Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
i 1 T f I • ii f MorgunDlaoio/Knstinn
Gert klart íyrir næsta tur
Það er að ýmsu að huga áður en haldið er úr höfn enda eins gott að veiðar- ir sjómenn höfðu í nógu að snúast niðri við Grandagarð í gær þar sem þeir
færin séu í lagi þegar komið er út á reginmið og löng sigling til lands. Þess- voru að splæsa vírana eða taka í eins og eina kríulöpp.
RKÍ ekki með
símasöfnun fyr-
ir Mósambík
AÐ GEFNU tilefni vill Rauði kross
Islands taka fram að félagið er ekki
að hringja í fólk vegna söfnunar fyrir
Mósambík. Borist hafa tilkynningar
til Rauða krossins um að hringt hafi
verið til fólks og það beðið að gefa
upp greiðslukortanúmer í síma.
Þessar hringingar hafa ekki komið
frá Rauða krossinum.
Þegar hringt er frá Rauða krossi
íslands kemur númerið 570 4000 upp
á símnúmerabirti og er fólk beðið að
hafa það í huga þegar það tekur við
símhringingum sem sagðar eru vera
í nafni félagsins.
Svik sem þessi, sem hér virðast
vera höfð frammi, bitna ekki bai'a á
þeim sem hringt er í heldur ekki síð-
ur á fórnarlömbum hamfara sem
reiða sig á aðstoð Rauða krossins
þegar neyðin er sem mest, segir í
fréttatilkynningu. RKÍ hefur til-
kynnt málið til lögreglúi' og þeir sem
fá svona hringingar á næstu dögum
eru beðnir að hafa samband við hana.
Bréfaskipti milli Landssímans og Samkeppnisstofnunar um meinta mismunun á útlandasímtölum
Landssíminn kynnti
hækkun GSM-álags í
bréfi um miðjan mars
FRÉTT Morgunblaðsins 5. apríl sl.
um að Samkeppnisstofnun hafi í bréfi
til Landssímans gefið til kynna að svo
kunni að fara að stofnunin beiti fyrir-
tækið sektum hækki það ekki álag á
millilandasímtöl úr GSM-símum hef-
ur orðið tilefni til orðaskipta í blaðinu
milli forsvarsmanna Samkeppnis-
stofnunar, Landssímans og Frjálsra
fjarskipta enda segist Samkeppnis-
stofnun að Síminn hafi hækkað álagið
án afskipta stofnunarinnar. Morgun-
blaðið hefur undir höndum bréf sem
fóru á milli aðilanna þriggja áður en
fyrrnefnd frétt birtist í blaðinu og eru
þau samskipti rakin hér á eftir í þeim
tilgangi að varpa ljósi á málavöxtu.
Haft var eftir Olafi Þ. Stephensen-
.forstöðumanni upplýsinga- og kynn-
ingarmála Landssíma Islands hf., í
frétt 5. apríl sl. að Samkeppnisstofn-
un hefði í bréfi til Landssímans gefið
til kynna að svo kynni að fara að
stofnunin beitti fyrirtækið sektum
hækkaði það ekki álag á millilanda-
símtöl úr GSM-símum. Er haft eftir
Ólafi að viðbrögð Samkeppnisstofn-
unar hafi komið í lgölfarið kæru frá
Fijálsum fjarskiptum vegna meints
aðstöðumunar á útlandasímtölum úr
GSM-símum og að í framhaldi af því
að Samkeppnisstofnun hafi tekið
undir kröfu Fijálsra fjarskipta hafi
Landssíminn hækkað álag á
GSM-símgjöldum sínum til útlanda
um rúmlega 5 kr. á daginn og 50 aura
á kvöldin hinn 28. mars sl.
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs Samkeppn-
isstofnunar, segir hins vegar í frétt
blaðsins hinn 6. apríl sl. að Landssím-
inn hafi hækkað álagið án nokkurra
afskipta Samkeppnisstofnunar. Segir
Guðmundur að Samkeppnisstofnun
hafi ekki beint neinum fyrirmælum
eða tilmælum til Landssímans um að
hækka GSM-álag vegna máls
Frjálsra fjarskipta enda væri því
máli ólokið.
