Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 60
JjP FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Þrjátíu silfurpeningar
SEM gömlum ís-
lendingi líður mér orðið
illa á landinu mínu.
Kemur þar helst til að
væntingar um betri
samskipti þessarar litlu
þjóðar gætu batnað
hvað varðar alla þegna
þjóðarinnar. í einfeldni
sá ég grósku í félagsleg-
um þroska, eitthvað í
líkingu við hinn tækni-
lega sem hefur verið
gífurlegur síðastliðin
hundrað ár. Því miður
örlar ekki á neinum fé-
lagslegum framförum.
Vegna káks og hræsni valdhafanna
vinna þeir mest fyrir aðila sem síst
hafa þörf fyrir aðstoð. Þegar ég kýs til
þingsetu menn ætlast ég til þess að
þeir vinni fyrir alla heildina. En út-
koman er döpur og leiðir tii meira
óréttlætis en fyrr hefur þekkst á
landinu okkar. Þegar land var numið
var þrælahald fárra yfír fjöldanum
löglegt og sjálfsagt og þrælaveiðar at-
vinnugrein. í dag hefur lygi og áróður
forgang og fólki talin trú um jafnan
rétt allra. En hveijar eru staðreynd-
imar:
Sjaldan hefur launamunur og
stéttaskipting verið meiri og fer vax-
andi hröðum skrefum.
Síðastliðin tuttugu ár hafa lántak-
endur verið arðrændir með kolrangri
verðtryggingu peninga og nú standa
lántakendur og mörg heimili lands-
manna á mörkum gjaldþrota. Ein-
staka heimili lifa af ósköpin með
blóðvinnu og þrældómi en þegar
þrællinn hrekkur upp af skulu erf-
ingjar skila um 40% aftur til sameign-
arinnar, sameignar sem verið er að
færa fjáraflamönnum - og hveijir
‘græða á rangri verðtryggingu pen-
inga? Ekki lántakendur, aðeins fjár-
magnseigendur, hveiju nafni sem
þeir nefnast.
Einkavæðingin
Eingöngu byggð upp fyrir hina fáu
sem eiga peninga svo þeir geti eignast
meiri peninga. Skuldugir kaupa ekki.
En fjármagnseigendur bæta áfram
seðlum í troðna vasana studdir af rfk-
isvaldinu og stefnu verkalýðsleiðtoga.
Sem sagt engin þróun til betri mann-
legra samskipta. Gjafakvótinn marg-
umræddi: Augljóst dæmi um hugsun-
arhátt mismunasinna.
Verðbréfafárið
yJSÍýtt til að mismuna og færa verð-
mæti enn frekar til þeirra sem nóg
eiga. Skuldugir kaupa ekki. Þetta fár
ætti að vera öllum Ijóst og hefur verið
reynt áður og endað með hruni, n.b.
hrunið kemur verst niður á hinum fá-
tækustu. Þeir borga brúsann þó þeir
hafi ekki efni á því að
taka þátt í vitleysunni.
En vinningur verðbréfa
verður aldrei út dreg-
inn. Hann er óraunhæf-
ur. Landsala: Það
hættulegasta sem er að
gerast hjá íslenskri þjóð
er landsala til fjár-
magnseigenda.
Það er verið að selja
landið mitt, það á að
selja sameign okkar
föðurlandið sjálft og um
leið og landið mitt er
selt verð ég landlaus
Hjálmar Jónsson aumingi og leiguliði í
eigin landi. Svo geta eigendur selt
landið mitt ef þeim býður svo við að
horfa. Raunar er þegar búið að selja
allar veiðiámar okkar útlendingum.
Það er uppselt fyrir mig og þig. Þing-
vallavatn er opið og í eigu okkar en
hvenær verður það selt? Verði svona
áfram haldið mun landið selt og „eig-
endur“ geta skipt á því og lélegum
knattspymuliðum eða ryðguðum tog-
uram. Fádæma lítilsvirðing margra
þingmanna: Allt sem hinn almenni
borgari hefur að segja varðandi mál-
efni landsins er rugl eða tilfinninga-
ragl sem ekki er mark á takandi.
