Morgunblaðið - 06.04.2000, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGBFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRÁMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JÖFN OG BÆTT
STAÐA FORELDRA
VAXANDI umræða hefur verið um fjölskyldu- og jafn-
réttismál hér á landi undanfarin ár. Sú umræða hefur
smám saman skilað sér í breyttum áherslum þó að sumum
hafi þótt seint ganga. Það er til dæmis nokkuð síðan að
kjarabarátta á Norðurlöndum tók að beinast meira að fjöl-
skyldutengdum málum, en hér hafa þau lengst af mætt af-
gangi. í frumvarpi til laga um foreldra- og fæðingarorlof
sem kynnt var á þriðjudag er hins vegar stigið stórt skref í
þessum efnum.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir að eitt kerfi foreldra- og
fæðingarorlofs verði framvegis fyrir starfsmenn á almenn-
um vinnumarkaði og hinum opinbera, en svo hefur ekki verið
hingað til. Fæðingarorlof verður níu mánuðir og á hvort for-
eldri sjálfstæðan rétt til allt að þriggja mánaða orlofs og
þrjá mánuði til viðbótar sameiginlega. Er þetta einkum mik-
il bót fyrir karla sem nú eiga einungis rétt á tveggja vikna
feðraorlofi, en konur hafa um nokkurt skeið átt rétt á sex
mánaða fæðingarorlofi. Orlofið er launatengt og skal mánað-
arleg greiðsla nema 80% af meðaltali heildarlauna eða reikn-
aðs endurgjalds. Einnig eru réttindi heimavinnandi karla og
námsmanna til greiðslu feðrastyrks tryggð á sama hátt og
kvenna en þess hafa þeir ekki notið til þessa. Þá er í frum-
varpinu lagt til að foreldrar á vinnumarkaði skuli hvort um
sig eiga rétt á þrettán vikna foreldraorlofi til að annast barn
sitt. Er þetta sjálfstæður réttur foreldris og ekki framselj-
anlegur. Skal slíkt orlof tekið áður en barnið nær átta ára
aldri.
Allt eru þetta gríðarlega mikilvægir hlutir sem myndu
tryggja jafna og bætta stöðu foreldra hvað varðar orlof
vegna fæðingar barns. Eins og Morgunblaðið hefur margoft
bent á er jafnari þátttaka kynjanna í umönnun ungra barna
ein meginforsendan fyrir jafnrétti á fleiri sviðum. Ekki þarf
að hafa mörg orð um að það er og tvímælalaust hagur barna
að foreldrar fái aukinn tíma með þeim á fyrstu mánuðunum
og árunum. Raunar er ástæða til að ætla að það geti haft allt
að því úrslitaáhrif á mótun þeirra á æsku- og uppvaxtarár-
um.
Með þessum breytingum á réttarstöðu foreldra yrði staða
fjölskyldunnar sem grunneiningar styrkt verulega. Á þeim
mætti byggja skynsama og árangursríka fjölskyldustefnu
en í mótun hennar þarf atvinnulífið að taka virkan þátt.
ÁFENGISNEYZLA
UNGLINGA
UM þessar mundir er að hefjast sérstakt átak gegn áfengis-
neyzlu unglinga á vegum Samfés - samtaka félagsmið-
stöðva á íslandi og áætlunarinnar ísland án eiturlyfja. Markmið
þessa átaks er að draga úr áfengisneyzlu unglinga og hafa áhrif
á að þeir seinki því að hefja neyzlu áfengis. Jafnframt kemur að
þessu átaki stór hópur unglinga úr félagsmiðstöðvum víðs vegar
að á landinu. Hugsunin með því er sú að unglingar taki meira
mark á jafnöldrum sínum en umvöndunum foreldra sinna.
