Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 62
62 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
y------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Réttlæti
í sjávarútvegi
ALLIR þegnar ís-
lenska samfélagsins
eiga að hafa sama rétt
og möguleika til að
njóta þeirra gæða sem
samfélagsgerðin og
náttúran bjóða. Þetta
eru lykilstef í stefnu
Samfylkingarinnar og
byggir hún alla stjóm-
málastefnu sína á því.
Dagana 5. og 6. maí
verður Samfylkingin
gerð að stjórnmála-
flokki en nú í apríl velja
allir stuðningsmenn
hennar sér formann og
skora ég á alla stuðn-
ingsmenn Samfylking-
arinnar að ganga til liðs við hana og
taka þátt í formannskosningunni.
Það er löngu tímabært að Islandi
verði stjómað í anda jöfnuðar og fé-
lagshyggju og nú hillir undir það að
hér verði til stór félagshyggjuflokk-
ur.
^ Aðferðir stjórnarflokkanna
Utilokunaraðferðir núverandi rík-
isstjórnar á hinum ýmsu sviðum era
okkur Samfylkingarmönnum ekki að
skapi. Stefna ríkisstjórnarflokkanna
í sjávarútvegi er að viðhalda því
ástandi sem nú ríkir, þ.e. að færri og
færri íslendingar eigi þess kost að
stunda útgerð. Þessi stefna drepur
einnig niður allt íramkvæði ungra og
vaskra manna og er að murka lífið úr
mörgum sjávarbyggðum. Ekkert
hefur komið í stað horfinna aflaheim-
ilda nema skýrslur, sem í sumum til-
vikum koma með góðar
ábendingar, en stjóm-
völd skortir vilja til að
fylgja þeim eftir.
A sama hátt hafa
stjómvöld heldur ekki
skilning á venjulegu
mannlífi. Tum valdhaf-
anna er orðinn svo hár
að þeir sjá ekki lengur
hvað fólkið þarna niðri
er að gera.
Þeir sjá ekki að
„eignarhaldið" á auð-
lindinni er að færast á
færri og færri hendur,
en slíkt ástand er ein-
mitt einkenni þeirra
samfélaga þar sem
mikil grimmd ríkir.
Það er ljóst að peningastefnan
sem rekin er í þessu landi er mjög
gróf og gráðug.
Stefna Samfylkingarinnar
í sjávarútvegsmálum
Samfylkingin hefur nú fyrst
stjórnmálaflokkanna lagt fram
skýra og heildstæða stefnu í sjávar-
útvegsmálum. Framvarpið tekur á
öllum helstu vandamálum fiksveiði-
stjórnarinnar. Við leggjum til að all-
ar veiðiheimildir verði kallaðar inn á
10 áram og að veiðiheimildir verði
boðnar til leigu til fimm ára í senn.
Til að koma í veg fyrir brask er lagt
til að aflahlutdeildir sem útgerðir
leigja til sín verði ekki framseljan-
legar en þeir sem leigja veiðiheimild-
ir geti leigt írá sér 50% aflamarks
innan ársins.
Samfylkingin
Til að tryggja hag
byggðanna, segir Karl
Valgarð Matthfasson,
er sérstakt tillit tekið til
byggðasjónarmiða og
hagsmuna sveitarfélaga.
í framvarpinu leggur þingflokkur
Samfylkingarinnar áherslu á að
tryggja stöðugleika í greininni og að
jafnræðis verði gætt. Til að tryggja
hag byggðanna er sérstakt tillit tek-
ið til byggðasjónarmiða og hags-
muna sveitarfélaga. í þeim sjávar-
byggðum þar sem um mikla
atvinnuerfiðleika er að ræða vegna
skorts á afla til vinnslu er heimilað
sérstakt útboð á aflahlutdeildum til
útgerða sem skuldbinda sig til að
landa fiski til vinnslu á viðkomandi
stað. Með þessum hætti vill Samfylk-
ingin hamla gegn því byggðahrani
sem gjafakvótakerílð hefur óhjá-
kvæmilega leitt af sér með því að
aflaheimildir hverfi úr byggðunum
eftir geðþóttaákvörðunum einstakra
manna.
Það er afar brýnt að tryggja það
að strandbyggðir landsins styrkist
og eflist og þarf nýtt stjórnkerfi fisk-
veiða að taka á því máli.
Höfundur er varaþingmaður Sam-
fylkingarinnar og sðknarprestur.
Matthfasson
Börn leyst
úr ánauð
HJÁLPARSTARF
kirkjunnar hefur í 12
ár sinnt hjálparstarfi á
meðal hinna stéttlausu
á Indlandi m.a. í sam-
starfi við Social Action
Movement, SAM, í
Tamil Nadu héraði.
