Morgunblaðið - 06.04.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
PIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 57
Svínabónd-
anum á
Vallá svarað
í Morgunblaðinu 1.
apríl sl. birtist grein
eftir Geir Gunnar
Geirsson, svínabónda á
Vallá. í greininni gerir
hann að umræðuefni
umfjöllun fjölmiðla um
meint brot svínabúsins
á ákvæðum starfsleyfis
þess um meðferð svína-
mykju og dýrahræja.
Þar sem í greininni er
gefið sterklega í skyn
að samskipti Heilbrigð-
iseftirlits Reykjavíkur
vegna málsins við fjöl-
miðla hafi verið með
óeðlilegum hætti sér
Heilbrigðiseftirlitið sig
knúið til að gera grein fyrir þeim
þætti málsins opinberlega.
Losun svínamykju
A fundi umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur hinn 23. mars
sl. voru lögð fram til kynningar bréf
Heilbrigðiseftirlitsins til tveggja
svínabúa þar sem þeim var veitt ám-
inning skv. 26. gr.laga nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir
vegna meðferðar á svínamykju sem
braut í bága við ákvæði starfsleyfa
þein-a. Annað þessara svínabúa var
svínabúið á Vallá. Áminningarbréf
Heilbrigðiseftirlitsins hafði verið
póstlagt 22. mars en vegna villu í ut-
anáskrift var það endursent daginn
eftir. Síðar þennan dag hafði blaða-
maður DV samband við Heilbrigðis-
eftirlitið og spurðist fyrir um áminn-
ingu annars búsins. Var honum gerð
grein fyrir málinu og jafnframt því
að tvær áminningar sama eðlis hefðu
verið lagðar fyrir fundinn en fundar-
gögn eru opinber gögn samkvæmt
upplýsingalögum og því öllum að-
gengileg. Fékk hann því samskonar
upplýsingar um mál svínabúsins að
Vallá, eins og um mál hins búsins.
Fréttin birtist svo í DV laugardaginn
29. mars sl. Þá voru því 2 dagar frá
því seinna bréfið var póstlagt. Það
var vissulega óheppilegt að fréttir af
áminningunni skulu fyrst hafa borist
Geir Gunnari með frétt DV og eftirá
að hyggja hefði verið rétt að faxa
bréfið til hans um leið og það var
póstlagt. Það breytir þó ekki eðli
málsins sem hér er til umræðu eða
þeirri upplýsingaskyldu sem hvílir á
Heilbrigðiseftirlitinu í slíkum mál-
um.
Urðun dýrahræja
Að morgni mánudagsins 27. mars
barst Heilbrigðiseftirlitinu tilkynn-
ing um að börn hefðu fundið svína-
og grísahræ neðst í Bergvíkurlækn-
um en hann rennur rétt norðan við
Klébergsskóla í Grundahverfi á
Kjalarnesi. Athugun Heilbrigðiseft-
irlitsins sama dag leiddi í ljós að
hræin voru úr urðunarstað svínabús-
ins á Vallá en í vatnavöxtum um nótt-
ina hafði lækurinn flætt yfir bakka
sína og rofið malarlagið sem huldi
svínin með framangreindum afleið-
ingum. Dýrahræ voru í læknum og í
jarðvegsstálinu en höfðu einnig bor-
ist til sjávar og síðan rekið á land.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
hreinsuðu hræin úr neðst úr læknum
en starfsmenn svínabúsins önnur
hræ. Alls var um að ræða um 4 tonn
af hræjum sem ekið var með til
Sorpu.
Daginn eftir höfðu fjölmiðlar kom-
ist á snoðir um atburðinn og höfðu
fréttamenn nokkurra fjölmiðla sam-
band við Heilbrigðiseftirlitið vegna
málsins. Var þeim skýrt frá þætti
Heilbrigðiseftirlitsins í málinu og
hvað komið hefði í ljós. Þá var þegar
búið að fjarlægja hræin.
Reglur um birtingu upplýsinga
um mál sem til meðferðar eru hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Umhverfis- og heil-
brigðisnefnd Reykja-
víkur samþykkti 23.
september 1999 reglur
um birtingu upplýsinga
um mál sem til með-
ferðar eru hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykja-
víkur. I þeim kemur
m.a. fram að svara
skuli öllum almennum
beiðnum til eftirlitsins
um birtingu upplýsinga
vegna einstakra mála
og gefa upplýsingar í
samræmi við upplýs-
ingalög nr. 50/1996.