Morgunblaðið hefur ndir höndum
bréf sem fóru á milli málsaðila á tíma-
bilinu 15. febrúar til 27. mars sl. Hið
fyrsta er undirritað af lögmanni
Frjálsra fjarskipta, Eyvindi Sólnes
lögfræðingi, fyrir hönd Gísla Baldurs
Garðarssonai' hrl. Er það stílað á
Samkeppnisstofnun, hinn 15. febrúar
sl, og í því greint frá því að Fijáls
fjarskipti hafi falið undirrituðum lög-
manni að gera þá kröfu til Sam-
keppnisstofnunar að hún taki ákvörð-
un til bráðabirgða samkvæmt
heimild í 8. gr. samkeppnislaga nr. 8/
1993 um að gera GSM-deild Lands-
símans skylt að bjóða þeim símnot-
endum sem vilji hringja um útlanda-
gátt annarra aðila sömu kjör og
þjóðast ef hringt er um útlandagátt
Landssíma íslands hf.
Að auki er þess krafist í bréfinu að
Landssímanum yrði gert að greiða
hámarkssekt skv. 52. gr, sbr. 51. gr
samkeppnislaga nr. 8/1993 með hlið-
sjón af eðli og umfangi meints brots.
Síðar í bréfinu er bent á þá stað-
reynd að þegar hringt er úr GSM-
síma sem væri í áskrift hjá Símanum-
GSM um útlandagátt Frjálsra fjar-
skipta hf. væri kostnaður á mínútu á
bilinu 13 til 18 krónur auk kostnaðar
við utanlandssímtalið en ef hringt
væri í og um útlandagátt Landssíma
Islands hf væri kostnaður á mínútu
7,47 kr. auk kostnaðar við utanlands-
símtalið.
„Umbjóðandi minn [Frjáls fjar-
sldpti] telur að með ofangreindri
háttsemi þar sem viðskiptamönnum
GSM-símans er boðið lægra verð ef
þeir hringja um útlandagátt Lands-
síma Islands hf. en ef þeir hringja um
aðrar útlandagáttir hafi forráðamenn
fyrirtækisins [Landssímans] með vís-
vitandi og lævíslegum hætti brotið
gegn skýrum reglum samkeppnisyf-
irvalda," segir í lok bréfsins.
Deilt um rétt til
bráðabirgðaákvörðunar
í framhaldi af þessu sendir Sam-
keppnisstofnun bréf til Landssíma
íslands hf. dagsett 24. febrúar sl. þar
sem skýrt er frá innihaldi fyrr-
greinds bréfs frá lögmanni Frjálsra
fjarskipta. „Með hliðsjón af því að
krafist er ákvörðunar til bráðabirgða
er þess óskað að umsögn yðar
[Landssímans] og umbeðin gögn ber-
ist Samkeppnisstofnun eigi síðar en
fimmtudaginn 2. mars nk. Að þeim
tíma liðnum verður tekin ákvörðun
um hvort skilyrði séu til töku bráða-
birgðaákvörðunar í þessu máli sbr. 8.
gr. samkeppnislaga nr. 8/1993,“ segir
í lok bréfs Samkeppnisstofnunar til
Landssímans.
í svari Landssímans við þessu
bréfi, dagsettu hinn 28. febrúar sl.
segir m.a. að í erindi Frjálsra fjar-
skipta sé ekki að finna nokkra vís-
bendingu um hvaða brýnu fjárhags-
legu hagsmunir eða yfirvofandi
hætta kalli á að grípa skuli til bráða-
birgðaákvörðunar. „Kvartandi færir
m.ö.o. engin rök fyrir því að skilyrði
fyrir beitingu bráðabirgðaákvörðun-
ar séu uppfyllt," segir m.a. og með
hliðsjón af því sem og öðrum atriðum
sem Landssíminn nefnir í bréfi sínu
en ekki þykir ástæða til að telja hér
upp taldi Landssíminn sér ófært að
tjá sig um kröfu Frjálsra fjarskipta
um bráðabirgðaákvörðun fyrr en fyr-
irtækið þ.e. Fijáls fjarskipti hefði
fært viðeigandi rök fyrir ló-öfugerð
sinni.
Enn halda bréfaskiptin áfram og í
bréfi Samkeppnisstofnunar hinn 1.
mars sl. til Landssímans er ítrekað að
fyrrnefnt erindi Fijálsra fjarskipta
til Samkeppnisstofnunar fjalli um
meinta mistnotkun Landssíma ís-
lands hf. á markaðsráðandi stöðu
sinni gagnvart Fijálsum íjarskiptum
hf. sem er nýr aðili á fjarskiptamark-
aði.
