Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 48
4 ^ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR EINAR BJARNI HJARTARSON + Einar Bjarni Hjartarson fæddist á Stóru- Þúfu í Miklaholts- hreppi á Snæfells- nesi 20. júní 1926. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness hinn 3. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Einarsdóttir og Hjörtur Hannesson. Systkini hans voru Magnes Signý, látin, Hannes Ágúst, Þor- steinn, Sigríður Þor- gerður, Þórey, látin, Jón og Ás- laug. Hinn 5. janúar 1952 kvæntist Einar Oddbjörgu Ingimarsdótt- ur frá Fossi í Hrunamanna- hreppi í Árnessýslu, f. 9. október 1927. Synir þeirra eru: 1) Grétar, f. 31. maí 1949. Kona hans var Halldóra Tryggvadóttir, son- ur þeirra er Hjört- ur, f. 28. apríl 1979. 2) Sigurður, f. 8. júlí 1954. Kona hans var Valdís Jakobs- dóttir, börn þeirra eru Einar Karel, f. 27. mars 1973, Hilmar, f. 24. apríl 1975, og Lísbet, f. 30. maí 1989. Sambýliskona Sig- urðar er Áslaug Rafnsdóttir. Einar verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þegar Ása hringdi í mig og sagði mér að Einar mágur væri dáinn kom það mér ekki mikið á óvart, hann var búinn að vera mikið veikur og engin von um bata. Þó er það nú þannig, þrátt fyrir að maður viti að hverju fer, að það er eins og dauðinn komi manni alltaf á óvart, slái mann alltaf inni í ’í’ftianni. Eg man eftir Einaii frá því ég var strákur á Niður-Skaganum, rétt við höfnina, en Einsi var sjómaður á þeim ái'um og lengi eftir það. Ég sé hann fyrir mér með uppbrettar erm- ar, fjallmyndarlegan og glaðlegan, vaða upp bryggju á leið heim eftir róður. Það var engin lognmolla þar sem Einar fór. Seinna kynntist ég honum betur þegar ég fór að venja komur mínar inn á Vesturgötu 109 þar sem foreldrar hans og heimasæt- agji Ása bjuggu. Einar var smátíma að samþykkja mig sem mág, hann var svo vandlátur fyrir systur sína, sem var í miklu uppáhaldi hjá honum. Þá fyrst kynntist ég honum náið og fann hvaða gull af manni hann var, hreinn og beinn og mikið hlýr. Hann reyndi stundum að vera hrjúfur og byrsta sig en það tókst sjaldan, það var svo stutt í brosið og hlýjuna. Svona fannst mér Einar. Eins og áður sagði var Einar mikið á sjó en kom svo í land og vann ýmis störf en var lengst af verkstjóri hjá Þórði Óskarssyni hf. á Akranesi. Einar giftist Oddu sinni 5. janúar 1952 og voru þau myndarpar og studdu hvort annað í lífsbaráttunni. Síðustu vikumar vék Odda varla frá Einari og var við sjúkrabeð hans, hvort sem var í Reykjavík eða hér á Skaga, og létti honum baráttuna. Ég kveð Einar með söknuði og þakka fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Ég veit að það verður tekið vel á móti honum þegar hann leggur að hinum megin. Megi Guð blessa minninguna um góðan dreng og hugga þá sem eftir lifa. _ Bjami Ó. Ámason. Þegar ég heyrði lát svila míns og kærs vinar um hálfrar aldar skeið, kom mér í hug spakmæli eftir franska skáldið og nóbelsverðlaunahafann Romain Rolland, þar sem hann segir: Farið og deyið, þér, sem eigið að deyja. Farið og þjáist, þér, sem eigið að þjást. Menn lifa ektó til að vera hamingjusamir. Menn lifa til að uppfylla lögmál mitt. Þjáðstu! Deyðu! En vertu það, sem þú átt að vera-vertumaður. Engan mann hef ég þekkt, sem betur uppfyllti þetta lögmál Romains Rollands að vera maður en Einar Hjartai'son. Heiðarieiki, góðvild, göf- uglyndi og trúmennska voru hans að- al allt hans líf. Kynni okkar hófust þegar hann gekk að eiga þessa góðu eiginkonu sína Oddbjörgu Ingimarsdóttur. Og þori ég að fullyrða að hún heflr verið honum mikið góð eiginkona alla þeirra sambúð. Hann var mikill heim- ilisfaðir og börnum sínum og bai-na- börnum blíður og góður faðir og afi. Einar fór í Stýrimannaskólann og var hann stýrimaður á bátum á Akranesi í nokkur ár. Eftir