Upplýsingar skulu
byggjast á staðreynd-
um máls og framsetning vera hlut-
laus og án öfga eða stóryrða. Skv.
reglunum hefur Heilbrigðiseftirlitið
Svínahræ
Ljóst er, segir Tryggvi
Þórðarson, að Heil-
brigðiseftirlit Reykja-
víkur hefur í engu brotið
þær reglur sem settar
hafa verið um upp-
lýsingagjöf þess til al-
mennings og fjölmiðla.
ekki frumkvæði að birtingu upplýs-
inga, nema 1) almannaheill krefjist
þess, 2) um sé að ræða kynningu á
rannsóknar- og átaksverkefnum, 3)
þess sé óskað af umhverfis- og heil-
brigðisnefnd eða 4) til að leiðrétta
rangan fréttaflutning. í reglunum
segir ennfremur að allar upplýsingar
sem lagðar hafa verið fram í um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur verði opinberar um leið og
fundi lýkur.
Samskipti Heilbrigðis-
eftiriitsins við fjölmiðla
í ljósi þess sem rakið hefur verið
er ljóst að Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkur hefur í engu brotið þær reglur
sem settar hafa verið um upplýs-
ingagjöf þess til almennings og fjöl-
miðla. Heilbrigðiseftirlitið hafði ekki
frumkvæði að fréttaflutningnum.
Ekki var um að ræða framleiðslu-
eða viðskiptaleynd eða annað það
sem mælti gegn því að upplýsingarn-
ar yrðu gefnar skv. upplýsingalögum
eða lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir. Þegar Heilbrigðis-
eftirlitið gaf umbeðnar upplýsingar
um fyrrnefnd mál var þess gætt að
haga orðavali svo að fyrirtækin sem í
hlut áttu biðu ekki álitshnekki að
óþörfu. Staðreyndir málsins urðu þó
ekki umflúnar. Umfjöllum um at-
burði af þessu tagi getur vissulega
skaðað orðstír fyrirtækja en þar er
við forráðamenn fyrirtækjanna
sjálfra að sakast en ekki Heilbrigðis-
eftirlitið.
Höfundur er sviðsstjóri
umhverfissviðs Heilbrigðiseftirlits
Reykjuvíkur.
gsm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
Tryggvi
Þórðarson
Ný sjávarútvegs-
stefna - kvótinn aftur
til þjóðarinnar
EITT stærsta rétt-
lætismál landsmanna
er eignarhaldið á auð-
lind sjávar.
Þingflokkur Sam-
fylkingarinnar hefur
sett fram nýjar tillögur
í þessu mikilvæga máli
og lagt fram frumvarp
um breytingar á lögun-
um um stjórn fiskveiða
þar sem tekið er á öll-
um helstu þáttum
málsins. Tillögur Sam-
fylkingarinnar tryggja
yfirráð þjóðarinnar yfir
hinni sameiginlegu
auðlind á ný. Með til-
komu kvótakerfisins
opnuðust tækifæri fyrir þá sem
fengu úthlutað ókeypis veiðiheimild-
um að selja þær eða leigja frá sér og
með tímanum hafa veiðiheimildir
færst á fáar hendur með ófyrirséð-
um afleiðingum.
Ekkert einstakt mál hefur í jafn
ríkum mæli ögrað réttlætiskennd al-
mennings.
Fjármunir streyma út úr grein-
inni og margir velja að hætta að gera
út, leigja eða selja þess í stað frá sér
kvótann. Heilu byggðarlögunum er
við það að blæða út.
Stöðugleiki
greinarinnar tryggður
Samfylkingin leggur til að allar
veiðiheimildir verði kallaðar inn á 10
árum og lagt er til að veiðiheimildir
verði boðnar til leigu til fimm ára í
senn.
Til að koma í veg fyrir spákaup-
mennsku og brask er lagt til að afla-
hlutdeildir sem útgerðir leigja til sín
verði ekki framseljanlegar en þeir
sem leigja veiðiheimildir geti leigt
frá sér 50% aflamarks innan ársins.
Þingflokkur Samfylkingarinnar
leggur aðaláherslu á að tryggja stöð-
ugleika í greininni og að fulls jafn-
ræðis verði gætt hvað varðar aðgang
að veiðum og þannig er opnað á
nauðsynlega nýliðun. Að reglur verði
einfaldar og skýrar og hægt að bjóða
í veiðiheimildir hvar sem er á land-
inu. Fiskveiðiflotanum
verði skipt í þrjá út-
gerðarflokka, m.a. til
að tryggja hagsmuni
landvinnslunnar og
smábátum verði heim-
ilað að leigja til sín afla-
kvóta frá öðrum út-
gerðarflokkum.
