Morgunblaðið - 15.03.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 43
Við vorum sveitungar og unnum
hlið við hlið, sumarlangt fyrir margt
löngu. Það var ljúf samvera, krydd-
uð kátínu og græskulausu gamni.
Arum seinna höfðu þeir atburðir
skeð í fjölskyldu minni að þungt var
fyrir fæti og dimmt fyrir augum, og
er við hittumst á förnum vegi, bauð
hún mér að koma með litla sonar-
soninn á morgnana á róluvöllinn og
gæti ég verið þar með honum. Og við
röltum yfir á róló og lærðum sið-
fræði sandkassans og sitthvað fleira.
Já, mikið var hún góð við okkur, hún
Stella, það gleymist ekki, en geymist
í minningunni.
Síðastliðið haust heyrði ég af veik-
indum Stellu, það þyrmdi yfir mig,
af hverju hún? En að því er ekki
spurt. Eg bankaði upp á hjá henni og
vonin var enn við völd. Við töluðum
um ljósið og vonina. Það var síðasta
spjallið okkar Stellu.
Þegar ég lít út um gluggann minn,
sé ég fyrir hugskotssjónum allar
þær kynslóðir lítilla barna, sem trítl-
að hafa yfir götuna til hennar Stellu.
Já, ég sé hana sjálfa koma, röska og
létta í spori, ævinlega glaða, og
krakkana sem hópast á eftir henni.
Stella, sjáðu hvað ég fékk, Stella,
veistu hvert ég fór, Stella...
Já, við drúpum höfði í dag smá og
stór og þökkum fyrir allt það sem
hún var okkur. Hún gætti þess besta
sem við eigum, barnanna okkar, og
átti sinn hlut í góðri og glaðri
bernsku þeirra. Vertu kært kvödd,
Stella mín, og þökk fyrh- allt og allt.
Við fjölskyldan vottum eigin-
manni, sonum og fjölskyldunni allri
okkar innilegustu samúð. Þeirra er
sorgin sárust.
Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Mig langar með fáeinum orðum að
minnast elskulegrar fjölskylduvin-
konu sem svo skyndilega og allt of
fljótt var kölluð frá okkur. Ég
kynntist Stellu um haust 1978 þegar
eiginmenn okkar byrjuðu á sumar-
bústaðabyggingu í Skútahvammi í
Úthlíð. Við Stella urðum strax mikl-
ir mátar og voru þau hjónin góðir
nágrannar og vinir. Við komum á há-
hæluðum skóm og strákarnir unnu
verkið. Okkur Stellu fannst það ekki
slæmt. Þarna áttum við mörg hand-
tökin og samverustundirnar. Stella
var einstaklega jákvæð og dillandi
hlátur hennar yljar í minningunni,
hún lét sitt ekki eftir liggja. Á þess-
um árum prjónaði Stella ógrynni af
lopapeysum sem var hennar framlag
við að draga björg í bú. Ég minnist
þess að Árni maðurinn minn grínað-
ist oft við Stellu um prjónaskapinn,
að hún myndi klára hitt og þetta
með prjónunum, og alltaf hló Stella.
Arin liðu hratt og börnin uxu úr
grasi og við fjögur oftar fyrir austan.
Þá myndaðist hefð fyrir því að Tóti
og Stella kæmu í morgunkaffi yfir til
okkar, þar var margt skrafað og
gamlir og nýir tímar ræddir. Og
ferðalög ákveðin. Með fjögurra ára
millibili fórum við í siglingu um
Karabíska hafið, sem voru okkur
hjónunum kærar ferðir með góðum
vinum. Eftir seinni ferðina veiktist
Stella okkar af krabbameini og hófst
þá hennar veikindaferill, en við átt-
um tvær góðar helgar með vinum úr
ferðinni fyrir austan í sumar. Þá
finnur maður hversu mikils virði
vinir eru í gleði og sorg.
Elsku Tóti, börn, tengdabörn og
barnabörn. Okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Megi algóður Guð styrkja ykkur
og hugga í þessari miklu sorg.
Kveðja,
Gunnhildur og Árni,
Ragnheiður og Kolbrún.
Við þrjár vorum svo heppnar að fá
að kynnast henni Stellu á Stelluróló.
Hún var aðalástæðan fyrir því að við
vildum vinna á róló, enginn annar
róló kom til greina nema Stelluróló.