„Eins og staðfest er með úrskurði
áfrýjunamefndar samkeppnismála
nr. 11/1999 hefur Landssími íslands
hf. einstæða yfirburðastöðu í síma-
þjónustu hérlendis, þ.ám. á sviði
GSM-þjónustu. Að mati samkeppnis-
yfirvalda eru mál jafnan talin brýn
þegar markaðsráðandi fyrirtæki eru
hugsanlega að hindra innkomu nýs
aðila á markaðinn. Samkeppnisstofn-
un telur því rétt að taka til athugunar
kröfu Fijálsra fjarskipta hf. um bráð-
abirgðaákvörðun á grundvelli þeirra
upplýsinga sem fram koma í erindi
félagsins dags. 15. febrúar sl.,“ segir í
bréfinu.
Er síðan beiðni Samkeppnisstofn-
unar um umsögn Landssímans og
umbeðin gögn, sem fram kemur í
bréfinu frá 24. febrúar sl. ítrekuð og
óskað eftir svari eigi síðar en í lok
vinnudags 3. mars.
Landssiminn og Fijáls Ijarskipti
reyna samningaleiðina
Þegar hér er komið við sögu eða
hinn 3. mars sl. berst Samkeppnis-
stofnun rafpóstur frá Fijálsum
fjarskiptum þar sem óskað er eftir
því að stofnunin bíði með úrskurð
sinn í málinu þar sem forsvarsmenn
Landssímans hafi óskað eftir að
semja beint við Frjáls fjarskipti.
Kemur fram í rafpóstinum að Frjáls
fjarskipti telji rétt að láta reyna á
slfkt og miði við að samningar geti
tekist á næstu tveimur vikum. Náist
á hinn bóginn ekki samningar fyrir
þann tíma fari Fijáls fjarskipti fram
á að Samkeppnisstofnun úrskurði í
málinu.
Sama dag berst Samkeppnisstofn-
un bréf frá Landssímanum þar sem
skýrt er frá því að starfsmenn Lands-
símans og FVjálsra fjarskipta hafi átt
fundi hinn 1. og 2. mars árið 2000. I
bréfinu segir m.a. að á fyrri fundinum
hafi orðið að samkomulagi að leitað
yrði lausna milli aðila vegna athuga-
semda sem fram hafi komið og lúti að
meintri mismunun eftir því hvort
hringt væri um útlandagátt Lands-
síma Islands hf. eða um útlandagátt
Frjálsra fjarskipta. Ákveðið hafi ver-
ið að funda sérstaklega um málið í
húsakynnum Landssímans hinn 8.
mars.
„Jafnframt hefur orðið að sam-
komulagi að Frjáls fjarskipti aftur-
kalli kvörtun sína og beiðni um milli-
göngu samkeppnisyfirvalda á meðan
leitað er lausna milli aðila. I því Ijósi
sér Landssíminn ekki ástæðu til að
veita Samkeppnisstofnun umsögn
um erindi Fijálsra fjarskipta. Það
skal hins vegar upplýst að umrædd
gjaldskrárbreyting átti sér stað 1.
janúar 1999, en þá lækkuðu álags-
gjöld á símtöl til útlanda úr GSM-
farsímum í kr. 7,47 fyrir hveija mín-
útu í Ijósi markaðsaðstæðna," segir
að síðustu í bréfi Landssímans.
[Landssíminn hafði hins vegar í upp-
hafi GSM-þjónustu sinnar lagt 14,94
kr. á útlandataxtann.]
Samkvæmt þeim gögnum sem
Morgunblaðið hefur undir höndum
sendir Landssíminn næst bréf til
Frjálsra fjarskipta, dagsett hinn 15.
mars sl., en þar segir: „Eins og fram
hefur komið varð sú breyting gerð á
gjaldskrá farsímasamtala til útlanda
þann 1. janúar 1999, að álagsgjald á
símtöl til útlanda úr farsímum lækk-
aði í kr. 7,47 fyrir hverja mínútu.[...]
Eftir að Frjáls fjarsldpti vöktu at-
hygli á, að þessi háttur á gjaldtöku
gæti leitt til mismununar eftir því
hvort hringt er í útlandagátt Lands-
símans eða útlandagátt þriðju aðila,
hefur gjaldtaka þessi verið endur-
skoðuð.
Til þess að auðvelda aðgang nýrra
aðila að markaði fyrir útlandasímtöl
sem uppruna sinn eiga í GSM þjón-
ustu Landssímans verður álagsgjald-
ið hækkað í kr. 12,50 (með vsk) þegar
símtöl fara um útlandagátt Lands-
símans."
