Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 11 FRÉTTIR Ingjaldshóls- prestakall Sóknar- prestur valinn UMSÓKNARFRESTUR um embætti sóknarprests í Ingj- aldshólsprestakalli í Snæ- fellsness- og Dalaprófastsdæmi rann út 20. mars sl. Umsækj- endur um embættið voru fimm og eru þessir: Arna Yrr Sigurð- ardóttir, cand. theol., Leifur Ragnar Jónsson, cand. theol., sr. Lilja Kristín Þorsteinsdótt- ir, Magnús Magnússon, cand. theol. og Ólafur Þórisson, cand. theol. Valnefnd Ingjaldshóls- prestakalls hefur valið úr hópi umsækjenda sr. Lilju Kristínu Þorsteinsdóttur, sóknarprest í Raufarhafnarprestakalli, til að vera sóknarprestur í Ingj- aldshólsprestakalli, Snæfells- ness- og Dalaprófastsdæmi. Embættið veitist frá 1. maí nk. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson gegndi áður embættinu. Tvær konur kosnar í stjórn SAF TVEIR nýir stjórnarmenn voru kosnir í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, á að- alfundi samtakanna sem lauk í gær. Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða- Landsýnar, og Ómar Óskars- son, framkvæmdastjóri Aust- urleiðar-SBS, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs á fundinum. í stað þeirra voru kosnar Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Radis- son SAS Hótel Sögu, og Signý Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonai-. Aðrir í stjórn eru Steinn Logi Bjömsson frá Flugleiðum en hann er formaður SAF, Ein- ar Bollason frá íshestum, vara- formaður, Áslaug Alfreðsdóttir frá Hótel ísafirði, Garðar Vil- hjálmsson frá Bflaleigunni Geysi og Stefán Sigurðsson frá Perlunni. Bflvelta á Skeiðum ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar slasaðist minniháttar er hann missti stjórn á bifreið sinni í hálku á Skeiða- og Hruna- mannavegi í gærmorgun með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af veginum og valt. Bílstjórinn var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi til aðhlynningar. Bifreiðin er tal- in ónýt eftir veltuna, sem átti sér stað rétt fyrir klukkan 7 í gærmorgun við Reykjarétt á Skeiðum. Önnur bifreið stað- næmdist við slysstað rétt eftir óhappið og skipti engum tog- um er þriðja bifreiðin kom að- vífandi, að bflstjóri hennar gat ekki stöðvað í tæka tíð og ók aftan á þá kyrrstæðu. Báð- ar bifreiðir skemmdust nokk- uð en enginn meiddist. Aðsendar greinar á Netinu vg>mbl.is ^\LLTAf= GtTTHWkEÞ tS/ÝTT Menntamálaráðherra tekur á móti íslensku útgáfunni af Windows 98 Fyrsta sending seldist upp Morgunblaðið/Jim Smart Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Jens Moberg, framkvæmda- stjóri Microsoft í Danmörku, með eintak af íslenskri þýðingu á Windows 98 stýrikerfinu. SNEPLAR, dúsur, eftirlæti og teikn eru meðal þeirra orða sem íslenskir tölvunotendm- eiga væntanlega eftir að tileinka sér í framtíðinni en þau má m.a. finna í íslensku útgáfunni af stýrikerfi Microsoft fyrirtækisins, Windows 98, sem nú er komin á markað. Björn Bjarnason menntamálaráð- heiTa tók formlega við einni af fyrstu íslensku útgáfunni af Windows 98 hugbúnaðinum úr hendi Jens Moberg, framkvæmdastjóra Micro- soft í Danmörku, í húsnæði Lista- safns íslands í gær en þá tók for- svarsmaður Tölvumiðstöðvar fatl- aðra, Sigrún Jóhannsdóttir, einnig formlega á móti 100 eintökum af Windows 98-kerfinu á íslensku, veg- legri gjöf Microsoft til miðstöðvarinn- ar. Smásala íslensku útgáfunnar af stýrikerfinu hófst hinn 22. mars sl. og að sögn Jens Moberg hafa nær allar birgðir selst upp á þeim tíma en von er á meiri birgðum á allra næstu dög- um. Eins og kunnugt er gerði Micro- soft-fyrirtækið samkomulag við ís- lenska ríkið um að framleiða íslenska útgáfu af Windows 98-stýrikerfinu í lok janúar á síðasta ári og hefur verk- ið því tekið um það bil eitt ár. Björn Bjamason sagði við Morgun- blaðið eftir afhendinguna að íslenska þýðingin á stýrikerfinu væri bylting- arkennd breyting fyrir notendur í ís- lenskum tölvuheimi. „Ég vona að þetta sé fyrsta skrefið í frekara sam- starfi okkar við Microsoft og þeir hafi áhuga á því að fara út í þýðingar á fleiri forritum.“ Ráðherra sagði enn- fremur að reynslan hefði þegar sýnt að mikil eftirspurn væri eftir stýri- kerfinu á íslensku og minnti á mikil- vægi þess fyrir íslenska tungu að slíkt kerfi væri í boði í grunn- og fram- haldsskólum landsins enda hefðu þeir gert mjög hagstæða samninga um kaup á forritum frá Microsoft. Sraekklegt og greinilegt Starfsfólk á vegum Navision Software ísland, sem nú kallast Sprok, kom að þýðingu forritsins en að sögn Ara Páls Kristinssonar hjá íslenskri málstöð, sem hafði eftiriit með þýðing- unni, hafði verið unnið að því árum saman áður en að þessari þýðingu kom að þýða orð sem tengjast tölvuhug- búnaði. Hann leggur því áherslu á að íslendingar hafi þegar átt ítarlegt tækniorðasafn áður en farið var út í þýðingu Windows 98 og því hafi þýð- ingin þar að einhverju leyti snúist um að ákveða hvaða orð ættu við og hver ekki. Hann kveðst hins vegar í samtali við Morgunblaðið ánægður með þýð- ingu Windows 98 og segir hana afar smekklega og greinilega. Jens Moberg segir í samtali við Morgunblaðið að stýrikerfið Wind- ows 98 hafi þegar verið þýtt á um fjórða tug tungumála en að íslenska tungan sé frá minnsta málsvæðinu í þeim hópi. Hann tekur fram að Microsoft sjái sér ekki hag í því efna- hagslega að þýða Windows 98-kerfið yfir á íslensku en vegna þess að fyrir- tækið sé leiðandi á sínu sviði telji það sig bera ábyrgð á því að vörur sínar fáist einnig á tungumálum frá litlum málsvæðum. Aðspurður kveður hann þýðinguna hafa kostað Microsoft ein- hverjar tugi milljóna króna. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 2617. Isafjörður: Bflagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.