Það er sérstök ástæða til að vekja athygli á þessu átaki og
fagna því. Ofneyzla áfengis er böl sem stundum fylgir fjölskyld-
um kynslóð eftir kynslóð. Margt bendir til þess að áfengissýki
geti verið arfgeng, alla vega er ekki einleikið hvað hún leggst oft
í sömu fjölskyldur. Enginn þeirra sem hefja neyzlu áfengis veit
með vissu að honum sé ekki hætta búin. Þvert á móti eru sorg-
legdæmi um það til hvers áfengisneyzla ungs fólks getur leitt.
Á síðustu árum hafa drykkjuvenjur Islendinga verið að
breytast. Það er ekki ástæða til að amast við því þótt reynt sé að
innleiða hér á Islandi ákveðna vínmenningu en hitt er staðreynd
að sporin hræða. Ofneyzla áfengis er of mikil hér og of almenn
og hefur haft svo alvarlegar afleiðingar fyrir líf og farsæld ein-
staklinga og fjölskyldna, að það er ekki hægt að horfa fram hjá
þeirri staðreynd.
Það er ömurlegt að sjá ungt fólk hefja áfengisneyzlu, þegar
það er rétt komið á unglingsaldur og það er enn ömurlegra að
sjá afleiðingamar nokkrum árum síðar í lífí alltof margra ung-
menna.
Þess vegna á áð gera allt sem hægt er, til þess að ýta undir
viðleitni þeirra aðila sem berjast gegn áfengisneyzlu unglinga,
og starf jafnaldra þeirra sem reyna að hafa jákvæð áhrif á fé-
laga sína að þessu leyti.
Það getur ekki verið eftirsóknarvert íyrir nokkra manneskju
að eyðileggja líf sitt og sinna nánustu með áfengisdrykkju en
dæmin þar um tala sínu máli.
Þeir sem standa að átakinu gegn áfengisneyzlu unglinga eiga
þakkir skildar fyrir þetta íramtak og kröfu á stuðningi allra
þeirra sem lagt geta hönd á plóginn.
Atvinimlífið þarf a<
að umhverfismálii
ISLENDINGAR eru afar heppn-
ir, að mati dr. Donalds Huisingh.
Þeir búa í fámennu en tiltölulega
stóru landi, langt frá öðrum.
Jafnvel þótt ekkert yrði aðhafst hér í
umhverfismálum, yrði vandinn aldrei
eins mikill og í mörgum stórborgum svo
sem Mexíkóborg sem sekkur smám
saman því hún stendur á skrælnandi
jarðvegi. Dr.Huisingh telur hins vegar
ólíklegt að við kæmumst upp með að
haga okkur eins og við gerum í um-
hverfismálum, ef Reykjavík væri stað-
sett t.d. í Þýskalandi. Margt mætti hér
betur fara, að hans mati
þótt ýmislegt sé vel
gert. Sem vísbendingu
um stöðuna nefnir hann
að aðeins tvö fyrirtæki
hafa vottuð umhverfis-
stjómunarkerfi, ÍSAL
og Borgarplast. Tvö fyr-
irtæki, Hjá Guðjóni Ó og
Frigg hafa hlotið Hvíta
svaninn, norræna um-
hverfismerkið, fyrir til-
tekna vöru eða þjónustu.
Hvaða viðfangsefni telja menn brýnust í um-
hverfísmálum atvinnulífsins og hvert er æski-
legt hlutverk ólíkra hagsmunaaðila? Hrönn
Marinósdóttir ræddi við dr. Donald Huisingh,
prófessor við Alþjóðlegu umhverfísstofnunina í
Lundi, sem af mörgum er talinn vera faðir
hugmyndafræði hreinnar framleiðslutækni.
Ótull við að kynna
hreinni
framleiðslutækni
Dr. Huisingh er
Bandaríkjamaður en
hefur verið búsettur í
Evrópu frá árinu 1987.
