Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FRIÐRIK H.
SIG URÐSSON
Haf-
Sigurðs-
+ Friðrik
steinn
son fæddist í Reykja-
vík IX. febrúar 1914.
Hann lést á hjúkrun-
arheimilinu Skógar-
bæ 29. febrúar síð-
astliðinn og fúr útför
hans fram frá kirkju
Óháða safnaðarins 9.
Það mun hafa verið
sumarið 1967 að fjöl-
skyldur okkar fluttu í
Breiðholtið. Við
bjuggum í sama botn-
langa við Lambastekkinn. Það kom
fljótlega í ljós að lóðir okkar voru
ekki annað en flag og ísaldarleir,
þar var ekki stingandi strá að sjá
nokkurs staðar og rokbæli hið
mesta, svo ég tali nú ekki um mold-
rokið sem þessu fylgdi. Friðrik og
aðrir þarna fengu fleiri tonn af
gróðurmold sem þeir dreifðu í
garða sína og tyrfðu þá. Friðrik
var með fyrstu mönnum að fá sér
tré í garðinn sinn svo að með ár-
unum breyttist þetta í litla sumar-
paradís. Friðrik var mikill áhuga-
maður um garðyrkju og blómarækt
og var hinn mesti snyrtipinni í
þessu.
Friðrik var einnig áhugamaður
um sauðfjárrækt og átti eitthvað af
kindum sem hann sinnti í frístund-
um.
Friðrik vann erfiðisvinnu alla
ævi, og hann hafði ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum og
hafði samúð með þeim sem minna
máttu sín, enda þekkti hann tímana
tvenna og sagði stundum frá þessu.
A yngri árum í kreppunni miklu
þegar lífsviðurværi var lélegt,
kröpp kjör, atvinnuleysi og fátækt
algeng ásamt alls kyns niðurlæg-
ingu sem þessu fylgdi, varð Friðrik
sér úti um trillubát sem hann reri á
til fiskjar og sá sér farborða og
hafði lífsviðurværi sitt af þessu.
Um þetta leyti veiktist hann af
berklum, sem var þá landlægur
sjúkdómur, og varð að fara á
sjúkrahús nokkurn tíma. Þegar
hann útskrifaðist fór hann til sjós
og nokkur sumur á síld. Seinna
vann hann alla almenna verka-
mannavinnu, lengst vann hann hjá
Eimskipafélagi Islands og var þar
á meðan kraftar entust. Nokkrum
árum eftir að Friðrik kom í hverfið
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (5691115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
byggði hann sér bíl-
skúr með dyggri að-
stoð sona sinna, af
myndarskap eins og
honum var best lagið.
Eins og áður sagði
hafði Friðrik mikla
ánægju af að stússa í
garði sínum sem bar
þess merki að þar var
snyrtimenni á ferð. Ef
ekki var garðurinn, þá
var dyttað að húsinu,
enda var það alltaf
nýmálað og fínt, eins
og umhverfi hans allt.
Friðrik var mikill
áhugamaður um góðan söng og tók
ekki allt gott og gilt í þeim efnum.
Hann hafði kynnst mörgum góðum
söngvurum á sínum yngri árum
eins og Erling Ólafssyni, Einari og
Sigurði Markan og mörgum fleiri.
Hann átti sér nokkra uppáhalds-
söngvara, eins og Pétur A. Jóns-
son, einasta hetjutenór Islendinga
á öldinni, Sigurð Skagfield, einn
frægasta tenór okkar og Stefán
íslandi sem hann taldi vera mesta
raddsjarma Islendinga á öldinni.
Hann átti sér líka erlenda upp-
áhaldssöngvara í þessum úrvals-
flokki, t.d. Tito Gobbi, Beniamino
Gigli, Di Stefano frá Sikiley og bel
canto meistarann Tito Schipa ás-
amt mörgum fleirum. Hann átti ág-
ætt plötusafn með sínum söngvur-
um sem hann spilaði sér til ánægju
og eyrnayndis.
Friðrik hafði mikið dálæti á
canzone-söng og þá aðallega ítölsk-
um. Þess má geta að Friðrik var
gæddur fallegri tenórrödd frá nátt-
úrunnar hendi, og henni fylgdi
óvenjulega góð öndunartækni.
Hann átti það til að taka lagið þeg-
ar vel lá á honum. Friðrik kvæntist
5. október 1946 Guðríði Lilju Guð-
mundsdóttur húsmóður. Börn
Friðriks og Guðríðar eru Ómar,
Ámundi, Guðmundur H., Auður,
Sigurður, Lilja G. og Sigurrós.