Stjómendur vissu þó varla betur
þegar allt votlendi í byggð var þurrk-
að upp á Islandi um 1950. Nú er verið
að moka ofan í skurðina til þess að
endurheimta landgersemar að nýju.
Það sama átti að gera við Eyjabakka
án umhugsunar, sökkva landinu
mínu. Kaldhæðni að gróðahyggja
stoppar það. Svo er undranarefni
mannfyrirlitning sem felst í skoðun
margra að um alla eiMfð skuM vera gjá
milM manna og þeim skipt í ríka og fá-
tæka, hálaunaða og láglaunaða. Það
gleymist að menn era með fjölbreytta
eiginleika og eiga allir hinn sama rétt
til þess að vera það sem þeir eru án
þess að á þeim sé troðið launalega.
Þetta er fólkið sem skapar verðmæti
þjóðarinnar. Það gera síður hinir
„heppnu" sem þrífast á lögleysu og
brotum á stjómarskrá landsins. fs-
lensk fyrirtæki hafa sýnt að þau geta
framfleytt þessu landi á eðHlegan hátt
án lögbrota en stjómvöld veita þeim
síður stuðning heldur vasast í erlend-
um fyrirmyndum sem hér eiga ekki
við.
Með glampa í augum og dáleiddir
horfa stjómendur litla Islands til
væðingar misréttis sem getur ekki
leitt til annars en styijalda og blóðs-
úthellinga . Ekki er úr vegi að skoða
hvað tuttugasta öldin færði okkur.
Þar ber hæst tvær heimsstyijaldir
með öllum þeim hörmungum og of-
beldi sem því fylgdu. Báðar háðar
vegna misréttis. Byltingin í Rússlandi
er skýrt dæmi um það að undirokaðir
Þjóðfélagsmál
Allt sem byggt hefur
verið upp varðandi sam-
eign og samvinnu þegn-
anna, segir Hjálmar
Jónsson skal fyrir róða.
rísi til andmæla fyrr eða seinna . Þó
blóðið rynni þar til einskis vegna ár-
áttu mannsins til misskiptingar þá
eins og nú. Svo mun einnig verða með
það misréttisform sem okkur er boðið
upp á nú. Því verður mótmælt annað
hvort með gereyðingu stofnsins eða
upp verður tekið nýtt form samskipta
sem tekur tillit til allra einstak-
Mnganna. Þrátt fyrir reynslu misrétt-
is og hefnda á síðustu öld er eins og
maðurinn læri ekki neitt heldur auki
við óréttlætið og ekki verður betur
séð en stór hluti íslensku þjóðarinnar
fylgi blindur með í voðaleiknum. Með
því verður hann líka að taka afleiðing-
unum.
Það skrítna í þessum leik er að
gráðugir byija baráttu gegn hvor
öðram. Það er þegar bytjað að bera á
væringunum hérlendis meðal ijár-
magnseigenda.Til samanburðar má
líta til sögunnar, hún var barátta
höfðingja um meiri auð og völd og
baráttan hefui- raunar staðið ailt frá
landnámstíð. Á miðöldum tóku prest-
ar og löglærðir við kúguninni og eru
rétt nýbúnir að sleppa því taki til
handa hinni nýju stétt kvótaeigenda
og einkavæðingargeirans. En mergur
málsins er: Við höldum vitleysunni
áfram, misskiptingin skal í hávegum
höfð og sturlungaöld áfram haldið.
Þetta form aðhyllast forsvarsmenn
okkar, mennirnir sem við kusum til
þess að bæta öreind í sjóð jafnréttis.
Stjórnendur hafa þó eina afsökun.
