Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Nýbúar frá Chile fjölmennir á Hellu Morgunblaðið/Daníel Hansen Skessa sýndi krökkunum hvernig á að smala kindum. Sýnd notkun smalahunds Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Chilefólkið á Hellu var að læra á klukkuna í íslenskutfma hjá séra Sig- urði Jónssyni, þegar fréttaritari truflaði kennsluna. Chyntia Sepulveda Benner ásamt mági si'num Mario Rivera, sem er að kanna aðstæður hér, áður en fjöl- skyldan tekur ákvörðun um að flytjast til Islands. Eyja- og Miklaholtshreppi-Nem- endum Laugagerðisskóla var boðið sl. föstudag að bænum Dalsmynni. Þar sýndu Svanur Guðmundsson og smalatíkin hans, Skessa, hvernig hundur og maður vinna saman. Svanur útskýrði fyrir nemendum hvaða kosti góður smalahundur þarf að hafa og hvað hundur þarf að kunna áður en þjálfun við kindur getur hafist. Einnig rakti hann hvernig haga skal þjálfun hunds. Skessa er aðeins tveggja ára gömul og því ekki fullþjálfuð. Hún gerir samt flest það sem hún er beðin um. Svanur hefur hleypt gemlingum út undanfarið, bæði til að þjálfa þá í að hlýða hundi og til að þjálfa Skessu. Þetta var í síðasta skipti sem þetta er gert í vor því nú styttist í að gemlingarnir beri og einnig á Skessa að gjóta bráðlega. Þar er von á góðum efnum í smala- hunda því hún fór suður í Kjós und- ir úrvalshund. Skessa er einnig úr- valsgóður smalahundur því síðastliðið haust var haldin ung- hundakeppni á Hæl í Flókadal og vann Skessa þá keppni. Bændaefnin í Laugagerðisskóla fóru heim ákveðin í því að fá sér hund þegar þau fara að búa eftir að hafa séð hvernig hægt er að nota góðan smalahund. Hellu - Nú er að ljúka 30 kennslu- stunda námskeiði í íslensku hjá Fræðsluneti Suðurlands fyrir 10-15 manna hóp spænskumælandi nýbúa frá Chile, sem komið hafa til landsins á síðastliðnum árum og sest að á Hellu og í nágrenni. Námskeiðið er haldið í Grunnskólanum á Hellu með styrk Rangárvallahrepps, Djúpár- hrepps, Verkalýðsfélagsins Rang- æings og Rauða krossins og hefur sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur í Odda, leiðbeint nýbúum á fullorðins- aldri, sem reyndar eru mislangt komnir í að ná valdi á íslenskunni, enda búnir að dvelja hér mislengi. Utan þeirra eru um 12 börn í leik- og grunnskóla á Hellu og njóta þar sérkennslu eftir þörfum hvers og eins. Ein kona 1990 varð að 25 manns árið 2000! Það má segja að oft velti lítil þúfa þungu hlassi, því að frá því að Chyntia Sep- ulveda Benner frá Chile kom árið 1990 til íslands með íslenskum eiginmanni sínum frá Svíþjóð, en þang- að flutti hún 19 ára gömul, hafa um 25 ættingjar og tengdafólk fylgt í kjölfarið og sest að hér á landi. Fólk- ið frá Chile býr flest á Hellu og nágrenni eins og Chyntia, en hún á 11 systk- ini. „Fyrst eftir að ég kom hingað leiddist mér frekar mikið og gat ekki talað málið, enda var sænskan að flækjast fyrir mér. Eg hvatti systkini mín til að prófa að koma hingað og þetta hefur undið svona upp á sig á tíu árum þannig að núna erum við um 25 manns og ef allt gengur eftir sennilega 30 fyrir árslok. 1991 og 1992 komu tveir bræður mínir með eiginkonur sínar og sam- tals fjögur börn en síðan enginn fyrr en 1998 er tveir systrasynir mínir komu. 1999 komu svo tvær systur mínar og eiginmenn með fimm börn og núna eru hér staddir tveir mágar mínir að skoða aðstæður og ef allt gengur vel koma konur þeirra, syst- ur mínar og tvö böm síðar á árinu. Ég á sjálf þrjú böm, þar af einn son hálfíslenskan. Barnahópurinn er á aldrinum tveggja til fimmtán ára. Að sögn Chyntiu er fjölskylda hennar samhent fólk sem leggur sig fram um að aðlagast samfélaginu sem það hefur sest að í og er ís- lenskunámið þáttur í því. „Við höfum öll svipaða afstöðu til tilverunnar að því leyti að segja má að hér höfum við gróðursett nýtt ættartré sem vex og dafnar. Það er ekki aðalatriði hvar við erum, hvort það er í Chile eða Svíþjóð eða á íslandi, við eigum auðvelt með að skipta um umhverfi og byggja upp tilveru þar sem okkur líður vel'saman og við sjáum fram á að geta framfleytt okkur.