Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 53

Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 5$ inu og frændseminni. Það var siður frænda að hringja ef hann hafði spurnir af viðburðum í fjölskyldunni, hvort heldur vai- í gleði eða sorg. Minnisstæð er upphringing á jólum 1989, þar sem hann las upp umsögn um bókina sem hann hafði lesið þann daginn. Það gladdi mikið þá sem hringt var í. Að sama skapi var sam- úðin rík þegar sorgin barði að dyr- um. í fimmtugsafmæli bróðurdóttur sinnar kom hann ásamt Sigríði og fór á kostum í ræðu sem hann hélt, þar sem hann lýsti götu bernskunnar, Mjógötunni á ísafirði. Einnig er minnisstæð ræða sem hann hélt móð- ur okkar til heiðurs á áttræðisafmæli hennai-. Já, mai-gs er að minnast og mikið að þakka. Þetta var hann frændi okk- ar, gáfaður, skemmtilegur og um- fram allt tryggur og trúr sínum. Hafðu heila þökk, kæri frændi. Börn- unum og fjölskyldunni allri biðjum við blessunar. Gunnlaugsbörnin frá Isafirði. Halldór Halldórsson prófessor, sem í dag er til moldar borinn, var einn af fremstu málfræðingum þjóð- arinnar, einn áhrifamesti íslenskuk- ennari landsins á þessari öld og for- ystumaður í íslenskri málrækt. Hann andaðist í Reykjavík aðfaranótt 5. þ.m. 88 ára að aldri. Leiðir okkar lágu saman í 57 ár, og við áttum mikið saman að sælda. Svo margs er nú að minnast við andlát hans að ég þyrfti helst að segja ævi- sögu okkar beggja til að koma því til skila. Mig langar aðeins að leiðarlok- um til að rifja upp fáein minninga- brot um persónuleg kynni mín af Halldóri og Sigríði, konu hans. Þegar hún lést fyrir rúmum tveimur árum, dvaldist ég erlendis og hafði ekki tök á að minnast hennar þá. En fyrst verð ég að víkja aðeins að ævistarfi Halldórs Halldórssonar. Þegar Halldór varð sjötugur ritaði ég grein sem birtist í Morgunblaðinu 12. júlí 1981 og gerði þar nokkra grein fyrir störfum hans, einkum kennslu, fræðimennsku og nýyrða- smíð. Það efni verður ekki endurtek- ið hér nema að mjög litlu leyti. Halldór Halldórsson var ættaður austan af landi, bróðursonur dr. Bjöms Bjamasonar frá Viðfírði, en fæddist og ólst upp á ísafirði og gekk í Menntaskólann á Akureyri. Hann varð stúdent 1932, lauk meistara- prófi í íslenskum fræðum frá Há- skóla íslands 1938 og doktorsprófi 1954. Hann varð menntaskólakenn- ari á Akureyri haustið 1938, dósent í íslensku nútíðarmáli og hagnýtri ís- lenskukennslu í Háskóla Islands 1951 og síðan prófessor frá 1957 til 1979, er hann lét af embætti fyrir ald- urs sakir. Af fjölmörgum öðmm störfum skal það einungis nefnt hér að Halldór beitti sér fyrir stofnun ís- lenskrar málnefndar 1964 og var fyrsti formaður hennar, og hann sat í stjórn Orðabókar Háskólans 1960- 1982 og var stjórnarformaður frá 1965. Halldór Halldórsson lagði fyrstur íslenskra málfræðinga stund á merkingarfræði og skrifaði meist- ai-aprófsritgerð sína um merkingar- fræðilegt efni, Um hluthvörf (útg. 1939). Hann var brautryðjandi í rannsóknum á myndhverfum orðtök- um, upprana þeirra og sögu. Um það efni fjallaði doktorsritgerð hans, Is- lenzk orðtök (1954) og síðan stærsta verk hans, íslenskt orðtakasafn (1. útg. 1968-1969). Hann hafði kennarareynslu á öll- um skólastigum, samdi margar kennslubækur í málfræði og staf- setningu og var