að hann fór alfarið í land fór hann að vinna hjá Fiskverk- unarhúsi Þórðar Óskarssonar, fyrst sem bifreiðarstjóri í stuttan tíma, var fljótt gerður að verkstjóra hjá því fyr- irtæki. Árin 1953-55 byggðu þau sér einbýlishús á Brekkubraut 16. Árið 1976 seldu þau það hús og keyptu hæð á Vesturgötu 125 sem var mjög stutt frá vinnustað hans og hygg ég að aðalástæðan hafi verið sú að geta fylgst betur með öllu á staðnum. Er ég fullviss um það að varla hefur liðið nokkurt það kveld að hann færi ekki út í frystihús áður en hann gekk til náða til að líta yfir og athuga hvort allt væri í lagi. Einar var svo yfir- verkstjóri og Oddbjörg við gæðaeftir- lit um árabil eða þar til fyrirtækið hætti rekstri. Er mér kunnugt um að þau voru bæði mjög vel liðin af starfs- fólki og ekki síður af eiganda fyrir- tækisins. Þegar þau voru sextug færði fyrirtækið þeim mjög vönduð gullúr með nafnáletrun og með þakk- læti fyrir unnin störf. Þetta kunnu þau vel að meta og veit ég að þau héldu mikið upp á eiganda fyrirtækis- ins. Fyrir utan sitt kæra heimili hafði Einar mikla ánægju af að renna fyrir lax og silung og fór hann oftast með konu sinni eða sonum í ár og vötn í Borgarfirði og á Mýrum. Ég læt hér fylgja eitt erindi úr Ein- ræðum Starkaðar eftir stórskáldið Einar Ben.: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúistvið atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í bijósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. Og annað fagurt ljóð eftir hið ást- sæla skáld Tómas Guðmundsson: I dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt Ijóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfst þú út á hafið, hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri og því vai'ð allt svo hjóttvið helfregn þína, sem hefði tóökkur gígjustrengur brostið. Og ég veit margt hjarta, harmi lostið. sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki. Nú er skarð fyrir skildi, nú er horf- inn yfir móðuna miklu, þessi ástkæri og góði maður. Sár er harmur vina, systkina, bama og bamabama, en sárastur er harniur elskulegrar eigin- konu, sem nú syrgir ástkæran eigin- mann og vin. „Ég er ekki dáin, um bústað þó ég breyti, ég bý í þér og lifi, sem manst mig enn og grætur. Sál mín, sú þú unnir, saman þinni er runnin.“ Hafðu hjartans þökk fyrir allar ánægjustundimar sem við höf- um átt saman, og bið ég algóðan Guð að styrkja alla aðstandendur og varð- veita sál þessa framliðna vinar okkar. Fyrir hönd fjölskyldunnar Akur- gerði 1, Rvk. Leifur Eiríksson. Einar minn, nú er komið að kveðju- stund. Þú hefur verið svo ótrúlega sterk- ur í gegnum veikindi þín. En þrátt fyrir bjartsýni og góðar vonii’ um tíma varðst þú að lúta í lægra haldi. Þegar ég minnist þín kemur fyrst upp í hugann glaðværð og hlýja. Álltaf var stutt í hláturinn. Þú unnir fjölskyld- unni heitt og dróst aldrei dul á hvers virði Odda þín og strákarnir vora þér. Bamabörnin þín fengu svo sannar- lega að njóta þess góða frá þér. Þér þótti ekki leiðinlegt ef minnst var á Lísbetu þína sem var gullmolinn þinn, enda eina stelpan í hópnum. Þú ert nú sá þriðji af þínum systkinum sem þessi illvígi sjúkdómur tekur. I raun er svo stutt síðan þú varst í fullu fjöri og vannst fullan vinnudag. Að þú tækir þér frí var ekki inni í myndinni, svo vinnusamur varstu. Nú ertu far- inn elsku Einar, undir lokin vai'ðstu orðinn þreyttur. Það var erfitt að horfa á þig fara svona. Elsku Odda mín og fjölskylda, þið hafið átt erfitt undanfarið meðan þið vöktuð yfir Einari til hinstu stundar. Ég bið Guð að gefa ykkur styrk í sorginni og einnig systkinum Einai-s og öðram ástvinum. Takk fyrfr allt og allt, elsku frændi. Guð geymi þig. Þín bróðurdóttir, Ólöf. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. R A 3 A U G L V S 1 N G A | TILBQÐ/ÚTBOÐ I Útboð Vid byggjum nýtt Far- fuglaheimiH í Reykjavík Bandalag íslenskra farfugla óskar eft- ir tilboðum í byggingu annars áfanga Farfuglaheimilisins í Reykjavík, þar sem gert er ráð fyrir gistirými fyrir 98 manns, gestaeldhúsum og stækkun setustofa. Stærð nýbygginganna er 1048 m2/3568 m3. Um er að ræða nýbyggingu í tveim- ur álmum sem tengjast núverandi húsi. Skila skal húsinu fullbúnu og eru verklok í maí 2001. Burðarvirkið er járnbent steinsteypa, en húsið er einangrað að utan og klætt með báruáli. í útboðsverk- inu felst m.a. eftirfarandi: Færa holræsa- lögn borgarinnar sem liggur í gegnum lóðina, grafa grunn, fylla upp undir sökkla, steypa upp húsið, einangra, setja í glugga og loka því, setja upp létta veggi, koma fyrir hreinlætis- og hita- lögnum, loftræsilögnum og raflögnum, mála, dúkleggja og setja upp innrétting- ar. Útboðsgögn verða afhent í Farfugla- heimilinu, Sundlaugavegi 34, 104 Reykja- vík, frá og með kl. 13.00 mánudaginn 8. maí gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 22. maí kl. 13.00 á sama stað. Bandalag íslenskra farfugla, Sundlaugavegi 34,104 Reykjavík, sími 553 8110, fax 588 9201. Netfang: markus@hostel.is. HÚSIMÆDI ÓSKAST Einbýlishús eða stór íbúð óskast. Þarf að hafa lágmarktvö stór svefnher- bergi og góða skrifstofuaðstöðu vegna rekst- urs. Öruggar greiðslur með tryggingu og fyrir- framgreiðslu ef óskað er. Leigutími lágmark 1 ár. Upplýsingar í síma 863 0016. NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Gránugötu 6, Siglufirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Eyrargata 20, neðri hæð, Siglufirði, þingl. eig. Magnús Kristinn Ásmundsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna, mánudaginn 15. maí 2000 kl. 13.30. Eyrargata 3, íbúð á 2. hæð, Siglufirði, þingl. eig. Sigurður Konráðsson og Jónína Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur l’búðalánasjóður og Islandsbanki hf., útibú 563, mánudaginn 15. maí 2000 kl. 13.30. Hvanneyrarbraut 54, 2. hæð til vinstri, 0301, Siglufirði, þingl. eig. Brynhildur Baldursdóttir og Jóhann Ottesen, gerðarbeiðandi íbúða- lánasjóður, mánudaginn 15. maí 2000 kl. 13.30. Lindargata 5, Siglufirði, þingl. eig. Sigurður Fanndal, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Islandsbanki hf„ útibú 563, mánudaginn 15. maí 2000 kl. 13.30. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 10. maí 2000. Björn Rögnvaldsson. SMÁAUG FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MORKINNI6 - SlMI 568-2533 Fuglaskoðunarferð FÍ og Náttúrufræðiféiagsins laug- ardaginn 13. maí kl. 9.00. Brottför frá BSI og Mörkinni 6. Sérf ræðingar með i för og vorboðarnir komnir til lands- ins. Takið með ykkur góða sjón- auka og hlífðarfatnað. Verð kr. 1.800 fyrir fullorðna. Allir vel- komnir. Krýsuvíkurleið, 3. áfangi sunnudaginn 14. mai kl. 13.00. Fararstjóri: Jónatan Garðarsson. Verð kr. 1.400 fyrir fullorðna. Allir velkomnir. Hraunin við Straumsvík 17. maí kl. 20.00. Vinnuferðir í flesta skála fé- lagsins framundan. Vinnufúsir skrái sig á skrifstofu sem fyrst. Hjálpræðisherinn Kl. 20.30 Lofgjörðarsam- koma í umsjón majór Knut Gamst. Ofurstalautinant Marit Berre talar. Allir hjartanlega velkomnir. I.O.O.F. 11 = 18151 IVz = Lf. I.O.O.F. 5 = 1815117 =1.f. DULSPEKi Skyggnilýsingafundur í kvöld, 11. maí, kl. 20.30, á Soga- vegi 108, Rvik, 2. hæð (fyrir ofan Garðsapótek). Hús opnað kl. 20. Miðav. kr. 1.200. TILKYNNiNGAR Sálarrannsóknarfélag íslands Sálarrannsóknar- félagið Sáló, « 1918-2000, Garðastræti 8, Reykjavík. Hugleiðslukvöld í kvöld í um- sjá Jórunnar Sigurðardóttur og Agnesar Þórhallsdóttur í Garðastræti 8 kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20.10. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. SRFÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.