Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Ný Nettóverslun á Akranesi í DAG mun Nettó opna nýja verslun á Akranesi, á Kalmannsvöllum 1. Nettó á Akranesi er þriðja Nettó- verslunin hér á landi, en hinar eru á Akureyri og í Mjóddinni í Reykjavík. Nettó á Akranesi er í 800 fermetra húsnæði og verslunin er með sama sniði og hinar tvær. Tilboð, sem auglýst eru í tilefni opnunarinnar, gilda í öllum verslunum Nettó. Hannes Karlsson, deildarstjóri Nettó, segir að verið sé að skoða markaðinn um þessar mundir með það fyrir augum að opna fleiri versl- anir. Nettó er rekin af hlutafélaginu Matbæ ehf. sem er í eigu KE A. CUNIQUE 100% ilmefnalaust Veittu líkama þínum einstaka upplifun. Kynnum nýjar líkamsvörur frá Clinique. Nýju líkamsvörurnar frá Clinique. Þær sameina loforð um fallega húð og gleðina við að ná því takmarki. Einfaldar athafnir eins og að fjarlægja dauðar húðfrumur, hreinsa og gefa húðinni raka, verða nýjar upplifanir. Nýju likamsvörurnar frá Clinique færa þér fallega húð á tvo ólíka vegu. Önnur með kælandi, frískandi og örvandi áhrifum. Húðin lítur vel út, verður endur- nærð og áferðarfalleg. Hin línan er kremuð, mjúk og róandi. Húðin verður vel nærð, mjúk og afslöppuð. Veldu orku eða afslöppun. Njóttu tilfinn- ingarinnar að fá einstako húð. Líkamslína frá Cfinique kælandi og frísk- andi: Sparkle Skin Body Exfol. 200 ml kr. 1.635. Instant Energy Body Wash 200 ml kr. 1.325. Cool Lustre Body Moisture 200 ml kr. 1.745. Líkamslína frá Clinique kremuð og róandi: Soft Polish Body Exfoliator 200 ml kr. 1.635. Skin Cushion Body Wash 200 ml kr. 1.325. Oeep Comfort Body Moist. 200 ml kr. 1.745. Clinique. Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust. Ráðgjafar verða á staðnum í dag, fimmtudaginn 13. apríl, frá kl. 13-18, föstudoginn 14. apríl kl. 13-18 og laugardaginn 15. apríl kl. 12-16. HAGKAUP Kringlan Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjórðungur af heildarlager búðarinnar seldist upp á fyrstu tveimur dögunum. Yfir þrjú hundruð Topshop-verslanir í heiminum • • Onnur söluhæsta verslunin er á Islandi BRESKA tískuverslunarkeðjan Topshop opnaði í marsmánuði verslun hér á landi í Lækjargöt- unni. Verslunin er nú orðin önnur söluhæsta verslun keðjunnar sem rekur um 300 verslanir í Bretlandi auk 30 verslana í 12 löndum utan Bretlands. „Þetta er óneitanlega ánægjuleg frammistaða, sérstak- lega þegar litið er til þess að sölu- hæsta verslun þeirra, sem er versl- unin á Oxford Cirkus, er meira en 10 sinnum stærri en okkar versl- un,“ segir Sigrún Andersen, fram- kvæmdastjóri Topshop á Islandi. „Þetta er fyrsta Topshop-verslunin sem opnar í Vestur-Evrópu og er Baugur kominn með einkaleyfi fyr- ir Topshop í Skandinavíu og er ætl- unin að leggjast í víking á næstu árum,“ segir Sigrún. „Topshop-keðjan er stærsta tískukeðjan í Bretlandi fyrir ungt fólk og er leiðandi í tískubransan- um. Eg held að ástæða velgengni okkar sé meðal annars staðsetning búðarinnar og útlit jafnt utan sem innan og svo fjölbreytt vöruúrval á hagstæðu verði. Sem dæmi má nefna að við seldum upp 25% af heildarlager búðarinnar á fyrstu tveimur dögunum og þar á meðal 70 stykki af leðuryfirhöfnum frá vinsælasta merkinu okkar Oute- redge. Að sögn Sigrúnar er verið að setja á fót viðskiptamannnaklúbb sem mun upplýsa meðlimi, á Netinu um allar nýjungar og uppákomur í búðinni og veita forgang að útsölum og spennandi vörusendingum. „Enginn kostnaður er við skrán- ingu en þess má geta að á fyrstu tveimur vikunum voru komnir 400 klúbbmeðlimir,“ segir Sigrún. Netkaffí „Netkaffið er einnig nýjung hjá okkur en við höfum verið að bjóða viðskiptavinum upp á að vafra á Netinu ókeypis allt frá opnun og munum halda því eitthvað áfram. Það hefur verið mjög vinsælt og stöðugt setið við. Það er ákaflega ánægjulegt að verslunin skuli falla í góðan jarðveg og greinilegt að Islendingar kunna vel að meta,“ segir Sigrún. Lambakj ötsútsala í Nóatúni 20-50 prósent afsláttur veittur af nýslátruðu I DAG, fimmtudag, hefja verslanir Nóatúns útsölu á lambakjöti af nýslátruðu og nemur afslátturinn 20-50%. Um er að ræða 28 tonn af kjöti. Að sögn Jóns Þ. Jónssonar, markaðsstjóra hjá Nóatúni, er um tímamót að ræða þar sem lamba- kjöt af nýslátruðu hefur oftast ver- ið selt á yfirverði fyrir páskana og framboð verið takmarkað. Hann segir að vegna yfirvofandi verk- falls á Suðurlandi sé fleiri lömbum slátrað en ella um þessar mundir og því sé um tímabundið verðfall að ræða. Kjötið kemur aðallega frá Sláturfélagi Suðurlands, Þríhyrn- ingi á Hellu og Kjötumboðinu. Jón nefnir sem dæmi að læris- sneiðar sem áður hafi kostað 1.249 krónur kílóið kosti nú 899 krónur. Súpukjöt kostar nú 299 krónur en kostaði áður 598. Þá kostar læri 798 krónur kílóið en var á 998 krónur áður. Sirlonsneiðar sem áð- ur kostuðu 849 krónur kílóið kosta nú 599 krónur. QUELLE. ORACTIR Kr. 6.900,- Litir: Beige og svart Stœröir: 36-46 -■M Kr. 9.900,- Litir: Beige og svart Stœröir: 36-44 Frábœrt úrval af öbrum gœbafatnabi frá Þýskalandi á verbi sem gerist ekki betra niiri f C mUN,DÁLVE612 ImULLLmZm KOPAVOGLS:5642000 Kr. 2.990, - Fín sumardragt. Til í stórum númerum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.