Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 68
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Vinsældalisti þar sem
þú hefur áhrif!
4 á uppleið
■^•stendur í stað
4 á niðurieið
V nýtt á iista
k
mmSmlmm
Vikan 13.04. -19.04.
HÞ- 1. Never Be The Same Again
Mel C. og Lisa "Left eye” Lopez
2. Hann
Védís H. Árnad.
4 3. Hryllir
Védís H. Árnad.
4 4. Say My Name
Destiny’s Child
4 5. Falling Away From Me
Korn
4 6. Run to the Water
Live
4 7. Don’t Wanna Let You Go
Five
4 8. Crushed
Limp Bizkit
4 8- Other side
Red Hot Chili Peppers
4
♦
10. Guerilla Radio
Rage Against The Machine
11. The Ground Beneath Her Feet
U2
4 12. Starálfur
Sigur Rós
4 13. Maria Maria
Santana
4 14. Okkarnótt
Sálin hans Jóns míns
4 15. Caught Out There
Kelis
k 16. Forgot About Dre
Eminem
4 17. Dolphins Cry
Live
4 18. Feeling So Good
Jennifer Lopez
.V 19. TellMe
Einar Ágúst og Thelma
4 20. Show Me The Meaning
Backstreet Boys
Listinn er ðformleg vinsældakðnnun og byggist á vali gesta mbl.is.
® mbl.is tdpp sn
SKJÁRE inn
Um smekk deila
menn ekki
ERLINGUR B.
Thoroddsen skrifaði
mér hinn 4. apríl sl.
opið bréf í Morgun-
blaðinu, af því tilefni
að mér hafi orðið það
á að tala af takmark-
aðri virðingu um ham-
borgara.
Nú er það svo að
þeir sem teygja
þrætubókarlopann
dag út og dag inn á
hinu háa Alþingi eru
þeim stundum fegn-
astir er þeir verða
þess varir að úti í
þjóðfélaginu eru ein-
hverjir sem hlusta,
taka afstöðu og eru jafnvel til þess
búnir að skilja kjarnann frá hism-
inu í hverju máli. Því vil ég þakka
Erlingi B. Thoroddsen bréf hans.
Og þótt umræðurnar á Alþingi
þann 23. febrúar sl., sem hann
vitnar til, hafi að vísu ekki snúist
um hamborgara heldur um breyt-
ingar á áfengislögum, gefur bréf
hans mér kærkomið tækifæri til
þess að ítreka þá skoðun, sem ég
deili með fjölmörgum öðrum, að
líklegt sé að drykkjuskapur muni
aukast með auknu aðgengi að
áfengi.
Sú tillaga sem var til umfjöllun-
ar á Alþingi í febrúar sl. snerist
um það að breyta áfengislögum í
þá veru að selja mætti bjór og létt-
vín í matvöruverslunum.
Skoðun mín er sú að verði slíkar
breytingar á áfengislöggjöfinni
samþykktar muni tvennt fylgja í
kjölfarið, og hvorugt gott. Annars
vegar mun léttvín og bjór hverfa
úr verslunum ÁTVR og í stað rík-
iseinkasölu á þeim vörum því taka
við einokun matvörukeðja, því ég
hef ekki mikla trú á því að þeir fáu
kaupmenn á horninu sem enn
halda velli muni leggja dýrmætt
hillupláss sitt undir úrval léttra
vína, að ég nú tali ekki um bjór.
Með slíku ráðslagi
mun svo þrengt að
kosti ÁTVR, að þegar
næst verður lagt til
atlögu og sagt sem
svo að engin skyn-
samleg rök hnígi til
þess að halda uppi
ríkisstofnun í þeim til-
gangi einum að selja
brennd vín, þá verður
erfitt að verjast því að
hér komist á svipað
fyrirkomulag og í
Danmörku þar sem
rauðvínsfernurnar
kallast á við mjólkur-
kælinn, og gosstæð-
urnar á gólfinu una
sér vel í samfélagi við bjórinn.
Brenndu vínin eru svo vistuð bak
við kassana á svipuðum stað og við
Áfengislöggjöf
Líklegt er, segir Sigríð-
ur Jóhannesddttir,
að drykkjuskapur muni
aukast með auknu
aðgengi að áfengi.
höfum í dag sælgæti og sums stað-
ar tóbak.
Ég vildi vara við þessari þróun
því mér sýnist að hún verði ekki
aðeins til þess að auka aðgengi að
áfengi heldur muni salan færast í
hendur verslunarkeðja þar sem að
sjálfsögðu er stefnt að því að auka
sölu og þar með ágóða. ÁTVR mun
hins vegar hér eftir sem hingað til
feta það torleiði að leitast við að
auka ágóða af söluvöru sem við
viljum helst takmarka neyslu á.
Um ágreining okkar Erlings get
ég verið stuttorð, enda kannski
ekki um neinn ágreining að ræða.
I þeim orðum sem hann vitnar til
benti ég á þá staðreynd að smám
saman hefur ýmislegt það sem tor-
veldað hefur aðgengi að áfengi
hægt og hljóðlega horfið. í eina tíð
var áfengi einvörðungu á boðstól-
um á þeim stöðum þar sem boðið
var upp á veislumat. Nú sýnist
mér að þessar reglur hafi verið
rýmkaðar í þá átt að nánast hvaða
skyndibitastaður sem er geti boðið
gestum sínum upp á vín og bjór.
Nú er það svo að hamborgari er
kannski vinsælasti skyndibitinn og
því varð mér það á að nota sem
„hluta fyrir heild“, orðalagið
ómerkilegur hamborgari fyrir óm-
erkilegur skyndibiti. Á þvílíkum
ruglanda er mér bæði ljúft og
skylt að biðja afsökunar.