Til íslands er hann kom-
inn í fjórða sinn, nú á
vegum íslenskrar Stað-
ardagskrár-verkefnis-
ins, Iðntæknistofnunar,
Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins, VSÓ-
ráðgjafar, Línuhönnun-
ar og UMÍS ehf., til þess
að fjalla um umhverfis-
mál atvinnulífsins, sér í
lagi hugmyndafræði sem
hann hefur verið ötull við
að kynna og kallast hreinni framleiðslu-
tækni (Cleaner Production).
Á þriðjudag talaði hann á ráðstefnu
fyrir stjómendur og starfsmenn sveit-
arfélaga en á mánudag átti hann fund
með fulltrúum atvinnulífsins og fjallaði
m.a. um umhverfisstarf fyrirtækja í
nágrannalöndunum, þörfina fyrir um-
hverfisstarf innan fyrirtækja og ávinn-
ing af samstarfi ólíkra hagsmunaaðila.
Fáir hafa meiri reynslu af því að
starfa með fyrirtækjum á sviði úrbóta í
umhverfismálum en dr. Donald Huis-
ingh. Á 35 ára ferli sem ráðgjafi hefur
hann aðstoðað yfir 500 fyrirtæki í 26
löndum. Af mörgum er dr. Huisingh tal-
inn með helstu sérfræðingum í um-
hverfismálum á heimsvísu. Hann er höf-
undur hátt á annað hundrað greina,
myndbanda, hermileikja og forrita, auk
þess að vera ritstjóri
tímaritsins Joumal of
Cleaner Production.
Einnig hefur hann unn-
ið með ýmsum alþjóð-
legum stofnunum, með-
al annars Sameinuðu
Dr. Donald Huisingh er af mörgum talinn vera með helstu sérfræðingum í umhverfismáluir
Háværar vekjara-
klukkur eru
nauðsynlegar
þjóðunum,
Þróunarbanka Evrópu og Alþjóðabank-
anum. Dr. Huisingh er formaður og
einn af stofnendum Evrópuhringborðs-
ins um hreinni framleiðslutækni
(ERCP). íslendingar hafa ekki tekið
þátt í starfsemi Evrópuhringborðsins
hingað til en dr. Huisingh hvetur ís-
lendinga til þess að taka þátt í 7. fundi
Evrópuhringborðsins sem haldinn
verður í Lundi í byrjun maí árið 2001.
un,“ segir dr. Huisingh. „Sem ráðgjafi
hef ég unnið að verkefnum sem miða að
því að þróa og taka í notkun tækni við
fyrirbyggjandi umhverfsstarf, yfirleitt í
samvinnu við þverfaglega vinnuhópa
með fulltrúum háskóla, ríkisstjórna,
sveitarfélaga og smárra sem stórra fyr-
irtækja."
Hreinni framleiðslutækni segir hann
vera hugmyndafræði sem snúist um að
fyrirbyggja vandann í stað þess að
bregðast við einkennum. „Fyrsta al-
þjóðlega umhverfisráðstefnan var hald-
in í Stokkhólmi árið 1972. Þar var hafist
handa við að þróa reglur og aðferðir til
þess að takmarka úrgang og mengun
frá fyrirtækjum. Þær fólust í áður-
nefndum rörendalausnum; dregið var
úr áhrifum mengunar meðal annars
með því að beina henni burt frá íbúða-
byggð með háum reyk-
háfum og löngum frá-
rennslisrörum. Arangur
náðist upp að einhverju
marki en aðgerðir sem
þessar eru orkufrekar og
kostnaðarsamar, auk þess sem þær
lágmarka uppsprettur úrgangs og
mengunar strax í byrjun. Ef ekki er
mögulegt að komast fyrir myndun úr-
gangsins eru skoðaðir möguleikar á
endurvinnslu og endumotkun.
Hrein framleiðslutækni er fyrirtækj-
um nauðsynleg, að mati dr. Huisingh, ef
ætlunin er að koma á sjálfbæra samfé-
lagi, eins og verkefnið Staðardagskrá
21 stefnir að.
