Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 40

Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR BÓKASALA i mars Röð Var Titill/ Hðlundur/ Utgefandi 1 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós 2 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning 3 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholtsútgáfan 4 Fitusnautt og freistandi/ Sue Kreitzman/ Mál og menning 5 Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið 6 Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart 7 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 8 Almanak Háskólans - 2000/ / Háskóli islands 9 Amazing lceland/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 10 Af bestu lyst/ Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir/ Vaka-Helgafell Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 Frjálsar hendur/ Carlo Lucarelli/ Mál og menning 2 Góðir íslendingar/ Huldar Breiðfjörð/ Bjartur 3 Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning 4 Dagbók Bridget Jones/ Helen Fielding/ Mál og menning 5 Draumar Einsteins/ Alan P. Lightman/ Vaka-Helgafell 6 Hægan, Elektra/ Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir/ Mál og menning 7-9 Dóttir himnanna/ Amy Tan/ Vaka-Helgafell 7-9 íslandsklukkan/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 7-9 Kona eldhúsguðsins/ Amy Tan/ Vaka-Helgafell 10 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholtsútgáfan 2 Ljóð Tómasar Guðmundssonar/ / Mál og menning 3 Hávamál - Ýmis tungumál/ / Guðrún 4 Þorpið/ Jón úr Vör/ Mál og menning 5 Tökum lagið á árshátíðinni/ Mörður Árnas. og Sigurður Svavarss. vðldu/ Mál og menning 6 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn 7 Passíusálmar/ Hallgrímur Pétursson/ Mál og menning 8 Lausavísur 1400-1900/ Safnað hefur Sveinbjörn Beinteinsson/ Hörpuútgáfan 9-10 Eddukvæði/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Mál og menning 9-10 Gullregn úr Ijóðum Huldu/ Karl Kristjánsson tók saman/ Forlagið ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning 2 Landnámsmennirnir okkar/ Stefán Aðalsteinsson/ Mál og menning 3 Vísnabók Iðunnar/ Myndskr. Brian Pilkington/ Iðunn 4 Tinni í Ameríku/ Hergé/ Fjölvi 5 Tarzan og Kala/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 6 Stafakarlarnir/ Bergljót Arnalds/ Virago 7 Tökum lagið með börnunum/ Hildur Hermóðsdóttir valdi/ Mál og menning 8-9 Litlu dýrin á bænum/ James C. Shooner/ Björk 8-9 Vængjað myrkur/ William Heinesen/ Mál og menning 10 Húsdýrin okkar/ Stefán Aðalsteinsson/ Mál og menning ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D'Adamo/ Leiðarljós 2 Fitusnautt og freistandi/ Sue Kreitzman/ Mál og menning 3 Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið 4 Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart 5 Almanak Háskólans - 2000/ / Háskóli íslands 6 Amazing lceland/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 7 Af bestu lyst/ Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir/ Vaka-Helgafell 8 íslensk orðabók/ Ritstj. Ámi Böðvarsson/ Mál og menning 9 Heimspeki og börn/ Gareth B. Matthews/ Sóley 10 Land birtunnar/ Haukur Snorras. og Magnús Tumi Guðmundss./ Snerruútgáfan ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR 1 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 2 ERRO - Margfalt líf/Aðalsteinn Ingólfsson/ Mál og menning 3 Keith Richards/ Victor Bockris/ Forlagið 4 Ég man - 480 glefsur úr gamalli nútíð/ Þórarinn Eldjárn/ Forlagið 5 Einar Benediktsson I/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúö Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bókabúðin Hlemmi Bókabúðin Mjódd Bóksala stúdenta, Hringbraut Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Kringlunni Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri KÁ, Selfossi Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka í mars 2000. Unnið fyrir Morgunblaöið, Fólag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu timabili, né kennslubækur. Mestu myndlistarverðlaun