Svo fór nú þegar árin liðu, að
lúnir fætur Friðriks fóru að gefa
sig eftir margra ára erfiðisvinnu,
og þegar ellin sótti á versnaði
krankleiki Friðriks, og hann varð
meira og minna rúmfastur.
Guðríður, sem er sjálf mikill
sjúklingur, hjúkraði manni sínum
af mikilli líkn og natni og meira af
vilja en getu.
Nú síðustu árin hefur Friðrik
dvalist í góðu yfirlæti að hjúkrun-
arheimilinu Skógarbæ i Breiðholt-
inu, og var mjög þakklátur starfs-
fólkinu þar. Hann tók þátt í
félagslífi vistmanna þar og tók þá
stundum lagið fyrir þá.
Það jók ánægju hans að tvær
dætra hans voru starfsstúlkur þar.
Eg veit að ég tala fyrir hönd næstu
nágranna okkar við Lambastekk-
inn þegar við Maddý og fjölskylda
okkar sendum Guðríði og börnum
hennar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Það er mikill sjónarsviptir að sjá
ekki lengur hinn glaða lífskúnstner
að störfum í garðinum, en það er
gott til þess að vita, að hann er nú í
stóra kórnum þar sem stórsöngv-
arar liðinna ára syngja Drottni sín-
um lof og dýrð.
Maríus Blomsterberg.
Safnadarstarf
Áskirkja. Föstumessa kl. 20.30.
Passíusálmar Hallgríms Pétursson-
ar sungnir. Píslarsagan guðspjall-
anna lesin og sóknarprestur flytur
hugleiðingu. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir
mæður með ung börn kl. 10.30-12 í
safnaðarheimilinu. Hádegisbænir
kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Létt-
ur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12. Allar mæður vel-
komnar með lítil börn sín. Sam-
verustund eldri borgara kl. 14-16.
Biblíulestur, samverustund, kaffi-
veitingar. TTT-starf fyrir 10-12
ára börn kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Brjóstagjöf. Jóna Mar-
grét Jónsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur. Lestur passíusálma kl. 12.15. Kl.
20 föstuguðþjónusta.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og
fyrirbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Samvera eldri
borgara kl. 13-17 með orgelleik,
bæn og sálmasöng. Tekið í spil eða
hlustað á upplestur. Einnig gefst
kostur á að mála á dúka og kera-
mik. Kaffiveitingar eru frambornar
kl.15. Yfir borðum er upplestur og
söngstund á léttu nótunum. Eldri
borgarar í Langholtssöfnuði eru
hvattir til að koma. Fræðsluerindi
og íhugun, bænagjörð og lestur
Passíusálma kl. 18. Alla miðviku-
daga á föstu verða kl. 18 í Lang-
holtskirkju stundir fræðslu og íhug-
unar, bænagjörðar og lesturs úr
Passíusálmum. 15. mars, munu sr.
Kristján Valur Ingólfsson og sr.
Jón Helgi Þórarinsson fjalla um um
öskudaginn og imbrudaga og merk-
ingu þeirra og gildi í nútímanum.
Allir eru velkomnir.
Laugarneskirkja. Athugið,
starfsdagur kennara í Laugarnes-
skóla. Dagskrá fyrir börn í
kirkjunni kl. 13-17. Nánar auglýst í
skólanum. Einkaviðtöl fermingar-
barna við prestinn hefjast kl 18 og
standa til kl. 20. Unglingakvöld kl.
20 í samvinnu Laugarneskirkju,
Þróttheima og Blómaval.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Kaffi og spjall. Föstumessa
kl. 20. Fyrirbænir og altarisganga.
Lesinn passíusálmur og íhugað
þema föstunnar. Inga J. Backmann
og Reynir Jónasson flytja tónlist.
Kór Neskirkju syngur. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.Starf fyrir 11-12
ára börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl.13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til prestasafnaðar-
ins. „Hvers væntum við“. Lífið og
eilífðin. Biblíulestur í Árbæjarirkju
á miðvikudagskvöldum í mars frá
kl. 20.30-22 (1.3-22.3) Fyrirlestrar
verða haldnir um grundvallartexta
úr Nýja testamentinu sem fjalla um
hina síðustu tíma, endurkomu
Krists, upprisuna, Dóminn og eilíft
líf. Þetta eru efni sem snertir alla
menn. Rétt er að geta þess að Nýja
testamentið vill hugga með boðskap
sínum en ekki hræða. Allir vel-
komnir. Á eftir fyrh'lestri verða
+
Okkar ástkæri sonur, bróðir og barnabarn,
ÓMAR ELVARSSON
frá Suðureyri,
til heimilis
í Þverbrekku 4, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudaginn 16. mars,
kl. 13.30.
