Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 1
107. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Uppreisnarmenn í Sierra Leone sagðir nálgast Freetown
Unnið að því að styrkja
varnir borgarinnar
Freetown, Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP, Reuters.
Þúsundir flóttamanna af landsbyggðinni koma til Freetown, höfuðborg-
ar Sierra Leone, dag hvern. Ottast þeir uppreisnarmennina, sem eru
kunnir að því að drepa og limlesta óbreytta borgara án nokkurs tileftiis.
Hollustan
hopar fyr-
ir „matar-
klámi“
Los Angeles. Daily Telegraph.
„MATARKLÁM" er það kallað
í Bandaríkjunum og felst í því
að éta og drekka og vera glað-
ur, a.m.k. í einhvem tíma. Er
um að ræða nokkurs konar and-
óf gegn áróðrinum fyrir holl-
ustu og heilsusamlegu lífemi og
matvælaframleiðendur virðast
vera vel með á nótunum.
Bandaríkjamönnum sem
þjást af offitu fjölgaði um helm-
ing á síðasta áratug og næring-
arfræðingar segja að haldi sú
þróun áfram með sama hætti
verði allir landsmenn orðnir of
feitir árið 2010.
Sum matvælafyrirtæki reyna
að hagnast á þessari nýju tísku
og nú er t.d. farið að auglýsa
samlokm’ með þessum hætti:
„Inniheldur 12 grömm af mett-
aðri fítu, a.m.k. 60% af daglegri
þörf.“ Kraft býður upp á osta-
kökusnakk sem er þrefalt feit-
ara en venjuleg ostakaka og
Nestlé er með súkkulaði sem
inniheldur átta sinnum meira af
mettaðri fitu en venjan er.
Margir láta sér þetta vel líka og
segja að þeir vilji bara borða
það sem þeim finnst gott.
VOPNAÐAR sveitir, sem styðja
stjómvöld í Sierra Leone, og gæslu-
liðar Sameinuðu þjóðanna styrktu í
gær varnir sínar í höfuðborginni,
Freetown, en búist var við að upp-
reisnarmenn reyndu að ná henni á
sitt vald. Mikill flóttamannastraum-
ur var í gær til borgarinnar frá ná-
lægum héruðum enda em uppreisn-
armenn orðlagðir fyrir grimmd og
voðaverk.
Fjöldi hermanna og vopnaðra
sveita var sendur í gær til þorpa og
bæja skammt frá Freetown og átti
þar að verjast framsókn uppreisnar-
manna. Fred Eckhard, talsmaður
Kofi Annans, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
hermennirnir væm að búa sig undir
það versta og hugsanlega bardaga í
návígi. Gæsluliðið væri þó alls ekki
undir mikil átök búið, hvorki hvað
varðaði vopnabúnað né þjálfún.
Gæsluliðamir em alls 8.700 en
uppreisnarmenn í Sameinuðu bylt-
ingarfylkingunni, RUF, hafa allt að
500 félaga þeirra á sínu valdi.
Stjómina styðja nokkrar vopnað-
ar sveitir, sem era andvígar upp-
reisnarmönnum, og bjuggu þær um
sig í gær í bæjunum Waterloo og
Masiaka sem em við þjóðleiðina til
höfuðborgarinnar.
Tony Cramp, talsmaður breska
herliðsins, sem sent var til Free-
town, sagði í gær að það myndi að-
stoða gæsluliðið með ýmsum hætti
en Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefur ekki svarað með
beinum hætti ósk stjórnvalda í
Sierra Leone um að breska herliðið,
800 manns, taki þátt í vörn höfuð-
borgarinnar. Blair sagði aðeins að
brottflutningi breskra þegna frá
borginni yrði haldið áfram en þeir
em raunai’ flestir farnir.
Leiðtogar Vestur-Afríkuríkjanna
sögðu í fyrradag að þeir kynnu að
senda herlið til Sierra Leone til að
koma í veg fyrir valdatöku uppreisn-
armanna og í gær kváðust Rússar
mundu senda 106 hermenn og þyrlur
til landsins. Þá ætla Indverjar að
senda 800 úrvalshermenn til lands-
ins en í gæsluiiðinu em 1.600 Ind-
veijar og era líklega 50 þeirra í
höndum uppreisnarmanna.
Óttast uppreisnarmenn
Gylfi Pálsson, starfsmaður Ai-
þjóðabankans, var í Freetown í síð-
ustu viku á vegum bankans og var
einn af þeim sem SÞ fluttu burt í
skyndi sl. laugardag. I viðtali við
Morgunblaðið sagði hann að mikil
óvissa væri í landinu enda óttaðist
fólk mjög hugsanlega valdatöku upp-
reisnarmanna.
■ Óvissa/28
Indverjar
einn millj-
arður í dag
MANNFJÖLDAKLUKKAN í Nýju
Delhí bilaði í gær, daginn áður en
hún átti að sýna að Indverjar væru
orðnir einn milljarður að tölu. Átti
að drífa í því strax að skipta um
klukkuverkið en áætlað hafði ver-
ið að milljarðasti þegninn liti dags-
ins ljós nú upp úr hádegi. Þykir
það ekkert fagnaðarefni enda var
klukkan sett upp til að minna
landsmenn á að fjölgi þeim áfram
jafn hratt endi það með ósköpum.