höfundur stafsetn- ingarorðabókar með skýringum, sem heillaði marga þegar hún kom fyrst út 1947 vegna þeirrar fræðslu sem hún veitti um skyldleika orða og upp- runa þeirra. Þá var engin orðsifjabók til á íslensku. Halldór starfaði mikið að íslenskri málrækt og var afar frjór og hug- kvæmur nýyrðasmiður. Að loknum embættisferli kom Halldór ótrúlega miklu í verk þrátt fyrir ýmislega vanheilsu, dvínandi líkamsþrek og sjónmissi. Það vildi honum til að höfuðið bilaði aldrei, hugsunin var skýr fram að hinstu dægrum og sálarþrekið vii-tist óskert. Þegar ég kom til hans fáein- um dögum fyrir andlátið lét hann engan bilbug á sér finna og átti þó um sárt að binda, því að Guðmundur, sonur hans, var þá nýlátinn eftir erfið veikindi. Halldór sagði mér hróðugur frá því að hann hefði verið látinn fara í ellihramleikapróf, ásamt öðram sem komnir vora yfir áttrætt, og var sá eini sem fékk 10! Ósköp var þetta líkt honum. Eftir sjötugt birti hann m.a. rit- gerðasafnið Ævisögur orða (1986), 3. útgáfu íslensks orðtakasafns (1991), 4. útgáfu stafsetningarorðabókarinn- ar (1994) með miklum endurbótum og auk þess nokkrar ritgerðir í bók- um og tímaritum. Á tímabilinu frá 20. ágúst 1994 til 30. sept. 1995 ritaði Halldór vikulega gi-einar, alls 58, í DV undir heitinu „Sögur af nýyrð- um“. Þar er ýmsan fróðleik að finna sem ekki liggur annars staðar á lausu. I afmælisriti íslenskrar mál- nefndar, sem kom út 1993, tókum við saman sögu nefndarinnar fyrstu 25 árin (1964-1989). Upphafið samdi Halldór, „Tildrög málnefndar og stofnun". Enn er eitt ótalið sem ekki er minnst um vert. Þegar Halldór fór á eftirlaun var ég nýlega orðinn for- maður Islenskrar málnefndar. Þá var verið að blása lífi í starfsemi orð- anefnda í ýmsum greinum, og vai- leitað til málnefndarinnar um mál- fræðilega aðstoð. Ein besta ráðstöf- un sem ég greip þá til, og er hreykinn af, var að fá Halldór Halldórsson til að vinna með Orðanefnd byggingar- verkfræðinga sem þá var að kvikna til lífs undir forystu Einars B. Páls- sonar prófessors. Þetta reyndist heillaráð. Halldór hóf störf með orð- anefndinni 1981, og tókst með verk- fræðingunum einstaklega farsæl samvinna sem hélst allt til þess er Halldór tók banasóttina. Þannig var hugur hans sístarfandi til æviloka. Halldór gat fengist við hugðarefni sín og fundið að hann var að gera gagn þótt hann hefði ekki þrek til fundarsetu síðustu árin. Mér þótti sérstaklega vænt um að þetta ráð- gjafarstarf vann Halldór á vegum ís- lenskrar málnefndar, sem stofnuð var að framkvæði hans og hann veitti forystu fyrstur manna. Ræktun tungunnar var honum ætíð hjartfólg- ið viðfangsefni. Halldór átti oft við vanheilsu að stríða um dagana, en var þó mikill eljumaður, og efth- hann liggur mikið og gott ævistarf sem seint verður fullþakkað. Hann sameinaði það óvenjuvel að vera málvísindamaður, kennari og málræktannaður og greindi vel á milli þessara hlutverka. En hvers konar málvísindamaður var Halldór? Hann segir sjálfur í Ævisögum orða að eftir lok embættisferils hafi hann „þegar tóm hefir gefizt til frá öðram önnum, fengizt við athuganir á ýms- um atriðum, sem varða íslenzkan orðaforða. Sá þáttur málvísinda hefir ávallt setið í fyrirrúmi hjá mér“. I framhaldi af þessu segir hann: „Nokkrar ritgerðir hefi