Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Yoshira Mori, nýr forsætisráðherra Japans
Sagður reynslulaus
í utanríkismálum
Tókýtí. AP. AFP, Reuters.
Reuters
Yoshiro Mori hneigir sig í þingsal neðri deildar japanska þingsins í gær
eftir að þingmenn höfðu samþykkt hann sem nýjan forsætisráðherra.
við Vladimir Pútín, nýkjörinn for-
YOSHIRO Mori var í gær kjörinn
nýr formaður Frjálslyndra demó-
krata í Japan og í kjölfarið sam-
þykktu báðar deildir japanska
þingsins skipun hans í embætti nýs
forsætisráðherra landsins. Skipun
Moris bar brátt að og var ástæðan
skyndileg veikindi Keizo Obuchi sem
enn liggur milli heims og helju á
sjúkrahúsi eftir heilablóðfall á
sunnudag.
Síðar í gær sóru Mori og ríkis-
stjóm hans embættiseið að viðstödd-
um Akihito Japanskeisara. Engar
breytingar hafa verið gerðar á ríkis-
stjórninni aðrar en að nýr forsætis-
ráðherra hefur tekið við.
Mori er 62 ára að aldri og hefur
þrívegis gegnt ráðherrastöðu í ríkis-
stjóm Japans. Hann er sagður til-
heyra íhaldsamari armi Frjálslyndra
demókrata. Fjölmiðlar og almenn-
ingur í Japan virðist hafa nokkuð
blendna afstöðu til Moris. Hann þyk-
ir vera óheflaður og hefur hingað til
ekki verið talinn til þungavigtar-
manna í japönskum stjómmálum.
Hann hefur á sér orð fyrir að kunna
ekki að gæta tungu sinnar og hafa
yfírlýsingar hans sumar hverjar ver-
ið umdeildar. Á níunda áratugnum
var hann orðaður við hneykslismál
sem þá komu upp í japönskum
stjómmálum.
Japanska dagblaðið Mainichini
Shimbun birti í gær nokkur ummæli
sem Mori hefur látið falla á ferli sín-
um. Fyrr á þessu ári ollu ummæli
hans um sjúkdóminn eyðni reiði
FAÐIR kúbverska flóttadrengsins
Elians, sem dvelst hjá ættingjum sín-
um á Flórída, hefur hafnað boði
bandarískra stjómvalda um að fá að
koma til Bandaríkjanna við fimmta
mann. Bandarísk stjómvöld hafa
þegar gefið út vegabréfsáritun fyrir
föður Elians, Juan Miguel, konu
hans, ungan son þeirra, frænku Eli-
ans, lækni sem hefur stundað Elian
og bamfóstra.
Sjónvarpsstöð á Kúbu birti seint á
þriðjudagskvöld tilkynningu frá fóð-
ur Elians þar sem hann segist annað
hvort munu koma einn síns liðs eða í
fylgd 22 samferðamanna. Ekki kom
fram hvers vegna Juan Miguel hefði
meðal margra Japana. Mori rifjaði
upp þegar hann var fyrst í framboði
til þings með þessum orðum: „Ég
ferðaðist um og kynnti framboð mitt
og þegar ég heilsaði bændum úr bíl
mínum, hlupu þeir heim á bæi. Mér
leið eins og eyðnisjúklingi." Ummæli
Moris í tengslum við hinn svokallaða
2000-vanda þóttu einnig óheppileg.
Hann sagði að þegar ótti við bilanir í
tölvukerfum heimsins hefði komið
upp fyrir síðustu áramót hefðu Jap-
anar birgt sig upp af matvælum og
öðram vistum. „Bandaríkjamenn
sett fram þessi nýju skilyrði en ýmsir
telja að yfirlýsingin sé liður í pólitísku
sjónarspili sem stjómvöld á Kúbu
standi á bak við. „Við leggjum allt
kapp á að finna lausn á málinu svo að
Juan Miguel geti komið hingað til
Bandaríkjanna og sótt drenginn sinn
svo fijótt sem auðið er,“ sagði fulltrúi
kúbverskra stjómvalda 1 Washington
í gær.
Reynt að fínna lausn
Ættingjar Elians á Miami í Flórída
vilja leyfa drengnum að dvelja áfram
hjá sér en bandarísk yfirvöld hafa
gefið út skipun um að hann skuli
sendur aftur til Kúbu. Hefur spunnist
keyptu byssur og skotvopn. Ef alls-
heijarbilun verður þar fara glæpa-
menn og morðingjar á kreik. Banda-
ríkin eru þess konar samfélag," er
haft eftir Mori.
