Morgunblaðið - 13.04.2000, Qupperneq 21
Hjartavernd ♦ Lágmúla 9 ♦ 108 Reykjavík ♦ S. 535 1800 ♦ Minningarkortabjónusta s. 535 1825 ♦ Ábyrgðarmaður: Ástrós Sverrisdóttir, fraeðslufulltrúi
- algengasta dánaporsök á íslandi
REYKINGAR:
SÉRSTAKLEGA
SKAÐLEGAR KONUM
Ahættan a aö fá krans-
æöastiflu eykst hlutfallslega
enn meira hja konum en
körlum sem reykja.
Hættan a aö deyja ur
kransæöastíflu sjöfaldast
hja konu sem reykir
meira en 1 pakka á dag.
Tíðni hjarta- og æðasjúkdóma á íslandi hefur lækkað verulega. Þrátt fyrir það
getum við gert betur. Með bættum lífsstíl m.t.t. áhættuþátta hjarta- og
æðasjúkdóma náum við enn betri árangri. Sleppum reykingum, hreyfum okkur
reglulega, gætum að mataræði og verum meðvituð um áhættuþætti eins og
blóðfitu og blóðþrýsting. Rannsóknum á sviði áhættuþátta hjarta- og
æðasjúkdóma verður seint lokið en með því að huga að þeim þáttum sem
þegar eru þekktir, getum við lyft grettistaki í þaráttunni við þennan sjúkdóm.
Breytingar á áhættuþáttum og bætt
meöferö skila árangri
Tíðni kransæðastíflu og dánartíðni af
hennar völdum fer lækkandi.
Tvær merkar greinar frá MONICA
rannsókninni nýlega í Lancet.
Nýiega birtust tvær greinar frá MONICA rann-
sókninni í hinu virta breska læknatímariti Lancet.
MONICA er skammstöfun á sameiginlegu rann-
sóknarverkefni 37 rannsóknarhópa í 21 landi í 4
heimsálfum, sem skipulagt hefur veriö af Alþjóða-
heilbrigöismálastofnuninni. Hjartavernd hefur
tekið þátt í þessari rannsókn fyrir íslands hönd
undir stjórn Nikulásar Sigfússonar, fyrrverandi
yfirlæknis Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar. í
fyrri greininni í Lancet var gerður samanburður á
breyttri tíöni kransæðasjúkdóma og breytingum á
áhættuþáttum sjúkdómsins meðal þessara þjóða.
Helstu niðurstöðurnar voru aö skýra mætti 2/3 af
lækkandi tíðni kransæöasjúkdóma meö þeim
æskilegu breytingum sem orðið hafa á áhættu-
þáttum kransæöasjúkdóms meöal þjóðanna.
(seinni Lancet greininni var gerður saman-
burður á dánartíöni af völdum kransæöastíflu
1983 og aftur 1993 og borið saman viö þær
breytingar sem orðiö hafa á meðferð kransæða-
stíflu á þessu tímabili. Niðurstöðurnar bentu til
að bætt meöferð viö kransæðastíflu eigi stóran
þátt í færri dauðsföllum af völdum kransæöastíflu
í lok rannsóknartímabilsins.
Tíðni kransæðastíflu og dánartíðni af hennar
völdum lækkaöi einna mest á íslandi af öllum
þátttökuþjóöunum. Samkvæmt niðurstöðum
rannsókna Hjartaverndar dóu árið 1981 235
manns á aldrinum 25-74 ára vegna kransæða-
stíflu. Áriö 1997 voru dauðsföll vegna sjúkdóms-
ins komin niður í 135 á sama aldursbili.
G.S.
t:¥öcus
Dregið var í happdrætti Hjartaverndar þann
23. október sl. Vinningar voru glæsilegir að
vanda: Bifreiðar, fellihýsi, breiðtjaldasjón-
varpstæki og ferðavinningar. Vinningshafi
Ford focus bifreiðarinnar hafði ekki hug-
mynd um að vera einni bifreið ríkari þegar
fulltrúi Hjartaverndar hafði samband við
hann. ...SKILAR SÉR TIL EIGANDA SÍNS
A meðfylgjandi mynd afhendir Hjördís
Kröyer framkvæmdastjóri Hjartaverndar mæðgunum Ragnheiði Björk Þórsdóttur og Guðbjörgu
Þóru Stefánsdóttur, 6 ára, Ford focus bifreiðina en hún er til sölu hjá Brimborg. Fjölskyldan sem
er fjögurra manna kom með flugi frá Akureyri og ók hún norður í þessum glæsilega fjölskyldubíl.
Við óskum Ragnheiði til hamingju og þökkum henni og öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum
í landinu sem studdu Hjartavernd með þátttöku sinni I happdrættinu. Happdrætti Hjartaverndar er
einu sinni á ári. Ágóðinn af þvi styrkir rannsóknar- og fræðslustarfsemi stöðvarinnar.
mifii iiifMDi
Aðalfundur Hjartaverndar verður haldinn
í dag fimmtudaginn 13. apríl í húsnæði
Hjartaverndar, Lágmúla 9, 6. hæð
kl. 16:15.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Margrét Andrésdóttir, sérfræðingur,
segir frá afkomendarannsókn
Hjartaverndar.
Stjórnin
KRYDDLEGIÐ HJARTA
Útgáfa bæklings Hjartavemdar, Kryddlegið hjarta, hefur vakið
verðskuldaða athygli. Niðurstöður hóprannsókna Hjartaverndar á
skaðsemi reykinga eru kynntar í bæklingnum. Fram kemur að
reykingamaður margfaldar áhættu sína á að deyja úr kransæða-
stíflu. Bæklingnum var dreift inn á hvert heimili og fyrirtæki í
landinu. Styrktaraðilar útgáfu voru íslandspóstur, Landsbanki
íslands hf., Lyf og heilsa hf., Pharmaco hf., Prentsmiðjan Oddi
hf. og TóbaksvarnánefndT
VEUUM GRÆNMETI os ÁVEXTI
5sk
fsfugl
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
n
m
Sparisjóður Mýrasýslu, Borgarnesi ♦ Bón- og (ðvottastöðin, Sóltúni 3 ♦ Farmasía ♦ Fjórðungssjúkrahúsið, Akureyri ♦ Hampiðjan ♦ Heilsustofnun
N.F.L.Í ♦ Hrafnista Reykjavík og Hafnarfirði ♦ Karl Kristmanns, umboðs- og heildverslun ♦ Optíma, Ármúla 8 ♦ Orkuveita Reykjavíkur ♦
Ólafur Þorsteinsson & Co. hf. ♦ Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð ♦ Starfsmannafélag ríkisstofnana ♦ Verslunarmannafélag Suðurnesja
Johan Rönning hf. ♦ Sparisjóðurinn í Keflavík ♦ Oryrkjabandalag Islands