Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Z?------------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfis-
vinir þakka
SLAGNUM um
Eyjahakka er lokið.
Hið eðlilega hefur
gerst: Yfirmenn Norsk
Hydro hafa séð að sér.
Þökk sé þeim, en fyrst
og fremst öllum þeim
sem höfðu dug og þor
til að fylgja sannfær-
.jjagu sinni.
Þökk sé þeim sem
trúa á heiðarlegar lýð-
ræðisleikreglur. Þökk
sé þeim sem vildu leyfa
náttúrunni að njóta
vafans, og huga jafn-
framt að efnahagslegri
skynsemi.
Umhverfisvinir
koma hvorki sárir né öróttir frá
þessum átökum. Þó hafa þung og oft
á tíðum ómakleg orð fallið. Sumum
okkar hefur verið líkt við landráða-
menn, m.a. Gissur jarl hinn hvíta.
Slíkt munum við ekki erfa né leitast
við að svara með neinum hætti. Við
getum ekki annað en unað sátt við
_ aiðurstöðuna eins og hún liggur nú
fyrir. Við treystum því jafnframt að
ríkisstjórnin sjái nú sóma sinn í því
að tryggja Austfirðingum verðug og
arðbær verkefni á næstu misserum
og að menningar- og atvinnulíf
byggðarlagsins verði styrkt með
myndarlegum hætti. Takmarkið
hlýtur að vera að fullmóta sem allra
fyrst haldbæra framtíðarstefnu í
þeim efnum.
Umhverfisvinir vilja þakka þeim
fjölmörgu sem lögðu lið baráttunni
fyrir lögformlegu umhverfismati.
öjálfboðaliðum hvaðanæva af land-
inu sem lögðu á sig mikið erfiði við
undirskriftasöfnun þökkum við
ómetanlegt starf. Þeim sem styrktu
okkur fjárhagslega eða með öðrum
hætti þökkum við sömuleiðis.
Tveimur stúlkum þökkum við sér-
staklega: Söngkonunni Björk Guð-
mundsdóttur, sem steig fram fyrir
skjöldu og hjálpaði okkur að fanga
athygli alþjóðlegra fjölmiðla, og fjall-
konunni Asdísi Maríu Franklín sem
hjálpaði okkur að fanga athygli jfir-
manna Norsk Hydro ekki síður en
norskra fjölmiðla í mikilvægum loka-
hnykk baráttunnar.
Þá færum við alúðarþakkir öllum
þeim félögum og félagasamtökum
.nym veittu okkur fulltingi, m.a. með
pví að tengja okkur við alþjóðleg um-
hverfissamtök sem sannarlega
skiptu sköpum. Hér ber sérstaklega
að nefna Náttúruverndarsamtök Is-
lands með Arna Finnsson í broddi
fylkingar, Landvernd undir stjórn
Tryggva Felixsonar og loks Eyja-
bakkahópinn góða eða Gjörninga-
hópinn eins og hann er stundum
nefndur. Þingmenn Vinstri grænna
og Samfylkingar
reyndust drjúgir liðs-
menn, sem og ráðherr-
amir fyrrverandi,
Steingrímur Hei-mann-
sson og Hjörleifur
Guttormsson, að ekki
sé minnst á fyrrverandi
forseta lýðveldisins,
Vigdísi Finnbogadótt-
ur. Þá skal ekki látið
hjá líða að nefna hina
kjörnu fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sem stóðu
fast í fæturna við erfið
skilyrði.
Allir þeir fagmenn
og listamenn sem unnu
endurgjaldslaust, komu fram á sam-
komum okkar eða létu listaverk af
hendi rakna til fjármögnunar fá og
Umhverfismat
Umhverfisvinir vilja
þakka þeim fjölmörgu,
segir Jakob Frímann
Magnússon, sem lögðu
lið baráttunni fyrir
lögformlegu
umhverfismati.
einlægar alúðarþakkir. Áskoranir
hinna ýmsu 100 manna-hópa sem
sendu Norsk Hydro og norskum
stjórnvöldum áskoranir, reyndust
vega þungt.