ég birt eft- ir 1979 í tímaritum og bókum, skrif- aðar í hefðbundnum fræðimannastíl, en slík ritverk era yfirleitt illa fallin til almennings lestrar. Sú hugsun hefir oft læðzt að mér upp á síðkastið, að rétt væri að hætta að mestu við þess konar ritstörf. Ég hefi alltaf tal- ið, að hlutverk fræðimanna sé ekki það eitt að skrifast á í tímaritum og nota við það mál og stíl, sem venju- legur lesandi hefir hvorki skilning á né gaman af. Hlutverk fræðimanna er einnig að ná til almennings. Ekki á þetta sízt við um þá, sem fást við þjóðleg fræði.“ I samræmi við þetta er undirtitill bókarinnar „Alþýðlegur fróðleikur um íslenzk orð og orðtök". Halldór Halldórsson var skarpgáf- aður, skýr í hugsun og framsetningu, rökfastur og raunsær. Hann var glettinn og gamansamur í viðræðu, og sat ekki alltaf á strák sínum, hafði yndi af góðum mannfagnaði, naut sín vel í hlutverki gestgjafa og einstakur heim að sækja. Sumum þótti hann hæðinn, og það gat hann verið, en venjulega hlýr og notalegur í við- móti, tryggur ef hann tók því og vin- ur vina sinna; en sviksemi við sig þoldi hann ekki og gat þá verið hefni- gjarn. Halldór var baráttumaður þegar góð málefni voru annars vegai- og hafði svolítið gaman af átökum, en stimpingar háskólalífsins áttu ekki við hann. Oft þurfti Halldór að taka óvinsælar ákvarðanir og lét sig hafa það ef hann taldi sig vera að gera rétt, tók þá oft á sig meiri ágjöf en sanngjamt var, en frábitinn því að reyna að afla sér samúðar, þegar svo stóð á, eða fegra málstað sinn. Sjálf- ur sagði hann stundum að hann væri enginn engill, hvað sem hann átti við með því. Hann tók öllu sem að hönd- um bar með rósemi á yfirborðinu og fjasaði aldrei. Vorið 1943 þreytti ég inntökupróf í Menntaskólann á Akureyri og var þá svo bemskur að ég átti ekki að ferm- ast fyrr en að ári. Um þessa mikils- virtu menntastofnun vissi ég harðla lítið og þekkti þar einungis fáeina unglinga í neðstu bekkjum. Prófið var munnlegt og fór fram í fjóram kennslustofum samtímis, en prófþol- ar gengu á milli eftir því sem þeim hentaði og gengu upp þegar kennari var laus. Oft fylgdi þeim skari af efri- bekkingum sem höfðu mikla skemmtun af þessum busaprófum. Prófendur vora ekki af verri endan- um: Halldór Halldórsson í íslensku, Jón Jóhannesson í íslandssögu, Steindór Steindórsson í landafræði og Þórarinn Bjömsson í reikningi. Þessir öðlingar áttu allir eftir að fóstra mig í fræðum sínum áram saman, en enginn þó eins lengi og Halldór. Þann mann hafði ég aldrei heyrt nefndan þegar þetta var, en prófdómarann í íslensku, Brynjólf Sveinsson menntaskólakennara, þekkti ég í sjón og vissi að hann var spekingur að viti. Mér var spurn hvers vegna hann væri ekki látinn prófa, og þá sagði einhver, sem kom- inn var til meiri þroska en ég, að Halldór þessi væri enn lærðari; hann væri magister og hefði próf úr há- skólanum fyrir sunnan. Brátt fékk ég að kynnast því að sá magister bjó yfir ýmsu sem ekki var á barna meðfæri. I prófinu spurði Halldór um tíð orðanna „hafði farið“. Þannig hafði ég aldrei verið spurður áður, um tíð tveggja orða í einu, og renndi gran í að nú dygði ekki venju- legur lærdómur. En ég hafði ekki annað ráð en nefna þátíð, og það var rangt. Rétta svarið fékk ég ekki að vita þann dag. Þetta var óræður