Norðurianda afhent í gær Hreinn Friðfínnsson hlýtur fínnsku Ars Fennica-verðlaunin Morgunblaðið/Jussi Nukari Tarja Halonen, nýkjörinn forseti Finnlands, afhenti Hreini Friðfinns- syni Ars Fennica-verðlaunin við hátíðlega athöfn í Standerhuset, forn- frægu húsi í hjarta Helsinki í gær. Helsinki. Morgunblaðið. „HANN hefur þessa einstöku hæfi- leika til að gera allt svo einfalt, en um leið svo áhrifamikið, náið og tilfinn- ingaríkt,“ sagði Jean-Christophe Ammann, forstöðumaður Nútíma- listasafnsins í Köln, þegar hann út- skýrði hvers vegna hann hefði valið Hrein Friðfinnsson myndlistarmann sem handhafa finnsku Ars Fennica- verðlaunanna í ár. Tarja Halonen, nýkjörinn forseti Finnlands, afhenti Hreini verðlaunin við hátíðlega at- höfn í Stánderhuset, fomfrægu húsi í hjarta Helsinki í gær. Þetta er í tíunda skiptið sem verðlaunin eru af- hent og í tiiefni þess var öllum fyrri verðlaunahöfum boðið að vera við- staddir og taka á móti sérstökum verðlaunapeningi, sem Hreinn fékk einnig. I þeim hópi var meðal annarra danski málarinn Per Kirkeby. Verðlaunin nema 200 þúsund finnskum mörkum, eða um 2,5 millj- ónum íslenskra króna. Auk verðlaun- anna verður gefin út bók um verk Hreins og haldnar tvær sýningar á verkum hans í Finnlandi, annars veg- ar í Wáinö Aaltonen-listasafninu í Turku og hins vegar í Nútímalista- safni Henna og Pertti Niemistö í Hámeenlinna, en Ars Fennica-verð- launin vom stofnuð af Niemistö-hjón- unum. Verðlaunin falla ávallt norrænum listamanni í skaut og frá hverju landi era tilnefndii- tveir listamenn. í þetta sinn var Georg Guðni tilnefndur ásamt Hreini. í ár era í undirbúningi tvær sýningar á íslandi sem Hreinn tekur þátt í, annars vegar sýning í As- mundarsal og hins vegar útisýning. Verðlaun sem tekið er eftir Aður en athöfnin fór fram var Hreinn kynntur fyrir blaðamönnum, sem höfðu margs að spyrja, enda eru Ars Fennica-verðlaunin einn af meg- inviðburðum í myndlistai’lífinu hér. Þeim varð einkum tíðspurt um hvaða áhrif íslenskt þjóðerni hans hefði á hann. Hreinn fræddi þá á því að þau áhrif væri ekki hægt að mæla, en þau væra undir og yfir og allt um kring í verkum hans, hvort sem um væri að ræða bókmenntir af ýmsu tagi, álfa- og álagasögur eða landslagið sjálft. Aðspurður hvort hann hugsaði mikið um þjóðemi sitt svaraði hann að það gerði hann oft, en vísast einnig ómeð- vitað. „Vafalaust hefur uppraninn áhrif á mig,“ sagði hann hæglátlega. „Það sama á við um mig og alla aðra, að uppruninn hefur áhrif og fylgir manni alls staðar og alltaf.“ Allt tilstandið var þó greinilega annað en Hreinn á að venjast dags daglega og sjálfur sagðist hann ekki vera mikip gefinn fyi-ir að tala um verk sín. í samtali við Morgunblaðið kvaðst Hreinn vera undrandi og ögn skelfdur yfir öllu umstanginu sem • TILFINNINGAGREIND er eftir bandaríska sálfræðinginn Dan- iel Goleman í þýðingu Ásiaugar Ragnars. Goleman hefur um ái’abil vakið at- hygli fyrir skrif sín í The New York Times og á seinni árum sem metsölu- höfundur verka um nýjar niðurstöður á sviði sálfræðirannsókna, segir í fréttatilkynningu. Ennfremur segii- m.a.: I bókinni gerir höfundur grein fyrir rannsókn- um sem sýna að tilfmningagreind einstaklingsins getur vegið þyngra en greindarvísitala; hvaða þættir eru að verki þegar fólk með háa greindar- vísitölu fer halloka og fólk með til- tölulega lága greindarvísitölu á vel- gengni að fagna. í bókinni er m.a. sagt frá nýjum uppgötvunum um þá verðlaununum fylgdi, en vissulega væri hann þó fyrst og fremst glaður yfir þessum mikla heiðri. Á hverju ári er það þriggja manna nefnd sem tilnefnir tvo myndlistar- menn frá hverju landi, en síðan er fenginn einn maður til að velja verð- launahafann. Ammann tók þátt í skipulagningu Documenta 5 1972, sá um þýska skálann á Feneyja-tvíær- ingnum 1995 og hefur verið prófessor við Goethe-háskólann í Frankfurt síð- an 1998. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa kynnst Hreini 1972, þegar hann skipulagði sýningu með honum og þeim Kristjáni og Sig- urði Guðmundssonum. Með þessum þremur hefur hann alltaf fylgst og segist mjög hrifinn af verkum þeirra allra. Ammann er ekki einn um að spyrða þremenningana saman. Þess- ir þrír íslensku listamenn era einmitt oft nefndir í sömu andrá og hafa oft sýnt saman. Hreinn er fæddur í Dölunum 1943 en frá 1971 hefur hann búið og starfað í Amsterdam. Hann hefur haldið einkasýningar víða, var fulltrúi Is- lands á Feneyja-tvíæringnum 1993 og hefur sýnt ásamt fieirum í Malmö Konsthall, Ateneum í Helsinki og Guggenheim-safninu, svo eitthvað sé nefnt. Verk eftir hann era meðal ann- ars í eigu Listasafns Islands, Kjar- valsstaða, Pompidou-listamiðstöðvar- innar, Kiasma í Helsinki og Ríkislistasafnsins í Haag. Margir góðir listamenn á Islandi Ein af þeim sem var viðstödd at- höfnina í gær er Ilona Anhava, sem rekur Galerie Anhava í Helsinki, en hún hefur haldið sýningar á verkum Hreins, síðast á liðnu ári. I tilefni af formgerð mannsheilans sem áhrif hefur á tilfinningalífið og hvernig nið- urstöður benda til að móta megi til- finningavenjur baraa. Gerð er gi-ein fyrá- mikilvægi tilfinningagreindar. Einnig era kannaðar þær hættur sem steðja að þeim sem ekki ná tökum á tilfinningalífi sínu með aldrinum og hvernig skortur á tilfinningagi'eind verður til þess að auka ýmsa áhættu- þætti í lífi einstaklingsins. Síðast en ekki síst er sagt frá brautryðjenda- starfi I skólum þar sem börn læra að takast á við tilfínningar og tileinka sér hæfni í mannlegum samskiptum." Bók þessi hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Utgefandi er Iðunn. Bókin er 338 hls., prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Verð: 4.480 kr. afhendingunni nú hefur hún sett upp litla sýningu á verkum Hreins, sem hún hafði handbær. „Hreinn er einn af bestu listamönnum sem ég hef rek- ist á,“ sagði Anhava í samtali við Morgunblaðið og vitnaði í að Sigurð- ur Guðmundsson hefði sagt um verk Hreins að þau væru „skáldskapurinn hreinn og tær“. Undir þau orð gæti hún tekið. „Hann sýnir okkur fegurð- ina í hversdagslífinu. Hann er mikill hugsuðm' og fær um að draga fram einstakar birtingarmyndir." Anhava hefur kynnt fleiri íslenska listamenn í Finnlandi og sagðist ekki eiga orð yfir að ekki stærri þjóð en 280 þúsund manns gæti átt jafn marga góða listamenn og raun bæri vitni. Það væri líka svo ánægjulegt og auðvelt að vinna með Islendingum og kynni sín af landi og þjóð hefðu verið einkar ánægjuleg. Listin er aðalatriðið Ars Fennica-verðlaunin vora stofn- uð af hjónunum Henna og Pertti Niemistö 1990 en Pertti lést á liðnu ári. I samtali við Morgunblaðið sagði Henna Niemistö að það væri ánægju- legt að verðlaunin hefðu í ár fallið ís- lenskum listamanni í skaut, því Is- iand ætti svo marga góða listamenn og rithöfunda. Um áhuga þeirra hjóna á listum sagði hún að erfítt væri að segja hvaðan hann hefði sprottið, en hann hefði verið ríkur þáttur í lífi þeirra. í íyrstu beindist áhugi þeirra að eldri list, en síðan þokaðist áhuginn yfir í samtímann. Þau tóku til við að safna listaverkum á sjöunda áratugn- um og safn þeirra er nú í Hameenl- inna. „Listir voru tómstundagaman okkar,“ segir Henna Niemistö. Um tildrög verðlaunanna sagði hún að eiginmanni sínum hefði verið hug- stætt hve listamenn ættu oft erfitt uppdráttar og verðlaunin hefðu verið viðleitni hans til leggja sitt af mörk- um til að greiða listamönnum götu. „Við höfðum áhuga á listunum, ekki á því að koma nafni okkar sjálfra á framfæri, og þess vegna valdi maður- inn minn, sem var vel að sér í klass- ískum fræðum, latneskt nafn. Listin er aðalatriðið." -------*-4-4------- Úthlutað úr Brynjólfssjóði ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum úr Brynjólfssjóði (Brynjólfs Jóhann- essonar leikara) og hlutu þrjár leik- konur styrk að þessu sinni: Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Margi'ét Vil- hjálmsdóttir og Pálína Jónsdóttir. 12 umsóknir bárast stjórn sjóðsins, en til skiptana voru 260.000 krónui'. Nýjar bækur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.