Fyrirbyggj andi aðgerðir
og sjálfbær þróun
Frá árinu 1997 hefur dr. Huisingh
verið prófessor í umhverfisvísindum við
Alþjóðastofnunina um umhverfishag-
fræði iðnaðarins í Háskólanum í Lundi í
Svíþjóð. „Rannsóknir mínar undanfarin
ár hafa aðallega beinst að þróun stjórn-
tækja, hugtaka og tækni sem stjómvöld
og atvinnulífið geta notað í viðleitni
sinni til að hverfa frá svonefndum rör-
endalausnum (End of pipe pollution
control (PC)) í átt að samhæfðum lausn-
um þar sem áhersla er lögð á fyrir-
byggjandi aðgerðir og sjálfbæra þró-
uppræta ekki vandann."
Oft þarf meiri háttar umhverfisslys
til þess að koma skriði á umhverfisum-
ræðuna, að mati dr. Huisingh. Háværar
vekjaraklukkur eins og slysið í efna-
verksmiðjunni í Bhopal á Indlandi 1984
og Tsjernobyl-kjamorkuslysið áriðl986
virðist þurfa til þess að vekja fólk til vit-
undar um stöðu mála. Dr. Huisingh seg-
ir þó flesta vera sammála um að huga
verði að umhverfismálum atvinnulífs-
ins. Ekki er lengur unnt að loka augun-
um fyrir vandamálunum. Einnig er vax-
andi skilningur á því að umhverfisvæn
framleiðslukerfi og efnahagsleg
frammistaða fari saman. „Allt snýst
þetta um hugmyndina um sjálfbæra
þróun; að afkomendur okkar geti notað
auðlindina eins og við höfum getað
gert.“
Á níunda áratugnum rann upp tími
endurvinnslu og endumotkunar en nú
eru fyrirtæki, að sögn dr. Huisingh, hér
á landi sem og annars staðar, í auknum
mæli farin að leita í aðferðafræði
hreinnar framleiðslutækni. Með henni
er lögð áhersla á að koma í veg fyrir eða
Afkastameiri og
arðvænlegri aðferð
Hreinni framleiðslutækni er mun
arðvænlegri og afkastameiri en aðrar
aðferðir sem hafa verið notaðar í um-
hverfismálum fyrirtækja, að sögn dr.
Huisingh. I mörgum tilfellum er unnt
að ná fram umhverfisvænum úrbótum
með litlum tilkostnaði en fyrirtækin
beri samt af því fjárhagsleg-
an ávinning.
Samkvæmt rannsóknum
hefur stofnkostnaður fyrir-
tækja verið enginn í um
36% tilfella þegar komið var “
á aðgerðum í anda hreinnar
Islc
O
fyri
fram-
leiðslutækni og í 32% tilvika var endur-
greiðslutíminn styttri en eitt ár.
Naflaskoðun
nauðsynleg
„Til þess að tileinka sér hreinni fram-
leiðslutækni er nauðsynlegt að fyrir-
tækin fari í naflaskoðun. Stundum er
það aðeins spurning um betra heimilis-
hald, til dæmis að skoða rafmagnsreikn-
inginn vandlega, en stöðugt ber að
skoða leiðir til að spara hráefni, vatn og
orku. í öðram tilfellum þurfa fyrirtæki
að nýta sér betri tækni eða áhöld. Einn-
ig þarf að skoða hvort breyta þurfi
framleiðsluvöranni sjálfri á einhvem
máta eða hvort framleiðsluaðferðirnar
séu óhagkvæmar með tilliti til úrgangs
eða mengunar. “
Allir hagnast ef hugsað
er um umhverfið
Ætlunin er að fulltrúar atvinnulífsins
sem hittust á fundi með dr. Huisingh sl.
mánudag, myndi eins konar netverk og
haldi áfram að vinna saman að umhverf-
ismálum atvinnulífsins og koma skila-
f'