Morgunblaðið - 06.04.2000, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýjar áætlanir um álver og breytta virkianaröð hlífa Eyjabökkum
Það á ekki af Framsókn að ganga, rétt einu sinni komnir með allt á hælana.
Sá brosir best
CMYMPUS myndavélar og sjónaukar eru þekktar vörur um allan heim. Fyrirtækið hefur alltaf
lagt mikið upp úr tækniþekkingu og nákvæmni í framleiðslu á linsum og hátæknibúnaði sem
skilar sér í frábærum vörum sem eru handhægar og auðveldar í notkun fyrir hvern sem er.
Sá brosir best sem fær Olympus í fermingargjöf
- og líka allir hinir í veislunni.
OLYMPUS
• Alsjálfvirk
• 34 mm linsa
• Myndaalbúm fylgir
• Alsjálfvirk
• 35 mm linsa,
• All Weather
• Sérstök landslagsstilling
• 5 flassstillingar
• Hægt að nota fjarstýringu
• Taska og myndaalbúm fylgir
• Alsjálfvirk APS vél
• 28-60 mm linsa,
• All Weather
• Sérstök landslagsstilling
• 5 flassstillingar
• 3 myndastillingar
• Taska og myndaalbúm fylgir
Berðu saman verð og gæði. Munurinn er sjáanlegur
Málþing um skólabyggingar
Nýjar leiðir
í mótun
NÝJAR leiðar í mót-
un námsumhverf-
is er umfjöllunar-
efni á málþingi sem
Fræðslumiðstöð Reykja-
víkur stendur fyrir ásamt
Byggingardeild Borgar-
verkfræðings, Arkitekta-
félagi íslands og Verk-
fræðingafélagi íslands.
Málþingið er haldið á Hót-
el Loftleiðum og stendur
frá kl. 13 á morgun til
klukkan 17.30. Anna
Kristín Sigurðardóttir hef-
ur ásamt samstarfshópi
stýrt undirbúningi þessa
málþings - en hvert skyldi
vera tilefni þessa?
„Það sem rekur okkur til
að halda þetta málþing er
mikil uppbygging í skóla-
byggingum í Reykjavík.
Það er verið að byggja við vegna
einsetningar gnmnskólanna, auk
þess sem borgin er að stækka
mjög ört og verið er að byggja
marga nýja skóla. Það var áhugi
fyrir því að fara nýjar leiðir til
þess að undirbúa þessar bygging-
Anna Kristín Sigurðardóttir
► Anna Kristin Sigurðardóttir
fæddist í Reykjavík 5. ágúst
1957. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugarvatni
1977, kennaraprófi frá Kennara-
háskóla íslands 1981, BA-prófi í
sérkennslu lauk hún frá sama
ar.
- Hvemig ersú leið?
„Hún gengur út að það að arki-
tektar, skólafólk og foreldrar
vinna saman á fyrsta stigi hönnun-
arinnar við að móta eða skilgreina
skólastarfið og þarfir samfélags-
ins. Spurt er; hvers konar skóla
viljum við hafa? Síðan er skóla-
byggingin sjálf hönnuð út frá
þessum hugmyndum eða skil-
greiningum.“
- Um hvað verður fjallað á mál-
þinginu?
„Þar verður kynnt leið sem far-
in hefur verið í Minneapolis og
reyndar víðar sem er í samræmi
við það sem ég var að lýsa hér áð-
ur - að innra starf sé skilgreint áð-
ur en byggingin er hönnuð. Arki-
tektinn Bruce Jilk sem hefur tekið
þátt í þróunarstarfi um þessa leið í
Minneapolis og skólastjórinn Dan
Bodette sem er skólastjóri í fyrsta
skólanum sem er hannaður efth-
þessu ferli halda saman fyrirlest-
ur á málþinginu í máli og mynd-
um.“
- Er þessi aðferð mjög ólík því
sem gerist hér?
