Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 35
Klónun fóstur-
vísa leyfð
á næstunni?
London, Parfs. AP, AFP, Daily Telegrapli.
BÚAST má við að ríkisstjórn
Bretlands samþykki á næstunni
klónun fósturvísa manna að því
er dagblaðið Daily Telegraph
hafði eftir ónafngreindum heim-
ildarmanni fyrr í vikunni. Að
sögn blaðsins munu ráðgjafar
ríkisstjórnarinnar mæla með að
klónun fósturvísa í vísindalegum
tilgangi verði leyfð þar sem lækn-
isfræðilegur hagnaður sé um-
talsverður.
Nefnd sérfræðinga undir for-
ystu læknaprófessorsins Liam
Donaldson kynnir ríkisstjórninni
niðurstöður skýrslu sinnar síðar í
þessum mánuði. Heimildamaður
Daily Telegraph segist búast við
að ríkisstjórnin samþykki tillögur
nefndarinnar. Lögum um klónun
verði því breytt í kjölfarið og
klónun í rannsóknarskyni heimil-
uð svo að endurskapa megi vefi
líkamans.
Breska heilbrigðisráðuneytið
hefur ekki fengist til að staðfesta
þessar fregnir að sögn AP-frétta-
stofunnar, en talsmaður ráðu-
neytisins sagði ekki hafa verið
gengið frá skýrslu nefndarinnar
sem verði kynnt ríkisstjórninni að
nokkrum vikum liðnum. „Allar
frásagnir af því hvað ríkisstjórnin
ætlar sér að gera eða hvað muni
gerast eru ótímabærar og byggja
á getgátum," sagði talsmaðurinn.
Klónun manna er bönnuð í
Bretlandi, en að sögn Daily Tele-
graph snúa hugmyndir nefndar-
innar að þvf að leyfa vissar und-
anþágur á banninu. Klóna megi
þannig fósturvísa manna og láta
þá þroskast í hálfan mánuð svo
visindamenn geti náð prufu af
stofnfrumum fósturvísisins. En
stofnfrumur eru þær frumur sem
bein, lungu og aðrir vefír líkam-
ans þróast út frá og er það trú
vfsindamanna að rækta megi
stofnfrumur og láta þær þróast
yfír í ákveðna vefi, frumur eða
jafnvel líffæri.
Fræðilega hefði slík ræktun í
fór með sér að klóna mætti fóst-
urvísi einstaklings, rækta stofn-
frumur byggðar á hans gena-
mynstri og sigrast á þeim vanda
sem verður er ónæmiskerfi líkam-
ans hafnar vefjum við líffæra-
ígræðslu.
Siðferðileg
vandamál
Þótt vísindamenn séu duglegir
við að benda á kosti klónunar eru
siðferðilegu vandamálin ekki síð-
ur þekkt, en andstæðingar klón-
unar benda m.a. á að klónun
mannsvefja sé aðeins eitt skref í
átt að klónun manna. Daily Tele-
graph kveður hins vegar ráð-
herra bresku stjórnarinnar hafa
hug á að auka umræður um klón-
un til að vekja athygli á þeim
mun sem sé á klónun fósturvísa
og klónun mannveru.
„Möguleikarnir eru fjölmargir.
Þetta kann að gera okkur fært að
græða hjartavöðva eða beinmerg
og mannkyninu stafar ekki ógn af
þessu. Það er of snemmt að segja
til um hvort þetta reynist mögu-
legt, en verði rannsóknirnar
bannaðar þá vitum við það
aldrei," sagði heimildamaður
Daily Telegraph.
Nokkrar þjóðir velta því þegar
fyrir sér hvort leyfa beri klónun
fósturvísa og hefur AFP-frétta-
stofan eftir Jacques Montagut,
hjá siðfræðistofnun Frakklands,
að veiti Bretar leyfí til klónunar
þá muni það hvetja aðrar þjóðir
til að fylgja í kjölfarið.
Fujimori
spáð sigri
STUÐNINGSMENN Albertos
Fujimoris, forseta Perú, efndu til
kosningafundar á þriðjudag í
borginni Chiclayo sem er 660
kílómetrum norð-vestur af höfuð-
borginni Lima. Skoðanakannanir
benda til sigurs Fujimoris í for-
setakosningum sem fram fara í
landinu á sunnudaginn kemur.
Hinna látnu
minnst
á Netinu
Peking. The Daily Telegraph, AFP.
HUNDRUÐ þúsunda Kínverja
hafa heimsótt nýtt vefsetur
sem gefur þeim kost á að reisa
svokallaða „minningarsali" á
Netinu til að minnast látinna
skyldmenna.
