Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 35 ERLENT Rflkisstjórn Andris Skeles í Lettlandi segir af sér Sömu flokkar stefna að myndun nýrrar stjórnar Riga. AFP, AP. ANDRIS Skeles, for- sætisráðherra Lett- lands, tilkynnti afsögn sína í gær eftir að einn af þremur stjórnar- flokkum lýsti því yfir að hann nyti ekki stuðnings þeirra leng- ur. Reyna lettneskir stjórnmálaflokkar nú að koma saman níundu ríkisstjórninni frá því Lettland hlaut sjálfstæði frá Sovét- ríkjunum í byrjun níunda áratugarins og hefur Skeles hvatt nú- verandi flokka til að taka upp viðræður um myndun nýrrar stjórnar. Stjórnarslitin komu í kjölfar deilna Skeles og eins stjórnar- flokksins, Föðurland og frelsi, sem tilkynnti seint á þriðjudagskvöld að forsætisráðherrann nyti ekki lengur stuðnings flokksins. Snúast deilurnar fyrst og fremst um stefnu stjórnarinnar í einkavæð- ingarmálum en stjórnarflokkarnir hafa deilt mánuðum saman um einkavæðingu raforkufyrirtækis ríkisins og skipafé- lags, sem er eitt hið stærsta í Evrópu. Stj órnarflokkarnir hófu þreifingar um myndun nýrrar ríkis- stjórnar í gær og sagði Indulis Berzins, utanríkisráðherra landsins, að búast mætti við að flokkarn- ir þrír muni mynda næstu ríkisstjórn og að sömu stefnu verði viðhaldið í utanríkis- málum. „Ég á ekki von á neinum breytingum þar, því flokkarnir deila skoðunum sínum á NATO, þátttöku í Evrópu- sambandinu (ESB) og samskiptum við grannríki sín,“ sagði Berzin. Lettar hófu aðildarviðræður við ESB í síðasta mánuði og vonast sömuleiðis til að verða boðið að ganga í NATO. Stjórnmálafræð- ingurinn Nils Muiznieks hefur var- að við að nái flokkarnir ekki að koma á stöðugri stjórn i landinu kunni það að draga úr líkum á að Lettlandi verði veitt aðild að ESB. Berzin taldi þá mögulegt að fjórði flokkurinn, Nýi flokkurinn, bættist i stjórnarsamstarfið. Að sögn talsmanna Þjóðar- flokksins, flokks Skeles, og Föður- lands og frelsis er talið að unnt verði að mynda nýja ríkisstjórn innan hálfs mánaðar, en ekki fæst þó gefíð upp hverjir koma til greina í embætti forsætisráðherra. Andris Berzin, borgarstjóri Rigu, Aija Poca, ráðuneytisstjóri fjár- málaráðuneytisins og núverandi samgöngumálaráðherra, Anatolijs Gorbunovs, eru þó allir taldir lík- leg forsætisráðherraefni. Þeir eru allir frá þriðja stjórnarflokknum, Leið Lettlands, sem talið er að muni skipa næsta forsætisráð- herra. Skeles, sem er 42 ára, tók við forsætisráðherraembættinu í júlí á síðasta ári en hann hafði áður verið forsætisráðherra á árunum 1995- 1997. Hann sagði í gær að hann hefði tekið ákvörðun um að segja af sér til að geta starfað áfram að stjórnmálum og spáði því að hann gæti orðið forsætisráðherra á nýj- an leik er nær drægi aðild Lett- lands að Evrópusambandinu. Andris Skele Bílverð lækki um 130.000 krónur í Bretlandi London. Morgunblaðið. BÍLAFRAMLEIÐENDUR verða að lækka bílaverð í Bretlandi sem nemur um 1.100 pundum á bfl að meðaltali, eða rúmlega 130.000 kr., í kjölfar skýrslu, sem brezka sam- keppnisstofnunin vann fyrir ríkis- stjórnina um verð á bflum í Bret- landi. Helztu niðurstöður eru þær að Bretar borgi um 12% hærra verð fyrir bíla en fólk í Frakklandi, Þýzkalandi og Italíu og í mörgum til- fellum allt að 20% hærra verð en Astralía Talið að bátur með 220 manns hafi farist Canberra. AP, AFP. TALIÐ er, að bátur með allt að 220 manns hafi sokkið á milli Indónesíu og Ástrah'u í síðasta mánuði og eng- inn komist af. Var um að ræða fólk, sem ætlaði að gerast ólöglegir inn- flytjendur í Astralíu. Philip Ruddock, innflytjendaráð- herra Ástralíu, skýrði frá þessu í gær. Sagði hann, að fréttir af líkleg- um afdrifum fólksins hefðu fyrst komið frá öðrum ólöglegum innflytj- endum en báturinn lagði upp frá Jövu 24. eða 25. mars og var ætlunin að komast til Jólaeyju, sem er ástr- ölsk og um það bil 400 km suður af Jövu. Telur Ruddock hugsanlegt, að þeir, sem stunda að smygla fólki til landsins, beri ábyrgð á slysinu enda ekki ólíklegt, að báturinn hafí verið ofhlaðinn. Sagt er, að fólkið hafi verið frá Miðausturlöndum