“ Þetta fólk hefur tekið stóra ákvörðun í lífi sínu og að sögn þeirra sem fréttaritari ræddi við í einum ís- lenskutímanum er ekki á döfinni að snúa til baka. Flestir komu til Is- lands til að fá vinnu, en at- vinnuleysi er töluvert í Chile og fólk þarf að vinna myrkranna á milli til að komast af. Þetta finnst okkur íslendingum e.t.v. kunnuglegt, en viðmiðin eru allt önnur. Ef vinna er á annað borð í boði þarf að vinna a.m.k. 12 tíma á dag alla daga vikunnar og fjöl- skyldan nær ekki mörgum samverustundum, en hér finnst þessu fólki það hafa það ágætt, allt með ró- legra og fjölskylduvænna yfirbragði. Reyndar kvartar það undan dýrtíð- inni og háum sköttum en á móti kemur góð samfé- lagsþjónusta, nokkuð sem aðeins ríka fólkið hefur efni á í Chile en stétta- skipting er þar mikil. Gott að búa á Hellu Fólkið frá Chile er lífsglatt og skemmtilegt og setur mikinn svip á lítið samfélag eins og á Hellu, en það starfar m.a. í kjötvinnslum, dvalar- heimili aldraðra, við verksmiðjustörf og á veitingastöðum. Að sögn Chynt- iu gengur ágætlega að koma sér fyr- ir, en kerfíð er reyndar mjög þungt í vöfum og langan tíma og mikla papp- írsvinnu þarf til að fá leyfi Útlend- ingaeftirlitsins til dvalarinnar. „En Hellubúar og íslendingar hafa tekið okkur vel og eru fordóma- lausir í okkar garð og hér líður okkur vel.“ Morgunblaðið/Daníel Hansen Skessa ásamt eiganda sínum Svani Guðmundssyni og nemendum Laugagerðisskóla. Mikill áhugi á þjóðbún- ingagerð í Stykkishólmi Stykkishólmi - Lengi hefur blundað áhugi hjá nokkrum konum í Stykkis- hólmi að sauma sér íslenskan þjóð- búning. Þær tóku sig til í janúar og auglýstu námskeið í þjóðbúninga- gerð. Kom þá í ljós mikill áhugi og á námskeiðið skráðu sig 16 konur. Leitað var til Heimilisiðnaðarskóla íslands og kennarar fengnir þaðan til Stykkishólms. Leiðbeinendur voru þær Oddný Kristjánsdóttir og Bima Helgadótt- ir. Námskeiðið hefur staðið yfir fjór- ar helgar með hálfs mánaðar millibili. Á milli námskeiða unnu konumar sína heimavinnu sem var mikil. Nú er verkinu lokið og árangurinn kominn í Ijós. Konumar sögðu að vinnan við búninginn hefði verið mikil, allt var saumað í höndunum, en það var virkilega gaman á námskeiðinu og tímanum vel varið. Hugsanlega er gmndvöllur fyrir öðru námskeiði í haust, svo mikill er áhuginn fyrir ís- lenska þjóðbúningnum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason Þær litu vel út í nýju þjóðbúningunum sínum konurnar í Stykkishólmi eftir að hafa lokið við að sauma þá. Þær munu setja svip á bæinn á hátíð- isdögum þegar þær klæðast þjóðbúningunum. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Fyrstu lömbin Norður-Héraði. - Systkinin á Blöndubakka voru alsæl með fyrstu lömbin sem fæddust í vor, en fyrsta ærin sem bar hjá þeim var þrflembd. Tvö Iambanna voru botnótt og eitt hvítt. Bænd- urnir á Blöndubakka Bryndís Svavarsdóttir og Gestur Hall- grímsson segja að þessi lömb hafi komið óvænt og ekki sé von á fleirum í bráð. Sædís Svava, Jens Ingi og Kolbrún Stella taka sig vel út með lömbin sem þau sýndu stolt enda alltaf viss vor- boði þó en sé hvítt yfir þegar fyrstu lömbin fæðast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.