Utilokað væri að tilgreina alla þá
einstaklinga og hópa sem veittu okk-
ur liðsinni. Þeir vita hvað að þeim
snýr og meðtaka einlægan þakkar-
hug okkar hvar sem þeir eru staddir
á landinu eða utan þess. Að endingu
viljum við koma á framfæri þökkum
til allra þeirra ágætu fjölmiðlamanna
sem börðust fyrir málstaðnum, leynt
eða Ijóst. I því samhengi mun t.a.m.
enginn draga í efa mikilvægi hinna
öflugu Reykjavíkurbréfa og leiðara-
skrifa ritstjóra Morgunblaðsins.
Við hlökkum til að gleðjast með
ykkur öllum á sérstakri hátíðarsam-
komu á Hótel Borg nk. laugardag-
skvöld kl. 21. Þar með setjum við
punktinn aftan við þann kapítula í
Islandssögunni er helgaðist af bar-
áttunni fyrir lögformlegu umhverfis-
mati vegna Fljótsdalsvirkjunar.
Við megum sátt una við niðurlag
þess kapítula.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Umhverfisvina.
Jakob Frímann
Magnússon
IBcsífllcscsúnx leysir vandann
Reflectix er 8 mm þykk endurgeislandi einanqrun i rúllum.
7 lög en 2 ytri ulúminíum—lög endurgeisla hitonn.
Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15,38 og 76m.
I háoloft, bok við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi,
tjoldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl.
Skæri. heftibyssa oa límband einu verkfærin.
ÞÞ
&co
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 8 568 6100
- frt þú einmana? - Ert þú í uanda?
- Uantar þig einhuern til að tala uið?
Uinalínan á huerju kuöldi í
síma 800 6404
frá kl. 20-23
Uinalína Rauða krossins
100% trúnaður
Um tengsl kúamjólkur
og sykursýki í börnum
RÓTIN að eftirfar-
andi er grein starfs-
bróður míns, Sigurðar
Sigurðarsonar dýra-
læknis, sem birtist í
Morgunblaðinu laugar-
daginn 15. janúar.
Undimtuðum fannst
ástæða til vissra and-
mæla.
Kúamjólk
og sykursýki
Víða um heim hafa
farið fram athyglis-
verðar rannsóknir til
að átta sig á orsökum
sykursýki. Sérfræðing-
ar virðast sammála um
að erfðir skipta miklu máli í þróun
sjúkdómsins en ýmislegt í fæðinu
einnig. Kúamjólk, soya, hveiti og
fleiri fæðuefni eru í sviðsljósinu
vegna mögulegrar óhollustu fyrir
kornabörn. Komið hefur í ljós að
skandinavísk kúamjólk er svolítið
frábrugðin íslenskri. Norsk mjólk
inniheldur t.d. meira af ákveðnu pró-
tíni Beta() kasein A1 en íslensk
mjólk. Sigurður vh'ðist sannfærður
um að þetta prótín geti í vissum til-
fellum valdið insúlínháðri sykursýki í
börnum (hér skammstafað IHSB).
Lesendum til glöggvunar skal tekið
fram að ekki er þörf að gefa öllum
sykursjúkum insúlín til að halda
sjúkdómnum í skefjum. Kasein þetta
mun valda sykursýki í tilraunamús-
um (það gera hveitiprótín einnig) og
Bob nokkur Elliot mun hafa nefnt
þann möguleika í sínum skrifum að
nefnt mjólkurprótín kunni að vera
skýring hárrar tíðni IHSB í Skand-
inavíu. Sigurður er hvetjandi þess að
nautgriparæktin, neytendasamtök
og opinbeiir aðilar láti málið til sín
taka, væntanlega til að hindra inn-
flutning á fósturvísum nautgripa frá
Noregi. En það mun vera margt i
sambandi við nefnda óhollustukenn-
ingu sem vefst fyrir séríræðingum á
sviði sykursýki barna. Ég hafði sam-
band við einn þeirra. Geir Joner er
sérfræðingur við Ullevál sykehus og
í samtali við hann 27. jan. nefnir
hann eftirfarandi tölur yfir nýgengi
insúlínháðrar sykursýki undir 14 ára
aldri:
Finnland um 30 börn af 100.000
börnum á ári,
Noregur um 20 börn,
Svíþjóð um 25 börn,
ísland um 10 börn.