Það var hennar völlur (og verður
alltaf). Þeir sem vissu um þennan
róló komu þangað hvar svo sem þeir
bjuggu, Álftanesi, Grafarvogi eða
Hafnarfirði, það skipti ekki máli.
Það var þess virði að gera sér auka-
ferð þangað með börnin, því enginn
var betri við börnin en hún Stella.
Hún tók á móti öllum með gleði og
hlýju.
Okkur þrem var hún meira en
samstarfskona. Hún var vinkona
okkar og fyrirmynd í manngæsku og
kærleika, hún var einstök.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund um sinn finnum við hvað mikið
við höfum misst, hvað söknuðurinn
er mikill, því það voru forréttindi að
þekkja Stellu okkar. Að lokum lát-
um við fylgja með lítið ljóð sem segir
betur en við getum hve einstök
Stella var.
„Einstakur“erorð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt,
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
meðbrosieðavinsemd.
„Einstakur" lýsir fólki
sem stjómast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“áviðþá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt
„Einstakur" er orð sem best lýsir þér.
(TerriFernandez.)
Lilja, Sigurborg og Indiana.
í dag er kvödd sómakonan Guð-
björg Arnórsdóttir eða Stella eins
og hún var kölluð í daglegu tali. Hún
vann í fjöldamörg ár á Holtsvelli,
sem flestir Kópavogsbúar þekkja
undir nafninu „Stelluróló". Ég
minnist þess þegar ég hóf störf sem
daggæslufulltrúi í Kópavogi hvað
mér fannst þægilegt að vera í ná-
lægð við hana, þessa jákvæðu, bros-
mildu konu, sem hafði einstaklega
hlýja nærveru og góð áhrif á alla í
kringum sig. Stella var mikil bama-
kona og hin fjölmörgu börn sem
komu á róluvöllinn í gegnum árin
heilluðustafhenni.
Börnin sem dvöldu hjá henni hér á
árum áður og eru orðnir foreldrar í
dag komu jafnvel með börnin sín til
hennar, þótt þau væru flutt í önnur
hverfi og önnur bæjarfélög. Það seg-
ir sína sögu um þessa sérstöku konu
og þennan einstaka róluvöll. Það
fylgir því alltaf sérstök ánægja að
koma á Holtsvöll, t.d. á sumrin þeg-
ar allt er fullt af börnum á öllum
aldri og leikgleðin er allsráðandi og
starfsmennirnir uppteknir í leik með
börnunum. Þar eru foreldrar ávallt
velkomnir og kunna greinilega að
meta það. I minningabrotunum sé
ég þá fyrir mér, þar sem þeir sitja á
sandkassanum spjalla saman og
fylgjast með börnum sínum, sem eru
að stíga sín fyrstu spor út í lífið í leik
á gæsluvellinum. Þarna eru líka
eldri börn sem koma og rifja upp
minningarnar við leik frá þessum
kæra stað. Þama eiga „barnapíum-
ar“ á sumrin sitt athvarf og allir em
jafn velkomnir. Það andrúmsloft
sem hefur fylgt „Stelluróló“ er ein-
stakt og þar lagði hún Stella svo
sannarlega sitt af mörkum ásamt því
frábæra starfsfólki sem starfar á
gæsluvellinum við að skapa þær
hefðir sem þar ríkja. Oft er haldið
upp á afmæli barnanna og haldin em
jólaböll og allt er þetta gert af mikilli
ánægju starfsmanna og foreldrarnir
em þátttakendur í undirbúningnum.
Ég veit að sá góði hugur og andi sem
hefur alltaf ríkt og ríkir enn hjá
þeim stöllum á Holtsvelli mun áfram
vera fyrir hendi.
„Stelluróló" hefur sett sitt mark á
menningu og þroska barna í Kópa-
vogi og tel ég að við heiðrum minn-
ingu Stellu best með því að vinna
áfram í hennar barnvinsamlega
anda. Það em margir í dag, börn,
foreldrar og starfsfólk, sem í gegn-
um tíðina höfðu samskipti við hana á
einn eða annan hátt, sem minnast
hennar með þakklæti og hlýju.
Stella átti miklu láni að fagna í
einkalífinu; hún átti samrýnda fjöl-
skyldu sem stóð þétt saman í gleði
og sorg. Hún talaði gjarnan um hana
af mikilli gleði og stolti.
