um sértilfelli að
ræða og það ærið. Hér hafa mál
fyrir góða skikkan försjónarinnar
snúist á betri veg, þá sérhannað
hús fyrir myndlistarmann stendur
autt vegna fráfalls fyrri eigenda,
og slík hús úr nokkuð fjarlægri
fortíð örfá, þannig að telja má þau
á fingrum sér. Mun oftar hefur til-
efnið verið að mótmæla hugmynd-
um um aðra nýtingu húsanna, frá-
leita og til hliðar við þá sem þau
voru byggð yfir, eins og hús Ás-
mundar Sveinssonar við Freyju-
götu, og nú síðast hús Jóns Stef-
ánssonar við að Bergstaðastræti
74, sem Gunnlaugur Scheving bjó
seinna í um árabil, en í því tilviki
var valtað yfir minjagildi, ígildi
þjóðargersema. Sama gerist um
allar breytingar sem fjarlægja
merkileg hús uppruna sínum, eink-
um ef þær þjóna einungis grunn-
færðum og yfirborðslegum hug-
myndum eftirkomendanna.
Skrifari fylgdist með því sem
ungur drengur, þá hamarinn þung-
búni reis upp innarlega á Rauðar-
árstígnum, sem seinna fékk nafnið
Englaborg, og var alla tíð íveru og
vinnustaður málarans nafnkennda
Jóns Engilberts (1908-1972). Var
fyrst gestur í húsinu fyrir ná-
kvæmlega hálfri öld, er hann var
nokkra mánuði nemandi Jóns í
Handíða- og myndlistaskólanum,
seinna átti hann oftar erindi þang-
að, einnig eftir andlát Jóns 1972,
eða allt þar til ekkja hans, heiðurs-
konan Tove Fugman, lést, en þá
var húsið loks sett á sölulista. Op-
inberir aðilar höfðu ekki áhuga á
húsinu frekar en öðrum slíkum
þótt það væri afar vel staðsett, fín
húsgerðarlist, og gat nýst til
margra hluta myndlistinni til
blessunar, tregðulögmálið og
þröngsýnin í heiðurssæti sem fyrri
daginn. Reykjavíkurborg mun hafa
boðist forgangur að kaupum á hús-
inu en eftir að hafa látið erfingjana
bíða von úr viti gáfust þeir upp og
settu það á almennan markað.
Ekki gekk of vel að selja það
vegna þess að aðalgluggarnir
sneru í norður, eins og sjálfsagt er
og eðlilegt, tíðkast allt eins hjá
myndlistármönnum og að framhlið
guðshúsa snúi í vestur. Litlu mun
þó hafa munað að húsið væri selt
undir veitingasölu, en þá skeði það
skyndilega að ungur málari Sig-
tryggur Bjarni Baldursson og
freyja hans hönnuðurinn Tinna
Gunnarsdóttir festu sér það. Telja
má það farsælan endi því segja má
að húsið hafi þar með gengið í
endurnýjun lífdaga, sem er eðli-
legt og sjálfsagt að slík sérhönnuð
hús geri, einkum vegna fágætis
þeirra hér í borg. Þeim lyktum ber
að fagna og eru eðlilegur vaki
þessara lína.
Á laugardag opnaði Sigtryggur
Bjarni fyrsu sýningu sína í hinni
loftháu og björtu vinnustofu á efri
hæðinni. Fannst mér ég einhvern
veginn eiga meiri erindi þangað en
á aðrar opnanir daginn þann og
var því mættur á staðinn á fyrstu
mínútu, þótt ég hefði annars í
hyggju að eyða deginum á eigin
vinnustofu. Nú var aðkoman nokk-
uð önnur en áður, húsráðandi full-
komin andstæða fyrirrennara síns
í lífi og list, lítillætið og hógværðin
í framkomu, og list hans slétt og
fáguð. I stað slagsmála og svip-
mikilla átaka við myndefnin, nálg-
ast Sigtryggur Bjarni þau hægt og
rólega, af mikilli natni og vand-
virkni, en hér er ein ungis um
skapgerðareinkenni að ræða sem
kemur endanlegum árangri lítið
við, og sitt sýnist hverjum sem
fyrri daginn. Listamaðurinn hefur
haldið nokkrar smærri einkasýn-
ingar og myndir hans vakið athygli
á samsýningum, einkum fyrir upp-
lifuð og þaulhugsuð vinnubrögð,
virðast helst hafa það sem ein-
kunnarorð að sígandi lukka sé
best. Það má þó vera mikið rétt að
ögrunin, viðbjóðurinn og hama-
gangurinn sé vænlegri til eftir-
tektar nú um stundir þótt sömu
lögmál gildi sem fyrr í myndlist-
inni, að sápukúlur og loftbólur séu
ekki varanlegs eðlis. Og eins og
vænta má er það sjálft sígilda mál-
verkið sem er miðillinn, þó með
nýjum formerkjum sem opinberast
í ýmsum fyrirbærum merlunar og
hrynjandi á myndfleti, nándinni og
óendanleika himinhvolfsins í senn.