Reynsluleysi í utanríkismálum
Fjölmiðlar hafa látið í Ijósi
áhyggjur af reynsluleysi Moris á
sviði utanríkismála, sem munu taka
mikið rúm í störfum hans sem for-
sætisráðherra fyrstu dagana. Meðal
annars þarf hann að fara til fundar
hápólitísk deila vegna málsins en ætt-
ingjamir neita að afhenda banda-
ríska innflytjendaeftirlitinu drenginn
og mjög skiptar skoðanir era meðal
bandarískra ráðamanna um hvort
vísa eigi honum úr landi. Fulltrúar
innflytjendaeftirlitsins hafa undan-
fama daga átt í samningaviðræðum
við ættingja Elians um lausn deilunn-
ar og hefur næsti fundur verið boðað-
seta Rússlands, síðar í þessum mán-
uði. Samskipti Rússa og Japana era
að mörgu leyti erfið vegna deilna um
Kúril-eyjar, sem liggja í hafinu
skammt norður af Japanseyjum.
Rússar hafa haft yfirráð yfir eyjun-
um frá lokum seinni heimsstyrjaldar
en Japanar gera tilkall til þeirra.
Vegna deilnanna um Kúrileyjar hafa
ríkin enn ekki gert með sér formlegt
friðarsamkomulag.
Mori þarf einnig að stýra fundi
G8-ríkjanna sem haldinn verður í
Japan í júlí og þar að auki bíða mörg
aðkallandi verkefni úrlausnar innan-
lands. Talið er að Mori muni halda
áfram þeim umbótum sem fyrir-
rennari hans beitti sér fyrir í efna-
hagsmálum og á stjórnsýslu lands-
ins. Mori sagði sjálfur í gær að
stærsta verkefnið sem við honum
blasti væri að rétta efnahag landsins
af eftir erfiðleika undanfarinna ára.
Talið er líklegt að þingkosningum
í Japan verði flýtt og þær haldnar
jafnvel strax nú í vor í stað þess að
fara fram næsta haust. Stjórnarand-
stöðuflokkar era taldir vilja láta
reyna á stuðning Moris meðal þjóð-
arinnar fljótlega en einnig er hald
manna að Frjálslyndir demókratar
kunni að vilja nýta sér samúð al-
mennings í Japan vegna veikinda
Obuchis. Hefur m.a. verið minnt á að
flokkurinn vann stjórsigur í kosning-
um árið 1980 sem haldnar vora að-
eins 10 dögum eftir andlát forsætis-
ráðherra landsins, Masayoshi Ohira.
ur á fimmtudag. Landflótta Kúbverj-
ar sem búsettir era í Flórída hafa
hótað að neita allra ráða til að hindra
að starfsmenn innflytjendaeftirlitsins
geti numið drenginn á brott með sér.
Elian komst lífs af þegar bátur
með hópi flóttamanna frá Kúbu,
þeirra á meðal móður hans, fórst í
hafinu út af Flórídaskaga í nóvember
síðastliðnum.
Bresk
kjarnorku-
mál á
glámbekk
HÁLEYNILEG skjöl um
áætlanir bresku stjórnarinnar
í kjarnorkuvopnamálum fund-
ust nýlega á götu í Berkshire,
skammt frá London, eða úti
fyrir Aldermaston-kjarnorku-
vopnasmiðjunni. Er þetta
þriðja öryggismálahneykslið á
skömmum tíma en í síðasta
mánuði töpuðu leyniþjónust-
urnar tvær í landinu hvor sinni
fartölvunni. Voru í annarri
upplýsingar um Norður-írl-
and, að vísu dulkóðaðar, og í
hinni ýmislegt um þjálfun
leyniþjónustumanna. Hefur
breska varnarmálaráðuneytið
hafið rannsókn á skjalafundin-
um í Berkshire en vill ekki
gera mikið úr upplýsingunum í
þeim, segir, að flest í þeim hafi
áður komið fram.
Dýrkeypt
hótun
ROY Santamaria, rúmlega
þrítugur Ástrali, var dæmdur í
gær í þriggja ára fangelsi fyrir
að ógna öryggi flugfarþega og
áhafnar. Hafði hann hótað að
opna dyr á flugvél, sem var í
áætlunarflugi á milli Melbour-
ne og Perth í nóvember sl.