Ég votta Þórami eiginmanni
hennar og allri fjölskyldunni inni-
lega samúð og megi guð gefa þeim
styrk í þessari sorg.
Minningin um góða konu mun lifa.
Emilía Júlíusdóttir.
Ég hafði aðeins unnið í nokkra
daga hjá Kópavogsbæ þegar ég
heyrði fyrst talað um Stellu og allir
sem ég talaði við virtust kannast við
hana og jafnvel gæsluvöllurinn sem
hún vann á var aldrei kallaður annað
en Stelluvöllur. Mér lék forvitni á að
hitta þennan starfsmann sem svo vel
var talað um. Og við nánari kynni
skildist mér hvað lá að baki þessu
áliti.
Glaðvær framkoma hennar var
svo þægileg, áhugi hennar fyrir
starfi sínu var smitandi og umhyggj-
an fyrir börnunum sem hún tók
ábyrgð á var einstök. Það var eins og
bömin ættu hug hennar allan. Það
var ekki hægt að vænta meir af
starfsmanni bæjarins. Það er á
stundu sem þessari að maður hugsar
til baka og veltir fyrir sér hvernig
hægt hefði verið að sýna þakklæti og
virðingu fyrir þau störf sem hún
innti af hendi með svo eftirtektar-
verðum hætti. Og ekki aðeins í fáein
ár heldur í tæplega þrjátíu og tvö.
Aldrei lét hún deigan síga, alltaf var
eldmóðurinn sá sami, umhyggjan og
elskusemin. Já, ekki kom viðurkenn-
ingin og ekki er að gera annað en að
læra af þeim mistökum. En víst er
að við samstarfsfólk hennar munum
minnast hennar með þakklæti og
innileika og hugur okkar mun í
framtíð reika til hennar þegar við
heyrum orðið Stelluvöllur. Fyrir
hönd Félagssviðs Kópavogs votta ég
aðstandendum hennar okkar dýpstu
samúð.
Aðalsteinn Sigfússon.
t
Þökkum innilega samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför kærs fósturföður og bróður okkar,
AÐALSTEINS TH. GÍSLASONAR,
Jökulgrunni 6,
Reykjavík.
Guðrún Árnadóttir,
Sigríður Árnadóttir,
Sigriður Gísladóttir,
Petra Gísladóttir.
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
TEITNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Innilegar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsinu
Blönduósi fyrir góða hjúkrun og umönnun.
Guðmundur Sveinsson, Margrét Guðbrandsdóttir,
Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTINN MARKÚSSON
frá Disukoti,
Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju
föstudaginn 17. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vil-
ja minnast hans, er bent á Safnaðarmiðstöð Hvítasunnumanna í Kirkju-
lækjarkoti, Fljótshlíð.
Guðrún Hafliðadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
" li
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN SIGURÐSSON
frá Gvendareyjum,
Gullsmára 7,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 16. mars nk. kl. 13.30.
Kristín Sigbjörnsdóttir,
Helgi S. Jónsson,
Unnsteinn Jónsson, Kristín Sigurgeirsdóttir,
Sigurður R. Jónsson, Auður Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN ÁRNASON
skólastjóri,
Skeiðarvogi 125,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku-
daginn 8. mars síðstliðinn, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju fimmtudaginn 16. mars
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Orgelsjóð Langholtskirkju.
Þórhildur Halldórsdóttir,
Halldór Jónsson, Dagmar Vala Hjörleifsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir, Trausti Leifsson,
afabörn og langafabarn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR B. SIGURÐSSONAR,
Engjavegi 6,
ísafirði.
Mildrid Sigurðsson,
Frank Guðmundsson,
Gunnar Guðmundsson, Jenný Guðmundsdóttir,
Reynir Guðmundsson, Bryndís Gunnarsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Randý Guðmundsdóttir, Jóhann Dagur Svansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og
útför
BERGÞÓRS GUÐJÓNSSONAR
fv. skipstjóra og útgerðarmanns,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Skólabraut 31,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Brynjólfsdóttir,
Brynjar Bergþórsson,
Salome Guðmundsdóttir,
Ósk Bergþórsdóttir, Óli Jón Gunnarsson,
afabörn og langafabarn.