Það er hægt að segja okkur hvað sem
er. Meira að segja það að enginn ís-
lenskur bankastjóri hafi verið með
viti fram að þessum tíma heldur hafi
ofurmenni orðið til á einni nótt í FBA
og víðar, þó augljóst sé heilvita fólki
að aðstæðumar sem verið er að skapa
yfirstéttinni ráði öllu vai’ðandi fram-
gang þar. En núverandi stefna er
augljós: AJlt sem byggt hefur verið
upp varðandi sameign og samvinnu
þegnanna skal fyiir róða og upp tekið
kerfi ríkra höfðingja í stað sameigin-
legs ríkis þegnanna alh-a.
Ef meirihluti íslensku þjóðarinnai’
vill lúta þessum skilmálum, þá verður
svo að vera. Frá mínum bæjardyram
séð þá er þessi leið misskiptingar al-
ger stöðnun og skrefið afturábak,
ekki nokkuð á leið.
Höfundur er verkstjóri.
Um hjartasjúkdóma
RÚMLEGA 14 millj-
ón manns deyja árlega í
heiminum af völdum
hjartasjúkdóma.
Árið 2020 er taHð að
tala dauðsfalla muni
verða um 20 milljónir á
ári.
Vanþróuð lönd hafa
ekki farið í gegnum þá
breytingu á munstri
dánarorsaka sem átti
sér stað fyrir mörgum
áratugum á Vesturlönd-
um, þ.e. að smitsjúk-
dómar hættu að vera
helsta dánarorsökin, en
langvinnir sjúkdómar
tóku við. Þótt enn sé
langt í land með að útrýma smitsjúk-
dómum í þriðja heiminum, er hlut-
fallslegt vægi langvinnra sjúkdóma,
svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, að
aukast í þróunarlöndum eins og í
Kína og á Indlandi.
Hjarta- og æðasjúkdómar era enn
um 50% af aldursstöðluðum dánaror-
sökum á Vestui'löndum, þar af um
helmingur vegna kransæðasjúkdóms,
þriðjungur vegna heilablóðfalls en
afgangurinn af öðram hjaita- og æða-
sjúkdómum. Vægi hjarta- og æða-
sjúkdóma fer minnkandi í þessum
löndum. Lækkunin byijaði í Banda-
ríkjunum um 1970, en á Norðurlönd-
um um 1980. Fækkun dauðsfalla af
þessum sjúkdómum í Vestur-Evrópu
má vafaMtið þakka því, að dregið hef-
ur úr áhættuþáttum hjartasjúkdóma
auk þess sem meðferð hefur batnað.
Mikilvægi meðferðar má meðal ann-
ars sjá af því að fleiri lifa
nú af hjartasjúkdóma
en áður var. Hjartabil-
un eftir kransæðasjúk-
dóm verður æ meira
vandamál eftir því sem
fleiri lifa sjúkdóminn af
og ná háum aldri.
I Austur-Evrópu er
aðra sögu að segja. Þar
vora dauðsfoll af völd-
um hjartasjúkdóma al-
gengari en á Vestur-
löndum fyrir hrun
kommúnismans og þar
hefur, gagnstætt því
Matthías sem gerist á Vestur-
Hatlddrsson löndum, orðið veraleg
aukning hin síðustu ár.
Rangt er að Mta á hjartasjúkdóma
sem hrörnunarsjúkdóma eingöngu.
Hægt er að hafa veraleg áhrif á
áhættuþætti hjartasjúkdóma með
breyttum lífsstíl.
Helstu áhættuþættimir era matar-
æði (hátt kólesteról), hár blóðþrýst-
ingur, reykingar og hreyfingarleysi.
