Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 6

Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gott færi framundan á ísnum Ljósmynd/Ingþór Bjamason LR og Iðnó ná samkomulagi um leikkonur HARALDUR Örn Ólafsson pdlfari gekk 18,8 km á leið sinni á norður- pólinn í fyrra- dag, sem er einn allra besti árangurinn síð- an leiðangurinn hófst fyrir 34 dögum. Haraldur hef- ur alls gengið 302 km af 770 km og nálgast 86. breiddargráðu. Hann gekk á traustum ís í fyrra- dag og sagðist ánægður með árang- urinn í símtali við bakvarðasveit leiðangursins í Utilífi í hádcginu í gær. Hann rak 2 km til austurs á heimskautaísnum í fyrrinótt, sem er mun minna en daginn áður er hann rak tæpa fimm kílómetra. Haraldur bjóst við að ljúka góðri dagleið í gær, enda virtist ísinn framundan vera tiltölulega sléttur. I gærmorgun þegar Haraldur vaknaði og fann vindinn beija á tjaldinu, leist honum ekki vel á veðrið vegna hvassviðris en þegar hann ákvað að ganga af stað reynd- ist veðrið ekki eins slæmt og hann taldi í fyrstu. „Gærdagurinn var því fínn og engar vakir urðu á vegi mínum. Ég gekk á traustum ís í ágætis færi fyrstu tvær göngulot- urnar en si'ðar þyngdist færið. Ég fann þó alltaf leið framhjá úfnustu svæðunum ogkomst alltaf fljótt inn á opin svæði. Ég bætti svo við einni göngulotu í gær og gekk því alls í sex lotum yfir daginn," sagði Har- aldur við bakvarðasveitina. Hver göngulota er 90 mínútur að lengd og þá tekur við um 15 mi'nútna hvfld samkvæmt skipulagi Har- aldar. Ingþór Bjarnason fór til Kanada í gær og verður kominn til Resolute á laugardag til að undirbúa birgða- flugtil Haraldar 19. aprfl. Ingþór flýgur þá út á ísinn og færir Har- aldi 40 daga nesti og nýja sleða. LEIKHÚSSTJÓRAR Borgarleik- hússins og Iðnó hafa komist að samkomulagi eftir að deilur risu um þrjár leikkonur, sem allar áttu að leika í sýningunum Stjörnur á morgunhimni og Kysstu mig Kata sem auglýstar höfðu verið í Iðnó og í Borgarleikhúsinu á sama tíma næstkomandi sunnudagskvöld. Samkomulag leikhúsanna felst í því að þau kvöld sem báðar sýning- arnar eru í gangi munu þær Sigrún Edda Björnsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir leika í Stjörnum á morgunhimni í Iðnó en Jóhanna Vigdís Arnardóttir mun þá leika í Kysstu mig Kata. Þau kvöld sem verkið Stjörnur á morgunhimni er eingöngu sýnt leika Sigrún Edda og Jóhanna Vigdís allar sýningar en íhlaupamanneskja mun leika helming sýninganna á móti Eddu Björgu. Sýningu í Iðnó frestað næsta sunnudag Leikstjórar sýninganna munu æfa inn nýja leikara til að leika í stað þeirra leikkvenna sem þurfa að víkja þegar báðar sýningar eru í gangi. Næsta sunnudagskvöld verður þó sýningunni í Iðnó frestað þar til síðar í vikunni, þar sem tím- inn er talinn of knappur til að æfa inn nýjar leikkonur. Karl Pétur Jónsson, stjórnarfor- maður Leikfélags íslands, sagðist vera fyllilega sáttur við þetta sam- komulag. Það tryggði hag beggja leikhúsanna og allra leikkvenn- anna, sem væri ekki síður mikil- vægt. Að sögn Karls eru Stjörnur á morgunhimni í stöðugri og góðri sölu og vænta menn þess hjá Iðnó að sýningar gangi eitthvað fram á vorið. „Eg á ekki von á því að svona tilvik komi upp aftur. Við erum hæstánægðir með samkomulagið og mjög bjartsýnir á framhaldið." Algjört einsdæmi að taka tillit til lítilla leikhópa