Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 Dýraglens FYRIRGEFW, EN EG FER EINFALÖLEGA EKKIÚT MEt) ÞÉR EINS OG ÞÚ ERT Á ÞIG KOMINN Grettir Ljóska Ferdinand BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Enginn sættir sig við núver- andi kerfí Frá GarOarí Björgvinssyni: GÓÐIR íslendingar. Það verður aldrei sátt um einkavæðingu fá- einna einstaklinga á fiskimiðunum á landgrunni íslands. Það verður aldrei sátt um það að þessir ein- staklingar fari út úr sjávarútvegs- greininni með milljarða upp á vas- ann. Það verður aldrei sátt um það að einkavæðingakerfi LIU fái, að eigin geðþótta, að hlaða upp óbærilegum skuldabagga á næstu kynslóð. Það verður aldrei sátt um það að lúta stjórnsýslu þeirri sem boðið hefur verið uppá með æ meiri þunga ár eftir ár í þeim efn- um, svo sem að hundsa hefðir, ganga á rétt þeirra sem staðið hafa í fremstu víglínu við upp- byggingu velferðarkerfísins, eyði- leggja möguleika a mannsæmandi lífi á landsbyggðinni. Brjóta niður sjálfstæði almennings og þurrka út menningarverðmæti. Traðka á sjálfsögðum rétti þeirra sem minna mega sín. Það er leitt að horfa upp á áður virtan lagaprófessor ganga í barndóm með þeim hætti að selja sannfæringu sína hæstbjóðanda, afneita grunnlögunum og styðja ofbeldi í nafni laga, svo sem hann gerir í DV föstudaginn 10. mars. Jafnræðisreglan mistúlkuð út og suður, segir Jón Steinar Gunn- laugsson í Morgunblaðinu laugar- daginn 11. mars. í máli sínu ávítar hann ungan lögfræðing sem sagði eitt sinn að dómstólar eigi að vera spegill almennings. Jón Steinar segir einnig að það sé eins og sum- ir telji að með 65. grein (grunnlag- anna) stjórnarskrárinnar, sé búið að lögleiða eins konar sósialisma. Jón Steinar segir ennfremur að við breytingar á (grunnlögunum) stjórnarskránni fyrir fimm árum hafi hann verið stuðningsamaður jafnræðisreglunnar, en nú sé svo komið að hann sjái eftir því. í heit- ari löndum væri svona yfirlýsing ábyrgs manns beinlínis hættuleg. Eg spyr: hverju má hinn almenni borgari á íslandi eiga von á í nafni laga? Peningar eru afl þeirra hluta er gera skal Þó nokkurt fé hafi safnast frá nánustu áhugamönnum vegna hetjudáðar Svavars R. Guðnasonar til að standa straum af utanför Vestfjarðadómsins, þá er það ekki nóg. Það vantar miklu meira. Góðir Islendingar, takið eftir. Það er hvorki meira né minna en það, að efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar veltur á því að Hæsti- réttur íslands hafi hugrekki til að kveða upp réttan dóm í Vatneyrar- málinu, þ.e. staðfesti dóminn. Bráðlega veður gefið upp reikn- ingsnúmer þar sem allt ábyrgt hugsandi fólk í landinu getur lagt hönd á plóg réttlætisins, hver eftir sinni getu. Landsþekktur aðili mun ha’.da utan um sjóðinn þar til og ef þarf á að halda ef Hæstirétt- ur íslands bregst ábyrgð sinni og lokar þannig á virðingu þá er nauðsynlegt er að almenningur beri fyrir endastöð leitarinnar að sannleikanum í ágreiningsmálum landsmanna en í þeim efnum hefur því miður orðið átakanlegur mis- brestur að undanförnu. Enn geta mannleg mistök átt sér stað, en nú má ekkert fara úrskeiðis, svo sem áður segir. Verði sannleikurinn hins vegar lyginni yfirsterkari mun sjóðurinn verða eyrnamerkt- ur sem styrkur til Öryrkjabanda- lags Islands. Að lokum sendi ég landsmönn- um kæra kveðju með einlægri ósk um gleðilega þjóðhátíð, þar sem jafnrétti og lýðræði gæti orðið á hvers manns vörum. GARÐAR BJÖRGVINSSON, útgerðarmaður og bátasmiður. 0KAY, LUCILLE..THIS NEXT HITTER IS PRETTY 600P 50 KEEP YOUK EYE ON THE BALL.. ir9-00 Sjáðu til Lísa, sá næstin sem slær er mjðg göður svo hafðu augun á boltanum. Það er erfitt þegar þú hreyfir hann til og frá. '6ET BACK 0UT (THEREIN KI6HT RELP WHERE ,Y0U BEL0N6' Snautaðu út á Stelpustjórar eru hægri kant þar jafnvel enn skap- sem þú átt verri en stráka- að vera. stjórar Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12. simi 5544433 (BIODROGA^ Snyrtivörur Q-10 húðkremið rSusk borðbúnaður Bakkar kr. 1.500. Dískar frá kr. 525 Hnífar frá kr. 2.900. Japansprjónar kr. 395 parið. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 ❖ Sími 562 3614 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.