Af hreyfingarleysi og slæmu matar-
æði leiðir svo offita, sem er sjálfstæð;
ur áhættuþáttur hjartasjúkdóma. í
flestum vestrænum löndum hefur
kólesteról lækkað veralega í blóði
með bættu mataræði, minni neyslu á
mettuðum fitusýrum og meiri neyslu
grænmetis og ávaxta. Almenningui-
og læknar era betur meðvitaðir um
mikilvægi þess að fylgjast með blóð-
þrýstingi en áður var. I mörgum lönd-
um hefur dregið veralega úr tóbaks-
neyslu. Á móti kemur að
hreyfingarleysi og offita er vaxandi
Sjúkdómar
Hægt er, segir Matthías
Hallddrsson, að hafa
veruleg áhrif á áhættu-
þætti hjartasjúkdóma
með breyttum lífsstíl.
vandamál á Vesturlöndum.
Áður fyiT var talið að hjartasjúk-
dómar væra algengari meðal hinna
ríku. Það á vissulega ekki við í vest-
rænum löndum nú á dögum. Þar hef-
ur lækkun dánartölu af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma orðið mun
hraðari hjá efnuðum og vel menntuð-
um þjóðfélagsþegnum.
Hlutverk stjómvalda er að auð-
velda fólki að breyta lífsstíl sínum til
hins betra. Þetta er mögulegt með
ýmsum stjómvaldsaðgerðum, t.d.
með hárri skattlagningu á tóbak, en
minni á matvæh sem stuðla að heil-
brigði. Bættar gönguleiðir, hjóla-
brautir og aðstæður til útivistar era
verkefni umhverfis- og samgöngu-
ráðuneyta, landbúnaðarráðuneytið
hefur hlutverki að gegna vegna mat-
vælaframleiðslu, menntamálaráðun-
eyti vegna uppfræðslu almennings og
svo mætti lengi telja. Þar sem hjarta-
sjúkdómar era fremur sjúkdómar
þeirra fátæku en hinna ríku, geta
stjómvaldsaðgerðir sem miða að jöfn-
un lífskjara haft jákvæð áhrif.
Höfundur er aðstoðarlandlæknir.
ATVINNUAUGLYSI
Café Victor
viðlngólfstorg
óskar eftir aö ráða
jákvætt og áhugasamt
starfsfófk til starfa
VICTOR
Eftirtalin störf eru iaus til umsóknar:
Starf fyrir hugmyndartkan og
metnaðarfullan matreiðslumann.
Start fyrir aðstoðamann í
eldhúsi.
Fullt starf í báðum tilvikum.
Upplýangar gefur Ingvar Svensen í
SÍme: 561 9555 eða 697 9003.
Geysisstofa — nýtt safnahús í Haukadal
óskar eftir að ráða
móttökustjóra
Móttökustjóri hefur umsjón með safnahúsi/
Geysisstofu.
Tekur á móti hópum, annast kynningarmál
o.fl. Tölvu- og tungumálakunnátta nauðsynleg.
Húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar veita ferðamálafulltrúi í
s. 486 8810 og Már Sigurðsson Hótel Geysi
í s. 486 8915. Umsóknirsendist Mbl. fyrir
17. apríl merktar: „Geysisstofa".
Píparar
Getum bætt við okkur pípulagningarmönnum,
mönnum á samning og aðstoðarmönnum.
Mikil vinna.
Alhliða pípulagnir,
sími 567 1478 milli kl. 9 og 19.
Afgreiðslustörf
Duglegt, röskt og reglusamt fólk vantar nú
þegartil afgreiðslustarfa. Æskilegur aldur 20
ára og eldri. Reyklaust og reglusamt.
Upplýsingar gefa Kristjana í síma 699 5423 og
Margrét í síma 561 1433.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir starfskrafti í verslun okkar í
Kringlunni. Framtíðarstarf. Vinnutími frá kl.
12 — 18/18.30. Æskilegur aldur 20—50 ára.
Umsækjendur komi til viðtals á skrifstofu
Ólympíu, Auðbrekku 24, Kópavogi, milli kl.
10 og 14 í dag og á morgun.
■L
lympíí
Kringlunni 8—12, sími 564 5650.