Hafði hann gerst sekur um
sams konar afbrot 1998 en þá
fengið skilorðsbundinn dóm.
Vonast er til, að dómurinn
verði öðrum víti til varnaðar.
„Blaðamað-
ur aldarinn-
ar“
DEEDES lávarður eða W F
Deedes eins og lesendur The
Daily Telegraph þekkja betur
hefur verið kjörinn „blaða-
maður aldarinnar" í Bretlandi
af OJdie-tímaritinu. Deedes
hóf blaðamennskuferil sinn 17
ára gamall er hann skrifaði um
kaðalgaldurinn hjá indversk-
um fakírum og enn er hann
með sinn dálk og sínar erlendu
fréttir tæplega 87 ára að aldri.
Á sínum tíma skrifaði hann
mikið um Abysseníumálin, um
afsögn Játvarðs konungs og
Chamberlain og nú að undan-
förnu um Kosovo. Segja má, að
hann hafi verið í sviðsljósinu
eða á vettvangi helstu stórat-
burða í meira en hálfa öld.
Saka Banda-
ríkjamann
um njósnir
RÚSSAR tilkynntu í gær, að
þeir hefðu handtekið banda-
rískan borgara og samstarfs-
mann hans og væru þeir báðir
grunaðir um njósnir. Var
Bandaríkjamaðurinn ekki
nefndur á nafn en sagt, að
hann væri yfirmaður einkafyr-
irtækis, sem hefði áður starfað
fyrir bandarísku leyniþjónust-
una, CIA. Rússinn var sagður
hertæknisérfræðingur. Hefði
Bandaríkjamaðurinn komið
sér í kynni við rússneska vís-
indamenn í því skyni að fá hjá
þeim upplýsingar um ríkis-
leyndarmál. Bandaríska send-
iráðið í Moskvu kvaðst engar
upplýsingar hafa um þetta mál
í gær.
Mjög efldar árásir á rússneska herinn f Suður-Tsjetsjnfu
Skæruliðar tóku 9 fanga af lífi
Moskvu. Reuters.
SKÆRULIÐAR í Tsjetsjniu sögðu í gær að þeir
hefðu tekið af lifi níu rússneska hermenn. Höfðu
þeir áður boðist til að skipta á þeim og rússnesk-
um foringja sem sakaður er um að hafa nauðgað
og myrt tsjetsjneska stúlku.
Kom þetta fram á vefsíðu skæraliða en áður
hafði verið haft eftir rússneskum embættismanni,
að aldrei hefði komið til greina að fallast á skiptin.
Vora hermennirnir í hópi rússneskrar sérsveitar,
sem skæraliðar sátu fyrir við Zhani Vedeno í síð-
ustu viku. Féllu þá 43 hermenn.Tsjetsjenamir
sögðu að fangamir hefðu verið teknir af lifi í birt-
ingu í gærmorgun og buðust þeir til að skipta á lík-
unum og særðum, tsjetsjneskum föngum. Sögðu
þeir einnig að Rússar bæra alla ábyrgð á aftökun-
um þar sem þeir hefðu neitað að afhenda Tsjetsj-
enum „hundinn“ Júrí Búdanov, það er að segja
fyrrnefndan, rússneskan foringja.
Rússar segjast raunar efast um að hermennirn-
ir níu hafi verið á lífi í fyrradag. Segjast þeir hafa
hlerað fjarskipti á milli tsjetsjnesks skæruliðafor-
ingja og arabísks málaliða og af þeim hafi mátt
ráða að mennimir hafi verið líflátnir um síðustu
helgi.
Skæraliðar hafa verið að auka árásir sínar á
rússneska hermenn í fjöllunum í Suður-Tsjetsjníu
og hafa Rússar gripið til j.sérstakra aðgerða" þar
eins og þeir kalla það. Á þessum slóðum getur
hvarvetna að líta sundursprengda skriðdreka og
önnur hertól síðan í Tsjetsjníustríðinu 1994-’96.
Deilan um kúbverska flóttadrenginn
Faðir Elians
setur fram
nýjar kröfur
Miami. AFP.
Reuters
„Biðjið fyrir EIian,“ stendur áþessum spjöldum sem kúbverskir innflytj-
endur í Bandaríkjunum hafa stillt upp við heimili ættingja drengsins.