en margir hinna ólöglegu innflytjenda í Ástralíu eru frá Irak, Iran og Afganistan. I síð- ustu viku bjargaði ástralski sjóher- inn 57 ólöglegum innflytjendum og fjórum indónesískum skipverjum er skipið var að sökkva undan þeim inn- an lögsögunnar og er fólkið nú í haldi ásamt nærri 4.000 öðrum. ódýrast fannst annars staðar. Þann- ig eru brezkir bflakaupendur sagðir hafa greitt um milljarð punda of mik- ið á ári. Stephen Byers, viðskipta- og iðn- aðarráðherra, krafðist þess þegar innihald skýrslunnar var gert opin- bert að bílaframleiðendur brygðust við strax, en þeir hafa fengið tvo mánuði til þess að segja álit sitt á efni skýrslunnar. Talsmenn þeirra sögðu að bifreiðaverð hefði verið að lækka og lítið sem ekkert svigrúm væri til frekari verðlækkana. Sögðu þeir að rekja mætti verðmuninn að stórum hluta til sterkrar stöðu pundsins gagnvart öðrum gjaldmiðl- um, sem þegar var mótmælt, þar sem tveir þriðju brezka bflaflotans væri innfluttur. Neytendasamtökin fögnuðu skýrslunni og sögðu hana sigur íýrir almenning, þótt munur- inn væri minni en talað hefði verið um. Ráðherrann segir skýrsluna sýna að fákeppni ríki á bflamarkaðinum og því sé nauðsynlegt að brjóta nú- verandi kerfi upp til þess að ýta und- ir samkeppni og skapa möguleika á meiri afslætti til einstaklinga, sem nú er sagður nema um 8% meðan fyrirtæki geta náð fram allt að 35% afslætti. Niðurstöðurnar slá þó nokkuð á væntingar fólks um allt að 30% lækkun bflaverðs, sem fréttir höfðu farið af, en erfiðleikarnir í brezka bflaiðnaðinum hafa líka haft áhrif á afstöðu fólks. Neytendasamtökin brezku hafa stofnað bflasölu á netinu og Virgin-fyrirtækið er að fara af stað með aðra slíka, auk þess sem ferjufyrirtækið PO flytur inn bfla frá meginlandinu. London með Heimsferðum frá kr. 7 >900 alla fimmtudaga í sumar Heimsferðir tryggja þér lægsta verðið til London í sumar með beinu flugi alla fimmtudaga í sumar. Þú getur valið um helgar- ferðir, flugsæti eingöngu, flug og bíl eða flug og hótel, en við bjóðum fjölda góðra hótela í hjarta London á frábæru verði. Tryggðu þér lága verðið meðan enn er laust. Verð kr. 7.900 Flugsæti, önnur leiðin. Skattarkr. 1.830 ekki innifaldir Verðkr. 14.200 Flugsæti fram og til baka. Skattar kr. 3.790 ekki innifaldii Aflagrandi Vorum að fá í sölu glæsi- lega 122 fm 4ra—5 herb. íbúð á 2. hæð með sér- inngangi í þessu fallega húsi. Saml. stofur, 3 góð svefnherb. Þvottahús í íbúð. Vandaðar innrétt- ingar. Áhv. 6 millj. hús- bréf. Eign [ algjörum sér- flokki. Híbýli fasteignasala, Suðurgötu 7, sími 585 8800. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. apríl 2000. 1. flokkur 1991: Nafnveró: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 2.239.117 kr. 100.000 kr. 223.912 kr. 10.000 kr. 22.391 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.992.383 kr. 500.000 kr. 996.191 kr. 100.000 kr. 199.238 kr. 10.000 kr. 19.924 kr. 1. flokkur 1992: Nafnveró: Innlausnarveró: 5.000.000 kr. 9.811.704 kr. 1.000.000 kr. 1.962.341 kr. 100.000 kr. 196.234 kr. 10.000 kr. 19.623 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 9.657.723 kr. 1.000.000 kr. 1.931.545 kr. 100.000 kr. 193.154 kr. 10.000 kr. 19.315 kr. 1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 8.894.262 kr. 1.000.000 kr. 1.778.852 kr. 100.000 kr. 177.885 kr. 10.000 kr. 17.789 kr. 3. flokkur 1993: Nafnveró: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.974.287 kr. 1.000.000 kr. 1.594.857 kr. 100.000 kr. 159.486 kr. 10.000 kr. 15.949 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.751.828 kr. 1.000.000 kr. 1.550.366 kr. 100.000 kr. 155.037 kr. 10.000 kr. 15.504 kr. 1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.308.492 kr. 1.000.000 kr. 1.461.698 kr. 100.000 kr. 146.170 kr. 10.000 kr. 14.617 kr. 1. 2. og 3. flokkur 1996 Nafnveró: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.373.245 kr. 100.000 kr. 137.324 kr. 10.000 kr. 13.732 kr. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf. Ibúðalánasjóður Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.