Samtökin reka fjöl-
breytt hjálparstarf s.s.
forskóla, styðja börn
til náms í almenna
skólakerfinu, hafa
stofnað til verkalýðs-
starfs í hefðbundnum
starfsgreinum stétt-
lausra eða dalíta eins
og þeir era einnig
nefndir s.s. meðal
þvottafólks, steinhöggvara og syk-
urreyrskurðarmanna. Þau standa
fyrir kvennastarfi, iðnnámi og leið-
togaþjálfun og berjast fyrir rétti
dalíta til að eignast land til ræktun-
ar. Þau hafa nýlega opnað fjölmiðla-
miðstöð þar sem upplýsingum um
stöðu þeirra er komið á framfæri,
innanlands og utan.
Reynslan góð
Fyrir þremur áram hófst nýtt
verkefni SAM meðal barna í skulda-
ánauð með stuðningi Hjálparstarfs
kirkjunnar. Verkefnið hefur gengið
vel þrátt fyrir mikla andstöðu
vinnuveitenda og efri stétta samfé-
lagsins. Nokkur hundrað börn leita
nú reglulega stuðnings í 15 kvöld-
skólum sem opnaðir hafa verið og
njóta þar aðhlynningar og kennslu.
Byrjað hefur verið að greiða skuldir
barnanna og þeim komið í skóla. Að
fiwikvæði biskups
hefur verið hrandið af
stað söfnun fyrir þessi
þrælabörn. Söfnunar-
gíróseðlar verða send-
ir inn á heimili lands-
manna fyrir páska.
Vanda þarf til
verksins
Starfsmenn SAM
hafa unnið að því að
leysa börn úr þræla-
ánauð af mikilli fag-
mennsku og þekkingu.
Þegar hefur starfið
skilað góðum árangri.
Verkefnið felur í sér
Hjálparstarf
Það er ekki einfalt verk
að leysa barn úr skulda-
ánauð í samfélagi sem
mótað er af stéttaskipt-
ingu o g mismunun, seg-
ir Jónas Þórísson,
en það er gerlegt sé vel
að því staðið.
eftirfarandi aðgerðir:
• Að vekja foreldra og börn til
vitundar um það ranglæti sem þau
era beitt þegar börnin era hneppt í
ánauð vegna skulda foreldra sinna
Jónas
Þórisson
f Sala á nýju hlutafé í Össuri hf.
Útgefandi: Össur hf.
Óskað er eftir áskrift í nýtt hlutfé í Össuri hf. að nafnvirði 60.000.000 króna eða
22,1% af heildarhlutafé að teknu tilliti til hlutafjáraukningar. Verðbréfaþing íslands
hf. hefur samþykkt að taka á skrá hið nýja hlutafé að loknu útboði enda séu öll
skilyrði skráningar uppfyllt.
Forkaupsréttur:
Núverandi hluthafar í Össuri hf. hafa ekki afsalað sér lögmætum forkaupsrétti sínum
við ofangreinda hlutafjárhækkun og munu eiga forkaupsrétt að hinu nýja hlutafé í
samræmi við hlutafjáreign sína eins og hún lá fyrir hjá hluthafaskrá félagsins 8. apríl
síóastliðinn. Gengi til forkaupsréttarhafa er 64. Ef einhver hluthafa nýtir sér ekki rétt
sinn skulu aðrir hluthafar eiga aukinn rétt til áskriftar. Frestur forgangsréttarhafa til
að nýta rétt sinn er til 2. maí n.k.
Útboðstímabil til forkaupsréttarhafa:
Útboöstímabil til forkaupsréttarhafa er frá 17. apríl til 2. maí 2000.
Útboð til annarra en forkaupsréttarhafa:
Seljist ekki allt hlutaféð til forkaupsréttarhafa kemur til almenns útboðs og mun það
standa frá 3. maí til 5. maí. Útboðsgengi í almenna útboðinu veröur 69 og gefst
almenningi kostur á að skrá sig fyrir allt að 15.000 krónum að nafnvirði eða
1.035.000 krónum að markaðsviröi.
Umsjón með útboði:
Kaupþing hf. hefur umsjón með útboði og tekur við áskriftum á útboöstímabili.
Útboðslýsingu er hægt að nálgast hjá Kaupþingi hf., Ármúla 13a,
eða á heimasíðu Kaupþings, www.kaupthing.is
Niðurstöður útboðs:
Niðurstöður útboðs verða birtar í viðskiptakerfi
Verðbréfaþings íslands 3. maí 2000.
Við kynncim
fimmtadag,
föstadag,
laugardag
og sunnudag
karlmennsku
og þor, gerir konur
að kvenskörungum,
yngir fólk og kaztir