Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 20

Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Amtsbókasafnið Yika bókarinnar VIKA bókarinnar er haldin há- tíðleg á Amtsbókasafninu á Ak- ureyri, en þar stendur nú m.a. yfír sýning á verkum Halldórs Laxnes. Þar er einnig sýning á ferli bókar frá kaupum í útlán og í bamadeild er sýning á verkum Sigrúnar Eldjárn og Brians Pilkington. Samsýning listamanna á Húsavík SAMSÝNING á verkum hús- vískra áhugalistamanna verður opnuð í Safnahúsinu á Húsavík á laugardag, 15. apríl. Tæplega tuttugu manns eiga verk á sýn- ingunni. Þessi sýning verður opin í Safnahúsinu frá kl. 14 til 18 fram til 24. apríl. Sýningin er liður í dagskrá vegna 50 ára af- mælis kaupstaðarréttinda Húsavíkurkaupstaðar. Allt sorp á Akureyri, flokkað sem óflokkað, urðað á sorphaugum bæjarins Bæjarbúar haldi áfram að flokka sorpið NOKKUR umræða hefur verið um flokkun á sorpi á heimasíðu Akureyrarbæjar. Sigríður Síta Pétursdóttir hóf umræðuna og spurði hvort það skyti ekki skökku við að vera þátttakandi í Stað- ardagskrá 21 og að hvetja fólk til að flokka heim- ilissorpið en urða það svo allt í einum haug uppi á Glerárdal. Akureyringar hafa verið nokkuð duglegir við að flokka sitt heimilissorp og margir setja plast og pappír í sérstaka gáma sem Endurvinnslan hefur svo endurnýtt m.a. til framleiðslu á vöru- brettakubbum. Hins vegar hefur allt sorp, hvort sem það er flokkað eða ekki, verið urðað á sorp- haugum bæjarins á Glerárdal frá því í haust. Sig- ríður Síta benti á að ef það væri meining bæjaryf- irvalda að fá fólk í lið með sér yrði að vera einhver alvara í málinu strax frá upphafi og ekki bara í orði heldur líka á borði. Guðmundur Guðlaugsson, yfirverkfræðingur Akureyrarbæjar, sagði í samtali við Morgunblað- ið að nú færi allt sorp á einn urðunarstað. Ekki stæði þó til að hætta með pappírsgámana í þeirri von að úr rættist. „Ég verð þó að segja íbúum bæjarins til hróss að þeir hafa haldið áfram að flokka sitt sorp og skila því inn á þennan máta. Það er skiljanlegt að einhverjir hugsi sem svo að flokkun á sorpi sé út í hött en menn hafa þó ekk- ert óskaplega mikið fyrir því að taka þetta með sér þegar farið er í búðir. Ég vil því hvetja fólk til aðsýna þolinmæði og halda áfram að flokka sorp- ið þó það fari nú þessa leið,“ sagði Guðmundur. Flokkunin á eftir að aukast Gunnar Garðarsson, forstöðumaður Endur- vinnslunnar á Akureyri, sagði að endurnýting á pappír og plasti hjá fyrirtækinu hafi verið mjög takmörkuð frá því í haust. Hann sagði það veru- lega slæmt að geta ekki tekið við flokkaða sorpinu en á þó ekki von á að bæjarbúar gefist upp við flokkunina. „Það er verið að vinna í þessum málum á mörg- um vígstöðvum og m.a. verið að skoða mjög ítar- lega flokkun á pappafernum til endurvinnslu er- lendis. Umhverfisgjald á fernur er mjög flókið mál og getur haft áhrif á neysluvísitölu. En þetta er eitthvað sem menn eru að skoða og ég hef þá trú að flokkunin eigi frekar eftir að aukast. Þótt það sé alls ekki nógu gott að menn séu að flokka sorpið vitandi það að það fari sömu leið og annað sorp, ætti fólk samt að líta á það sem þjálfun og undirbúning fyrir það sem koma skal.“ Gunnar sagði að fyrirtækið hafi hætt að taka við pappír og plasti í haust og þótt aðeins hafi sax- ast á lagerinn i vetur ætti það í verulegri sam- keppni við innflutningsaðila á brettakubbum. „Við vorum komnir með um 500 tonn af kubbum á lager en salan í vetur var ekki eins mikil og við höfðum vonast eftir. Endurvinnslan byggir nýtt hús Endurvinnslan var að hefja framleiðslu á koksi fyrir Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, úr pappír, plasti og kolum, þegar húsnæði fyrir- tækisins skemmdist í eldsvoða fyrir fáum vikum. „Þar er um mjög spennandi verkefni að ræða sem við verðum að halda áfram, þannig að hægt verði að prófa koksið í ofnum verksmiðjunnar. Og við erum að vinna í því að koma framleiðslunni í gang áný. Gunnar sagði að ákveðið hafi verið að byggja nýtt hús undir starfsemi fyrirtækisins á grunni þess húss sem brann á dögunum. Hann sagði að nýja húsið yrði jafn stórt og það gamla að grunn- fleti, eða um 540 fermetrar, en mun hærra og hentugra en gamla húsið. Ekki liggur endanlega fyrir hvort nýja húsið verður stálgrindarhús eða límtrésbygging en Gunnar sagði að ákvörðun um það yrði tekin öðru hvorum megin við næstu helgi. Morgunblaðið/Kristján Blaðbera vantar í Stapasíðu/Tungusíðu Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. k | Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, r | Akureyri, sími 461 1600. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Valt á hliðina TENGIVAGN valt á hliðina og skemmdist nokkuð í gærmorgun en hann var í efnisflutningum á nýbyggingarsvæði á Eyrariands- holti. Óhappið varð þegar vörubíll með tengivagninum var að sturta efni á svæðinu en þá vildi ekki betur til en svo að vagninn valt á hliðina. Tvö önnur smávægileg óhöpp urðu í umferðinni á Akureyri, smá- vægilegur árekstur varð um há- degisbil á Eyrarlandsvegi, en eng- in slys urðu á fólki, og vörubíl var ekið á umferðarvita við gatnamót Tryggvabrautar og Glerárgötu. Vitinn brotnaði og nokkurt tjón varð á ljósabúnaði. Andrésar Andar-leikarnir í skíða- íþréttum settir í kvöld Um 800 kepp- endur skráðir ANDRÉSAR Andar-leikarnir í skiðaíþróttum, hinir 25. í röðinni, verða settir við hátíðlega athöfn í Iþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Alls eru um 790 keppendur á aldrinum 7-12 ára skráðir til leiks og þeir munu reyna með sér í Hliðarfjalli næstu þrjá daga í alpagreinum og göngu. Þetta er næstmesti fjöldi keppenda frá upphafi, að sögn Friðriks Adolfs- sonar, sem sæti á í framkvæmda- nefnd leikanna. Að auki fylgir stór hópur þjálf- ara, fararstjóra, aðstoðarmanna og foreldra keppendum, sem koma alls staðar að af landinu. Einnig taka 9 keppendur frá Kul- usuk á Grænlandi þátt í leikunum og með þeim koma 4 fararstjórar. Setningarathöfnin hefst að venju með skrúðgöngu frá KA- heimilinu í Iþróttahöllina. Þar mun séra Pétur Þórarinsson prestur í Laufási flytja andakt en það er Kristinn Björnsson frá Ól- afsfirði, fremsti skíðamaður landsins, sem mun setja leikana formlega. Kristinn mun svo heiðra keppendur með nærveru sinni í Hlíðarfjaili næstu daga. Eftir að Andrésar-eldurinn hefur verið kveiktur í Höliinni, fer fram flugeldasýning utan dyra. Friðrik sagði að þar sem hér væri um að ræða afmælisleika væri enn meira lagt í gjafir til krakkanna og þá verður tekið upp á því á ný að verðlauna sigur- vegarana í 12 ára flokki í alpa- greinum og göngu með því að senda þá til keppni erlendis á næsta ári. Alpagreinakrakkarnir fara til ítaliu og keppa þar í febr- úar en göngukrakkarnir fara til Noregs og keppa þar í janúar. Þessi verðlaun eru í boði Spari- sjóðs Norðlendinga og íslenskra verðbréfa. Keppt verður í svigi, stórsvigi og risasvigi og í göngu með hefð- bundinni og frjálsri aðferð. Keppni hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur fram á sunnudag. I lok hvers keppnisdags fer fram verð- launaafhending í Iþróttahöllinni. Heimildarmynd um leikana Friðrik sagði að auk þess sem allir sigurvegarar í einstökum flokkum fengju verðlaun yrðu dregin út sérstök aukaverðlaun og því ættu allir keppendur möguleika á að koma heim með verðlaun. Allir keppendur fá bak- poka með ýmsum gjöfum og húf- ur. Þá sagði Friðrik að gerð yrði 45 mínútna heimildarmynd um leikana, sem sýnd verður í Ríkis- sjónvarpinu á annan í páskum. Undirbúningur leikanna hefur staðið yfir sieitulaust frá því í haust og hafa margir iagt hönd á plóginn. Að auki hafa fjölmörg fyrirtæki lagt framkvæmda- nefndinni lið og má þar nefna Samskip, Landsbankann, Sam- hcrja, Visa, Nanoq, Vífilfell, Vöku-Helgafell og fleiri. REYKIAVÍK-AKUREYRI-REYKIAVÍK ...fljúgdu frekar Atta smnuma Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000 VCfJ flá 8.730 kr.meMluHlarsköttum FLUGFÉLAG ÍSLANDS Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.