Lögmaður Frjálsra fjarskipta
sendi Samkeppnisstofnun afrit af
bréfi því sem hér er vitnað til og
skrifaði um leið erindi til stofnunar-
innar, dagsett 21. mars sl., þar sem
greint er frá því að öll umræða milli
Frjálsra fjai-skipta og Landssímans
um umrætt mál hafi engan árangur
borið. Segir í erindinu að Landssím-
inn hafi hækkað verð á mínútu úr 7,47
kr. í 12,50 kr. en jafnframt bent á að
þeir viðskiptavinir Símans GSM sem
kjósi að nota aðrar símgáttir greiði 18
kr á mínútu.
„Þó svo að verðmunur sé með
þessu minnkaður er honum viðhaldið
þrátt fyrir að Landssími Islands við-
urkenni í bréfi sínu að um mismunun
sé að ræða.“ Er í lok bréfsins ítrekað-
ar þær kröfur sem komu fram í bréfi
lögmanns Frjálsra fjarskipta hinn 15.
febrúar sl. „Þess ber að geta að aug-
Ijóst þykir að brýnir fjárhagslegir
hagsmunir eru fylgjandi því að tekin
sé ákvörðun til bráðabirgða í máli
þessu. Kvörtun var frestað vegna
óska Landssímans og mátti umbjóð-
andi minn [Frjáls fjarskipti] ætla að
Landssíminn myndi því lagfæra þá
augljósu mismunun sem átti sér stað.
Þar sem mánuður er liðinn frá dags-
etningu kvörtunar eru nú enn brýnni
hagsmunir fylgjandi því að endir
verði bundinn á gróft brot Landssím-
ans gegn skýrum reglum samkeppn-
isyfirvalda," segir að síðustu.
Óskað eftir upplýsingum um
gj aldskrárbreytingar
Síðasta bréfið í máli þessu, sem
Morgunblaðið hefur undir höndum,
er frá Samkeppnisstofnun til Lands-
síma íslands hf. Þar er vísað til fyrr-
greinds bréfs lögmanns Frjálsra
fjarskipta til Samkeppnisstsofnunar
og Landssímanum gefinn kostur á að
koma sjónarmiðum sínum á framfæri
varðandi þær athugasemdir sem
fram koma í því bréfi. Auk þess er
óskað eftir fleiri upplýsingum svo
sem nákvæmari lýsingu á aðdrag-
anda, tilefni og tilgangi gjaldskrár-
breytingarinnar hinn 1. janúar 1999,
sem áður var vitnað til og ennfremur
er óskað eftir aðdraganda, tilefni og
tilgangi gjaldskrárbreytingar þeirr-
ar sem Landssíminn greindi frá í
bréfi sínu til Frjálsra fjarskipta hinn
15. mars sl., þ.e. hækkun álags í 12,50
kr. þegar símtöl fara um útlandagátt
Landssímans.
Að síðustu segir: „Athygli yðar er
vakin á því að ef samkeppnisyfirvöld
komast að þeirri niðurstöðu að í máli
þessu bijóti háttsemi Landssíma Is-
lands hf. gegn ákvæðum samkeppn-
islaga eða ákvörðunum sem teknar
hafa verið samkvæmt þeim, sbr.
ákvörðun samkeppnisráðs nr. 41/
1997, getur komið til álita að sam-
keppnisyfirvöld beiti heimildum sín-
um til álagningar stjórnvaldssekta
skv. 52. gr samkeppnislaga nr 87
1993. Óskað er eftir að umsögn yðar
og umbeðin gögn berist eigi síðar en
3. apríl nk.“
Auk þessara bréfaskipta sem hér
hafa verið tilgreind hittust forsvars-
menn Samkeppnisstofnunar og
Landssímans á sameiginlegum fundi
hinn 30. mars sl. að frumkvæði
Landssímans að sögn Guðmundar
Sigurðssonar, forstöðumanns sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofnunar.
Að sögn Guðmundar vildu Lands-
símamenn á fundinum koma að
ákveðnum sjónarmiðum tU svars eða
útskýringar á því sem Samkeppnis-
stofnun hafði vakið máls á í bréfinu
frá 27. mars.
„Þegar þeim fundi lauk var enginn
vafi í huga þeirra eða okkar í hvaða
fasa þetta mál var,“ fullyrðii- Guð-
mundur og leggur aukinheldur
áherslu á að á fundinum hafi ekki ver-
ið tekin nein ákvörðun eða gefin nein
fyrirmæli eða tilmæli um eitt né neitt
af hálfu Samkeppnisstofnunar.