leyndardómur, og mér var orðið ljóst að nú var ég ekki lengur í neinum bamaskóla. Þannig vora fyrstu kynni mín af Halldóri Halldórssyni. Mig gat ekki órað fyrir því að hann ætti eftir að verða lærifaðir minn í íslensku og ís- lenskri málfræði upp allan mennta- skóla og háskóla, síðan samkennari hátt í tvo áratugi og ekki síst náinn vinur og velgerðamaður. Eins og nærri má geta hefi ég meira lært af honum en nokkram manni öðram. Það vakti athygli í Menntaskólan- um á Akureyri hvað Halldór Hall- dórsson átti unga og glæsilega konu. Sigi’íður Guðmundsdóttir var 6 áram yngri en hann. Þegar ég sá þau fyrst saman á skólaskemmtun hefir hún verið 26 ára, litlu eldri en elstu nem- endur í skólanum þá. Hún var fædd og uppalin í Reykjavík, dóttir hjón- anna Guðmundar H. Guðnasonar gullsmiðs og Nikólínu Sigurðai’dótt- ur sem bæði vora orðlögð fyrir hag- leik. Þau Halldór gengu í hjónaband 16. september 1939, daginn sem Sig- ríður varð 22 ára. Hann hafði árið áð- ur verið skipaður menntaskólakenn- ari á Akureyri. Nú kom hann norður með bráði sína, og þau settu bú sam- an í Brekkugötu 1, sem stendur við Ráðhússtorg. Halldóri og Sigríði leið vel á Akur- eyri. Þar fæddust börnin þeirra fjög- ur og komust á legg: Guðmundur blaðamaður, sem nú er nýlátinn, Hildigunnur, stærðfræðingur og kennari, Elísabet bókasafnsfræðing- ur og Halldór fjölmiðlafræðingur. Halldór naut sín vel í starfi og var mikils metinn bæði í bæjarfélaginu og skólanum. Hann „var á ýmsan hátt ein traustasta stoð Menntaskói- ans á Akureyri", sagði Þórarinn Björnsson í skólaskýrslu, þegar Halldór lét þar af störíúm. Á Akur- eyii eignuðust þau marga góða vini, og oft var gestkvæmt á heimili þeirra í miðbænum, þar sem þau vora leigj- endui- fyrstu árin, og síðar í Austur- byggð 8, húsi sem þau komu sér upp skammt fyrir ofan menntaskólann. Síðar minntust þau Akureyrarár- anna oft með söknuði, Sigríður ekki síður, þótt hún væri Reykvíkingur. Þetta vora þeirra hamingjuár. Fyrst mun ég hafa komið á heimili þeirra Halldórs og Sigríðar á útmán- uðum 1949. Veturinn sem ég var í 6. bekk veiktist Halldór og lá rámfast- ur einar tvær vikur. Það kom ýmsum í skólanum illa, m.a. þeim sem þá vora að lesa undir gagnfræðapróf í þriðja bekk. Að ósk Halldórs var ég þá fenginn til að hlaupa þar undir bagga ásamt vini mínum, Ríkarði Steinbergssyni (d. 1996), síðar verk- fræðingi, sem var bekkjarbróðir minn og sessunautur. Við komum þá heim til Haildórs í Austurbyggð og fengum þar góðar viðtökur og leið- beiningar. í þessu fólst viðurkenning sem okkur Ríkarði þótti vænt um, og í þessu forfallastarfi þreytti ég frum- raun mína sem kennari og hafði bæði gagn og gaman af. Að loknu stúdentsprófi um vorið stóð hugur minn til háskólanáms. Ég hafði ætlað mér að leggja stund á lyfjafræði, en eitthvert hik var á mér, og ég hafði engar ráðstafanir gert fyrir haustið. Undir niðri langaði mig í íslensk fræði, en vissi ekki hvort lat- ínulaus stærðfræðideildarstúdent fengi að innritast í þá grein. Nú var gott að eiga Halldór að. Ég hringdi og hann bauð mér að koma til sín. Það var komið sumar og Halldór var úti við að mála glugga þegar ég kom. Sigríður tók ljúfmannlega á móti mér og vísaði mér til stofu. Eftir drykk- langa stund kom Halldór og sagði við mig um leið og hann birtist í dyran- um: „Þetta er enginn vandi, Baldur minn, farðu bara í það sem þig langar til.