Margir velmenntaðir Kín-
verjar búa fjarri átthögum sín-
um og geta því ekki farið að
gröfum forfeðra sinna og skyld-
menna í tilefni af Qing Ming-
deginum sem er í dag. Kínverj-
ar fara þá að gröfunum til að
hreinsa þær og minnast hinna
látnu.
Nýja vefsetrið leysir þetta
vandamál því íbúar borganna
geta nú reist eigin „sali“ á Net-
inu, sett þar upp myndir, Ijóð,
minningarorð og stutt tónlist-
arbrot. Gestir geta einnig
kveikt á kertum og lagt blóm í
salina.
Rúmlega 1.000 salir hafa
þegar verið reistir og vefsetrið
fékk 300.000 heimsóknir fyrstu
dagana.
Yfirvöld í Shanghai tilkynntu
í gær að þau hygðust koma upp
samskonar vefsetri í júní til að
leysa annað vandamál - skort á
landi fyrir grafreiti borgar-
búanna. 100.000 Shanghai-búar
eru bornir til grafar á ári
hverju og ef svo fer fram sem
horfir verður ekkert rými fyrir
fleiri grafir eftir sex ár.
Markmiðið með vefsetrinu er
að hvetja borgarbúana til að
brenna líkin og láta nægja að
minnast hinna látnu á Netinu.
Sveiflurnar á Nasdaq-markaðnum
Gætu gert
fjárfesta
kröfuharðari
Reuters
Þýskur verðbréfamiðlari fylgist með verð-
falli hlutabréfa í KauphöIIinni í Frankfurt
í gær. DAX-hlutabréfavfsitalan féll um 4%.
San Francisco. AFP.
MIKLAR sveiflur undan-
farna daga á Nasdaq-
hlutabréfamarkaðnum
bandaríska eru sagðar
geta verið viðvörun til há-
tæknifyrirtækja um að
þau verði að sýna að þau
eigi skilið miklar hækkan-
ir síðustu mánaða ef þau
hyggist laða áfram að sér
fjárfesta. Vísitala Nasdaq
er miðuð við þúsundir há-
tæknifyrrtækja en hin
vísitalan, Dow Jones, mið-
ast við verð á 30 stórfyrir-
tækjum, meðal annars
fjármálastofnunum og
verslanakeðjum.
„Fjárfestar eru loksins
að átta sig á því að ekki er
víst að allt sem er með
dot.com á eftir heitinu sé
endilega líklegt til að sýna
hagnað,“ sagði Gregory
Slayton, forstjóri mark-
aðsfyrirtækisins Click-
Action í Kísildalnum svo-
nefnda í Kaliforníu. Hann
sagðist telja að nú myndu
menn almennt leita á vit raunveru-
leikans. Ymsir hafa að undanförnu
fullyrt að væntingar um hagnað
tæknifyrirtækja á sviði netsam-
skipta og í líftækni geti vart staðist.
Sérfræðingar segja að mörg netfyr-
irtæki í Kísildal muni framvegis
verða að berjast hart um peninga
fjárfesta á markaðnum.
Að sögn Slaytons geta fyrirtæki
sem bíða of lengi með að fara á
markað til að útvega aukið fjármagn
lent í ógöngum. Ef fyrirtæki verði
fjárvana sé það ef til vill merki um
að stjórnendur þess hafi ekki gætt
sín og hafist handa nógu skjótt,
einnig geti verið að samkeppnin sé
of hörð. Sum fyrirtæki noti sér þá
þrautalendingu að taka rekstrarlán
á afar slæmum kjörum sem geti orð-
ið vítahringur og endað með skelf-
ingu. Sum netfyrirtæki, sem enn
eiga eftir að sýna hagnað, nota þá
aðferð að sögn sérfræðinga að hasla
sér völl á nýju sviði eða kaupa sig
inn á ný svið. Þannig fái fjárfestar
og verðbréfaráðgjafar á tilfinning-
una að fyrirtækið sé enn sem fyrr
þróttmikið og framsækið þótt arð-
semin láti á sér standa. Amazon.com
hafi til dæmis keypt Toolcrib.com og
sé nú farið að selja tæki auk bókana.
John Roberts hjá fjárfestingar-
fyrirtækinu A.G. Edwards Sons í
San Jose segir að stundum dæli at-
vinnufjárfestar auknu fé í hátækni-
fyrirtæki sem ekki hafi sýnt arð og
sé þá vonast til að með því að halda
því áfram á floti sé hægt að tryggja
verðgildi bréfanna.
SKÓSPRENGJA
ÁRMÚLA 23
Ótrúlegt verð • frá 995
Skór frá Skæði og Skóverslun Kópavogs
Opið frá kl. 12 -18 mánud. - föstud. og 10 -16 lauard.