Þórhildur Þorleifsdóttir leik- stjóri sagðist geta sætt sig við sam- komulagið og að mestu skipti að halda Jóhönnu Vigdísi í sýning- unni, enda væri hún þar í aðal- hlutverki. í stað þeiiTa Sigrúnar Eddu og Eddu Bjargar koma þær Edda Björgvinsdóttir og Ragnhild- ur Gísladóttir, sem Þórhildur segir vera ágætan kost í stöðunni. Hún segir þetta atvik algjört einsdæmi og að það hafi aldrei koniið uþp áður að Þjóðleikhúsið eða Leikfélag Reykjavíkur tækju tillit til smárra leikhópa, þótt heið- ursmannasamkomulag hafi verið á milli þessara tveggja stóru at- vinnuleikhúsa. „Enda er ekki hægt að jafna saman þeirri ábyrgð sem við höfum gagnvart okkar starfsfólki og okk- ar rekstri og einhverjir litlir leik- hópar. Leikfélag Reykjavíkur er að borga hátt í 200 manns laun um hver mánaðamót og er auðvitað vinnustaður fyrir miklu fleiri en það yfir árið. Og maður væri ekki með réttu ráði ef maður léti ein- hverja litla leikhópa úti í bæ ráða tekjuöflun leikhússins.“ Stefnir deCODE genetics ERNIR Snorrason, einn af stofn- endum Islenskrar erfðagreining- ar, IE, hefur höfðað mál gegn deCODE genetics, móðurfélagi ÍE, fyrir dómstóli í Delaware í Bandaríkjunum og krefst viður- kenningar á eignarhlutdeild sinni í félaginu. Samkvæmt frétt Reutersfrétt- astofunnar var mál Ernis þing- fest í rétti í Delaware í Banda- ríkjunum á mánudag. í stefnunni segir Ernir að fyrirtækið hafi með óréttmætum hætti reynt að gera að engu rétt Ernis á 256.637 hlutum af 481.200 hlutum í félag- inu. Samkvæmt málsgögnunum keypti deCODE hlutabréfin aftur af Erni í samræmi við samkomu- lag sem undirritað var í ágúst 1996, skömmu eftir að fyrirtækið var skráð í Delaware. í kærunni segir Ernir að krafa félagsins um að það geti með lög- legum hætti keypt til baka hluta af hlutafénu þegar hann hætti störfum, sé ekki gild þar sem hann hafi aldrei starfað hjá félag- inu. Þegar félagið var stofnað áttu Ernir og Kári Stéfánsson, forstjóri ÍE, 35% hluta hvor í þvi og tveir aðrir hluthafar 15% hvor. Auk þess að fara fram á viðurkenningu á eignarhlut fer Ernir fram á ótilgreinda fjárhæð í skaðabætur. Talsmaður deCODE í New York sagði í samtali við Reuters að hann gæti ekki tjáð sig um málið þar sem sér væri ekki kunnugt um kæruna. Ernir vildi ekki tjá sig um mál- ið að svo stöddu þegar Morgun- blaðið hafði samband við hann í gær. Einnig var leitað álits Is- lenskrar erfðagreiningar, dóttur- fyrirtækis deCODE, á málinu en forsvarsmenn fyrirtækisins vildu ekki tjá sig um málið. ! NOnÐÚRPÓLL 2000 Sýknaðir af ákæru um amfeta- mínsmygl TVEIR menn um þrítugt hafa verið sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa smyglað rúm- lega einu kg af amfetamíni í notaðri bifreið sem flutt var inn frá Þýska- landi fyrir rúmum tveimur árum. Lögreglan í Reykjavík og toll- gæslan lögðu hald á rúmlega eitt kíló af amfetamíni í byrjun mars 1998 og voru mennirnir handteknir vegna málsins og úrskurðaðir í gæsluvarð- hald. Stjórnarformaður fslandssíma harðorður í garð Landssímans á aðalfundi í gær Stjórnendur staðið fyrir um- fangsmikilli ríkisvæðingu „ÞAÐ er athyglisvert að á sama tíma og verið er að tala um einka- væðingu Landssímans hafa stjórn- endur fyrirtækisins staðið fyrir um- fangsmikilli ríkisvæðingu í upplýsinga- og fjarskiptaiðnaðin- um,“ sagði Páll Kr. Pálsson, stjórn- arformaður Íslandssíma hf., í ræðu á aðalfundi félagsins í gær. Sagði hann að nánast engir fyrir- Ljádu þeim eyra á Súfistanum fimmtudaginn 13. apríl kl. 20 Kvöldvísur um sumarmál Dagskrá í tilefni af útkomu heildarsafns Ijóða Stefáns Harðar Grímssonar. Eysteinn Þorvaldsson ræðir um skáldið og ieikararnir Hjalti Rögnvaldsson og Brynhildur Björnsdóttir tesa úr Ijóðum Stefáns Harðar. Vika bókarinnar 11.