“ Þessi orð urðu mér mikil opin- beran; það var ekki tíska að hugsa þannig. Menn áttu að fara í eitthvað hagnýtt og lífvænlegt, hvað sem allri löngun leið; bekkjarbræður mínir flykktust í verkfræði. Halldór hélt að ég væri af skyldurækni að hugsa um íslensku og bjóst við að lyfjafræðin togaði í mig og sú afkomuvon sem henni tengdist. Hann spurði hvort mig langaði til að verða ríkur, en ég kvað nei við því. Ég sagði að mig langaði í íslensku. Þá varð Halldór bæði undrandi og glaður, og gat ekki dulið það, sagði að þjóðfélagið hefði nóg að gera með menn eins og mig. Þeim orðum gleymi ég auðvitað aldrei. Þegar þetta var hafði maður með próf í íslenskum fræðum, jafnvel meistarapróf, engin starfsréttindi neins staðar, ekki einu sinni sem ís- lenskukennari í neinum skóla. Samt fór ég í íslensk fræði um haustið og sé ekki eftir því. Þó að Halldóri vegnaði vel á Akur- eyri stóð hugur hans til meiri fræði- starfa en hann gat sinnt með menntaskólakennslunni. Það fór því svo að hann kom suður svo að segja á hæla mér. Eftir fráfall Björns Guð- finnssonar prófessors fékk Halldór leyfi frá kennslustörfum á Akureyri í ársbyrjun 1951 til að helga sig rann- sóknum í Reykjavík. Hann sat þá löngum á Háskólabókasafni og und- ii’bjó doktorsrit sitt um íslensk orð- tök, og við hittumst þá stundum. Sama ár varð hann eftirmaður Björns í háskólanum og fluttist bú- ferlum til Reykjavíkur um haustið. Hann var þá aftur orðinn kennaii minn, og það var mín gæfa. Þau Halldór og Sigríður bjuggu á mörgum stöðum hér fyrir sunnan, víða í Reykjavík, en einnig í Hafnar- firði og Kópavogi. Mér er minnis- stætt hvað mér þótti heimili þeirra á Akm-eyri fallegt. Siðar varð ég tíður gestur hjá þeim, hvar sem þau komu sér fyrir, og nánast eins og heima- gangur, einkum þegar þau áttu heima á Hagamel 16 og stutt var á milli okkar. Alltaf var jafngott að koma til Halldórs og Sigríðar, alltaf mætti mér sama hlýjan og vinsemd þeirra beggja, og alltaf var jafngam- an að blanda geði við þau bæði. Þau vora mjög samhent, og ég undraðist oft hvað þau vora dugleg að flytja sig til, en það var eins og engu máli skipti hvernig húsakynni vora. Ailtaf var heimili þeirra jafnsmekklegt og notalegt. Þau vora snillingar í að laga sig að aðstæðum. Halldór þakkaði Sigiíði það. Henni lék allt í höndum eins og hún átti kyn til, hún hafði næmt auga og var listagóð hannyrða- kona eins og móðir hennar. Heimilið bar merki þess. Slík kona hefði ein- hvem tímann fengið viðurnefnið „hin haga“. Hálf öld er svo sem enginn óra- tími. En síðari hluti þessarar maka- lausu 20. aldar er að vissu leyti eins og mörg tímaskeið. Þegar mat er lagt á verk þeirra sem ævistarfi ljúka á efri áram er hætt við að það gleymist að hyggja að þeim starfs- og lífsskil- yrðum sem fólkið bjó við. Þá má ekki einblína á aðstæður líðandi stundar. Nú verður varla fundinn háskóla- kennari sem notar ekki tölvu við rit- störf sín, og því síður svo ungur há- skólakennari að hann hafi aldrei komið út fyrir landsteina. Halldór Halldórsson vann engin verk á tölvu; þau tæki komu of seint fyrir hann. Og hver skyldi tráa því að hann var orðinn 44 ára þegar hann fór til út- landa í fyrsta skipti? Það var sumarið . 