Utskýrum þetta nán-
ar. Gefum okkur að það
séu um 1 milljón barna
í Noregi á aldrinum 0-
14 ára. Um það bil 210
þeirra ættu því hafa
fengið (í fyi-sta sinn)
sjúkdómsgreininguna
insúlínháð sykursýki á
árinu sem leið. Geir
staðfesti síðan það sem
ég var búinn að heyra
frá öðrum lækni, að
ástandið í Noregi í
þessum efnum hefði
versnað upp úr 1960 og
hefur verið lélegt síðan. A áttunda
áratugnum urðu norskar konur dug-
legri við að gefa börnum brjóst, m.a.
vegna áróðurs heilbrigðisyfirvalda
og hafa verið það síðan. Þetta, segir
Geir Joner, hefur ekki leitt til lækk-
unar á tíðni insúlínháðrar sykursýki
undh’ 14 ára aldri. Svipaða reynslu
hafa Finnar. Ef kasein A1 er veru-
legur skaðvaldur hefði tíðnin átt að
lækka mælanlega við verulega aukn-
ingu á brjóstagjöf. Hafi prótínið
skaðleg áhríf á briskirtilinn (sem
framleiðir insúlín) er eðlilegt að ál-
ykta að mestu skemmdirnar eigi sér
stað á fyrstu ævimánuðum barnsins.
Þá nefndi Geir einnig að nýgengi
IHSB hefði hækkað í syðsta hluta
Noregs fyrir nokki’um árum á sama
tíma og önnur svæði stóðu í stað en
erfitt var að sjá samhengi við kúa-
mjólkina.
Ég tek það fram að ég er fylgjandi
því að fara betur ofan í faraldsfræð-
ina til þess að kanna hollustu mjólk-
urefna bæði okkar vegna og kom-
andi kynslóða. Öll Norðurlönd eiga
langt í land með að slá ýmsum svæð-
um í Asíu við, þar er nefndur kvilli
mjög sjaldgæfur.
Þá ætla ég að snúa mér að þeim
þætti í áróðri Sigurðar og Stefáns
Aðalsteinssonar búfjárræktarmanns
sem mér finnst einna skemmtileg-
astur.
Uppræta á úr íslenskum kúm gen-
ið sem stjórnar framleiðslu kasein
A1 og hefja útflutning á hollu mjólk-
urdufti. Þarna er sem sé bent á at-
hyglisverða búbót og enn eina
ástæðu til þess að hafna innflutningi
Sykursýki
Tíðnin hefði átt að
lækka mælanlega,
segir Sveinn Helgi
Guðmundsson, við
verulega aukningu á
brjóstagjöf.
á norskum „gallagripum". Ég sem
þetta rita hef mínar efasemdir um að
útlendingar standi lengi í því að
borga flutning undir íslenskt mjólk-
urduft. Myndu þeir ekki hefja sjálfir
framleiðslu á slíku mjólkurdufti?
Um helmingur norskra kúa er laus
við kasein A1 „óhæfuna“. Ef menn
ætla sér tekur það ekki langan tíma
að koma upp „hreinum“ hjörðum
þangað sem mjólkursamlag getur
síðan sótt hráefni í sitt hollustuduft.
Það þarf ekki að hreinsa allar norsk-
ar hjarðir til þess að koma slíku á fót.
Þetta er full einfalt triks hjá þeim fé-
lögum.
I nýlegri yfirlitsgrein sem áður-
nefndur Geir Joner og samstarfsaðili
hans, Lars Christian Stene, hafa
samið kemur fram fjöldi atriða sem
læknavísindin eru að athuga til að
átta sig á orsökum sykursýki. Nokk-
ur af þeim atriðum tengjast kúa-
mjólk og gefa þeir félagar í skyn að
svo kunni að fara að foreldrum verði
ráðlagt að gefa ekki börnum undir 9
mánaða aldri kúamjólk. Það eru
nefnilega fleiri efni í kúamjólkinni en
kasein sem eru í sviðsljósinu. Þarm-
ar kornabarna hleypa ýmsum pró-
tínum frá meltingarveginum inn í
líkamann gegn um þarmana. Sum
prótín eru óhollari en önnur, geta t.d.
valdið viðbrögðum í ónæmiskerfinu
og skemmdum á brisi eða öðrum líf-
færum. Insulínháð sykursýki meðal
barna (type I diabetes mellitus)
brýst fram sem sjúkdómur þegar að
ónæmiskerfið hefur skemmt meiri
partinn af insúlínframleiðslu bris-
kirtilsins.