Sérstakt tillit til
byggðarsj ónarmiða
Gjald fyrir veiði-
heimildirnar er greitt
með jöfnum greiðslum
á árinu sem heimildim-
ar eru notaðar. I frum-
varpinu er lagt til að
þeir fjármunir sem
falla til vegna leigu veiðiheimilda
renni í ríkissjóð og verði m.a. nýttir
til hafrannsókna. Sérstakt tUlit er
tekið til byggðasjónarmiða og hags;
muna sveitarfélaga í frumvarpinu. f
þeim sjávarbyggðum þar sem um
mikla atvinnuerfiðleika er að ræða
vegna skorts á afla til vinnslu er
heimilað sérstakt útboð á aflahlut-
deildum til útgerða sem skuldbinda
sig til að landa fiski til vinnslu á við-
komandi stað. Með þessum hætti vill
Samfylkingin hamla gegn því
byggðahruni sem núverandi kerfi
hefur óhjákvæmOega leitt af sér með
því að aflaheimildir heilu byggðar-
laganna eru seldar á brott.
Hæstiréttur hefur fengið það
vandasama hlutverk að úrskurða um
það hvort lög um stjórn fiskveiða
Fiskveiðistjórnun
Það er sannfæring þing-
manna Samfylkingar-
innar, segír Rannveig -
Guðmundsdóttir, að
eignarhaldið á sameig-
inlegum auðlindum
þjóðarinnar skuli hvíla
hjá þjóðinni.
standist stjórnarskrá okkar. Vatn-
eyrardómurinn markaði þáttaskil í
allri umræðu um eignarhald á auð-
lindinni og er hann mjög í takt við
réttlætiskennd almennings sem seg-
ir að gjafakvótakerfið sé siðlaust og
standist ekki lög. Það er sannfæring -
þingmanna Samfylkingarinnar að
eignarhaldið á sameiginlegum auð-
lindum þjóðarinnar skuli hvíla hjá
þjóðinni.
Óháð því hvemig dómur Hæsta-
réttar í Vatneyrarmálinu fellur er
það bjargfost trú okkar að það sé
bæði siðlegt og rétt að þjóðin sjálf
fari með eignarhald auðlindarinnar
og njóti sanngjarns arðs af nýtingu
hennar.
Höfundur er formaður þingflokks
Samfylkingarinrmr. t -
5umarBúcíimar.*
Símar 551 9160 og 551 9170
Bæklingur hefur veriö sendur inn á hvert heimili landsins
Rannveig
Guðmundsdóttir
Flokkur Tímabil Aldur Datjar Verð
Skráning í sumarbúðirnar Kaldárseli, Ölveri og Hólavatni
hefst mánudaginn 10. apríl kl. 8. Skráð er í sumarbúðirnar í Vatnaskógi á sama stað.
l.fl. 5. mal-7. maí Mæðgnaflokliur 2 dagar 3.500
2. fl. 31. maí-7. jún* 9-lfára {'89 * '91) 7 dagar 16.900
3.fl. 7. júní * 15. júní 10 -12 iro ('88 -'90) 8 dagar 18.900
4-fl- 15. júní * 22. júní 9-tfára ('89--91) 7 dagar 16.900
fi.fl. 22. júní - 30. júní 10 - Í2 ára ('88 -'901 8dagar 18.900
fi.fl. 4. júlí-ll.júlí 9-11 érafBS-UI) 7 dagar 16900
m ii. júi* - ia jou 10-12áraC88-'90) 7 dagar 16.900
fi.fi. 20. júlí - 27. júlí 9-11éraf89-'91l 7 dagar 16900
3.fi* 27. júli * 3. ógúst 11 -13 éra C87 -'89) 7 dagar 16900
10.fl. 9. ágúst -16. ógúst 9-11 éra C83 -'91) 7 dagar 16.900
n.fl* 16. ágúst - 23. ágúst 10 -12 ára ('88 -'90) 7 dagar 16900
I2.fi. 23. ágúst - 30. ágúst 11-14 éra ('86 '89) 7 dagar 16.900
13.fi.* l.sept.-3. sept 17 ðra og eldri 2 dagar 5.500
14.fl. 6. okt - 8. okt Hjönaflokkur 2 dagar 5.500
* Skýringan Mæðgnaflokkurinn er fyrir 6 óra og eldri. 9. flokkur er ævintýra-
flokkur, 11. flokkur er íþróttaflokkur, 13. flokkur er kvennaflokkur.
KFUM
ummmmmmmM
WkwWwk
Frísk félög
fyrir hressa krakka!
www.kfum.is.
Sumarbúðir KFUK
Skráning í Vindáshlíð hefst
á morgun, föstudaginn 7. apríl kl. 8.00.
Skráning í húsi KFUM og KFUK
á mótum Holtavegar og Sunnuvegar.
Opið kl. 8-16, sími 588 8899.