Hér á árum áður hitti ég oft út-
lenda ferðamenn sem kvörtuðu
sáran yfír bjórleysi á Islandi. Nú
kvarta þeir yfir verði á veigunum.
Þótt alltaf sé dapurlegt að heyra
útlendinga kvarta yfir viðurgern-
ingi finnst mér þó verst þegar ég
hitti slíka ferðamenn sem kvarta
yfir því að á ferðum sínum hafi
þeir alltof oft fengið í hendur sömu
matseðlana, þar sem boðið hafi
verið upp á sams konar skyndibita
og þeir gátu keypt í hverri sjoppu
heima hjá sér. Éini munurinn væri
verðið. Mér hefur þó skilist að
hvað þetta snertir hafi víða orðið
breytingar til batnaðar. En ég
býst við að við Erlingur B. Thor-
oddsen, veitingamaður á veitinga-
húsinu Norðurpólnum, getum
hæglega orðið sammála um það að
veitingar séu jafn misjafnar og
veitingamennirnir. Og þótt ég láti
ekki af þeirri skoðun minni að
vínsala í matvöruverslunum muni
auka drykkju dreg ég ekki í efa að
Skinnalónsborgarinn á Norðurpóli
sé hinn ágætasti matur.
Höfundur er alþingismaður
Samfylkingarinnar i Reykja-
neskjördæmi.
Jóhannesdóttir
Afnema ber verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga
STÖÐUGLEIKI er
nauðsynlegur fyrir
efnahagslífið og fólk al-
mennt til þess að
tryggja hagvöxt og vel-
gengni í þjóðfélaginu.
Undirstaða þess að svo
megi verða er að öll
sjálfvirk hækkunar-
kerfi séu afnumin og í
stað þess fari menn að
stjóma. Vísitölur eru
ill, ranglát og ósann-
gjöm stjórnunartæki
enda hafa þær í ríkum
mæli flutt eignir frá
þeim sem lítið eiga til
þeirra sem efnaðir era.
Verðtrygging
fjárskuldbindinga
Ég hef talið að mestu mistök 20.
aldarinnar í efnahagsmálum hafi
verið þau að taka upp verðtryggingu
fjárskuldbindinga. Þá var fólk svipt
allri fjármálalegri vitund og sjálfs-
stjóm. Undirskrifaðar lántökuupp-
hæðir stóðust ekki og urðu himinhá-
ar. Verðlagshækkanir urðu til þess
að stríður sjálfvirkur straumur fjár-
magns lá frá skuldurum til fjár-
magnseigenda. Erlendar vörahækk-
anir sem verða til að rýra almenn
lífskjör í landinu hafa m.a. þær sjálf-
virku aukaverkanir að hækka skuld-
ir námsfólks og fjölskyldufólks sem
er að byggja sig og heimili sín upp.
Þetta er æpandi ósanngimi sem
verður að stöðva.
Fjármál
Mynda þarf nýtt lána-
kerfí óverðtryggðra
langtímalána, segir Páll
V. Daníelsson, til að
leysa verðtrygginguna
af hólmi.
Hækkun
fasteignamats
Það er þung skattlagning á fjöl-
skyldufólk og aldraða þegar fast-
eignamat íbúða er látið sveiflast með
söluverði á fasteignamarkaðnum.
Miklar hækkanir á íbúðum orsakast
frekar af skorti en hagvexti. Það þarf
ekki að vera að opinber kostnaður
vegna fasteigna hafi aukist. Þá má
geta þess að ekki eru slíkar mats-
breytingar látnar ganga yfir aðrar
eignir eins og t.d. hlutabréf. Verð-
trygging lána og verðtrygging fast-
eignagjalda kemur þyngst niður á
þeim sem síst skyldi. Og miklir fjár-
munir streyma til fjármagnseigenda,
ríkis og sveitarfélaga sjálfvirkt, þ.e.
án stjórnunarlegrar ákvarðanatöku
hverju sinni. Sjálfvirku hækkanimar
era baggi sem létta þarf af almenn-
ingi nú þegar.
Höfundur er viðskiptafræðingur
Afnám fjárskuld-
bindinga þarf að fara
fram strax. Lána-
drottnar eiga ekki erf-
iðara með að taka slíkt
á sig fyrirvaralaust en
skuldarar sem urðu að
taka á sig verðtrygg-
inguna áður. Mynda
þarf nýtt lánakerfi
óverðtryggðra lang-
tímalána til að leysa
verðtrygginguna af
hólmi. Vilji skuldari
ekki breyta lánum sín-
um á hann að hafa val
þar um enda sé hægt að
taka málið upp síðar.
Að vernda
stöðugleikann
Launþegar gáfu á sínum tíma eftir
vísitölubindingu launa. Það var mikil
ákvörðun og viturleg eins og sannast
hefur. Þannig var gert stórt átak til
að mynda stöðugleika i efnahagslíf-
inu. Eg skildi ekki þá og skil ekki enn
hvers vegna ekki var hafður sami
háttur á varðandi fjárskuldbindingar
og vísitalan afnumin. Fjármagnseig-
endur munu taka miklu fastar á með
launþegum til að vernda stöðugleik-
ann ef þeir hafa ekki sjálfvirka bak-
tryggingu til að verja fjármuni sína.
Það ætti ekki að láta tuttugustu öld-
ina líða áður en gert er hreint í þessu
efni.
Páll V.
Daníelsson