Gengið er hreint til verks, engin
háleit áhrifameðöl notuð, engar
bráðabirgðalausnir né léttfengin
vinnubrögð, síst haldið aftur af sér
um vinnu, en þar dettur mér í hug
að listamaðurinn hafi tekið upp
einkunnarorð Giovanni Boltraffio,
nemanda Leonardo de Vinci, þolin-
mæði þrautir vinnur allar.
Þessi gerð myndverka útheimtir
nefnilega mikla þolinmæði og
þarfnast hvorki listsögulegrar og
heimspekiþrunginnar mælsku-
kynngi né djúphugsaðra orðaleppa
við til að öðlast líf eins og svo
margt sem verður á vegi manns í
sýningarsölum heimsins.
Þetta er falleg sýning og erfitt
að gera upp á milli verkanna, þótt
hið fínlega sé styi-kur listamanns-
ins, en satt að segja er húsnæðið
betur fallið til vinnu en sýninga-
halds hér verður helst að brjóta
upp öll lögmál hefðbundinnar upp-
hengingar til að myndverkin njóti
sín. Hins vegar verður maður að
vona að hinu unga listafólki nýtist
þessi draumaaðstaða sem mest og
best eigin þarfa í framtíðinni.
Bragi Ásgeirsson
Gegnum múrínn
Veggverk Katrínar Sigurðai-dóttur á gangi Kjarvalsstaða.
Sam-
keppni um
handrit
SKILAFRESTUR í sam-
keppni um sviðsverk sem fjalla
á um merka Garðbæinga renn-
ur út 1. aprfl. Samkeppnin er á
vegum Garðabæjar, í samstarfi
við Reykjavík - menningar-
borg Evrópu, en stofnað var til
samkeppninnar á sl. ári. Hand-
ritum á að skila á Bókasafn
Garðabæjar, Garðatorgi 7,
merkt Handritasamkeppni,
undir dulnefni, en þeim skal
fylgja lokað umslag, merkt dul-
nefninu, þar sem finna má rétt
nafn, heimilisfang og síma höf-
unda.
Þrenn verðlaun verða veitt
íyrir bestu sviðsverkin. Fyrstu
verðlaun 300 þús. krónur, önn-
ur verðlaun 200 þús. krónur og
þriðju verðlaun 100 þús. krón-
ur. Stefnt er að því að tilkynna
úrslit í samkeppninni fyrir lok
júní. Dómnefndina skipa þau
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv.
forseti íslands, Lilja Hall-
grímsdóttir, formaður menn-
ingarmálanefndar Garðabæjar,
og Steindór Hjörleifsson leik-
ari.
Ungverskt
menningar-
kvöld
FÉLÁGIÐ Ísland-Ungverja-
land efnir til menningarkvölds í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.S0, á veitiiígastaðnum Sólon
íslandus, Bánkáslræti 7a, 2.
hæð.Tveir kórar koma fram og
flytja fjörug ungversk lög:
Samkór Kópavogs, undir stjórn
Dagrúnar Hjartardóttur og
Kvennakór Suðurnesja, undir
stjórn Agotu Joó. Þá sýnir Þór
Halldórsson litskyggnur frá
ferðalagi sínu um Ungverja-
land. Aðgangur ókeypis.
MYJVDLIST
Kjarvalsstaðir
VEGGVERK-KATRÍN
SIGURÐ ARDÓTTIR
Til 16. mars. Opið daglega
frá kl. 10-18.
VEG(G)IR halda áfram göngu
sinni sem þemasýning á gangi
Kjarvalsstaða. Þetta er snjöll leið
til að gefa almenningi kost á að sjá
verk verða til, og verða til í merk-
ingunni að hverfa, eða deyja.
Þannig er hverri sýningu lokið
þegar viðkomandi listamaður er
tilbúinn með vegginn sinn, í stað
hins venjulega, að sýningin byrji
þegar verkið eða verkin eru komin
á sinn stað.
Katrín Sigurðardóttir vinnur nú
á fullu við að klára sína útgáfu af
veggnum sem tengir álmur Kjar-
valsstaða. Með því að taka bókstaf-
lega orðaleikinn Veg(g)ir - sem
bæði má túlka sem veggi og vegi -
brýtur Katrín sér braut gegnum
vegginn yfir í landslagið sem finna
má bakvið hann. Þetta gerir hún
með módelsmíði þar sem hún býr til
allnákvæma götumynd af hverfinu
norðan Kjarvalsstaða og leggur of-
an á þrjár ferningslaga plötur sem
hún sker út úr veggnum og tengir
við hann með hjörum svo úr verða
fellidyr.