Mannfjöldaklukkan bilaði líka f
fyrra en þá sýndi hún tilkomu
milljarðasta Indverjans átta mán-
uðum of fljótt. Á myndinni er fólk
á leið til vinnu sinnar í Kalkútta.
Varað við enn verri tölvuveirum en „ástarveirunni“
Tilræði við efnahagslífíð
Washington. Reuters.
FRAM kom á Bandaríkjaþingi í
gær að lítið væri unnt að gera til
að koma í veg fyrir enn verri
tölvuveirur en „ástarveiruna",
sem olli miklum usla um allan
heim í síðustu viku. Þykir raunar
hætta á að veirur af þessu tagi
geti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir efnahagslífið í heiminum.
Sérfræðingar, sem komu fyrir
vísindanefnd bandarísku full-
trúadeildarinnar, sögðu að „ást-
arveiran" ætti að verða víti til
varnaðar þeim, sem geyma mjög
mikilvægt efni á hörðum diskum,
enda sé alveg víst að fram komi
nýjar tölvuveirur, sem séu miklu
skaðlegri og erfiðari viðfangs.
Áætlað er að tjónið vegna „ástar-
veirunnar" sé rúmlega 500 millj-
arðar ísl. kr.
Ákveðið stig í
tölvuveiruþróuninni
Harris Miller, forseti samtaka
fyrirtækja í upplýsingaiðnaði,
sagði að líta mætti á „ástarveir-
una“ sem ákveðið stig í tölvu-
veiruþróuninni. Yrði ekki brugð-
ist við af hörku græfi vandinn
undan hinu alþjóðlega upplýs-
ingakerfi og allri þeirri efna-
hagsstarfsemi, sem nú tengist
Netinu.
„Neytendur munu ekki lengur
treysta þessum miðlum, sam-
keppnisgeta fyrirtækja mun
minnka og fjárfestar snúa sér
annað,“ sagði Miller.
Sri Lanka-her verst sjálfsmorðs-
sveitum Tamflsku tígranna
Bldðugir bar-
dagar við Jaffna
Colomho, Nýju Delhí, London. AFP, AP.
BLÓÐUGIR bardagar geisuðu í gær
á Jaffna-skaga, annan daginn í röð,
milli skæruliðasveita Tamílsku tígr-
anna og stjórnarhers Sri Lanka.
Réðust sjálfsmorðssveitir tígranna
gegn vörnum hersins í nágrenni
Jaffna-borgar eftir að Sri Lanka-
stjórn hafnaði á mánudag boði upp-
reisnarmanna um skilyrt vopnahlé.
Átökin hófust snemma í gærmorg-
un er uppreisnarmennirnir réðust á
varnarlið hersins við Thanankillappu
og Ariyalai skammt frá Jaffna-borg.
Ríkisstjómin viðurkenndi að árásar-
sveitirnar hefðu rofið nokkur skörð í
varnarlínuna við Ariyalai og sagði í
yfirlýsingu Ariya Rubasinge, sem
fer með upplýsingamál í stjóminni,
að liðsauki hefði þegar verið sendur
á staðinn. Hann neitaði hins vegar
fullyrðingum tamíla um að þeir
hefðu náð mikilvægri brá og sagði að
herinn hefði hana enn.
Að sögn Rubasinge hélt stjórnar-
herinn aftur af vel vopnum búinni
„öldu árásarmanna". „Uppreisnar-
menn héldu ái’ásunum áfram án
nokkurs tillits til mannfallsins, eink-
um meðal ungra liðsmanna þeirra,“
sagði í yfirlýsingunni þar sem talað
var um árásarmennina sem sjálfs-
mopðssveitir tígi’anna.
Á vefsíðu Tamílsku tígranna stað-
festu uppreisnarmenn frásagnir af
árásunum og kváðust jafnframt hafa
staðið fyrir árásum á þriðju víglín-
una.
í gær hvatti Anuruddha Ratwatte,
vamarmálaráðherra Sri Lanka, alla
225 þingmenn landsins til að senda
100 menn úr hverju kjördæmi í her-
inn til að takast mætti að vinna sigur
á uppreisnarmönnunum. Um 20.000
manna lið þyrfti til að styrkja her-
sveitimar við Jaffna en áætlaður
fjöldi uppreisnarmanna er talinn
vera milli 5.000 og 10.000.
Stríðsskattur
Neyðarlögum var lýst yfir í land-
inu í síðustu viku og fela þau í sér að
her og lögreglu hafa verið veitt aukin
völd, fréttir af stríðsrekstrinum eru
ritskoðaðar, hernum er heimilt að
gera eignir manna og öll ökutæki
upptæk, auk þess sem verkföll og
fjöldafundir eru bannaðir. Þá ákvað
ríkisstjórnin í gær að hækka skatta á
áfengi og sígarettum og vonast fjár-
málaráðuneytið til að þannig takist
að afla 20 milljóna dollara eða um 1,4
milljarða íslenskra króna til stríðs-
rekstrarins.
MORGUNBLAÐIÐ11. MAÍ 2000