1955. Á lektorsáram mínum í Gauta- borg 1960-1963 kom aldrei fyrir að ég talaði heim í síma né heldur að hringt væri til okkar að heiman. Slíkt var alltof dýrt. Og aldrei gátum við leyft okkur að „skreppa heim“ á þessum áram. Þeim mun dýrmætara var að fá fréttir að heiman í einkabréfum. Ég hefi stundum sagt að Halldór, fóstri minn, hafi öðram fremur haldið í mér lífinu með bréfaskriftum sín- um. Hann var ótrálega duglegur að skrifa mér, og ég las hvert bréf frá honum mörgum sinnum. Sigríður sagði löngu seinna að hún hefði verið alveg undrandi á því hvað Halldór var iðinn við að skrifa. En þökk sé honum ævinlega fyrir það. Ég tala nú ekki um, hvað það var gaman að fá þau bæði í heimsókn vorið 1962 þeg- ar þau gistu hjá okkur í Gautaborg. Nokkram áram eftir Svíþjóðar- dvölina fórum við hjónin að basla við að koma okkur upp þaki yfir höfuðið hér í Reykjavík og höfðum, eins og gengur, lítil efni til þess. Aðalgaldur- inn var að komast yfir viðráðanleg lán. Halldór fylgdist vel með og hafði von um að geta greitt fyrir því að ég fengi eitthvað úr sjóði sem hann vissi um. Hann ætlaði að kanna málið. Mig minnir að ég hafi þurft að fá botn ;í það fyrir áramót og það hafi staðið eítthvað tæpt. Þá er hringt og Sigríð- ur er í símanum. Halldór var vant við látinn vegna skyldustarfa, en þá kom hún í hans stað eins og ekkert væri sjálfsagðara og flutti mér góðar fréttir. Þannig voru þau ævinlega, hvort sem annað. Hér hefir aðeins verið drepið á fátt eitt, en mér er óhætt að fullyrða að engum mönnum, mér óvandabundn- um, hefi ég átt jafnmargt gott upp að inna og þeim hjónum, Halldóri Hall- dórssyni og Sigríði Guðmundsdóttur. Fyrir vináttu þeirra og umhyggju- semi þakka ég af heilum hug. Bless- uð sé minning þeirra beggja. Baldur Jónsson. Landfræðileg einangran íslands veitti þjóð okkar mikið frelsi fyrr á öldum, en setti henni jafnframt þröngar skorður. Samt var það ekki kunnugt fyrr en á miðri þeirri öld, sem nú er að ijúka, að landið liggur við norðurjaðar eins af þremur stormasömustu hafsvæðum verald- ar. Hér urðu heldur ekki aðrir þjóð- flutningar en landnámið sjálft og móðurmálið hefur fengið að þróast á eigin forsendum, einsleitt og tiltölu- lega Mtið breytt. Iðnbyltingin, sem tahn er hefjast 1769 með tilkomu gufuvélarinnar og gerbreytti Evrópu, náði vart hingað út fyrr en um aldamótin 1900. Þá vár' enn róið með áram til fiskjar, tún slegin með orfi og ljá, mór stunginn með skóflu og riðið um hérað á hest- um. Þegar undirritaður var húskarl hjá séra Jóni prímusi sumarið 1925, vora engir lagðir vegir á Snæfells- nesi og engai’ vinnuvélar nema mó- torar í fáeinum trillubátum. Nú má segja, að ekkert handtak sé unnið með sama hætti og þá. En það, sem meira munar um, er að nú vinna margir að annars konar verkum en áður þekktust og þurfa að læra og kunna annað og miklu meira en fyrr. Allt þetta hefur orðið á undra- skömmum tíma. Menn átta sig fyrst á því eftir á. Engin ástæða er til að ætla að breytingar verði hægari á komandi ái’um. Menn þurfa tungumál við vinnu og meiri orðaforða við margbrotin verk. En tæknilegur orðaforði í tungumáli vex nú á tímum einkum með tökuorá- SJÁ NÆSTU SÍÐTJ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.