Hurðirnar mynda því borðplötur
út úr veggnum, en í sárið er settur
spegill sem endurkastar módel-
smíðinni. Smíði Katrínar ofan á
hurðinni er öndverð við raunveru-
leikann, en spegilmyndin í sárinu á
veggnum réttir hana af. Áhorf-
andinn verður að horfa í spegilinn
til að sjá götumyndina rétta.
Með því verður spegilmyndin
sem gat gegnum vegginn út til
þeirrar áttar sem ekki er sýnileg
fyrir veggnum. Óneitanlega minnir
slík hugmyndaleg lausn á skugg-
sjána í Orfeivi Jean Cocteau, sem
leikendur sluppu gegnum eins og
yfirborð vatns þegar þeir hurfu á
vit Heljar.
Við vestanverðan ganginn er
módelsmíðin í stærðarhlutföllum
sem gefa allskýra mynd af Flóka-
götu, Háteigsvegi, Stórholti, Meðal-
holti, Einholti og Þverholti. Á miðj-
um veggnum eru stærðarhlutföllin
með þeim hætti að bakhýsi Kjar-
valsstaða - bókasafnið - tekur allt
sviðið, en austanmegin eru minnstu
hlutföllin, sem sýna allt hverfið
norðan Flókagötu út að hafi.
Þetta er ekki fyrsta módelsmíð
Katrínar og vonandi ekki hennar
síðasta. Hún hefur um nokkurra
ára skeið unnið smáveraldir sem
lýsa undursamlegum heimum í
hnotskurn. Smáveraldir hennar eru
oftast tengdar raunverulegu um-
hverfi, svo sem sjá má í frábæru
farandverki hennar The Green
Grass of Home, frá 1997. Þar felldi
hún módel af einum sextán lysti-
görðum, á íslandi og í Bandaríkjun-
um, í eina ferðatösku úr krossviði.
Hægt er að fella út hin ýmsu hólf
töskunnar og þá liggja garðarnir
ljósir fyrir í allri sinni dýrð.
í Fyrirmynd/Model, frá 1998,
byggði Katrín hins vegar á ímynd-
uðum þjóðvegum, þó með tilvísun
til taugakerfís mannsheilans.
Hugmyndin er náskyld skriðuls-
kenningu franska heimspekingsins
Jacques Deleuze - rhizome - um
jafngild tengsl ólíkra þráða í flatri
kerfisbyggingu. Þannig leita verk
hennar - hugmyndalega og tækni-
lega - langt út fyrir mörk hins sýni-
lega heims, á vit sértækra miða þótt
þau séu ávallt byggð á fullkomlega
áþreifanlegum forsendum.
[Röng mynd birtist með þessum
dómi í blaðinu í gær og er hann því
endurbirtur hér með réttri mynd.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.]
Halldór Björn Runólfsson
Síðustu
sýningar
Hafnarfjarðarleikhúsið
Salka - ástarsaga
Sýningum á Sölku - ástarsögu fer
fækkandi, en sýningin var frumsýnd
í október sl. Leikhópnum hefur verið
boðið á leiklistarhátíð í Stokkhólmi
með sýninguna og verður hún sýnd á
stóra sviði Ríkisleikhússins þar á
næstunni.
Leikarar eru María Ellingsen,
Benedikt Erlingsson, Gunnar
Helgason, Þrúður Vilhjálmsdóttir,
Magnea Björk Þorvaldsdóttir, Jó-
hanna Jónas, Jón Stefán Kristjáns-
son, Dofri Hermannsson og Þorvald-
ur Kristjánsson. Leikstjóri er
Hilmar Jónsson.
----------------
M-2000
Miðvikudagnr 15. mars.
Borgarskjalasafnið, Tryggvagötu
15.
Sannanir! Evrópa spegluð í skjala-
söfnum. Sýning, útgáfa bókar og
opnun vefsvæðis í samvinnu borgar-
skjalasafna sjö menningarborga
Evrópu. Tilgangurinn er að kynna
hinn auðuga menningararf Evrópu
sem er að finna í skjalasöfnum borg-
anna, bæði sameiginleg einkenni
borganna og sérkenni þeirra.
Sýningin verður opin alla daga frá
kl. 13-17 og á fimmtudögum til kl.
21. www.euarchives.org.
----------------
Pjetur Haf-
stein les í
Gerðarsafni
PJETUR Hafstein Lárusson skáld
les úr verkum sínum í kaffistofu
Gerðarsafns á morgun, fimmtudag
kl. 17.
Dagskráin er á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs í Gerðarsafni og er
aðgangur ókeypis.