Höfundur er dýralæknir við rann-
sóknastofu og ber ábyrgð á sjúk-
dómagreiningum nautgripa.
Sveinn Helgi
Guðmundsson
Ungt fólk í stjórnmálum
HINN 18. janúar
1997 var Gróska, sam-
tök jafnaðar- og félagS;
hyggjufólks, stofnuð. í
stofnsamþykkt sam-
takanna var kveðið á
um að aðild að samtök-
unum væri öllum opin
sem aðhylltust mark-
mið samtakanna,
flokksbundnum sem
óflokksbundnum.
Markmið samtakanna
var að upp risi öflug
sameinuð hreyfing
jafnaðarmanna á Is-
landi.
Ég hafði ekki áður
verið aðili að stjórn-
málahreyfingu en aðhylltist mark-
mið samtakanna og var óflokksbund-
inn svo ég uppfyllti aðildai’kröfur
samtakanna og skráði mig sem fé-
lagsmaður í Grósku.
Samtökin hvöttu til sameiginlegs
framboðs A-flokkanna og afhentu
fulltrúum ílokkanna m.a. drög að
stefnuskrá sem Gróska hafði unnið
svo og 100 daga áætlun, kæmust
flokkarnir til valda.
Öllum má ljóst vera að ætlun
Grósku gekk ekki eftir fyrir Alþing-
iskosningarnar sem fram fóru á síð-
asta ári þar sem Vinstrihreyfíngin -
grænt framboð og Samfylkingin
buðu fram í stað A-flokkanna.
Markmiði samtakanna hefur því
ekki verið náð.
Nú hefur verið boðað
til landsfundar Grósku
og leggur stjórn sam-
takanna til að sótt verði
um aðild að Samfylk-
ingunni. Segir í fundar-
boði að stjórn Grósku
telji slíka umsókn eðli-
lega í framhaldi af
starfi Grósku og þeim
markmiðum sem félag-
inu voru sett í upphafi.
Það má Ijóst vera af
ofanrituðu að ég er al-
gerlega ósammála
stjórn Grósku um að
markmiði samtakanna
hafi verið náð og sækja
beri um aðild að Samfylkingunni.
Þar að auki get ég ekki sætt mig við
að stjórn Grósku sæki um aðild að
stjómmálaflokki fyrir mig.
Ég tel því rétt að segja mig úr
Grósku og hef sent stjórninni úrsögn
mína.
(SUS)2
Samband ungra samfylkingar-
manna (SUS') var stofnað fyrr í
mánuðinum. Formaður sambandsins
var kjörinn Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son en hann sat í fyrstu stjórn
Grósku. Undanfarið hefur Vilhjálm-
ur með málflutningi sínum staðið í
yfirboðum gagnvart stefnumálum
Sambands ungra sjálfstæðismanna
Stjórnmálahreyfing
*
Eg hef verið talsmaður
þess, segir Bjarki Már
Magnússon, að ungt fólk
taki virkan þátt í stjórn-
málaumræðunni og eigi
sinn talsmann á Alþingi.
(SUS2). Slíkur málflutningur er mér
engan veginn að skapi.
Eg hef verið talsmaður þess að
ungt fólk taki virkan þátt í stjórn-
málaumræðunni og eigi sinn tals-
mann á Alþingi. Hinn 17. mars sl. var
birt hér í blaðinu ályktun frá nor-
rænum þingmönnum á aldrinum 25-
35 ára. Sú staðreynd að á næsta ári
mun enginn þingmaður á íslandi
vera á þessu aldursbili ætti að vera
Islendingum áhyggjuefni. Ungt fólk
á að mínu mati fullt erindi í umræðu
flokkanna sem fullgildir aðilar og
einungis fjötrar að starf ungs fólks
fari fram í sérfélögum.
Von mín er að rödd ungs fólks sem
vill jöfnuð í þjóðfélaginu fari að heyr-
ast í umræðu innan stjórmálaflokk-
anna, í fjölmiðlunum og á Alþingi ís-
lendinga.
Höfundur er nemi.
Bjarki Már
Magnússon