-17. apríl Æj&*V, ®Mál og menningl J malogmenning.isl Laugavegi 18 • Síml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfml 510 2500 varar virtust hafðir af hálfu eiganda Landssímans um það hversu langt fyrirtækið mætti ganga í fjárfest- ingum í fyrirtækjum í skyldum rekstri. „Stjómendur fyrirtækisins hafa eðlilega nýtt sér ótakmarkað svigrúm sitt og er nú svo komið að Landssíminn hefur keypt stóra hluti í fjölda fyrirtækja á nánast öllum sviðum fjarskiptatækninnar," sagði Páll. I ræðu sinni lagði hann áherslu á að undirbúa þyrfti einkavæðingu Landssímans afar vel og taka tillit til sjónarmiða allra aðila, þeirra sem að markaðinum kæmu. Þó væri al- gerlega ótímabært að ráðast í þetta verkefni fyrr en Landssíminn fylgdi lögum. „Það hefur Landssíminn ekki gert eins og síendurteknar málshöfðanir og kærur á hendur honum sanna.“ Sala til eins aðila hneppir fólk og fyrirtæki í enn meiri fjötra Ennfremur kom fram í máli Páls að ef það væri markmið ríkisvalds- ins að einkavæða allt fyrirtækið með sölu til eins aðila þá yrði að tryggja samkeppniseftirlit frá umhverfi fyr- irtækisins. Slíkt væri alls ekki til staðar í dag. Sagði Páll að öflug samkeppni væri heldur ekki til stað- ar í dag og fyrirtæki á markaðinum, sem væru lítil í samanburði við Landssímann, yrðu undantekning- arlaust íyrir mjög hörðum viðbrögð- um af hálfu fyrirtækisins hvar sem þau reyndu að bera niður með þjón- ustu sína. „Ef ríkisstjórnin telur mikilvægt Íslandssírr Úr ársreikningi 199Í li hf. ) Rekstrarreikningur 1999 1998 Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Eignarskattur 11,8 98,7 8,3 0,2 Hagnaður (tap) ársins -90,6 Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Eignir samtals Milljónir króna Eigið fé Skuldlr 1.151.6 6,7 422,5 729,2 4,0 2,7 Skuidir og eigið fé samtals 1.151,6 6,7 Sjóðstreymi 1999 1998 Veltufé til rekstrar Milljónir króna -81,5 að stíga fljótlega einhver skref i átt til einkavæðingar Landssímans væri skynsamlegast að einkavæða íyrirtækið í einingum," sagði Páll og kvaðst vera þeirrar skoðunar að sala Landssímans til eins aðila, við einkavæðingu, myndi miðað við ástand markaðsins og samkeppni í dag hneppa fólk og fyrirtæki í enn meiri fjötra en ríktu í fjarskiptamál- um þjóðarinnar fyrir fáeinum árum. Islandssími mun bjóða hvers kyns gagnaflutninga á tali, tónum, mynd- um og máli, að því er fram kom í máli Páls Kr. Pálssonar. Helstu þættirnir í þjónustunni verða almenn talsímaþjónusta inn- an- og utanlands, internetþjónusta, gagnaflutningar á milli fyrirtækja, innhringiþjónusta og margvísleg önnur stalrfsemi. Ein breyting varð á stjórn fyrir- tækisins á aðalfundinum í gær. Sveinn Valfells gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en í stað hans kom Vilhjálmur Þor- steinsson. Auk hans eiga sæti í stjórn Íslandssíma Páll Kr. Pálsson, Eyþór Arnalds, Margeir Pétursson og Kristján Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.