„Hún er að því leytinu ólík að
skólafólk kemur fyrr inn í verk-
efnið en verið hefin-. Samstarf við
skólafólk hér hefur að mestu farið
fram eftir að teikning skólahús-
næðis liggur fyrir. Þá snýst sam-
starfið fyrst og fremst um þessa
teikningu - hvernig best er að
koma hlutum fyrir innan þessarar
teikningar. Þessi leið hins vegar
gerir ráð fyrir að allir setjist við
sama borð og ákveði hvemig skóla
þeir vilji hafa og arkitektinn teikn-
ar skólann samkvæmt þeim hug-
myndum. Þetta verður ferli; fólk
fjallar um hvernig skóla það vilji
hafa, arkitektinn útfærir þær hug-
myndir hópsins, síðan velta menn
vöngum yfir þessum hugmyndum
og reyna að skilgreina hvernig
húsnæði viðkomandi skóli þarf
fyrir sína starfsemi."
- Og hvað græðist á
þessu nýja fyrirkomu-
lagi?
„Það sem gerist er
að húsnæðið mótast af
skólastarfinu en ekki öfugt. Fólk
verður að setjast niður og ræða
markvisst saman um innra starf
skólans og ég hef trú á því að með
svona þverfaglegu samstarfi
kvikni ný hugsun um skipulag
skólastarfs. Við fáum vonandi
betri skóla, við fáum í það minnsta
ólíkari skóla. Skóla sem hafa mót-
að sína sérstöðu og skóla sem eru
hannaðir í samræmi við vilja
skóla 1993 og mastersprófi 1996.
Hún var kennari og sérkennari á
Selfossi frá 1981 ogtil ársins
1990 er hún varð kennslu-
ráðgjafí á Fræðsluskrifstofu
Suðurlands. Árið 1996 varð hún
deildarstjóri kennsludeildar á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Anna Kristín á þrjú böm.
skólafólks, foreldra og nemenda.
Vissulega hefur verið mikið sam-
starf milli allra þessara aðila hing-
að til, þótt foreldrar hafi að vísu
ekki komið mikið inn í þetta starf,
en við viljum gjarnan að þetta
samstarf hefjist fyrr og snúist
meira um innra starfið heldur en
bygginguna sjálfa, þannig að
byggingin sé afleiðing af hug-
myndum um faglegar áherslur.
Þegar hafa verið myndaðir hópar
um þrjár skólabyggingar í borg-
inni sem eru svona samansettir og
eru þeir nú að störfum. Auk þess
er ákveðið að vinna í þessa veru að
undirbúningi svona skólastarfs í
nýju hverfi í Grafarholti þar sem
verða tveir grunnskólar."
- Er byggingarefni eitthvað
ólíkt því sem gerst hefur?
„Nei, það verður áfram með öllu
mögulegu móti eins og verið hefur
en við erum að leggja áherslu á
meiri sveigjanleika og fjölbreytni
og við horfum frekar til framtíðar
við hönnun skólabygginga. Það
eru breytt viðhorf og breyttar
kröfur til menntunar sem hljóta
óhjákvæmilega að hafa áhrif á
námsumhverfið sjálft. Við sjáum
t.d. fyrir okkur að upplýsinga-
tækni mun leiða til þess að nám
verður frekar einstaklingsbundið
sem aftur getur leitt til þess að
hefðbundnar bekkjareiningar
verði stokkaðar upp. Þá hentar
ekki lengur skólahúsnæði sem
bútað er niður í margar jafnstórar
kennslustofur og langa
ganga. Skólasafnið
mun gegna lykilhlut-
verki í skólum framtíð-
arinnar, það þarf því að
vera miðsvæðis í skól-
anum. Það má gera ráð fyrir að
lögð verði meiri áhersla á sjálf-
stæði og frumkvæði og aukna
samstarfshæfni, atvinnulífið kall-
ar eftir svoleiðis fólki og þá þarf
skólastarfið að taka mið af því. Ef
við gerum okkur grein fyrir fram-
tíðarsýn um skólastarf áður en við
byrjum að byggja skólann eru
meiri líkur á að við fáum byggingu
sem hentar skóla framtíðarinnar.
Skólasafnið
mun gegna
lykilhlutverki