Elvar Jón Friðbertsson, Steindóra Andreasen,
Haukur Elvarsson,
Hallgerður Jóna Elvarsdóttir,
Berint Andreasen, Halgerð Andreasen
og aðrir ástvinir hins látna.
______________MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 45
KIRKJUSTARF '
Akraneskirkja
umræður yfir kaffibolla. Fyrirles-
ari: Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu á eftir. Kirkjuprakk-
arar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.
TTT-starf 10-12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digranesk-
irkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund
í Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakk-
ar 7-9 ára starf í Engjaskóla kl. 17-
18. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl.
20-22 í Engjaskóla.
Iljallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9
ára börnum í dag kl.16.45-17.45 í
safnaðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni.
Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í
síma 567-0110.
Víðistaðakirkja. Opiðj.
hús fyrir eldriborgara kl.
14-16.30. Helgistund, spil
og kaffi. Vídalínskirkja.
Foreldramorgunn kl. 10-
12.
Hafnarfjarðarkirkja.
Kyrrðarstund kl. 12.
Hugleiðing, altarisganga,
fyrirbænir, léttur máls-
verður á eftir í Ljósbroti,
Strandbergi kl. 13.
Keflavíkurkirkja.
Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í kirkjunni kl.»
12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25.
Súpa, salat og brauð á
vægu verði. Allir aldurs-
hópar. Berglind Brynj-
ólfsdóttir, sálfræðingur,
talar um áhrif íslensk
samfélags á fjölskylduna.
Fjölskyldustund í
Kirkjulundi kl. 14-16
Helgistund, fræðsla og
samfélag fyrir aðstand-
endur barna undir grunn-
skólaaldri. Umsjón:
Brynja Eiríksdóttir.
Alfanámskeið kl. 19:00
í Kirkjulundi.
Njarðvíkurkirkja. í
(Innri-Njarðvík). Fyrirbænasam-
koma fimmtudag 16. mars kl. 18.30.
Fyrirbænaefnum er komið á fram-
færi á sérstökum miðum sem til eru
í kirkjunni eða hafa samband í síma
421-5013 milli kl. 10-12.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 20 opið hús unglinga í KFUM &
K húsinu.
Akraneskirkja. Unglingakórinn.
Söngæfing í Safnaðarheimilinu
Vinaminni kl. 17.30.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Ffladelfía. Súpa og brauð kl.
18.30. Kennsla kl. 19.30. Krakka-
klúbbur, unglingafræðsla. Kennsla
fyrir enskumælandi og biblíulestur.
Állir hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan. I kvöld verður
9. hluti námskeiðs um Opinberunar-
bók Jóhannesar á sjónvarpsstöðinni
Omega og í beinni útsendingu á FM
107. Leiðbeinandi er dr. Steinþór
Þórðarson. Efni: - Þúsund ár- því-
líkt ástand. Allir velkomnir í Om-
ega. Á morgun verður dr. Steinþór
með hugleiðingu á FM 107 kl. 15.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar tengda-
móðir, amma og langamma
SIGRÍÐUR KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
Sigga í Bót,
Lindarsíðu 4,
Akureyri
er látin.
Jarðarförin auglýst síðar.
Halldór Árnason,
Anna Gréta Halldórsdóttir, Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Þórey Ólöf Halldórsdóttir,
Kristþór Halldórsson, Ása Björk Þorsteinsdóttir,
Oddur Helgi Halldórsson, Margrét Harpa Þorsteinsdóttir,
Freydís Ágústa Halldórsdóttir, Jóhann Skírnisson,
Elma Dóra Halldórsdóttir, Kristján Freyr Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
&
+
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
SVANHVÍT STEFÁNSDÓTTIR,
Nýbýlavegi 62,
sem lést á Sunnuhlíð fimmtudaginn 9. mars,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 16. mars kl. 15.00.
Jakob Jónatansson,
Stefán Jónatansson, Ása Benediktsdóttir,
Sigrún Finnjónsdóttir, Ásgeir Sigurðsson,
Þorleifur Á. Finnjónsson, María A. Finnjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t